Morgunblaðið - 19.07.1980, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 19.07.1980, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ1980 11 Á ferð um Úlfar Sveinsson bóndi og oddviti. í baksýn má sjá Drangey. SKAGAFJÖRÐ í annari viku júlímánaðar var blaða- maður Morgunblaðsins á ferð um Skaga- f jörð í blíðskaparveðri, og átti þá viðtöl við Xmsa menn bæði til sjávar og sveita. Árangur ferðarinnar birtist í nokkrum greinum á næstunni, og fer fjrsta viðtalið hér á eftir. Rætt verður við Ulfar Sveinsson, bónda og oddvita á Syðri-Ingveldarstöðum á Reykjaströnd. Skammt utan við Sauðárkrók býr Úlfar Sveinsson, bóndi og oddviti Skarðshrepps, á Syðri-Ingveldarstöðum miklu fjárbúi í félagi við föður sinn Svein Sveinsson, sem býr á Y tri-Ingveldarstöðum. Þeir feðgar eiga á 600 fjár og nýlega var Úlfari veitt leyfi til að hefja refarækt. Blaðamaður ræddi við Úlfar um búskapinn, oddvitastarf- ið og hina nýju búgrein, refaræktina. Hver er ástæðan fyrir því að um helmingur bæja hér á ströndinni hefur farið í eyði? Megin ástæðan er sú að flestar þeirra jarða sem farið hafa í eyði voru litlar af landkostum og þannig háðari sjósókn og þegar fiskurinn hvarf úr Skagafirðinum var ekki hægt að halda bú á þessum jörðum. Þær jarðir sem eftir eru hér á Reykjaströndinni eru því flestar samruni tveggja eða fleiri jarða. Oddviti frá 26 ára aldri Úlfar Sveinsson hefur verið oddviti Skarðshrepps frá 26 ára aldri eða í 10 ár, og á þeim tíma hefur Skarðshreppur vaxið og fólksfjölgun orðið nokkur, gagn- stætt því sem gerst hefur í öðrum hreppum í sýslunni. Úlíar Sveinsson Syðri-Ingveldarstöðum á Reykjaströnd: I refaræktiimi f elast ýmsir möguleikar Ingveldarstaðir eru góð bújörð Hvernig bújörð eru Ingveldar- staðir? Ingveldarstaðir nýju eru eigin- lega fleiri en ein jörð, því að með jörðinni teljast nokkur kot sem áður voru í byggð, eins og Hólakot og Sveinskot. Þannig má segja að samruni nokkurra misstóra jarða geri samanlagt eina góða bújörð, sem Ingveldarstaðir eru. Ég myndi þó telja þessa jörð sérlega góða til að halda fé, sökum þess að við getum alið fé á fjörubeit framan af vetri og fram yfir fengitímann. Fjörubeitin hefur sparað okkur ómælt heymagn í gegnum tíðina, sem kom sér m.a. vel í vetur eftir harðindasumarið sl. ár. Þrátt fyrir lélegt sumar áttum við firningar eftir veturinn, sem þakka má fjörubeitinni að miklu leyti. Sjórinn hefur alla t íð reynst bændum á Reykjaströnd drjúg búbót og allt fram tril 1%0 var gert út á grásleppu frá hverjum bæ. Tveir bæir gera ennþá út héðan af Reykjaströndinni, en ég er hættur því fyrir nokkrum árum. Engu að síður höfum við ýmis not af sjónum, bæði hvað varðar fjörubeitina, en einnig fáum við nokkuð af silungi í net hér meðfram ströndinni, sem fer ein- göngu til heimilisnota. Þá má einnig nefna, að hér rétt út af landi er hólmi þar sem um 300 æðarkollur verpa, en af þeim fást nokkur kíló af dúni á ári. Segðu mér eitthvað frá oddvita- starfinu, og hvernig hefur þér tekist að sameina oddvitastarfið og bústörfin? Oddviti gegnir svipuðu hlut- verki og bæjrarstjórnar í bæjum. Þvj fylgja ýmis konar stjórnsýslu- störf og segja má að, innheimta gjalda sé þar veigamikill þáttur. Oddviti er einnig formaður sveit- arstjórnar og hann situr í mý- mörgum nefndum fyrir hreppinn, sem taka tíma frá bústörfunum. Mér hefur þó tekist að sameina þetta fram að þessu, en ég þakka það ekki síst því að ég á fé en ekki kýr. Kýrnar þurfa meiri og jafn- ari umönnun, og þegar maður situr oft á fundum langt fram eftir kvöldi, yrði mjög erfitt að stunda kúabúskap. Refaræktin gefur ýmsa möguleika Úlfari var nýlega veitt leyfi til þess að hefja refarækt, og ég spurði í framhaldi af því um tildrög þessarar hugmyndar og um möguleika refaræktar á ís- landi. í nokkur ár hefur verið mikill áhugi meðal bænda hér í Skaga- firði á loðdýrarækt, og eins og menn vita er á Sauðárkróki starf- rækt stórt minkabú sem gengiö hefur ágætlega. í ársbyrjun 1979 stofnuðum við 20 bændur í Skaga- firði Félag áhugamanna um loð- dýrarækt í Skagafirði, og sóttum þá strax um leyfi til ráðherra fyrir refabúum. Okkur var hafnað um leyfið í fyrra, þar sem aðeins nokkrum aðilum í grennd við Grenivík var þá úthlutað leyfum. Þannig má segja að við höfum talið okkur standa þessu næst þegar leyfum var aftur úthlutað í vor, en þá fengu 8 bændur í Skagafirði leyfi. Af mörgum ástæðum er það hentugt fyrir bændur í sömu sýslu að starfrækja refabú, þar sem þeir geta þá sameinast um bygg- ingu fóðurblöndunarstöðvar sem nauðsynlegt er að reisa, því fáir eru svo stórir í sniöum að þeir ráði við að byggja slík mannvirki einir. Þess má geta að í nágranna- löndum okkar sameinast bændur í nágrannabyggðalógum einmitt um slíkar fóðurblöndunarstöðvar. Við bændurnir í Skagafirði er- um hins vegar svo heppnir að þurfa ekki að byggja blöndunar- stöð, vegna þess að nýlega er lokið við byggingu einnar slíkrar sem er í eign minkabúsins á Sauðár- króki og við munum geta keypt allt okkar fóður frá þeirri stöð. Einn aðalkosturinn við refahald, er sá, að refurinn þolir eldri fóðurblöndur en minkurinn og er því harðgerðari og auðveldari í fóðrun. Hversu stórt verður þitt bú? Ég sótti um að fá 30 læður, og það er venja að áætla að fyrir hverjar þrjár iæður þurfi eitt karldýr. Ég fæ mín dýr frá Grenivík, vonandi strax í haust, en það eru þá lífdýr frá því vor. Samkvæmt áætlun ætti ég þá að fá mína fyrstu yrðlinga næsta vor. Það er hins vegar ekki hlaupið að því að hefja búskap, sem þennan, því byggja þarf sérhönn- uð hús og traustar girðingar. Áætluð fjárþörf til stofnunar refabús með 30 læðum eru 18 milljónir eða 600.000 á hverja læðu, en það má geta þess, að við höfum fengið vilyrði fyrir fjár- magnsfyrirgreiðslu af hálfu ríkis- ins. Það sem gerir refabúskap öðru fremur freistandi er lágt fóður- verð, mikil frjósemi dýranna og tiltölulega hátt verð fyrir skinnin. Eftir að læða er orðin eins árs þykir það lélegt, ef hún gefur ekki af sér fleiri en 6 yrðlinga á ári. Ég býst við, að eftir að maður er kominn af stað í þessu, gangi þetta ágætlega, allavega ætla ég að byggja mín hús og girðingar með það fyrir augum að ég geti stækkað búið ef reynslan segir að það verði hagkvæmt. Fulltrúi Skagfirðinga 1 kynnisferð til Svíþjóðar ok Finnlands Úlfar er nýlega kominn úr boðsferð um tvö Norðurlönd, þar sem fulltrúum 17 búnaðarsam- banda var boðið af Stéttasam- bandi bænda til að kynna sér loðdýra- og feldfjárrækt. Hvað var athyglisverðast úr þessari ferð og hvert var farið? Við kynntumst því hvernig grann- ar okkar standa að þessum mál- um, í Finnlandi var okkur kynnt loðdýrarækt og í Svíþjóð fengum við að sjá hvernig staðið er að feldfjárrækt. Til upplýsingar má nefna, að Finnar eru mjög stórir í refa- ræktinni, þeir framleiddu á síð- asta ári yfir helming af framlei- ddum refaskinnum í heiminum sem voru 2 milljónir. Það sem vakti athygli mína var sú reynsla bæði Svía og Finna, að skinnin væru betri frá búum sem eru norðarlega í löndunum og það gefur ástæðu til bjartsýni á fram- tíð refaræktar hér norður á ís- landi. Þrátt fyrir að nýrri búgrein fylgi eðlilega nokkur áhætta þá er ég þeirrar skoðunar, að í þessu tilfelli sé hún frekar lítil, markað- ir fyrir refaskinn eru stöðugir ár frá ári og eftirspurnin jöfn. Að frátaldri loðdýraræktinni voru okkur kynntir ýmsir mögu- leikar í feldfjárrækt, en í þeirri grein standa Svíar framarlega. Einkum eru það gráar gærur af gotlensku fé sem njóta vinsælda til pelsagerðar, en þess má geta að gráar íslenskar gærur hafa lítil- lega verið kynntar til pelsagerðar. Munurinn á ullinni af gotlensku fé og íslensku er sá, að gotlenska ullin er hrokkin alveg niður að skinni, en sú íslenska er slétt. Auknar vinsældir islensku ull- arinnar má hins vegar ekki síst rekja til þess, hversu létt hún er, og einnig, að hún nýtist betur en sú gotlenska. í einn pels þarf 5 íslenskar gærur á móti 6 got- lenskum. Á síðasta ári voru gotlenskir pelsar seldir á ísl. kr. 430.000, á meðan íslenskir voru sekdir á ísl. kr. 350.000, og það þykir ekki mikill munur, þegar þess er gætt hve lítil ræktun hefur verið stunduð hér á landi. Að mínu viti ættu bændur að kynna sér betur feldfjárræktina, og leggja áherslu á að fá fram séreinkenni íslensku ullarinnar í stað þess að reyna að breyta henni. Islenskir bændur, sem hyggjast rækta feldfé eiga að leggja áherslu á að fá fram sem jafnast- an gráan lit, sem er tískulitur nú, en það má geta þess að það er mjög auðvelt að fá fram ætlaða liti í ræktun sauðfjár. Bændum er bannað með löKum að selja gærur sínar þar sem hag- kvæmast er Hvernig er staðið að sölumálum varðandi gærurnar? Sölumálin eru eitt mikilvægasta vandamálið sem blasir við í þessari atvinnu- grein. Eins og málum er háttað í dag er bændum bannað með lögum að ráðstafa sínum gærum eftir eigin geðþótta, og leita hagstæðustu leiða til að koma þeim í verð. Sem dæmi má nefna að í Svíþjóð gilda allt aðrar reglur. Þar ræður bóndinn því sjálfur hvernig og hvar hann lætur fullvinna sína gæru, hann borgar kostnaðinn en fær í stað- inn í eigin hlut, það verð sem fyrir gæruna fæst. Ég get nefnt dæmi að á síðasta ári fengu sænskir bændur 25.000—30.000 ísl. kr. fyrir sínar gærur, á meðan ís- lenskir bændur fengu 2.500—3.000 ísl. kr. Þrátt fyrir að þetta sé einfaldur samanburður þá eru mýmörg svipúð dæmi sem stað- festa að sölukerfi okkar er afleitt. Fyrsta tilraunin til að brjótast út úr þessu kerfi er sú að 10—11 bændur á Mýrum hyggjast stofna með sér feldfjárræktarfélag. Hvernig líst þér á stöðuna í íslenskum landbúnaði? Ég er þeirrar skoðunar að við höfum ýmsa möguleika til að komast úr þeim vanda sem við blasir ef menn hafa vilja til þess. Atvinnugreinar eins og fiskir'ækt, loðdýrarækt eða feldfjárrækt eru spor í áttina, og ég er því bjartsýnn á framtíðina ef menn nota samtímis hugmyndaflugið og skynsemina. TEXTI: FRIDRIK FRIÐRIKSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.