Morgunblaðið - 29.07.1980, Page 15

Morgunblaðið - 29.07.1980, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ1980 15 HLUTI AF STYRKUR UPPHÆD í HEILD ARVEITINGU NÚMER PÚS. KR. RAUNVÍSINDAD. TÆKJAKAUP 3, 4, 14, 23 15.500 13,5% STYRKIR TIL 7, 27, 29, 30 STOFNANA 31*. 36, 37, 38, 41 29.200 25,3% „ENDUR- 11, 21, 24 TEKNINGAR- 26, 28, 31* 13.060 11,3% VERKEFNI (18060) (15,7%) 18 57.760 50,1% TAFLA 2. Alls veitti Raunvisindadeild 46 styrki. 44 styrkir eru taldir með í töflunni, samtais nemur upphæð þeirra 115.260.000 kr. * Styrkur nr. 31 er aðeins reiknaður með í „Styrkir til stofnana“ Varðandi upphæðir einstakra styrkja vísast til „Tilkynninxar um úthlutun styrkja úr visindasjóði 1980“, sem nýverið birtist í dagblöðunum. Þessir strákar héldu nýlega hluta- veltu og söfnuðu 10.875 krónum sem þeir hafa afhent Styrktarfélagi lam- aðra og fatlaðra. Þeir eiga heima í Garða- bæ og heita talið frá vinstri: Ágúst K. Ágústsson 7 ára, Páll S. Pálsson 8 ára, Kristján Fr. Krist- jánsson 10 ára og Ingi Kr. Pálsson 11 ára. í töflu 2 hef ég safnað saman í þrjá flokka verkefnum, sem ég tel að njóti nokkurrar sérstöðu. a) Tækjakaup. Af heildarfjár- hæð, sem veitt var til rannsókna af Raunvísindadeild að þessu sinni, runnu 13,5% til kaupa á rannsóknartækjum. Styrkur til slíkra fjárfestinga er eitt af þeim verkefnum sem sjóðnum ber að styrkja bæði samkvæmt lagasetn- ingu og reglugerð um starfsemi hans. Það er álit mitt, þrátt fyrir reglugerðir og lagasetningu, að það eigi ekki að vera verkefni Vísindasjóðs að styrkja fjárfest- ingar af þessu tagi. Tækjakosts ber að afla til rannsóknastofnana með framlagi í byggingar- og fjárhagsáætl. þessara stofnana. Að réttu lagi má kalla tækjaöflun byggingarkostnað, enda hefur rannsóknarstöð ekki verið byggð fyrr en sköpuð hefur verið aðstaða til þess að reka þá starfsemi, sem þar skal fram fara: fjórir veggir, loft og gólf hrökkva skammt hvort sem komið skal á fót skrifstofu, skurðstofu eða rannsóknarstofu. Á hvern hátt hefur mál þetta verið tekið til umfjöilunar Vís- indasjóðs, og hvað gerir sjóðurinn til þess að tryggja, að tækjakost- urinn verði settur upp og tekinn í notkun? b) Styrkir til stofnana. Sam- tals níu stofnanir hlutu styrk að þessu sinni, að heildarupphæð 29,2 milljónir króna, eða sem nemur fjórðungi þeirrar upphæðar sem veitt var af Raunvísindadeild í ár. Að mínu áliti er þetta hlutfall óeðlilega hátt, sé þess gætt, að hér er um að ræða stofnanir, sem að öðru leyti eru kostaðar af fjárlög- um ríkisins. Norræna eldfjalla- stöðin mun víst fá fé erlendis frá í einhverjum mæli, og Rannsókna- stofnun landbúnaðarins heyrir undir landbúnaðarráðuneytið sem tekur afstöðu til óska stofnunar- innar. Má af þessu draga þá ályktun, að þær óskir um fjárveit- ingar, sem yfirvöld viðkomandi rannsóknarstofnana vísa frá, endurfæðist í umsóknum um styrki úr Vísindasjóði? Telur stjórn sjóðsins eðlilegt, að svona stór hluti styrkveitinganna renni til stofnana sem hljóta fjárveit- ingar úr öðrum sameiginlegum sjóðum? Svari einhver því til, að samkvæmt reglum og lögum þá sé sjóðnum skylt að styrkja starf vísindastofnana, þá má orða Heimilisfang: 26—030 Suchedriów, Ul. Koscielna 14, Pólland. Jacek Zawody, 30 ára lögfræðingur. Heimilisfang: 63—400 Ostrów Wielkopolski, Zacharzew Lipowa 23, Pólland. Dariusz Sobczynski. Tvítugur lögfræðistúdent. Ul. Konarowa 15. 91-493 Lódz. Pólland. Dariusz Piwowarczyk. Tvítugur stúdent í málvísindum og þjóðfræði. Ul. Wroclawska 29B, m. 10. 59—400 Jawor, Pólland. spurningu mína á þann veg, hvort eðlilegt sé að slík ákvæði séu látin gilda um starf hans? Á hvern hátt tryggir sjóðsstjórnin, að fé þessu sé varið til þeirra verkefna sem því er veitt til? c) Endurtekningarverkefni. Hér er átt við verkefni sem eru þess eðlis að endurtaka þarf sömu verkþætti, t.d. mælingar, eða að framkvæmdir eru alþekktir, nán- ast staðlaðir verkþættir. Óþarft er að taka fram, að ég tel vísinda- starf af þessu tagi í fyllsta mæli jafnmerkilegt og annað, en leyfi mér þó að gera þessa aðgreiningu vegna þess að ég tel, að verkefnin séu ekki þess eðlis að þau fjalli um ytri mörk þekkingarstofns fræði- greinanna eða um grundvallarat- riði þeirra. Niðurstöður úr slíkum rannsóknum auka engu að síður á þekkingarforðann og þær má síðar setja í samhengi sem varða slík grundvallaratriði. Verkefni af þessu tagi, sex talsins, hlutu 18 milljónir króna eða 15,7 af hundraði heildarfjár- veitingarinnar. Af þessu tilefni vaknar eftirfar- andi spurning: Hvaða skilning leggur stjórn Vísindasjóðs og stjórn Raunvísindadeildar sjóðs- ins í 2. grein, 1. kafla laga um Vísindasjóð, en þar segir: „Það er hlutverk Vísindasjóðs að efla ís- lenzkar vísindarannsóknir."? Ef hægt er að gangast að þeim röksemdafærslum, sem hér að ofan eru raktar undir liðum a, b og c, þ.e., að tækjaöflun heyri til byggingarkostnaðar rannsókna- stofnana eða beri að fjármagna með beinu framlagi af fjárlögum, að sú starfsemi, sem rekin er af hálfu opinberra rannsóknastofn- ana, skuli með réttu greidd af þeim fjármunum sem stjórnir þeirra fá til ráðstöfunar sam- kvæmt fjárlögum, og að „endur- tekningarverkefni", þrátt fyrir mikilvægi það sem áður var nefnt, heyri ekki til hreinnar vísinda- starfsemi, þá komumst við að eftirfarandi niðurstöðu. 1) Helmingur styrkveitingar Raunvisindadeildar Vísinda- sjóðs árið 1980 rann til efl- ingar islenzkri vísindastarf- semi. 2) Upphæð sú, sem Raunvísinda- deild veitti til eflingar ís- lenzkri vísindastarfsemi árið 1980, samsvarar kaupverði tveggja lítilla íbúða i Reykja- vik á úthlutunarárinu. Það er von mín, að einhver talsmaður Vísindasjóðs finni hjá sér hvöt til þess að svara þeim spurningum, sem hér hafa verið lagðar fram. Ekki þarf að taka það fram, að það er ekki tilgangur minn með þessu skrifi að setja út á það starf, sem unnið er af hálfu Vísindasjóðs, þar sem ólaunaðir stjórnarmeðlimir verða að setja sig inn í mikinn fjölda misjafnra styrkumsókna og taka ákvarðanir sínar á grundvelli óljósra ákvæða laga og reglugerðar við skiptingu fjár sem hvergi hrekkur til. Það, sem fyrir mér vakir, er að fá upplýst nokkur atriði, sem varða þann aðbúnað, sem íslenzkri rannsóknarstarfsemi er búinn í dag. Eirikur Baldursson Tilboðsverð: 489.000 kr. Áður: 795.000 kr. 306þtísund knmaverólældam á Electrolux kælískápum í takmarkaðan tíma! Við höfum fengiö sendingu af hinum afarvinsælu Electrolux kæliskápum með sérstökum kjörum. Þess vegnagetum við boðið kæliskápa á lægra verði en áður. Ath. Tilboðsverðið á aðeins við kæliskápa úr þessari einu sendingu. Electrolux héimilitæki fást á Akranes: Þórður Hjálmsson, Borgarnes: Kf. Borgfirðinga. Patreksfj.: Baldvin Kristjánsson, Isafjörður: Straumur hf., Bolungarvik: Jón Fr. Einarsson, Blönduós: Kf. Húnvetninga, Sauðárkrókur: Hegri sf„ Siglufjörður: Gestur Fanndal, Ólafsfjörður: Raftækjavinnustofan sf., Akureyri: K.E.A., þessum útsölustöðum: Húsavik: Grímur & Árni, Vopnafjörður: Kf. Vopnfirðinga, Egilsstaðir: K.H.B., Seyðisfjörður: Stálbúðin, Eskifjörður: Pöntunart. Eskfirðinga, Neskaupsstaöur: Kr. Lundberg, Höfn: K.A.S.K., Þykkvibær: Fr. Friðriksson, Vestmanneyjar: Kjarni sf„ Keflavik: Stapafell hf. © 1 Vörumarkaðurinn hf. lÁRMÚLAIa S:86117

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.