Morgunblaðið - 19.07.1980, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1980
19
í tilefni af áttræðisafmæli Elisabetar drottninjíarmóður í Knulandi í næsta mánuði. hefur veriö tekin
opinber mynd af fjölskyldunni ok sjást hér nánustu meðlimir kónKsfjölskyldunnar. Fremri röð frá
vinstri: Mart?rét prinsessa, Elísabet drottnintc. Elisabet drottninjíarmóðir ok Anna prinsessa. í aftari
röð: Linley ok Sarah Armstrontí Jones. börn Marttrétar. Andrew Bretaprins, Phiíippus prins, Karl
krónprins. Edward. vntjsti sonur Bretadrottnintfar. otí Mark Philipps. rnaóur Önnu.
Ólympíueldurinn
kominn til Moskvu
Moskvu. 18. júli. AP.
SUNDKONAN Marina
Koshevaya hljóp með
ólympíueldinn inn i
Moskvu í dag þar sem
hrifnir áhorfendur brut-
ust í gegnum lögregluvörð
og slógust í för með henni.
Um 5000 hlauparar hafa
borið eldinn tæplega 5000
km leið frá Olympos í
Grikklandi.
Við styttu Yrui Dolgorki, sem
talinn er faðir Moskvu, var hátíð-
leg athöfn. íþróttamenn gengu
fylktu liði með fána Olympíuleik-
anna og Koshevaya bar eldinn að
stórum bronsskyldi. Þúsundum
blaðra var sleppt lausum og í
hátölurum hljómaði „Velkomnir
til Moskvu, ólympíuleikar".
Borgarstjóri Moskvu, Vladimir
Promyslov og formaður skipulags-
nefndar leikanna Ignati Novikov
fluttu ræður. „Látum hinn skæra
Óttast að írakar hafi
bolmagn til að fram-
leiða atómsprengjur
Tel Aviv. 13. jnli. AP.
ÍSRAELSMENN óttast nú, að
írakar muni hafa holmagn til að
framleiða kjarnorkusprengju
með tækniaðstoð og hráefnum
frá Frakklandi. Yigael Yadin,
sem nú gegnir störfum forsætis-
Verkföll
í Lublin
Varsjá. 18. júll. AP.
ATVINNULÍF í pólsku borginni
Lublin var nánast lamað á föstu-
dag vegna þess að samgöngur
lágu niðri vegna verkfalla.
Krefst starfsfólk járnbrauta,
leigubiia og almenningsvagna
hærra kaups og einnig gerði
töluverður hluti afgreiðslufólks
verkfall, en það mun þó ekki hafa
orðið eins almennt og hafði verið
búizt við.
Hins vegar sögðu talsmenn
verkfallsmanna að borgarar í
Lublin hefðu sýnt mikla samstöðu
með verkfallsfólki.
í borginni Lublin, sem er í
austurhluta Póllands, búa um 300
þúsund manns. AP segir að mið-
borgin hafi að kalla verið mann-
laus og ró og friður yfir öllu.
ráðherra i veikindaforföllum
Menachims Begins, skýrði frá
þessu í Tel Aviv í dag.
„Við höfum af þessu þungar
áhyggjur," sagði Yadin við
fréttamenn og hann skýrði frá því,
að Israelsmenn hefðu komið boð-
um áleiðis til frönsku stjórnarinn-
ar og lýst áhyggjum sínum.
Frakkar selja Irökum kjarnaofna
og einnig úraníum. Yuval Neeman,
ísraelskur kjarnorkusérfræðingur
áætlar að Irakar muni hafa bol-
magn til að framleiða kjarnorku-
sprengju innan tveggja ára. Orð-
rómur er uppi um að nokkur
Arabaríki vinni ötullega að því að
framleiða kjarnorkusprengju.
Þrálátur orðrómur hefur verið á
kreiki um árabil að ísraelsmenn
hafi þegar framleitt kjarnorku-
sprengjur. Þeir hafa hvorki neitað
né staðfest það; aðeins sagt að
Israelsmenn muni ekki verða
fyrstir til að beita slíkum vopnum
fyrir Miðjarðarhafsbotni.
Ólympíueld lýsa upp keppni þáttt-
akenda frá öllum heimsálfum í
nafni hinnar háleitu Ólympíu-
hugsjónar, friðar, skilnings og
vinskapar milli þjóða Jarðarinn-
ar,“ sagði Novikov meðal annars.
Á morgun, laugardag, verður
eldurinn borinn inn á Lenin-
leikvanginn þar sem Ólympíuleik-
arnir verða formlega settir. Setn-
ingarathöfnin verður með öðru
sniði en venjulega þar sem þátt-
takendur frá 10 þjóðum, af þeim
81 sem þátt taka í leikunum, verða
ekki viðstaddir athöfnina og
þátttakendur frá 30 ríkjum munu
ekki bera fána þjóða sinna.
Er
þetta gert í mótmælaskyni við
innrás Sovétmanna í Afganistan
en 36 ríki hafa ákveðið að taka
ekki þátt í leikunum af þeim
orsökum.
Að öðru leyti verður setningar-
athöfnin með venjulegu sniði.
Leonid Breznev, forseti Sovétríkj-
anna mun setja leikana formlega
eins og segir til um í reglunum um
þá, en heldur enga tölu.
Indverjar senda
gervihnött á
braut um jörðu
Nýju Delhi. 18. júll. AP.
INDIRA Gandhi forsæt-
isráðherra Indlands til-
kynnti indverska þinginu
í gær að Indverjar hefðu
skotið á loft gervihnetti á
föstudag í s.I. viku. Þing-
Anderson
vongóður
Lundúnum. 18. júli. AP.
BANDARlSKI fulltrúadeildar-
þingmaðurinn John B. Anderson
flaug i dag aftur til Washington
að lokinni fimm landa kynn-
ingarför vegna framboðs hans til
embættis Bandaríkjaforseta. Áð-
ur en hann fór frá Lundúnum
sagði hann að sjálfstætt framboð
hans kynni vel að bera tilætlaðan
árangur.
„Ég geri ráð fyrir að Jimmy
Carter fari að dala í skoðanakönn-
unum og mínu fylgi að vaxa fiskur
um hrygg" sagði þingmaðurinn.
Hann sagði að sameiginlegt fram-
boð þeirra Reagans og Bush væri
sín mesta uppörvun í kosninga-
baráttunni til þessa. Hann lýsti
því einnig að viðræður hans og
ísraelskra, egypzkra, vestur-
þýzkra, franskra og brezkra
stjórnmálamanna síðustu ellefu
daga hefðu gert hann einkar
vonglaðan um sigurhorfur sínar.
hoimur fagnaði þeirri til-
kynnintru ráðherrans.
Hnötturinn hefur fengið nafnið
„Rohini" og var skotið á loft frá
Sriharikota eyju undan suður
Indlandi. Sagði Gandhi að síðustu
fréttir hermdu að allt hefði gengið
vel og hnötturinn starfaði eins og
best væri á kosið. Indverjar eru
sjötta þjóð heimsins sem sendir
gervihnött á braut umhverfis
jörðu. Gandhi sagði að hnetturinn
og eldflaugin væru bæði hönnuð
og framleidd af Indverjum og
hefði kostnaðurinn verið um 25
milljónir Bandarikjadala (12
milljarðar isl. króna).
Nýr Botswana-
forseti
Gaborne, Botswana. 18. júli. AP.
QUETT Masire, varaforseti Bots-
wana var i dag kjörinn forseti
landsins á sérstökum þingfundi i
dag. Masire sem var einnig fjár-
málaráðherra og aðalritari stjórn-
arflokksins i landinu tekur við af
Sir Seretse Khama. sem lézt úr
magakrabha um sl. helgi.
Masire flutti ávarp eftir að kjöri
hans hafði verið lýst, fór fögrum
orðum um hinn látna forseta og
sagðist mundu reyna eftir megni að
fylgja fordæmi fyrirrennara síns.
Miðað við mörg Afríkuríki hefur
ríkt stjórnmálaleg festa og kyrrð í
Botswana frá því það fékk sjálf-
stæði frá Bretum árið 1966.
Veður
Akureyri 11 þokaí grennd
Amsterdam 19 skýjaó
Aþena 36 heióskírt
Barcelona 27 heiðskírt
Berlín 16 skýjaó
BrUasel 18 skýjaó
Chicago 32 heiðskirt
Denpasar 30 skýjaó
Dublin 18 skýjaó
Feneyjar 24 heióskirt
Frankfurt 18 skýjað
Genf 22 skýjaö
Jerúsalem 31 heióskirt
Jóhannesarborg 14 heiöskirt
Kaupmannahöfn 15 skýjað
Las Palmas 24 léttskýjaó
Lissabon 34 heióskirt
London 18 skýjaó
Los Angeles 31 heióskirt
Madríd 27 heióskirt
Malaga 25 heiðskírt
Mallorca 26 léttskýjað
Mexicoborg 25 skýjaó
Miami 29 heióskirt
Moskva 21 skýjaó
Nýja Delhi 32 skýjaó
New York 32 heióskírt
Ósló 22 skýjaó
París 21 skýjaó
Reykjavík 13 þokumistur
Rio de Janeiro 28 heióskírt
Rómaborg 29 heióskírt
Stokkhólmur 15 rigning
Sydney 19 heiöskirt
Tel Aviv 30 heióskirt
Tókýó 21 rigning
Vancouver 20 skýjaó
Vínarborg Þórshófn, 21 heióskírt
Ftereyjum 10 alskýjað
Ánægja í Evrópu
með valið á Bush
ERLENT
Lundúnum. 18. )úli. AP.
VIÐBRÖGÐ evrópskra
dagblaða við vali Ronalds
Reagans á varaforsetaefni
hafa að jafnaði lýst vel-
þóknun.
í leiðara brezka blaðsins
The Times var þó farið
hörðum orðum um ákvörð-
un Reagans. Þar sagði:
„Þær kringumstæður, er
valinu réðu, hljóta að
skaða haráttu Reagans
stórlega. í stað þess að
kynna Bush sem hæfasta
manninn sem völ var á,
tókst Reagan með einkar
ólánlegum hætti að draga
athygli manna að því að
hann væri aðeins næst-
bezti kosturinn.“
thaldsblaðið The Daily Mail var
hins vegar bjartsýnna: „Sennilegt
er“, sagði blaðið, „að Bush verði
Reagan þægilegri meðframbjóð-
andi en Ford hefði orðið, þar sem
forsetinn fyrrverandi myndi hafa
haft tilhneigingu til að líta á sig
sem jafningja Reagans."
í óvenjulegum austur-evrópsk-
um leiðara sagði ungverska dag-
blaðið Magyar Nemzet að Bush
væri talinn með hófsamari repú-
blikönum og væri hann
íhaldssamur í utanríkismálum.
Norska blaðið Arbeiderbladet
sagði að valið á Bush bæri vott um
hagsýni.
Otbreiddasta blað Norðmanna,
Aftenposten, sagði að Bush myndi
draga úr áhyggjum þeirra, sem
óttast hefðu að Reagan kynni að
stefna um of til hægri. „Það
verður að segjast að Reagan byrj-
aði vel ... með því að velja Bush
sagði blaðið. í Berlingske í Kaup-
mannahöfn sagði að Bush hefði
„ýmislegt til að bera, sem Reagan
skorti“.
Hollenska dagblaðið Trouw
sagði að val Reagans á Bush hefði
verið „framúrskarandi" þar sem
snúið væri baki við „ógæfulegu
vali repúblikana í fortíðinni“. De
Telegraph í Amsterdam var sam-
mála og sagði Bush vinsælan með
bandarísku þjóðinni.