Morgunblaðið - 29.07.1980, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1980
27
Kúlan hitti manninn beint á milli augnanna*
i/, tff v
ÍÞRÓTTIR, sem höfða til krafta en jafnframt tækni, virðast henta
íslendingum vel. Við höfum eignast mjög góða júdómenn, lyftinga-
menn og frjálsiþróttamenn i kastgreinum. Nú nýverið náði óskar
Jakobsson þeim athyglisverða árangri i kúluvarpi að verða annar
tslendingurinn, sem nær að kasta yfir tuttugu metra. jafnframt því
sem hann hefur náð góðum árangri i kringlukasti og spjótkasti.
óskar hefur dvalið undanfarna tvo vetur við nám i háskólanum i
Austin i Texas, en jafnframt náminu hefur hann æft af miklu kappi
fyrir ólympiuleikana í Moskvu. bá náði óskar frábærum árangri i
meistaramóti bandariskra háskóla i maimánuði. bað er ekki ofsögum
sagt, að óskar veki mikla athygli hvar sem hann fer vegna þess
hversu iturvaxinn hann er. óskar er 1,94 m á hæð og vegur 118 kg.
ströngum æfingum síðustu tvö ár.
Ég hef æft mjög vel. Þá hef ég
ekkert meiðst og það hefur ekki
lítið að segja. En oft vilja tognanir
og önnur meiðsli draga úr áhugan-
um og jafnframt árangrinum.
í hverju eru æfingarnar aðal-
lega fólgnar?
— Aðallega eru það lyftingar,
nú og kastæfingar. Æfa tæknina,
finna út hvað gert er rangt. En
það er ekki hægt að kasta langt
nema að hafa kraft, og hann fæst
ekki nema með lyftingum.
Er kúluvarpið orðin aðalgrein
hjá þér?
— Nei, kringlukast er ennþá
mín aðalgrein. En að undanförnu
hef ég æft kringlukast og kúlu-
varp að jöfnu. Það kemur eigin-
lega í framhaldi af því hversu
• óskar keppti á sunnudag i góðum árangri ég náði í kúlunni.
kringlukastkeppni Ol-Ieikanna
og tókst honum ekki vel upp.
Hann gerði öll þrjú köst sin ógild
og komst ekki i úrslitakeppnina.
Mbl. spjallaði við Óskar nú nýver-
ið og innti hann eftir dvöl hans
ytra, og hvernig hefði staðið á því,
að hann fór til Austin í Texas.
— Bandrískir háskólar fylgjast
vel með árangri frjálsíþrótta-
manna víðsvegar um heiminn, og
þar sem ég hafði náð allþokka-
legum árangri í kringlukasti,
spjóti og kúluvarpi, sýndu þeir
mér áhuga og settu sig í samband
við mig. Þeir buðu mér að koma út
og kynna mér allar aðstæður, og
leist mér ljómandi vel á háskólann
og jafnframt þær aðstæður sem ég
átti að búa og æfa við. Það varð
því úr, að ég fór utan og hóf nám í
rafmagnsverkfræði. Hér heima
hafði ég lokið við rafvirkjanám og
því upplagt að kynna sér nýjungar
í þeim efnum.
Fyrsta námsárið var fjölskylda
mín ekki með mér, en í fyrra
sumar fór hún með mér til Texas
þar sem ég hafði ákveðið að halda
áfram náminu og keppni fyrir
skólann. Nú er hinsvegar alveg
Ijóst, að ég kem ekki til með að
fara aftur út, þar sem háskólinn
stóð ekki við þær skuldbindingar,
sem hann hafði gert við mig og
urðu ég og fjölskylda mín því fyrir
óvæntum óþægindum af þeim sök-
um.
í hverju liggur helsti aðstöðu-
munurinn að æfa i Texas og svo
hér heima?
— Hún liggur fyrst og fremst í
veðráttunni. Þar er hægt að æfa
úti við allan ársins hring. Hér
heima er veðrið okkar versti
óvinur. Hér er oft rok, rigning og
kuldi. öll aðstaða hér heima fyrir
kastara er allgóð, við höfum við til
sömu lyftingatæki og tilsöng feng-
um við ekki svo mikla í Austin,
þjálfarinn var ekki mikið með
okkur. Við æfðum okkur svo til
sjálfir og sögðum hvor öðrum til.
Þá höfðum við tækifæri á að skoða
kvikmyndir af köstunum og öðrum
köstum og það hjálpar mikið.
Nú hafa framfarir þinar verið
örar. Hverju er það að þakka?
— Fyrst og fremst löngum og
og að undanförnu, að ég hef sinnt
henni vel og vonast til að bæta
mig verulega í henni.
Hvað æfir þú oft i viku?
— Ég æfi sex sinnum í viku, og
þá oftast fjóra tíma í senn. Til
þess að ná árangri á heimsmæli-
kvarða í dag, þarf maður að leggja
á sig alveg ótrúlegt erfiði. Þá fer
mikill kostnaður í mat. Kastarar
þurfa að borða próteinríka fæðu,
ég drekk til dæmis fjóra lítra af
mjólk á dag og borða óhemjumikið
af kjöti.
Hvað ert þú þungur?
— Ég er í dag 118 kg og er 194
cm á hæð.
Reiknar þú með að ná góðum
árangri á Ol-Ieikunum í Moskvu?
— Ég geri alltaf mitt besta á
öllum mótum, sem ég tek þátt í.
Og að sjálfsögðu mun ég leggja
mig allan fram á Ol-leikunum. En
ég vil engu spá um árangur minn á
leikunum. Að mínu mati eru
íþróttir komnar út í öfgar. Allir
íþróttamenn í Rússlandi og
Austan-járntjaldslöndunum eru
atvinnumenn, en keppa sem
áhugamenn. Þar er allt lagt upp
úr íþróttum og íþróttamenn vís-
indalega byggðir upp um margra
ára skeið.
Hér á Islandi þarf að gera meira
fyrir íþrottafólkið og þá sérstak-
lega ungt og efnilegt íþróttafólk.
Þá þarf að bæta verulega úr
mótshaldi á frjálsíþróttamótum
hér á landi, þau eru langt frá því
að vera nægilega vel skipulögð.
Hvað er nú einna eftirminni-
legast i huga þínum, þegar þú
lítur til baka yfir farinn veg í
iþróttamótum, sem þú hefur tek-
ið þátt i?
— Bandríska háskólamótið í
frjálsum íþróttum verður ofarlega
í huga mínum, en þar tókst mér í
sumar að verða annar í kúluvarpi,
náði mínum besta árangri, kastaði
20,21 metra og varð þriðji í
kringlukasti, kastaði 61,14 metra.
Kringlan vannst á 61,72 m., svo ég
var ekki langt frá því að hreppa 1.
sætið. Á þessu móti skeði líka
atburður, sem rennur mér seint úr
minni. Þegar einn kúluvarparinn
var að hita upp, varð hann fyrir
Óskar komst í
úrslitakeppnina
kúluvarpi á
Ol-leikunum
kastaði 19,66 metra
*. - ■ ■, mmm:
óskar er íturvaxinn mjög eins og
sjá má á þessari mynd.
því óhappi að kasta kúlunni beint
í höfuðið á einum starfsmannin-
um og fékk sá kúluna beint á milli
augnanna. Var það mjög svo
óhuggulegt að sjá, og sló miklum
óhug á okkur, sem kepptum í
greininni, en sem betur fer leið
það hjá.
Óskar, fyrir utan frjálsar
iþróttir, hvaða iþróttir heilla
þig?
— Allar íþróttir nema knatt-
spyrna. Reyndar byrjaði ég í
knattspyrnu, og svo er Guðmundi
Þórarinssyni fyrir að þakka, að ég
fór í frjálsar íþróttir. Hann tók
mig tali eftir eina knattspyrnu-
æfingu og kom mér á sporið og er
ég honum mjög þakklátur. Þá
Óskar hefur
sífellt verið
að bæta sig
HÉR á eftir fer svo árangur
Óskars i þeim þremur
kastgreinum sem hann hef-
ur lagt fyrir sig og jafn-
framt hvcrnig hann hefur
bætt árangur sinn ár frá ári.
Spjótkast:
Ár
1975 — 75,76 metrar
1976 - 75,86 -
1977 - 76,32 - fsl.-met
1978 - 75.30 -
1979 - 73,72 -
Kringlukast:
1973 — 43,80 metrar
1974 - 50,42 -
1975 - 54,44 -
1976 - 54,48 -
1977 - 59,98 -
1978 - 62,64 -
1979 - 61.40 -
1980 - 62,54 -
Kúluvarp:
1971 — 11,80 metrar
1972 - 12.42 -
1973 - 13,80 -
1974 - 15,85 -
1975 - 16,85 -
1976 - 17,56 -
1977 - 17,75 -
1978 - 18.73 -
1979 - 19,29 -
1980 - 20,21 -
Hér á eftir fara 10 bestu
afrek íslendinga i kúlu-
varpi.
1. Hreinn Halldórss., KR 21.09 m 1977
2. Óskar Jakobsson, ÍR 20,21 m 1980
3. Guftm. Hermannss., KR 18,48 m 1969
4. Guðni Halldórss., KR 17,93 m 1978
5. Erlendur Valdimarss. ÍR 17,14 m 1969
6. Gunnar Huseby, KR 16,74 m 1950
7. Pétur Pétursson, UÍ A 16,24 m 1980
8. Óskar Reykdalss., K A 16,08 m 1979
9. Skúli Thorarensen, IR 16.00 m 1957
10. Jón Pétursson, KR 15,98 m 1968
reyndust þeir Jón Þ. Ólafsson og
Guðmundur Hermannsson mér
mjög vel og hvöttu mig til dáða.
Ég er líka hreykinn af því að eiga
íslandsmetið í hástökki án at-
renna. Ég var 110 kg þegar ég
stökk 1,76 metra og bætti met
Vilhjálms Einarssonar. í hástökki
með atrennu á ég 1,86 best.
Það væri hægt að halda lengi
áfram að spjalla við Óskar, en
þetta spjall við hann var tekið rétt
áður en hann hélt til Moskvu á
Ol-leikana, þar sem hann keppir í
kringlukasti og kúluvarpi. Og
óskar hafði í mörgu að snúast, svo
að við hættum rabbinu og látum
þetta nægja.
- bR.
Oldungarnir léttir
ÁRLEGA íer íram oldunKamót í írjálsum
iþróttum á KópavoKsvelli. I»ar reyna jafnan
með sér ýmsir þeir sem Kerðu vfaróinn
fræ«an hér á árum áður í frjálsum iþróttum.
Mót þetta fór fram fyrir skömmu ok hér að
neðan má sjá lírslitin i ár.
M.í. i Öldungaflokki
KópavoKsvelli 24. júli 1980
Ynicri flokkur 35 — 39 ára
100 M HLAUP
1. Helici Hólm. ÍBK
2. Kjartan Guðjónsson. FH
3. SÍKurjón Andrésson. ÍR
800 M ULAUP
1. HöKni óskarsson. KR
2. Pálmi Frímannsson. HSH
3. Þórólfur l>órlindsson. UÍA
3000 M HLAUP
1. IIöKni óskarsson. KR
2. Guðmundur Gislason. Árm.
3. Leiknir Jónsson. Árm
4. Jóhann II. Jóhannsson. f R
5. Þórólfur Þórlindsson, UIA
6. SÍKurjón Andrésson. ÍR
7. Pálmi Frimannsson. HSH
LANGSTÖKK
1. Kjartan Guðjónsson. FH
2. Ilelin Hólm. ÍBK
HÁSTÖKK
1. Kjartan Guðjónsson. FH
2. Helgi Hólm. ÍBK
KRINGLUKAST
L Siifurþór Hjörleifsson. HSH
2. Jón 1>. Olafsson. ÍR
3. Kjartan (■uðjónsson. FH
n. IB
1. Ileltri Ilólm. ÍBK
12.3 sek.
12.5 sek.
13.7 sek.
2:18.6 min.
2:19.4 mín.
2:21.3 min.
10:09,2 mín.
10:14.1 min.
10:22.7 min.
10:25.8 min.
10:37.6 mín.
10:40,0 mín.
10:54.0 min.
5.82 m
5.78 m
1.70 m
1.65 m
38.22 m
37.18 m
36.19 m
26.46 m
KÚLUVARP
1. Sigurþór Hjörleifsson. IISH 13.16 m
2. Kjartan Guðjónsson. FH 12.53 m
3. Jón Þ. ólafsson. ÍR 9.50 m
SPJÓTKAST
1. Kjartan Guðjónsson. FH 48.40 m
2. Heltri Ilólm. ÍBK 36.20 m
Kldri flokkur 40 ára ok eldri
100 M HLAUP
1. Valbjörn Þorláksson. KR 11.7 sek.
2. Guðmundur IlallKrímsson. IJÍ A 12.5 sek.
3. Björn Jóhannsson. UMFH 13.6 sek.
800 M HLAUP
1. Guðm. IlallKrimsson. UÍA 2.10.0 mín.
3000 M HLAUP
1. Árni Kristjánsson. Árm. 10:33.0 mín.
LANGSTÖKK
1. Valbjörn l>orláksson. KR 5.59 m
2. Guðmundur HallKrímsson. UÍA 5.07 m
3. Björn Jóhannsson. l’MFR 1.90 m
HÁSTÖKK
1. Valbjörn Þorláksson. KR 1.60 m
KRINGLA
1. ErlinK Jóhannsson. IISII 38.55 m
2. Þorsteinn Alfreðsson. UBK 38.17 m
3. Valbjörn Þorláksson. KR 33.67 m
4. Ólafur Unnsteinsson. UFHÖ 32.93 m
5. Bratri SÍKurðsson. KR 31.85 m
SPJÓTKAST
1. Valbjorn Nirláksson. KR 42.05 m
KÚLUVARP
1. ErlinK Jóhannesson. HSH 13.16 m
2. IlallKrimur Jónsson. Árm. 12.59 m
3. ólafur Unnsteinsson. UFIIÖ 12.18 m
4. Valbjorn Þorláksson. KR 11.66 m
5. Botri SÍKurðsson. KR 10.93 m
6. Jóhann örn SÍKurjónsson. UBK 10.37 m