Morgunblaðið - 19.07.1980, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ1980
MORÖ-dK/
KAFFÍNU
I
Það færi bctur við sósulitinn, að
þú litaðir hárið þitt i sama lit?
Ég hafði alltaf óskað þess að fá
starf í tengslum við dýr.
Segðu mér: Ef þér nú tekst um
síðir að kveikja eld. mun það
hafa einhverja þýðingu í för
með sér?
ást er...
1 o 1-'#!
... ástarsœla
í bátsferð.
TM Rea. U.S. Pat. Off.—all rights reserved
© 1980 Los Angeles Times Syndicate
Bilaviðfíerðirnar hér hjá okkur
standa fyrir sínu þó druslurnar
lagist ekki við það.
BRIDGE
Umsjón: Péll Bergsson
Spila þarf vel úr J)egar sagt er
djarflega á spilin. I dag reynum
við smáþraut, og vonandi verða
allir með á nótunum.
Norður gefur en hættur skipta
varla máli.
Norður
S. D92
H. K97
T. ÁDG103
L. K6
Suður
S. G4
H. ÁD3
T. 8
L. ÁDG10532
Eftir að makker, norður, opnar
á einum tígli halda okkur engin
bönd. Við endum í 6 laufum.
Austur og vestur segja alltaf pass
og við erum heppin með útspilið
þegar vestur leggur lágt tromp á
borðið. Hvað svo?
Ég spyr nú bara til sísona eftir svona drullubað. —
Fæ ég nokkurntíma tækifæri til að gjalda henni í
sömu mynt?
1. desember verði notaður
til menningarlegra athafna
Furðulegt er að heyra margt
ungt fólk tala um sjálfstæði Is-
lendinga 1944. Þessa vanrækslu í
sögukennslu verður að skrá á
reikning skólanna. Fyrir nokkru
var í sjónvarpinu kynningarmynd
um Island og sagt var að við
hefðum fengið sjálfstæði árið
1944. Hvað er sjálfstæði? Það
getur verið allt mögulegt. T.d. eru
Færeyingar og Grænlendingar að
nokkru leyti sjálfstæðir. Island
varð óháð og fullvalda ríki 1918
með lánaðan kóng hjá Dönum.
Sendiherrar voru einnig að láni.
Sagt var að íslendingar hefðu
snúið á Dani í samningunum.
Samt sem áður vorum við, sem þá
vorum að vaxa úr grasi, hvað
óánægðastir og ólundin óx eftir
því sem á leið, þó án þess að við
bærum nokkurn kala til hinnar
ágætu frændþjóðar okkar, Dana.
Þó þetta tímabil 1918—1944 væri
að mörgu leyti þroskandi fyrir
þjóð mína fannst mér, sem uppal-
inn var á sjálfstæðisheimili þar
sem stundum var flaggað með
bláhvítum fána, alltaf heima-
stjórnarbragur á þessu fullvalda
konungsríki okkar.
Þrátt fyrir það var það að mestu
leyti til sóma fyrir tvær friðsamar
og upplýstar þjóðir. Ávöxtur vit-
rænna arfleifða til að jafna
ágreining, án uppþota, kröfu-
gangna og sprellimennsku sem nú
er í há gengi.
Því er það von allmargra að 1.
desember, fullveldisdagurinn,
verði framvegis í heiðri hafður
sem minningardagur um þetta að
mörgu leyti merka tímabil í sögu
okkar. Einnig um þá, sem héldu
reisn sinni í kreppu og óáran án
styrkja og opinberrar framfærslu.
Það liggur beint við að láta
verður spaða af hendinni í tígullit
blinds. Tvær leiðir koma þá til
athugunar. Taka má trompin og
svína tíguldrottningunni. En þá
förum vi tvo niður ef austur á
kónginn. Einnig er hugsanlegt að
taka á tígulásinn, spila síðan
drottningunni og láta spaða heima
ef austur lætur lágt. Þannig förum
við einum minna niður ef við
höfum staðsett kónginn vitlaust.
En það er hægt að gera betur.
Tökum útspilið heima og spilum
strax tígli á ásinn. Þvínæst tíg-
uldrottning og láti austur lágt
látum við hjartaþristinn af hend-
inni. Ef vestur á kónginn og ekki
spaðaás má heita öruggt að hann
muni spila hjarta. Við getum bara
sett okkur í spor hans og hvað er
eðlilegra en að álykta út frá okkar
veikleika í hjarta. Þá tökum við á
ásinn, tökum trompin af andstæð-
ingunum og eigum innkomu á
hjartakónginn til að taka tígul-
slagina.
Ekki er víst, að þessi brella dugi
gegn reyndum andstæðingi. En við
höfum þó aukið til muna mögu-
leika okkar.
Pat Kerr:
Læknar með ljósi,
hljóði og tónlist
IIÉR Á landi er nú stödd kanad-
ísk kona, Patt Kerr að nafni í
boði Jóns Sigurgeirssonar og
Úlfs Ragnarssonar, sem reka
heilsuhæli að Varmalandi i
Skagafirði. Patt Kerr starfar
við The Spiritual Science Insti-
tute of Canada og vinnur þar að
rannsóknum á áhrifum hljóðs og
lita á mannslikamann. Blaða-
maður Mbl. hitti Patt Kerr hér i
Reykjavik og bað hana að segja
frá tildrögum heimsóknarinnar
og rannsóknum sínum.
„Ég er hér í boði Jóns Sigur-
geirssonar frá Akureyri og Úlfs
Ragnarssonar, sem reka heilsu-
hæli í Skagafirði. Við Jón hitt-
umst í Kanada í fyrra á National
Health-þingi og bauð hann mér
tii íslands. Þetta er í fyrsta
skipti, sem ég kem hingað og mér
líkar mjög vel við landið og
Islendinga.
Ég rannsaka áhrif hljóðs og
lita á mannslíkamann, hljóð
framkallar lit og bæði er til lita-
og hljóðmynstur. Sem dæmi má
nefna að rauður litur samsvarar c
á tónstiganum, blár samsvarar g,
appelsínugult d, gult e og grænt
samsvarar f. Það hefur komið í
ljós, að of háan blóðþrýsting má
lækna um stundarsakir með blá-
um lit, tóninum g, svefnleysi
hefur verið læknað með djúpblá-
um lit og einnig taugaveiklun og
komið hefur í ljós að bleikur litur
hefur róandi áhrif á óróaseggi.
Líkaminn er byggður af ótal
efnum, sem öll hafa sinn ákveðna
lit og segja má að sjúkleiki stafi
af skorti eða of miklu magni af
tilteknum lit. Þess ber auðvitað
að gæta að engir tveir einstakl-
ingar eru eins, og því er mjög
misjafnt, hvernig einstaklingar
bregðast við, en í sumum tilfell-
um er það sama fyrir alla, gula í
ungbörnum er til dæmis venju-
lega læknuð með bláu ljósi og
lækna má ýmsa húðsjúkdóma
með geislun. Geislun hefur einnig
verið notuð við krabbameins-
lækningar og nú er verið að gera
frekari tilraunir til krabba-
meinslækninga með litum og
ljósi.
Það, sem olli því, að ég fór að
fást við þetta var það, að ég var
mjög veik 1960 og hafði verið í 14
ár án þess að fá lækningu. Þá
kom til Kanada ensk kona og
læknaði mig á þremur mánuðum
með ljósi og litum. Þetta er
fremur sjaldgæf lækningaaðferð,
en þó hafa tónlistarlækningar
haslað sér nokkurn völl. Allir
hlutir í kringum okkur eru ein-
hvern veginn á litinn og hafa
nokkra geislun, og ég vil benda á
tvo hluti, sem eru sérstaklega
hættulegir, en það eru flúor-
centljós og sjónvörp. Geislunin
frá sjónvarpi er verulega mikil og
þó sérlega aftan frá því og til eru
dæmi um að sjónvarp, sem sneri
baki að barnaherbergi, hafi haft
slæm áhrif á barn sem þar svaf.
Ég vil taka það fram, að ég legg
áherzlu á náttúrulega lækningu,
þau efni og hljóð, sem ég nota eru
öll úr náttúrunni," sagði Pat Kerr
að lokum.