Morgunblaðið - 29.07.1980, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1980
Eiríkur Baldursson:
Úthlutun styrkja
úr Vísindasjóði
í flestum þeim löndum, sem við
Islendingar kjósum að bera okkur
saman við eða sækjum fyrirmynd-
ir til, hefur það um nokkurt skeið
verið bjargföst trú stjórnvalda og
annarra áhrifamikilla afla, að
vísindi og menntun séu meðal
sterkustu vopna að beita til þess
að ná þeim markmiðum, sem
sérhver stjórnmálaflokkur hefur á
stefnuskrá sinni, þ.e. eflingu vel-
ferðar og velmegunar í eigin landi.
Til þess að takast megi að ná
þessum settu markmiðum, hefur
m.a. verið keppt að því að bæta þá
aðstöðu sem vísinda- og rann-
sóknastarfsemi búa við og reynt
að skapa vilholl skilyrði til þessar-
ar starfsemi. Meðal þess fyrsta
sem gert hefur verið, er að móta
opinbera stefnu í rannsóknamál-
um þar sem m.a. er bent á þau
rannsóknarsvið, sem talin eru
hæfa bezt viðkomandi landi og
þeim aðstæðum sem þar ríkja.
Jafnan er reynt að leggja nokkurt
mat á hvernig til tekst við fram-
kvæmd þeirrar stefnu sem mótuð
hefur verið. Slíkum matstilraun-
um er beitt, hvort sem um er að
ræða hagnýtar rannsóknir eða
svokallaðar grundvallarrannsókn-
ir. í löndum á borð við England,
Svíþjóð og Vestur-Þýzkaland, get-
ur framkvæmd markaðrar stefnu
oft á tíðum verið erfiðleikum
bundin, vegna þess að í þessum
löndum er stór hluti rannsókna-
starfseminnar fjármagnaður og
framkvæmdur af fjölþjóðlegum
fyrirtækjum, og ekki er víst, að
rannsóknarhagsmunir og mark-
mið fyrirtækjanna fari saman við
þau markmið sem sett eru opin-
berri rannsóknastarfsemi í þeim
löndum þar sem starfsemin er
unnin. Þannig er u.þ.b. heimingur
allrar rannsóknastarfsemi í Sví-
þjóð unnin af og í þágu stórra
fyrirtækja.
Erfiðleikar við framkvæmd
rannsóknastefnu á íslandi eru þó
ekki af þessu tagi, enda er lang-
stærstur hluti rannsóknastarf-
seminnar rekinn af opinberum
aðilum og kostnaður er greiddur
af almannafé. Vandkvæði við
stefnumótun og framkvæmd slíkr-
ar stefnu í íslenzkum rannsókn-
armálum eru af öðrum toga
spunnin og verður ekki farið út í
þá sálma hér.
Efni þessa pistils er að varpa
fram fáeinum spurningum, sem
vöknuðu við lestur fréttatilkynn-
ingar Vísindasjóðs þar sem getið
var þeirra, sem styrk hlutu úr
sjóðnum við nýafstaðna úthlutun.
Starfsemi sjóðs þessa er sjaldan
getið í umræðu fjölmiðla, en er
hún þó allrar athygli verð vegna
sérstöðu sjóðsins. Sjóðurinn, sem
stofnað var til árið 1957, á sam-
kvæmt reglugerð að efla íslenzkar
vísindarannsóknir:
„í þessum tilgangi styrkir sjóð-
urinn:
1) Einstaklinga og vísindastofn-
anir vegna tiltekinna rann-
sóknarverkefna.
2) Kandídata til vísindalegs sér-
náms og þjálfunar. Kandídat
verður að vinna að tilteknum
sérfræðilegum rannsóknum
eða afla sér vísindalegrar þjálf-
unar til þess að verða styrk-
hæfur.
3) Rannsóknastofnanir til kaupa
á tækjum, ritum eða til
greiðslu á öðrum kostnaði í
sambandi við starfsemi, er
sjóðurinn styrkir."
Af þessum reglugerðarákvæð-
um, og reyndar öðrum, sem ekki
eru nefnd hér, má draga þá
ályktun, að við styrkveitingar
sjóðsins sé reynt að fylgja ákveðn-
um reglum um val styrkhæfra
umsókna, og þannig tryggja, að
sjóðurinn ræki það hlutverk sem
hann að landslögum er settur að
gegna. Vandkvæði í þessu sam-
bandi hljóta þó að stafa af því, að
stjórnvöld landsins hafa ekki mót-
að neina ákveðna stefnu, sem fylgt
skuli í rannsóknarmálum og varla
getur því verið létt verk að „efla
íslenzkar vísindarannsóknir" á
þann hátt að vel verði við unað
með tilliti til allra þátta, sem gæta
verður í því sambandi.
Engu að síður verður svo að
vera, að deildarstjórnir sjóðsins
deild) fylgi einhverri skipulegri
stefnu við úthlutanirnar, enda
yrði úthlutun fjárins ár hvert í
valdi tilviljana ef svo væri ekki.
Þetta, þó ekki vegna annars en
þess, að jafnan eru umsóknir um
styrkveitingu mun fleiri en svo, að
unnt sé að veita ölium styrk af
þeim rýru fjárhæðum, sem sjóður-
inn hefur að deila.
Eina tilraunin, sem gerð hefur
verið af íslenzkum aðilum til
mótunar stefnu í rannsóknarmál-
um, er sú áætlun, sem unnin var
að frumkvæði og á vegum Rann-
sóknaráðs ríkisins: „Rannsóknir
og þróunarstarfsemi i þágu at-
vinnuveganna. Langtímaáætl-
un. “ Rvík, maí 1978. Um þessa
áætlun má segja, að hún nær því
miður aðeins til starfsemi í þágu
helztu atvinnuvega landsmanna,
og eru þó orkumálin undanskilin,
en fjallar ekki um þá starfsemi
sem er rekin á vegum eða í
tengslum við Háskóla íslands.
Áætlunin nær því aðeins til verk-
efna og starfsemi á sviði náttúru-
vísinda og hagnýtingar þeirra, en
skilur hugvísindi, samfélagsvís-
indi og læknisfræði m.a. ónefnd
hjá garði. Engu að síður eru þau
markmið, sem liggja til grundvall-
ar áætluninni, svo almenns eðlis,
að ætla verður að stefnumótun
fyrir aðra vísindastarfsemi, sem
ekki er í beinum tengslum við
atvinnuvegina, yrði ekki í mörgum
greinum frábrugðin þeim sjón-
armiðum sem þar koma fram. Til
dæmis má nefna þau þjóðfélags-
legu markmið sem nefnd eru að
liggi til grundvallar stefnumótun
Rannsóknaráðs:
„— efling efnahagslífsins,
— jafnvægi í þróun byggðar og
búsetu í landinu,
— bætt sambúð Iands og þjóð-
ar,
— efling félagslegrar sam-
hjálpar,
— auðgun og efling menning-
arlífs."
í ljósi þess má ætla, að meðal
þeirra sjónarmiða, sem eru leiðar-
ljós við styrkveitingar Vísinda-
sjóðs, sé þessi atriði að finna
ofarlega á blaði. Að minnsta kosti
verður að ætla, að svo sé við
úthlutun Raunvísindadeildar
sjóðsins, sem allajafnan fær
stærri hluta fjárins til ráðstöfun-
ar.
Eins og vikið var að hér að ofan,
birtist nýlega á síðum dag-
blaðanna skrá yfir þá vísinda-
menn og rannsóknastofnanir, sem
hlutu styrkveitingu sjóðsins á
þessu ári. Á þessum vettvangi er
þó hvorki ráðrúm til né tök á að
gera heildarúttekt nú, og skortir
enda til þess aðgangur að þeim
gögnum, sem leitt gætu úthlutun-
araðferðirnar í ljós. Engu að síður
vil ég vekja máls á fáeinum
atriðum, sem óskast skýrð af
talsmönnum sjóðsins. Slíkt svar
væri kærkomið öllum þeim, sem
áhuga hafa á umræðu um stöðu
íslenzkrar vísindastarfsemi og
þakkarvert framlag til umræðu,
sem varla á sér stað.
I því, sem hér fer á eftir, mun ég
eingöngu fjalla um úthlutun
Raunvísindadeildar sjóðsins.
Engu að síður varða sumar spurn-
inganna ekki minna Hugvísinda-
deild og þær aðferðir, sem hún
beitir við val þeirra umsókna sem
styrk hljóta.
Alls veitti Raunvísindadeild 46
styrki að þessu sinni. í því sem á
eftir fer mun ég þó aðeins tala um
44 styrki, enda er ég þeirrar
skoðunar, að tveir styrkir, sem
veittir voru, heyri að réttu lagi
undir starfssvið Hugvísindadeild-
ar. Hér er um að ræða styrki að
upphæð 1 milljón króna hvor sem
nota skal til könnunar og söfnun-
ar íslenzkra fræðiheita í jarðfræði
og líffræði. Ekki ber þetta að
skilja á þann veg, að verkefni
þessi séu, að mínu mati, í neinu
ómerkari en önnur, sem styrk
hafa hlotið. Hins vegar leyfi ég
mér að staðhæfa, að lúkning
verkefnanna muni í engu auka við
fræðilega þekkingu vísindagrein-
anna sem í hlut eiga. Það er þó
þakkarvert, að fræðimenn í grein-
unum gefi sig að verkefni sem
slíku, enda gæti svo farið, að ef
málvísir án sérfræðikunnáttu
ynnu verkið, þá veldust óheppi-
legri orð en annars. í meðfylgj-
andi töflu hef ég skipt styrkjunum
í fjóra flokka: læknisfræði; líf-
fræði og skyldar greinar; eðlis-,
efna- og stærðfræði; jarð-, jarð-
eðlis- og veðurfræði. Undir líf-
fræði og skyldar greinar hef ég
talið auk líffræði, lífeðlisfræði,
dýrafræði og styrki til landbúnað-
arrannsókna. Þessi skipting kann
að vera umdeilanleg, en það er þó
von mín, að skiptingin verði ekki
gerð að aðalatriði.
Það vekur athygli hve misstórir
hlutir flokkanna hafa orðið. Mun-
urinn milli flokkanna er svo stór,
að einhverjar ástæður hljóta að
liggja til grundvallar skipting-
unni. Leikur mér forvitni á að fá
vitneskju um þetta atriði og skýr-
ingu á því.
Örlítinn formála verð ég að gera
að þeirri spurningu sem á eftir
fer. I töflunni, sem hér fylgir með,
hef ég skipt verkefnunum í flokka
eftir fræðigreinum og innbyrðis
skyldleika. Þessi regla þarf í engu
að vera eina aðferðin til þess að
flokka veitta styrki. Önnur aðferð
væri sú að deila í hópa með tilliti
til hvers eðlis rannsóknarverkefn-
in eru. í þeim löndum, sem mest
áhrif hafa haft á skipulag ís-
lenzkra rannsóknarmála, í
OECD-löndunum, er gjarnan
gerður greinarmunur á grundvall-
arrannsóknum og hagnýtum rann-
sóknum. Þriðja skiptingaraðferðin
er sú, að fara eftir því til hverra
sviða þjóðfélagsins fræðigreinin
tilheyrir. Vægi flokkanna inn-
byrðis fylgir þá venjulega þeirri
áherzlu, sem stjórnvöld vilja
leggja á hina ýmsu málaflokka
hverju sinni. Eitt tímabil kynnu
rannsóknir á lífríki landssvæða að
njóta mests fylgis, en heilsufars-
rannsóknir og læknisfræði næsta
tímabil, svo dæmi séu nefnd.
Fróðlegt væri að fá vitneskju
um, að hversu miklu leyti þessi
sjónarmið og skyldar umræður
ráða, þegar
a) stjórn Vísindasjóðs ákveður
skiptingu ráðstöfunarfjárins milli
deilda sjóðsins, og hvort kveðið er
á um forgang einhverra rannsókn-
arsviða, og
b) þegar deildarstjórnirnar velja
þau verkefni sem hljóta styrk?
Þriðja atriðið, sem athyglisvert
væri að fá upplýst, varðar stærð
styrkjanna.
Alls var úthlutað rúmum 115
milljónum króna til 44 styrkþega.
Meðalupphæð styrks verður því
rúmlega 2,6 milljónir króna. For-
vitnilegt væri að fá að vita, hvaða
kostnaðarliðum rannsóknar-
starfsins styrkjunum er ætlað að
mæta. Er gert ráð fyrir því að
styrkþeginn geti reiknað sjálfum
sér laun fyrir rannsóknastarfið?
Er gert ráð fyrir því að aðstoðar-
fólkinu við rannsóknirnar séu
greidd laun af styrkveitingunni?
Sé ekki gert ráð fyrir því að reikna
megi til launa hluta styrksins,
hvernig og hvenær er þá gert ráð
fyrir því að verkefnið sé unnið? Er
málum svo skipað, að sérfræð-
ingar, sem hljóta styrk til rann-
sóknarverkefna og gegna samtím-
is öðru starfi, að þeir verða að
vinna við rannsóknirnar í frítíma
sínum eftir vinnudag eða í sumar-
leyfum, eða er þannig um hnútana
búið, að samkomulag hefur verið
gert við vinnuveitendur þeirra
þannig, að þeir geti unnið að
rannsóknum þessum í vinnutíma
sínum?
Síðasta atriðið, sem mig langar
að leita svara við, varðar beinlínis
þau skilyrði, sem sjóðurinn þarf
að búa við og þær reglur sem
honum er gert að fara eftir.
STYRKIR FJÖLDI HEILDAR- AF VEITINGU MEÐALUPPH/EO
NÚMER STYRKJA UPPH/ED KR. RAUNV.DEILDAR VI. VEITTS STYRKS. ÞKR.
EFNA-, 3, 5, 14, 23,
EÐLIS- OG STÆROFRÆÐI 25, 45 6 18.700.000 16,2% 3.116.700
UEKNIS- 4, 7, 18, 21
FR/EÐI 33, 42, 44, 46 8 23.500.000 20,4% 2.937.500
JARD- OG 2, 11, 15, 24
JARÐEDLIS- 26, 28, 31 10 30.560.000 26,5% 3.056.000
FRÆDI 38, 39, 40
LÍF-, LÍFEDLIS-, 1. 6, 8, 9, 10
DÝRA- OG 13, 16, 17,
GRASAFRÆÐI 19, 20, 27,
GRÓÐUR- OG 29, 30, 32 20 42.500.000 36,9% 2.125.000
GRÓDURFARS- 34, 35, 36
RANNSÓKNIR 37, 41, 43 44 115.260.000 100,0% 2.619.550
Enskukennari í skóla fyrir nem-
endur á aldrinum 13—19 í Seoul í
Suður-Kóreu hefur ritað langt
bréf þar sem hann greinir frá
áhuga margra nemenda sinna á að
eignast pennavini á íslandi. I
skólanum eru um 3.300 nemendur.
Sendi kennarinn með fylgjandi
mynd er sýnir augnablik í skól-
astarfinu. Hægt er að skrifa á
ensku eftir fekari upplýsingum til:
Miss Soo-jin Kim,
P.O. Box 100 Central,
Seoul,
Korea.
Eftirfarandi Pólverjar óska eftir
bréfaskiptum á ensku:
Piotr Neres,
Ul Bielska.
51/28.09-400 Ptock,
Polland.
Hann er áhugamaður um íþróttir,
tónlist, ferðalög, bókmenntir og
landafræði.
Ilow Kafal.
Ul. Kochanowskiego 94,
51—601 Wroclaw,
Pólland.
Tadeusz Zubinski,
tæknifræðingur, 26 ára.