Morgunblaðið - 29.07.1980, Blaðsíða 45
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ1980
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ1980
25
ÍBV sótti en
Fram skoraði
ÁRANGURSRÍKUR varnarleik-
ur færði Fram tvö dýrmæt stig i
Eyjum á iauKardaginn. er þeir
sigruðu ÍBV 1—0 í leik þar sem
Eyjamenn voru allan leiktímann
betri aðilinn á vellinum. Áhorf-
endur urðu þarna áþreifanlega
minntir á þá staðreynd að það er
ekki nÓK að „ei«a“ leikinn heldur
þarf að skora mark til þess að
sÍKra. ÍBV „átti“ leikinn en Fram
skoraði eitt mark og sigraði.
Svona er jú fótboltinn á stundum.
Eyjamenn voru þegar í upphafi
leiksins mun ákveðnari og náðu
upp ágætu spili. Framarar léku
hinsvegar af varúð og notuðu
síðan snöggar sendingar fram
völlinn. Eftir þunga sókn ÍBV í
meira en 20 mín. skoraði síðan
Fram og kom þetta mark eins og
köld vatnsgusa framaní áhorf-
endur. Á 23. mín. kom sending
fram miðjuna og þegar Gústaf
Baldvinsson var úr leik vegna
slæmrar tognunar á þessu sama
augnabliki, komst Guðmundur
Torfason í gegn og lék í átt að
marki Eyjamanna. Sighvatur
Bjarnason kom á hæla honum og
Páll Pálmason kom út úr markinu
á móti. Á vítateigslínunni braut
Sighvatur á Guðmundi en um leið
og hann féll rak hann fótinn í
boltann og hann skoppaði framhjá
Páli og í markið út við stöng.
Framarar höfðu tekið forystuna í
leiknum.
Ef Framarar höfðu leikið var-
lega fram að þessu þá drógu þeir
sig enn betur til baka eftir markið.
Sókn Eyjamanna var því þung en
fjölmennt varnarlið Fram tókst að
bægja allri hættu frá marki sínu
og Framarar gengu því til hálf-
leiks með mark í forystu.
Það er í sjálfu sér ekki ástæða
til þess að fjölyrða svo mjög um
síðari hálfleikinn því hann rann
fram í sama farveginum svo tii frá
fyrstu til síðustu mín. Eyjamenn
voru allsráðandi í sókninni en hið
fjölmenna heimavarnarlið Fram
stóð fyrir sínu og hratt hverri
stórsókn ÍBV af annarri. í hvert
skipti sem Eyjamenn náðu boltan-
«bv- n-1
Fram Ui I
um og það var mjög oft, voru
komnir sjö menn í öftustu vörn
Fram. Þeir einfaldlega stilltu sér
upp og biðu eftir mótherjanum.
Til marks um stífan varnarleik
Fram má nefna, að Gústaf Björns-
son lék nánast allan síðari hálf-
leikinn sem nokkurskonar hægri-
út-bakvörður.
Þrátt fyrir gífurlegan þunga í
sókn Eyjamanna sköpuðust fá
opin færi, sóknir þeirra flestar
voru kæfðar í og við vítateiginn.
Eyjamenn fengu t.d. tvær beinar
aukaspyrnur á vítateigslínunni
fyrir miðju marki eftir brot Fram-
ara en Eyjamenn misnotuðu þær
báðar. Skömmu fyrir leikslok
heimtuðu síðan Eyjamenn víta-
spyrnu þegar fast skot Jóhanns
Georgssonar að marki Fram var
stöðvað af varnarmanni innan
teigs að því best var séð með
báðum höndum. Það var mikið
rætt um þetta atvik eftir leikinn
en dómarinn, Guðmundur Har-
aldsson, sagðist ekki hafa séð hvað
þarna skeði og línuvörður tók í
sama steng. Jóhann og áhorfendur
í góðri aðstöðu voru hinsvegar
ekki í minnsta vafa að Framarinn
hefði varið með hendinni. í svona
tilvikum er ákaflega erfitt að vera
dómari hvort heldur innan vallar
eða utan, en hart er þegar slíkt
getur ráðið úrslitum leiks.
Eyjamenn léku einn sinn besta
leik á sumrinu að þessu sinni og
þó varð uppskeran engin. Góð
barátta var í liðinu frá fyrstu
mín., á stórum köflum þrælgott
spil og góðar skiptingar. Það var
helst þegar reka átti endahnútinn
á sóknirnar sem ýmislegt fór
úrskeiðis, boltanum var oft á
tíðum illa skilað á fremstu sókn-
armennina. Eyjamenn geta nú
farið að líta með ugg um öxl og
liðið verður að taka sig verulega á.
En með áframhaldandi baráttu
sem í þessum leik og betri nýtingu
í sókninni er ÍBV til alls líklegt.
Lið ÍBV var mjög jafnt í þessum
leik og áttu allir frekar góðan dag.
Það var slæmt fyrir liðið að missa
Gústaf Baldvinsson útaf snemma í
f.h. en Þórður Hallgrímsson fór
aftur í hans stöðu. Sigurlás Þor-
leifsson og Tómas Pálsson voru
öijög ógnandi frammi en fengu
ekki nógu góða bolta að vinna úr
auk þess sem það var ekki létt
verk að glíma við hina mörgu og
sterku varnarmenn Fram. Bak-
verðirnir Snorri Rútsson og Viðar
Elíasson fengu nú gott næði til
þess að taka þátt í sóknarleiknum
og voru þar báðir mjög svo virkir.
Framarar gerðu sér fljótlega
ljóst að ÍBV yrði erfitt viðureign-
ar í þessum leik og þeir tóku þá
skynsamlegu ákvörðun þegar í
upphafi að leika varlega og af
yfirvegun. Það getur orðið ýmsum
hált á því að leika varnarleik en
Framarar hafa jú reynsluna og
þeir hafa í sínum röðum menn
sem hafa mikla yfirvegun að leika
við slíkar aðstæður. Þar er
fremstur í flokki Marteinn Geirs-
son, sem átti sannkallaðan stór-
leik, var sjálfur mjög öruggur í
öllum sínum aðgerðum og stjórn-
aði sínum mönnum af röggsemi.
Guðmundur Baldursson var mjög
öruggur í markinu og varði þar
allt sem á ramman rataði. Þá átti
Trausti Haraldsson góðan leik og
Guðmundur Torfason var sá eini
sem eitthvað angraði varnarmenn
ÍBV í leiknum, enda pilturinn
fæddur og uppalinn Eyjapeyi, son-
ur Torfa Bryngeirssonar.
Góður dómari leiksins var Guð-
mundur Haraldsson en sennilega
er hann enn að velta fyrir sér
atvikinu umdeilda sem áður er
nefnt.
í stuttu máli:
1. deild Hásteinsvöllur 26. júlí
1980
ÍBV - Fram 0—1(0—1)
Mark Fram: Guðmundur Torfason
á 23. min.
Áminningar: engin.
Áhorfendur: 640.
- hkj.
Valur: Lið Breiðabliks: FRAM:
Sigurður Haraldsson 7 Guðmundur Ásgeirsson 7 Guðmundur Baldursson 7
óttar Sveinsson 6 Gunnlaugur Helgason 5 Símon Kristjánsson 6
Grímur Sæmundsson 6 Tómas Tómasson 5 Trausti Ilaraldsson 7
Magni Pétursson 6 Valdemar Valdemarsson fi Gunnar Guðmundsson 6
Dýri Guðmundsson 7 Einar Þórhallsson fi Marteinn Geirsson 8
Sævar Jónsson 6 Benedikt Guðmundsson 5 Jón Pétursson 6
Magnús Bergs 7 Vignir Baldursson fi Gústaf Björnsson 6
Matthías Hallgrímsson 7 Þór Hreiðarsson 5 Guðmundur Torfason 7
Albert (iuðmundsson 7 Helgi Bentsson 5 Baldvin Elíasson 4
Guðmundur Þorbjörnsson 8 Sigurður Grétarsson 7 Kristinn Jörundsson 4
Jón Einarsson 7 ólafur Björnsson fi Guðmundur Steinsson 4
Ingólfur Ingólfsson (vm) 5 Gunnar Orrason (vm) 4
Dómari: Erlendur Daviðsson (vm) 5
Róbert Jónsson 3 Dómari: Guðmundur Ilaraldsson
KR: ÍBV: i
Stefán Jóhannsson 4 Páll Pálmason 7
Sigurður Indriðason 5 Lið Þróttar: Sighvatur Bjarnason 6
Sigurður Pétursson 5 Jón Þorbjörnsson 6 Viðar Elíasson 6
Ottó Guðmundsson fi Ottó Ilreinsson 5 ómar Jóhannssun 7
Börkur Ingvarsson 5 Sverrir Einarsson 5 Gústaf Baldvinsson 4
Stefán Örn Sigurðsson 4 Rúnar Sverrisson 5 (lék í 23. mín.).
Birgir Guðjónsson 4 Jóhann Hreiðarsson 5 Snorri Rútsson 6
Erling Aðalsteinsson 5 Harry IIill fi Sveinn Sveinsson 6
Jón Oddsson 5 Daði Harðarson 4 Óskar Valtýsson 6
Sæbjörn Guðmundsson 5 Ágúst Hauksson 5 Sigurlás Þorleifsson 7
Ágúst Jónsson fi Halldór Arason 4 Tómas Pálsson 7
Guðjón Ililmarsson vm 5 Sigurkarl Aðalsteinsson 4 Þórður Hallgrímsson 7
Dómari: Páll Ólafsson fi Jóhann Georgsson (vm) 6
Arnþór óskarsson 7 ólafur Magnússon (vm) 4 Kári Þorleifsson (vm) 4
Stefán markvörður KR-inga varð að sjá á eftir boltanum fimm sinnum í netið í leiknum á móti Val. Hér fer boltinn
hinsvegar framhjá stönginni og Stefán er við öllu búinn. Ljnsm. Kaxnar Axelsson.
KR-ingar þurftu að hirða
boltann 5 sinnum úr netinu
VALSMENN náðu sér heldur
betur á strik i leiknum gegn KR
á sunnudaginn eftir slaka leiki
að undanförnu. Fimm sinnum
máttu KR —ingar hirða boltann
úr netinu en þeim tókst ekki að
svara fyrir sig í eitt einasta
skipti. 5:0 urðu úrslit ieiksins og
hafa KR—ingar ekki fengið aðra
eins útreið um árabil. Valsmenn
sögðu eftir leikinn að þeir hefðu
einbeitt sér að þvi i siðustu viku
að ná upp baráttuanda i liðinu og
það tókst greinilega. Af
KR—ingum var allt aðra sögu að
segja, baráttuandinn var með
minnsta móti og væntanlega hef-
ur hið skyndilega brotthvarf
þjálfarans Magnúsar Jónatans-
sonar verið þar þungt á metun-
um. Nú munar fimm stigum á Val
og KR og möguleikar KR—inga
á meistaratitlinum því hverfandi
litlir.
Það sást strax á fyrstu mínút-
unum að Valsmenn komu ákveðn-
ari til leiks. Þeir skoruðu mark á
10. mínútu og aftur á 16. mínútu
og það var meira en KR—ingarnir
þoldu. Þeir áttu sér ekki viðreisn-
ar von eftir það. Aðdragandi
fyrsta marksins var sá að brotið
var illa á Matthíasi Hallgrímssyni
út við hliðarlínu vinstra megin.
Guðmundur Þorbjörnsson tók
aukaspyrnuna og sendi fasta
sendingu inn í markteiginn til
Dýra Guðmundssonar, sem skor-
aði laglega með skalla. KR vörnin
var alveg sofandi og Stefán
markvörður stóð frosinn á línunni.
Valsmenn splundruðu vörn KR
algerlega jægar þeir skoruðu ann-
að markið. Magnús Bergs sendi
góða sendingu í hægra hornið til
Magna, sem lék upp að endamörk-
um og gaf síðan boltann fyrir
markið til Matthíasar, sem skor-
aði með viðstöðulausu skoti
nokkru fyrir utan markteig, óverj-
andi fyrir Stefán.
Eftir markið dofnaði yfir leikn-
um. KR-ingar sóttu ekki síður en
Valsmenn en sóknarlotur þeirra
voru tilviljunarkenndar og aðeins
einu sinni var marki Vals verulega
ógnað en þá bægðu Valsmenn
hættunni frá á undraverðan hátt.
Hinum megin á vellinum fóru
skallabolti Magnúsar Bergs og
skot Matthíasar naumlega fram-
hjá.
í upphafi seinni hálfleiks ger-
ðist fátt markvert. Sótt var á báða
bóga og sem fyrr var sóknarleikur
Valsmanna miklu markvissari. Á
14. mínútu bættu Valsmenn þriðja
markinu við og átti Guðmundur
Þorbjörnsson stærstan þátt í því.
Hann var með boltann alveg út við
hornfánann hægra megin í mjög
þröngri aðstöðu. En samt tókst
honum að gefa fasta og hnitmið-
aða sendingu fyrir markið, beint á
höfuð Magnúsar Bergs, sem skall-
aði boltann í markið. Stefán
markvörður stóð frosinn á línunni
en hann hefði vafalaust getað náð
sendingunni ef hann hefði hlaupið
út úr markinu. En hann hefur
væntanlega eins og flestir aðrir á
vellinum talið litlar líkur á því að
Guðmundi tækist að skila boltan-
um frá sér jafn vel og hann gerði.
(slandsmötlð 1. delld I
SP“ 5:0
- Guðmundur Þorbjörnsson
fyrirliði Vals, sýndi stórgóðan
leik, og leiddi lið sitt til sigurs.
Knattspyrna l
Taktar Guðmundar voru slíkir, að
þeir sjást bara hjá reyndustu
atvinnumönnum. Og Guðmundur
kom líka við sögu í fjórða mark-
inu, sem Valur skoraði á 19.
mínútu. Albert sendi þá langa
sendingu fram völlinn og stefndi
boltinn á vítateig KR. Guðmundur
geystist á eftir boltanum og lenti í
miklu kapphlaupi við Stefán
markvörð, sem kom á móti honum
út úr markinu. Guðmundur hafði
betur og tókst að vippa boltanum
laglega framhjá Stefáni og í
markið. Vel gert hjá Guðmundi en
Stefán markvörður var alltof
seinn að átta sig á hættunni og
hlaupa út.
Á 89. mínútu ráku Valsmenn
endapunktinn á góðan leik og var
þar einkar glæsilega að verki
staðið hjá hinum fótfráa Jóni
Einarssyni. Hann geystist þá upp
vinstri kantinn, stakk varnarm-
enn KR af og sendi boltann síðan
fyrir markið til Matthíasar, sem
skoraði af stuttu færi. Stórglæsil-
eg tilþrif hjá Jóni.
I heild átti Valsliðið mjög góðan
leik. Liðið barðist vel og sóknarl-
oturnar voru margar hverjar mjög
skemmtilegar og vel útfærðar. Þar
fer ekki milli mála að Valur
verður eitt j)eirra liða, sem berjast
munu um Islandsmeistaratitilinn.
Liðið var mjög jafnt en beztur var
þó fyrirliðinn Guðmundur Þor
björnsson, sem vann mjög vel og
átti þátt í þremur af fjórum
mörkum.
Um lið KR þarf ekki að fara
mörgum orðum, það lék langt
undir getu að þessu sinni.
í STUTTU MALI:
Laugardalsvöllur 27. júlí, ís-
landsmótið 1. deild, Valur—KR
5:0(2:0).
Mörk Vals: Matthías Hall-
grímsson á 16. og 89. mínútu, Dýri
Guðmundsson á 10. mínútu,
Magnús Bergs á 59. mínútu og
Guðmundur Þorbjörnsson á 64.
mínútu.
Gul spjöld: Engin.
Áhorfendur: 2703.
-SS.
„Ekki klappa honum
sparkaðu i hann“
— Var heilræði Þróttarþjálfarans er
liöið tapaði enn einum leiknum
„Ekki klappa honum. spark-
aðu í 'ann“ hrópaði Ron Lewin,
hinn skoski þjálfari Þróttar. er
strákarnir hans töpuðu tveimur
stigum til Breiðabliks. í 1. deild
íslandsmótsins i knattspyrnu um
helgina. Setninguna fleygu
missti Lewin út úr sér er Harry
IIill og Ilelgi Bentsson áttu með
sér návígi um knöttinn. Var
ekkert ólöglegt á ferðinni. hvor-
ugur kappanna meiddist og er
þeir hlupu af vettvangi. klappaði
IIill Helga á kollinn i stakasta
bróðerni. En bróðerninu var ekki
fyrir að fara hjá Lewin og er
óhætt að segja. að meðan að
fyrirmæli hans til leikmanna eru
af umra'ddu sauðahúsi. skal eng-
an undra. að Þróttur skuli eiga í
fallbaráttu. í liðinu eru bæði
leiknir og sterkir einstaklingar.
en Lewin nær ekki endum saman.
Lokaspretturinn í deildarkeppn-
inni verður erfiður hjá Þrótti. En
Blikarnir geta glaðst. þeir eiga
raunhæfan möguleika á að
blanda sér i toppbaráttuna. liðið
er ungt og efnilegt og liðið vann
um helgina. Lokatölur leiks UBK
og Þróttar urðu 1—0 fyrir UBK.
Staðan i hálfleik var hin sama.
Eftir ruddalegan bikarleik þess-
ara sömu liða fyrir skömmu, þar
sem UBK fór með sigur af hólmi,
bjuggust margir við svipaðri
sparkhátíð. Mikil harka var vissu-
lega í leiknum og færðist í aukana
er á leið, en aldrei náði leikurinn
þó að verða sama fjölbragða-
glímusýningin og fyrri leikurinn.
Róbert dómari Jónsson verður að
taka á sig mikla sök fyrir hve
mikil harka var í leiknum. Nokkur
atriði í dómgæslu hans orkuðu
nefnilega vægast sagt tvímælis.
Má þar fyrst nefna er Benedikt
Guðmundsson sparkaði í Harry
Hill fyrir framan nefið á Róbert.
Var Benedikt ekki einu sinni
Þróttur: Oal
UBK U> I
bókaður, en sumum hefði væntan-
lega þótt vera jafnvel um brott-
rekstrarsök að ræða. I síðari
hálfleik gerðist það síðan, að
Sigurður Grétarsson lék Sverri
Einarssyni upp úr skónum og
komst á auðan sjó. Sverrir elti
Sigurð uppi og skellti honum
gróflega flötum aftan frá. Og ekki
var Sverrir bókaður frekar en
Benedikt, hvað þá að hann væri
rekinn út af. Öðru sinni var
Sigurði Grétarss.vni brugðið aftan
frá í dauðafæri í vítateignum. Var
hér að sjá borðliggjandi vita-
spyrnu, en Róbert dæmdi ekki
neitt. Átti hann ekki góðan dag að
þessu sinni.
Urslit leiksins eru varla sann-
gjörn, jafntefli hefði verið réttlát-
ast. Þróttarar voru ívið sterkari
aðilinn í fyrri hálfleik, en Blikarn-
ir i þeim síðari. En gæði knatt-
spyrnunnar var ekki alltaf á háu
plani og marktækifæri beggja liða
voru sárafá. Fyrsta marktækifær-
ið kom strax á fyrstu mínútu
leiksins, en þá skaut Jóhann
Hreiðarsson hörkuskoti naumlega
yfir mark UBK. Á 22. mínútu var
Jóhann enn á ferðinni með skalla
rétt yfir. En í millitíðinni, nánar
tiltekið á 15. mínútu leiksins,
skoruðu Blikarnir mark. Einhver
hafði á orði að það lofaði góðu að
annað liðið skoraði úr sínu fyrsta
tækifæri og það veitti á mikinn
markaleik. Markið reyndist hins
vegar vera eina mark leiksins og
því sigurmark UBK. Ólafur
Björnsson skoraði markið, er hann
virtist ekki vita mikið hvað fram
fór. Sigurður Grétarsson tók
hornspyrnu frá hægri, sendi
knöttinn á stöngina fjær, þar sem
Einar Þórhallsson var fyrir og
spyrnti viðstöðulaust inn í mark-
teiginn. Þar var Ólafur réttur
maður á réttum stað og af fótum
hans skaust knötturinn í netið. Á
síðustu mínútu fyrri hálfleiks var
Páll Ólafsson síðan átakanlega
nærri því að jafna og aldrei í
leiknum voru Þróttarar jafn nærri
því. Harry Hill sendi þá stórgóða
sendingu fyrir mark IJBK og tvö
þrumuskot Páls höfnuðu í Gunn-
laugi Helgasyni bakverði UBK,
sem stóð á marklínu.
Það skaraði enginn fram úr hjá
Þrótti, en það voru helst þeir Páll
Ólafsson og Harry Hill, sem sýndu
góða spretti. Þróttarar eiga að
geta betur en þeir hafa sýnt á
mótinu til þessa, a.m.k. er góður
mannkostur fyrir hendi. En Þrótt-
arar vinna aldrei neitt meðan að
þjálfari liðsins leggur meiri
áherslu á að sparka í mótherjana
heldur en í knöttinn. Blikarnir
voru einnig nokkuð frá sínu besta
og satt best að segja voru þeir
dálítið heppnir að hreppa bæði
stigin, stórkarlaleg knattspyrna
Þróttar kom í veg fyrir nett
samspil eins og UBK hefur tekist
ágætlega að útfæra í sumar.
Sigurður Grétarsson var rólegur i
fyrri hálfleik, en náði sér mjög vel
á strik í þeim síðari. Lék hann
vörn Þróttar þá grátt. Helgi Bents
var hins vegar rólegur allan leik-
inn. Vignir og Valdemar voru
einnig sterkir hjá UBK, sem á eins
og Þróttur að geta mun meira en
liðið sýndi.
í stuttu máli:
íslandsmótið í knattspyrnu, 1.
deild. Þróttur—UBK 0—1 (0—1).
Mark UBK: Ólafur Björnsson (15)
Gul spjöld: Valdemar Valdemars-
son UBK.
Áhorfendur: 470. gg.
Ingólfur InKÓlfsson UBK, tekst ekki að brjótast í gejjn um vörn Þróttar að þessu
sinni.
Ljósm. (iuójón B.