Morgunblaðið - 29.07.1980, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ1980
19
ÞRJÚ íslenzk fiskiskip seldu ytra
i (jær. Sölvi Bjarnason seldi 119
tonn í Hull ok fékk fyrir það 78.3
milljónir króna eða 658 krónur
fyrir hvert kíló.
Ölduljós seldi 43,7 tonn í Fleet-
wood og fékk fyrir það 30,4
milljónir króna, eða 653 krónur
fyrir hvert kíló og Erlingur seldi
125,7 tonn í Grimsby og fékk fyrir
það 62,7 milljónir króna, eða 499
krónur fyrir hvert kíló.
INNLENT
Þrjár sölur
ytra í gær
V estmannaey jar:
Bæjakeppni við
Akureyringa i skák
UM HELGINA fór fram í Alþýðu-
húsinu i Vestmannaeyjum bæja-
keppni i skák á milli Akureyr-
inga og Vestmannaeyinga. Var
teflt á 17 borðum, og var keppn-
inni þannig háttað að fyrst var
tefld skák þar sem hver keppandi
hafði 1% klst. til að Ijúka skák-
inni. Úrslit í þeirri viðureign
urðu að sveit Skákfélags Akur-
eyrar hlaut 10 vinn. gegn 7 vinn.
sveitar Taflfélags Vestmanna-
eyja.
Seinni hluti keppninnar var
hraðskák og tefldu sömu menn 2
skákir með skiptum litum. Úrslit í
hraðskákinni urðu að sveit Taflfé-
lags Vestmannaeyja sigraði, hlaut
17% vinn. gegn 16% vinn. skák-
sveitar Akureyringa.
Það mun frekar fátítt að bæja-
keppnir í skák fari fram yfir
hásumarið, þar sem aðalstarfsemi
taflfélaganna fer fram yfir haust-
og vetrarmánuðina, en að sögn
forsvarsmanna Taflfélags Vest-
mannaeyja þótti keppnin takast
vel í alla staði.
Meðfylgjandi mynd tók Guð-
laugur Sigurgeirsson.
Furðulegt ef nú á að inn-
heimta lendingargjöldin
OKKUR finnst furðulegt að
nú skuli eiga að innheimta
hjá félaginu iendingargjöld á
Keflavíkurflugvelli þar sem
ba?ði fyrrverandi og núver-
andi ríkisstjórn höfðu tekið
málið að sér og ætluðu að láta
þessi gjöid niður falla. Hér
hlýtur að vera um að ræða
mál viðkomandi ráðuneyta.
sagði Sigurður Ileigason for-
stjóri Flugieiða um þá
ákvörðun fjármálaráðuneytis
að innheimt skuli lendingar-
gjöld hjá Flugleiðum. kring-
um 250 millj. króna. sem
félagið er talið skulda.
— Lendingargjöld í Luxemborg
fengust felld niður með því skil-
yrði að slíkt yrði einnig gert hér á
landi og við stöndum í þeirri trú
að það hafi verið gert.
Þá var Sigurður Helgason
spurður hvort samgönguráðherra
hefði svarað bréfi hans um ástand
og horfur í innanlandsflugi félags-
ins:
— Við höfum ekki fengið nein
formleg svör frá ráðherranum, en
rætt hefur verið við hann. Félagið
sótti til Verðlagsráðs um 18%
hækkun á innanlandsfargjöldum
og bíðum við nú eftir svari við
henni.
— segir forstjóri
í bréfinu til ráðherra sagði
forstjóri Flugleiða að fengist ekki
18% hækkun flugfargjalda yrði að
leggja innanlandsflugið niður eða
fá ríkisstyrk til að standa undir
UM ÞAÐ BIL 30% ökutækja
landsmanna skiptu um eigendur
á síðasta ári á landinu öllu. en
nokkuð er misjafnt eftir stöðum
hversu ör eigendaskipti verða.
Kemur þetta fram i skýrslu
Bifreiðaeftirlits rikisins fyrir sið-
asta ár, sem Mbl. hefur borizt.
ökutæki á þéttbýlisstöðum virð-
ast skipta örar um eigendur, t.d.
yfir 32% ökutækja skráð á R- og
G- númer.
Bílaeign landsmanna var í árs-
lok 1979 82.142 fólksbílar og 7.873
vörubílar eða alls 90.015 bílar og
563 bifhjól að auki. Ending öku-
tækja er mjög misjöfn eftir lönd-
um og kemur fram að miðað við
Flugleiða
tapinu. Sigurður var spurður um
tap á millilandaflugi og hve lengi
félagið gæti haldið áfram tap-
rekstri:
— Það er ljóst að tapið verður
afskráð ökutæki hérlendis endast
þau 15,6 ár og er það 0,7 árum
meira en árið 1978. Endingartím-
inn er óvenjuhár og var árið 1970
borinn saman endingartími öku-
tækja í Bretlandi, Bandaríkjun-
um, Vestur-Þýzkalandi, Svíþjóð,
Noregi og Danmörku og kom þá í
ljós að hann var mestur í Noregi
14,6 ár, en stytztur í Bandaríkjun-
um, 10,8 ár.
í reikningsyfirliti Bifreiðaeftir-
litsins kemur fram, að innkomnar
tekjur á síðasta ári voru röskum
100 millj. krónum meiri en rekstr-
argjöld. Þrjú stærstu verkefni
eftirlitsins eru skoðun ökutækja,
skráningar og eigendaskipti og
ökutækjapróf.
gífurlegt áfram ef sú fjarstæðu-
kennda stefna yfirvalda, að leyfa
ekki eðlilegar verðhækkanir,
breytist ekki. Því eru að sjálfsögðu
mjög mikil takmörk sett hversu
lengi félagið getur haldið áfram
taprekstri eins og nú er.
Myndi sala á Boeing-þotum ekki
skila nokkru rekstrarfé ?
— Hún gerir það, en sala á
eignum er alls engin framtíðar-
lausn, hún gildir aðeins í stuttan
tíma.
Eru sölur eldri Boeing-þotna
félagsins afráðnar?
— Nei, en það eru athuganir í
gangi.
Eru horfur á að enn verði að
draga úr Ameríkuflugi félagsins
og jafnvel leggja það niður á
næsta ári?
— Um það er ekki hægt að
segja ennþá, en Ameríkuflugið er
til umræðu um þessar mundir og
brýnt er að taka ákvarðanir um
framtíð þess innan skamms tíma.
Eru fyrirhugaðar frekari upp-
sagnir hjá félaginu?
— Við höfum næg verkefni
fram undir áramót, t.d. pílagríma-
flug fyrir DC-8 þotu í Nígeríu í
haust auk áætlunarflugs félagsins
og er allt óráðið með uppsagnir á
þessari stundu.
Islendingar eiga
90.015 ökutæki
Landsþeysan:
Jón S. Halldórsson
með örugga forystu
JÓN S. Halldórsson sigraði í
„Rally-cross“-keppni eða
landsþeysu Bifreiðaíþrótta-
klúbbs Reykjavíkur. sem
fram fór að Móum á Kjaiar-
nesi sl. laugardag. en hann ók
á BMW 2000. í öðru sæti varð
Ásgeir Sigurðsson á Simcu
1100 og í þriðja sæti varð
Oddur Jónsson á Volkswagen
1303.
í keppninni um Islands-
meistaratitilinn hefur Jón
nokkuð örugga forystu, eða 60
stig, annar er Ásgeir með 36
stig. Alls er keppt fimm sinn-
um um íslandsmeistaratitil-
inn og gefa sex efstu sætin
stig til heildarúrslita í keppn-
inni.
Meðfylgjandi myndir eru
frá keppninni að Móum og
sýnir önnur þeirra Jón S.
Halldórsson, sem hefur svo
gott sem tryggt sér íslands-
meistaratitil í greininni.
Ljósm. AS.
Eru
þeir að
fá 'ann
Elliðaárnar í
slöku meðallagi
Veiðin í Elliðaánum er í slöku
meðallgai en upp úr ánni voru
komnir 436 laxar þann 25. júlí sl.,
en á sama tíma í fyrra voru
rúmlega 600 laxar komnir upp úr
ánni, að sögn Friðriks Stefánssonar
framkvæmdastjóra Stangaveiðifé-
lags Reykjavíkur. Friðrik sagði að
þrátt fyrir þennan mun hefði veiðin
ekki verið mjög slæm, það hefðu
veiðst 10—20 fiskar á dag. Laxinn
hefur aðallega veiðst á maðk en þó
er flugan nokkuð að sækja á.
Friðrik sagði að Stóra-Laxá hefði
verið afspyrnu slæm það sem af er
sumri, hann sagðist ekki vita til
þess að nokkuð hafi gengið í hana
allt síðan veiðin hófst. Upp úr Laxá
eru nú komnir um 40 fiskar. Orsök
þessarar veiðileysu er talin sú, að
Hvítá í Árnessýslu er líkust súkku-
laði á litinn, sökum leirburðar og
sér laxinn því ekki til og syndir
ráðvilltur um á örgrunnu vatni. Þá
er einnig afar léleg veiði í Soginu.
Norðurá þokkalcg
— Grímsá léleg
Óvenju léleg veiði er nú í Grímsá,
en upp úr henni eru komnir um 400
laxar, en það er helmingi minna
magn en í fyrra.
Í Norðurá eru komnir á land um
1150 laxar og er hún skást þeirra áa
sem SVFR hefur á leigu. í Norðurá
er mikið af laxi og stöðugur
reytingur, en nú er það aðallega
lítið vatnsmagn sem háir veiðun-
um. Mikið af fiski er á efri
svæðunum, milli fossa, og einnig er
mikið af fiski fyrir ofan Glanna.
Hækka
millilanda-
samtöl?
EINS og Mbl. skýrði frá
fyrir skömmu. hækkar sölu-
skattur væntaniega á milli-
landasamtölum. þegar hægt
veróur að hringja beint með
tilkomu jarðstöðvarinnar.
úr 4% í 23.5%.
Morgunblaðið innti Sigurð
Þorkelsson, forstjóra tækni-
deildar Pósts & síma, eftir
bví, hvort símtölin myndu
hækka til neytenda til jafns
við þessa hækkun söluskatts-
ins. — Sigurður kvað ekkert
ákveðið í þeim efnum. Sam-
gönguráðuneytinu hefði þeg-
ar verið gerð grein fyrir
málinu og það væri því póli-
tísk ákvörðun, hvort símtöl
milli landa myndu hækka.