Morgunblaðið - 29.07.1980, Síða 1
48 SÍÐUR
168. tbl. 67. árg. ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1980 Prentsmiðja Morgunbiaðsins.
Vopnaðir bylt-
ingarverðir sýna
sigurmerki fyrir
utan bandariska
sendiráðið í Te-
heran vegna
fregna af andláti
fyrrum franskeis-
| ara, og halda á
f>Zi blaði með frásögn
af andláti keisara.
Símamynd — AP.
Jihan Sadat, eig-
inkona Sadats Eg-
yptaforseta, kyss-
ir Reza Pahlevi
son fyrrum ír-
anskeisara er hún
kemur til Kuboeh-
hallar á sunnudag
til að votta
keisarafjöl-
skyldunni samúð
sína vegna and-
láts keisara á
sunnudag. Farah
Diba, móðir Reza
og fyrrum keis-
araynja, horfir á.
Simamynd — AP.
F áir erlendir fulltrúar
við útför Iranskeisara
Hækka
útgjöld?
Tókýó. 2S. júlí. AP.
FJÁRMÁLARAÓHERRA Japans
»K yfirmaður hermála Japana náðu
i dag samkomulagi um 9,7 af
hundraði hækkun útgjalda til her-
mála á fjárhagsárinu er hefst 1.
april næstkomandi.
Hækkunin er i beinu framhaldi af
tillögum sérstakrar nefndar þing-
manna og háttsettra embætt-
ismanna er gerðu ráð fyrir veru-
legum hækkunum á útgjöidum til
hermála og hröðun framkva'mda á
áætiunum um uppbyggingu varna.
Stjórnin á eftir að samþykkja
þessar hækkanir, en ekki er búizt við
að afgreiðsla málsins tefjist og að
það verði jafnvel afgreitt á morgun,
þriðjudag. Forsætisráðherrann ný-
skipaði, Zenko Suzuki, hefur þótt
sýna sterkari vilja til að hækka
útgjöld til hermála en fyrirrennari
hans í embætti, Masayoshi Ohira, er
lézt fyrir skömmu.
Verði af þessum hækkunum táknar
það verulega breytt viðhorf til her-
útgjalda í Japan. Hernaðaryfirvöld
fóru fram á tæpra tíu prósenta
hækkun fyrir yfirstandandi fjár-
hagsár, en fengu ekki nema 6,5%
hækkun. Hefur sú venja viðgengizt
lengi í Japan að útgjöld til hermála
fari ekki umfram 0,9% af þjóðar-
framleiðslunni, en hækkunin fyrir
næsta fjárhagsár fer örlítið upp fyrir
það mark. Jimmy Carter Bandaríkja-
forseti hefur undanfarið lagt hart að
Japönum að hækka útgjöld til her-
mála, og verja til þeirra rúmlega
einu prósenti þjóðarframleiðslunnar.
Sæði bót við
brjóstkrabba
London, 28. júlí. AP.
BANDARÍSKUR læknir hélt þvi
fram i dag. að samfarir væru bezta
vörn kvenna við brjóstkrabba, þar
sem sæðisvökvinn hefði mikiivægu
hlutverki að gegna við að viðhalda
réttu hormónajafnvægi í kvenlíkam-
anum.
Hann sagði að ef hætt yrði að nota
gúmmíverjur og aðrar ámóta verjur
er hindruðu að sæðisvökvinn kæmist í
leggöng kvenna, fækkaði brjóst-
krabbatilfellum strax um helming.
Hann sagði, að komið hefði í ljós við
rannsóknir sínar, að brjóstkrabbi
væri fimm sinnum algengari í konum
er væru vanar gúmmíverjum, miðað
við konur er væru á pillunni eða
notuðu lykkjuna og aðrar ámóta
getnaðarvarnir, og konur er hefðu
samfarir „á örugga tíma“ tíðahrings-
ins.
Kairó. 28. )úli. AP.
ANWAR Sadat, forseti Egypta-
lands. verður i fararbroddi líkfylg-
dar þegar Mohammad Reza Pahl-
evi fyrrum íranskeisari. er lézt á
sunnudag. verður borinn til greftr-
unar i Al Rifaie bænahúsinu i
Kairó á morgun. þriðjudag. Útför-
in verður á kostnað rikisins, en
leiðtogar vestrænna landa höfðu
ekki áætlanir uppi um að vera
viðstaddir útförina. Stjórn Egypta-
lands sendi ekki heldur út formleg
boð til rikisstjórna og þjóðhöfð-
ingja um að vera viðstaddir. og var
þvi tekið með miklum létti viða.
Diplómat, sem kýs að vera ónafn-
greindur, sagði að ýmsir leiðtogar
hefðu komið því til skila við egypsk
yfirvöld. að það væri aðeins til að
koma þeim i bobba að senda
fulltrúa til útfararinnar, þar sem
það kynni að stofna sambandi
Íieirra við núverandi valdhafa í
ran í hættu.
Bandaríkjastjórn tilkynnti í kvöld
að Alfred L. Atherton yngri, sendi-
herra landsins í Kairó, yrði fulltrúi
stjórnarinnar við útförina. Tilkynn-
ingin var ekki birt fyrr en lokið
hafði verið með öllu undirbúningi og
skipulagningu útfararinnar, og er
það talið merki um, að í ráði hafi
verið að senda háttsettari fulltrúa.
Nixon fyrrum Bandaríkjaforseti
verður viðstaddur útförina, en
tengsl Bandaríkjanna og Irans voru
einna nánust i stjórnartið hans.
Auk hans verður Konstantín tólfti,
fyrrum Grikklandskonungur, við-
staddur útförina og sendiherrar
ísraels, Kína, Frakklands og Mar-
okkó.
í sama herbergi í bænahúsinu A1
Rifaie, sem fyrrum íranskeisari
verður greftraður í, voru jarðneskar
leifar föður hans varðveittar á
fimmta áratugnum. Þar var eg-
ypska konungsfjölskyldan einnij;
grafin, en egypsku og írönsku kon-
ungsfjölskyldurnar voru um tíma
tengdar, er íranskeisari fyrrverandi
Washinxton. 28. júli. AP.
HAROLD Brown, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna sagði i
kvöld að kröfur Repúblikana-
flokksins um að Bandarikin næðu
giftist Fawzia systur Farouks kon-
ungs árið 1939. Lík keisara Iá í dag á
viðhafnarbörum í forsetáhöllinni.
Sjá nánar grein um fyrrum
transkeisara á bls. 20 og 29.
fregnir af viðbrögðum við
andláti hans á bls. 46 og 47.
og leiðara á bls. 20.
hernaðarlegum vfirburðum á Sov-
étríkin væru óraunhæfar. og
hættulegar og bæru vott um ein-
feldni.
Hann sagði að slik stefna hefði í
för með sér að allt eftirlit með
vígbúnaði yrði úr sögunni, að mjög
kostnaðarsamt vígbúnaðarkapp-
hlaup hæfist og að hættur á
kjarnorkustyrjöld mögnuðust.
Hins vegar, sagði Brown, væri sú
stefna Carters forseta að viðhalda
núverandi vægi í hermálum stór-
veldanna, skynsamlegasta leiðin til
að koma í veg fyrir st.vrjöld og
viðhalda jafnvægi í alþjóðamálum,
auk þess sem sú stefna varðveitti
hagsmuni Bandaríkjanna.
Bandarísku forsetakosn ngarnar
í haust koma til með að snúast að
miklu leyti um stefnu f-ambjóð-
endanna í utanríkismálum. Brown
sagði, að stefna repúblikana um
vígbúnaðaryfirburði væri hernað-
arlega og efnahagslega óhugsandi.
Hann sagði að óhugsandi væri, að
upp kæmi samsvarandi staða og er
Bandaríkjamenn réðu einir yfir
kjarnorkuvopnum. Meðan and-
stæðingurinn hefði þann ásetning
að koma í veg fyrir hernaðaryfir-
burði hins, næðu Bandaríkjamenn
ekki þeim yfirburðum yfir Sovét-
menn, sem til væri ætlast.
Er fargjaldastríð í uppsigl-
ingu á N-AtlantshafsleiÖinni?
London. 28. júli — AP.
ALLT bendir til þess, að i uppsigl-
ingu sé harðvitugt fargjaldastrið
á Atlantshafsflugleiðinni milli
Bandaríkjanna og Evrópu.
Brezka flugfélagið British Air-
ways (BA) tilkynnti i gær að
félagið hefði ákveðið að lækka
biðlistafargjald frá London til
New York niður í 84 sterlings-
pund frá og með 1. september
næstkomandi. Er þar um að ræða
lægra fargjald en Laker-flugfé-
lagið býður upp á.
Þessari lækkun British Airways
svaraði bandaríska flugfélagið
Trans World Airways (TWA) í dag
með því að bjóða ferðina milli
London og New York á 82,50 pund.
Brezka flugfélagið brást við þess-
um fregnum með því að tilkynna
enn frekari lækkun og bauð farið á
82 pund. Sagði í tilkynningu BA í
dag, að félagið væri ákveðið í að
vera í fararbroddi og myndi undir-
bjóða hvaða félag og hvaða far-
gjald sem væri.
Bæði félögin lækkuðu fargjöld
sín milli London og Boston, Los
Angeles, Chicago og Fíladelfíu.
Búist er við að önnur flugfélög eigi
eftir að lækka fargjöld á sömu
flugleiðum, en í dag fljúga 13 félög
áætlunarflug milli Bretlands og
Bandaríkjanna.
Sérstaklega er beðið eftir því
hver viðbrögð Freddy Lakers
verða, en nýja fargjald BA er
þremur pundum lægra en ódýrasta
fargjald með loftbrú hans og 14
pundum lægra en núgildandi bið-
listagjald BA. Flugfélagið Pan
American hefur sótt um lækkun á
flugleiðinni, og formælandi TWA
sagði í dag að félagið ætlaði í það
minnsta að vera með jafn hagstæð
fargjöld og BA og er því spáð að
framundan séu enn meiri hrær-
ingar í fargjaldamálum á Atlants-
hafsflugleiðinni.
Sérfræðingar segja, að sú ákv-
örðun flugfélaganna að lækka far-
gjöldin sé tilraun til að auka
farþegastreymi milli Evrópu og
Bandaríkjanna, en það hafi minnk-
að talsvert upp á síðkastið. Fram-
boð sæta á flugleiðum til Banda-
ríkjanna í dag sé það mikið og
sætanýting það dræm, að það
jafngildi því að rúmlega ein
júmbóþota, sem tekur hátt á fjórða
hundrað farþega í sæti, fljúgi
dagiega tóm fram og til baka yfir
Atlantshafið.
Þær fregnir spurðust út í dag, að
Alþjóðasamtök flugfélaga (IATA)
hefðu ákveðið frá tveggja til sjö
prósenta hækkun á venjulegum
fargjöldum og farmgjöldum á
flugleiðum aðildarfélaganna frá og
með 1. október n.k. Hermt er að
hækkanirnar séu tengdar áætluð-
um verðhækkunum á flugvéla-
eldsneyti.
Brown býsnast út
af repúblikönum