Morgunblaðið - 29.07.1980, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ1980
37
Viðtal
við
Tryggva
Friðlaugsson
lögreglu-
varðstjóra
Ljósm. RAX
„I>ú rakst mig út af
því ég var í buxum“
Tryggvi Friðlaugsson heitir
maður. Hann mun láta af störf-
um hjá lögreglunni í haust eftir
rúmlega 37 ára starf, fyrst sem
lögregluþjónn, siðan sem að-
stoðarvarðstjóri og loks sem
varðstjóri.
„Ég er fæddur á Litluvöllum í
Bárðardal og þar bjuggu foreldr-
ar mínir," sagði Tryggvi er
blaðamaður Morgunblaðsins tók
hann tali á heimili hans að
Kúrlandi 3. „Faðir minn, Frið-
laugur Sigurtryggvi Tómasson,
bjó á jörðinni alla sína tið en
jörðin hafði verið í ættinni langt
aftur í ættir. Móðir mín hét
Sigríður Daníelsdóttir, dóttir
Daníels Sigurðssonar pósts frá
Steinsstöðum í Skagafirði. Ég
aldist upp með tíu systkinum og
fimm hálfsystkinum, — þú getur
ímyndað þér hvort ekki var
þröngt setinn bekkurinn. Jæja,
— ég var 17 ára þegar ég fór að
heiman og vann þá hjá ýmsum
bændum. Ég fékk snemma
áhuga á búskap og fór í búnað-
arskólann á Hólum í Hjaltadal
þegar ég var um tvítugt. Ég lauk
búfræðiprófi 1941 og fór þá að
vinna hjá ýmsum bændum í
Eyjafirði. Árið eftir fór ég svo til
Reykjavíkur og byrjaði að vinna
þar á bifreiðaverkstæði um
sumarið. En það var stopul
vinna. Þá var mikið um atvinnu-
leysi og maður hugsaði mest um
að komast í einhverja fasta
vinnu — sama hvaða vinna það
var. Einhver félagi minn benti
mér á að sækja um í lögreglunni.
Ég gerði það og þar hef ég verið
síðan. Það er undarlegt hvernig
lífið leikur á mann, — ég ætlaði
mér að verða bóndi, var búfræð-
ingur, en lenti svo í lögreglunni.
— Ég byrjaði 1. apríl 1943, árið
1963 varð ég aðstoðarvarðstjóri
og varðstjóri 1966. Ég læt svo af
störfum 1. september í haust —
það verða alls 37 ár og 5
mánuðir. Þetta er nú ævisagan“.
Hvað vilt þú segja um starf
lögregiumannsins eftir að hafa ver-
ið í iögreglunni svona lengi?
„Það er ágætt starf og mér
hefur líkað það vel. Það er að
vísu dálítið bindandi starf og
maður getur verið kallaður út
hvenær sem er. Lögreglumaður
er alltaf lögreglumaður og getur
varla hagað sér eins og aðrir í
sínum frítímum. Annars er tölu-
vert öðruvísi að vera í lögregl-
unni núna en þegar ég byrjaði.
Þá könnuðust svo margir við
mann sem lögregluþjón en nú
hverfa menn í hópinn. Þá var
miklu meira um að lögreglu-
menn væru gangandi á götunum
en nú sjást þeir varla öðruvísi en
í bílum eða á mótorhjólum. Ekki
vil ég segja að þetta sé afturför
að öllu leyti, en ég álít að það
ætti að vera meira um gangandi
lögregluþjóna. Það hefur sín
áhrif gagnvart borgurunum og
ég held að fólk vilji verða meira
vart við lögregluna en nú er.“
Er þetta spennandi starf?
„Nei, þetta er afskaplega
hversdagslegt starf og fremur
tilbreytingarlítið til lengdar. Þó
getur það verið mjög vandasamt
á stundum og reynt á snarræði
og útsjónarsemi."
Ilvernig á fyrirmyndar löKreglu-
maður að vera?
„Aðalatriðið er að lögreglu-
maður komi vel fram og sé
kurteis, — hafi alltaf fulla
stjórn á skapi sínu. Það getur oft
verið harla erfitt. — Oft veldur
framkoma lögreglunnar líka
misskilningi hjá fólki. Ef tveir
lögreglumenn þurfa að handtaka
óðan mann, þurfa þeir að taka á
öllu sem þeir eiga til, — áhorf-
endum gæti sýnst þetta harkaleg
meðferð á manninum en hún
getur verið nauðsynleg — öðru-
vísi er ekki hægt að gera þetta.“
En nú heyrist stundum sagt. að
lögreKlan beiti fantaskap af ástæðu-
lausu. Einhvern tima las éK frétt i
MánudaKsblaðinu þar sem saKði að
löKreKlumenn hefðu barið mann til
óbóta fyrir engar sakir?
„Ég held að það sé lítið að
marka sögusagnir af þessu tagi
— venjulega vitum við í lögregl-
unni að þær fá ekki staðist.
Stundum er líka um miklar
ýkjur að ræða sem lítill eða
enginn fótur er fyrir. Ég minnist
þess ekki að lögreglumanni hafi
verið sagt upp starfi fyrir þessar
sakir.“
Heimilisútköil, — er ekki oft
óföKur aðkoma á heimilum þar sem
löKreKla hefur verið kölluð til t.d. að
börnum hafi verið misþyrmt o.þ.h.?
„Heimilisútköll reyna mikið á
lögreglumenn og við sjáum
margt ljótt, — en það venst eins
og annað. Ég man ekki til þess
að hafa komið þar sem barni
hefur verið misþyrmt en mjög
oft kemur fyrir að við verðum að
fara með börn á önnur heimili
eða stofnanir. Þau eru þá oft
alveg umhirðulaus, — hrædd og
grátandi þegar við komum. Oft
lendum við líka í að handtaka
óða menn og það er alltaf fremur
óskemmtilegt."
Lendir löKrrKlumaður oft í handa-
lögmálum í starfi sinu?
„Það var meira um það hésna
áður fyrr þegar ég var að byrja.
Þá var talsvert um slagsmála-
menn hér í borginni, — menn
sem stunduðu slagsmál að stað-
aldri og voru margir hverjir
mjög erfiðir viðureignar. Nú
fyrirfinnast svona menn varla.
Við vorum líka tiltölulega fálið-
aðir þá og urðum að beita okkur
meira hver og einn. Ég starfaði
mikið úti á landi hér áður fyrr,
— 7 sumur á Seyðisfirði og 2 á
Raufarhöfn og Vopnafirði. Það
var á síldarárunum og maður
lenti oft í ryskingum. Nú eru
slagsmál að mestu leyti úr sög-
unni og það er engin eftirsjón af
þeim.“
Hversu marKÍr voru í IðKreKlunni
hér í Reykjavik þoKar þú byrjaðir?
„Þeir voru um 30, minnir mig.
Það byrjaði einmitt að fjölga
mikið í lögreglunni fyrstu árin
eftir að ég byrjaði og það hefur
fjölgað jafnt og þétt síðan. Nú
telur lögregluliðið fleiri hundruð
og deildarskipting er orðin
miklu meiri en var. Þá höfðum
við þrjá bíla til umráða en núna
væri erfitt að koma á þá tölu.“
Þú hefur byrjað í K<>mlu l«Kre(Jlu
stöðinni?
„Já, í lögreglustöðinni við
Pósthússtræti, — áður var lög-
reglustöð í Arnarhvoli. Lög-
reglustöðin í Pósthússtræti var
myndarlegt hús á sínum tíma en
var orðið allt of lítið fyrir okkur
undir það síðasta."
Þú verður löKreKluvarðstjóri 1966
— hvað felst í því starfi?
„Yfirheyrslur, afgreiðsla mála
og úrskurður. Það er fyrst og
fremst þetta þren.:h Það eru
helst yfirheyrslurnar sem geta
verið erfiðar. Það getur oft verið
bæði tímafrekt og harðsótt að fá
fram sannleikann. Annað er
eiginlega ekki um þetta starf að
segja."
Þú manst ef til vill eftir einhverju
skemmtileKU til að seKja frá í lokin?
„Ja, það er nú það. — Jú, ég
man eftir einu skemmtilegu at-
viki. Á tímabili var það að við
vorum oft beðnir um að reka fólk
út af Hressingarskálanum. Stað-
urinn var í svo háum klassa þá
að fólk varð helst að vera
sérstaklega uppáklætt þar. Svo
var alltaf talsvert um að ungl-
ingar héngju þar inni en keyptu
ekki neitt. — Það var svo einu
sinni, þegar ég var f.vrir norðan
og gisti að hótel Reykjahlíð við
Mývatn, að þegar ég kem inn í
veitingasalinn, gengur ung
stúlka í veg fyrir mig og segir
heldur höst í máli: „Ég þekki þig.
Þú rakst mig út af Hressó af því
að ég var í buxum!" Hún átti við
að ég hefði rekið hana út fyrir að
vera vinnuklædd — en það er
hægt að skilja það öðruvísi."
bó
Draumarúm
TWIST rúmið er afar þægilegt,
búið höfðagafli úr aski með hill-
um, skúffum og náttborðum, allt
færanlegt. Einnig má koma fyrir
útvarpstæki og lömpum.
— Semsagt alveg draumur.
KRiSTjnn
SIGGGIRSSOÍ1 HF.
LAUGAVEG113 REYKJAVÍK SÍMI 25870
Ulferts
Boró og stólar
úr massívri furu
ULFERTS er þekkt fyrir vel hönnuð
og endingargóð furuhúsgögn,
bæði í eldhús og víðar.
Furan er alltaf í tísku.
Biðiið um nýja Ulferts mvndalistann.