Morgunblaðið - 29.07.1980, Síða 38
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ1980
Cossiga hreins^ður
af ásökunum á Italíu
KHOMI-mi
15
RUIHIHG
I5UM
Mohammed Reza Tabatahai bróðir fyrrum íranskeisara í forystu fyrir
hópi mótmælenda fyrir framan þinf(húsið i Washington, þar sem Iátin
var i ljós andúð á núverandi valdhöfum i íran. Félagar i ýmsum
irönskum samtökum i Bandarikjunum söfnuðust saman i jcær, ýmist
til að láta i ljós vanþóknun eða andúð á stjórn Khomeinis. Símamynd AP.
Dauði Reza Pahlevis, fyrrum íranskeisara:
Viðbrögðin einkeimast
af varkárni og gætni
VIÐBROGÐIN við dauða Reza
Pahlevis, fyrrum Íranskeisara,
víða um heim einkennast fyrst og
fremst af varákrni og er litið á
fráfall hans sem upphaf nýs tíma
en óviss í sogu írönsku þjóðarinn-
ar. Þess er víða getið sem hann
reyndi að gera gott fyrir þjóð
sína og sagt, aö þó að hann hafi
ekki ávallt haft mannréttindi í
heiðri taki þó fyrst steininn úr
þar sem eru klerkarnir undir
forystu Khomeinis.
Washington
Viðbrögð Bandaríkjastjórnar
voru óvanalega varkár þegar haft
er í huga að keisarinn fyrrv. kom
11 sinnum til Bandaríkjanna og
var vinfengi með honum og sjö
bandarískum forsetum. í tilkynn-
ingu stjórnarinnar var ekki vikið
að gíslamálinu og enginn harmur
látinn í ljós vegna fráfalls keisar-
ans.
Bandarískir embættismenn
sögðu að dauði keisarans hefði
engin áhrif á lausn gíslanna 52 en
hins vegar mætti binda meiri
vonir við hið nýja þing og skipun
forsætisráðherrans.
London
Bresku blöðin gerðu mikið úr
fréttinni um fráfall keisarans en
létu ekki í ljós mikla von um að
það flýtti fyrir frelsun gíslanna.
Mörg þeirra voru á því, að þótt
honum hefðu orðið á mörg mistök
væru þó klerkarnir með Khom-
eini í broddi fylkingar miklu
verri. „Hann (keisarinn) átti ekki
skilið verstu skammaryrðin, sem
honum voru valin," segir The
Times í ritstjórnargrein. „Hryll-
ingurinn, sem nú ræður ríkjum í
íran, gerir stjórn hans upplýsta
og farsæla í samanburði en þeir,
sem nú ráða, eru fulltrúar þeirra
sjúku og afskræmdu afla sem
hann reyndi að bæla niður," segir
einnig í The Times.
Breska stjórnin lét á sunnudag-
inn í ljós hryggð sína vegna
dauða keisarans og Elísabet
drottning sendi ekkju keisarans
samúðarskeyti.
Bonn
Talsmaður vestur-þýska utan-
ríkisráðuneytisins skýrði frá því í
gær, að ekki væri ætlunin að
senda sérstakan fulltrúa frá
Bonn til að vera við útför Reza
Pahlevis fyrrv. keisara og fjöl-
skyldu hans yrði ekki vottuð nein
samúð. Hann sagði, að óráðið
væri hvort sendiherra V-Þýska-
lands í Egyptalandi yrði við
útförina.
Moskva
í fréttum Tass-fréttastofunnar
rússnesku var sagt frá dauða
keisarans í mjög stuttu máli.
Rússar gerðu sér mjög títt um
Reza Pahlevi þegar vegur hans
var hvað mestur en fordæmdu
hann ákaflega þegar hann hafði
verið hrakinn frá völdum.
París
Giscard d’Estaing Frakklands-
forseti sendi Farah Diba, ekkju
keisarans, samúðarskeyti en
opinber viðbrögð stjórnarinnar
voru þó engin.
I Arabalöndum flestum var
sagt frá dauða keisarans án
nokkurra athugasemda.
Þetta gerðist
29. júlí
ÍTALSKA þingið felldi með mikl-
um meirihluta atkvæða i gær til-
4ögu um að samþykkja vitur á
F rancesco Cossiga forsætisráð-
herra og hreinsaði hann af ásökun-
um um að hann hefði hjálpað syni
pólitfsks stuðningsmanns að kom-
ast hjá handtöku fyrir hryðjuverk.
Úrslit atkvæðagreiðsiunnar
munu væntanlega auka jafnva'gi f
ftölskum stjórnmálum á sama tíma
og samdráttur blasir við f ftólsku
efnahagslifi. Stjórn Cossiga. sem er
samsteypustjórn kristilegra demó-
krata. siisialista og lýðveldissinna.
hefur verið f hættu vegna ásakan-
anna á hendur forsætisráðherran-
um. Bandalag flokkanna efldist
Beirút. 28. júlí. AP.
LÍBANSKUR stjórnmálamaður,
sem fylgir írökum að málum,
Moussa Shaib. var ráðinn af
dögum, þegar ráðizt var á hann
úr launsátri f bifreið á veginum
út á Beirút-flugvöll f dag. Bíl-
stjóri hans var einnig myrtur.
Tilræðið minnti á árásina á Riad
Taha, blaðamann sem var skotinn
til bana með vélbyssu á strandgötu
í Beirút. Fjórtán biðu bana og 21
slasaöist alvarlega í skotbardaga
sem brauzt út við útför hans um
helgina, í rómverska bænum Baal-
beck, 80 km norðaustur af Beirút.
Salim E1 Hoss forsætisráðherra,
sem var fremst í líkfylgdinni, varð
að leita hælis í hóteli ásamt Nazem
Qadri innanríkisráðherra. Þaðan
fór Hoss til herbúða í bænum, kom
á vopnahléi og kaliaði á gæzlulið
Sýrlendinga.
I bardaganum áttust við Mú-
hameðstrúarmenn úr Shítasöfnuð-
inum og Palestínumenn, sem eru
öflugir í Baalbeck. Annar kunnur
líbanskur blaðamaður var myrtur í
marz, þýzkur fréttaritari Reuters
og sýrlenzkur rithöfundur sluppu
lifandi þegar reynt var að myrða
þá í júní og þrír vestrænir frétta-
menn hafa síðan farið frá Beirút,
þeirra á meðal fréttaritari BBC.
Óttast
árekstra
Embættismenn óttast að tilræð-
ið við Moussa Shaib leiði til nýrra
árekstra milli stuðningsmanna ír-
Herferð
gegn Mao
Pekfnx. 28. júli. AP.
MAO TSE-tung bar ábyrgð á
„hörmungum" menningarbylt-
ingarinnar að sögn Li Xiannian.
varaformanns kinverska komm-
únistaflokksins. i viðtali við
Harrison E. Salisbury, ritstjóra
„New York Times“.
Li, sem tók þátt í „Göngunni
miklu" með Mao og var varafor-
sætisráðherra í 26 ár, er háttsett-
asti kínverski embættismaðurinn,
sem hefur opinberlega ráðizt á
arfinn eftir Mao.
Harðasta gagnrýnin í barátt-
unni gegn Mao kom fram 4. júlí í
„Dagblaði alþýðunnar", þar sem
sagði að „hörmuleg mistök væru
óumflýjanleg, þegar duttlungar
eins manns gætu haft áhrif á heila
þjóð“. Flokkurinn yrði að læra að
ekki mætti gera einn mann að
„guði“, „svo að sams konar hörm-
ungar endurtækju sig ekki“.
I síðasta mánuði sagði nýr
aðalritari flokksins, Hu Yaobang,
við júgóslavneska fréttamenn, að
Mao hefði gert mörg mistök og
yrði að teljast ábyrgur fyrir
ofsóknum og öfgum menningar-
byltingarinnar.
hins vegar í fylkis- og sveita-
stjórnakosningum 8.-9. júni þeg-
ar það jók fylgi sitt töluvert.
Publio Fiori úr flokki kristilegra
demókrata sagði eftir atkvæða-
greiðsluna, að auk þess sem Cossiga
hefði fengið uppreisn æru væru
úrslitin „mikilvæg staðfesting á
samstöðu ríkisstjórnarinnar og
ósigur fyrir stefnu sterkrar stjórn-
arandstöðu undir forystu kommún-
ista.“
Úrslitin urðu þau að 535 greiddu
atkvæði með Cossiga en 370 á móti.
Ef vítur hefðu verið samþykktar á
Cossiga hefði hann verið leiddur
fyrir stjórnlagaréttinn, æðsta
dómstól landsins, og orðið að segja
af sér.
aka og stuðningsmanna írana
meðal Shíta. Rúmlega 100 féllu í
átökum þessara hópa fyrr í ár.
Einum sólarhring á undan til-
ræðinu við Shaib beið annar sendi-
ráðsritari irakska sendiráðsins í
Abu Dhabi bana í sprengjuárás, en
tveir særðust. írakska fréttastofan
kenndi írönum um tilræðið.
í Suður-Líbanon háðu palest-
ínskir skæruliðar og kristnir
hægrimenn stórskotaliðseinvígi
við Beanfort-kastala frá því um
sólsetur í gær til dögunar í morg-
un. Engan sakaði en mikið eigna-
tjón varð.
1975 — Ellefu ára viðskiptabanni
Samtaka Ameríkuríkja á Kúbu
aflétt — Herbylting í Nígeríu.
1974 — Ellefu konur fá prest-
vígslu í Fíladelfíu í trássi við
kirkjulög.
1973 — Afnám gríska konung-
dæmisins samþykkt í kosningum.
1967 — Eldsvoði í bandaríska
flugvélamóðurskipinu „Forestal"
undan strönd Norður-Víetnam
(134 farast) — Harðir jarðskjálft-
ar í Kólombíu.
1962 — Tillaga Cyrille Adoula um
nýja stjórnarskrá í Kongó.
1948 — Tito marskálkur neitar
ásökunum Kominform og fær
traustsyfirlýsingu júgóslavneska
kommúnistaflokksins.
1946 — Friðarráðstefna 21 þjóðar
hefst í París.
Þingmenn
klöppuðu
Þingheimur klappaði, þegar for-
seti fulltrúadeildarinnar, Nilde Jotti
úr flokki kommúnista las úrslitin.
Flokkur hennar hafði á hendi for-
ystu um, að þingið léti málið til sín
taka, og naut stuðnings nýfasista og
róttækra vinstrisinna. Cossiga naut
stuðnings flokkanna, sem standa að
stjórn hans.
Einfaldur meirihluti hefði nægt
til að útkljá málið. Fyrri tilraun
kommúnista til að vísa málinu aftur
til rannsóknarnefndar fór út um
þúfur. Edoardo Perna, formaður
þingflokks kommúnista, sagði að
halda yrði rannsókninni áfram.
Saksóknari í Tórínó hafði haldið
því fram, að Cossiga hefði ljóstrað
upp um leyndarmál og misnotað
stöðu sína með því að tilkynna
flokksbróður sínum, Carlo Ðonat-
Cattin, að lögregla leitaði að syni
hans, Marco. l/jgreglan segir, að
Marco hafði flúið úr landi, þegar
hann komst að því að hans væri
leitað. Hann er vinstriöfgamaður og
hans er leitað vegna morðs á
dómara í Mílanó í janúar sl.
Neituðu
Cossiga og Donat-Cattin hafa
neitað þessum ásökunum, og leið-
togar kristilegra demókrata hafa
sakað stjórnarandstöðuna um að
notfæra sér málið í pólitísku skyni.
Cossiga hefur orð fyrir ráðvendni og
fékk hrós fyrir hugrekki þegar hann
sagði af sér embætti innanríkisráð-
herra eftir morðið á Aldo Moro í
maí 1978.
1945 — Moskvu-samningurinn
undirritaður.
1940 — Allsherjar lofthernaður
Þjóðverja gegn Bretlandi hefst.
1937 — Japanir taka Tientsin í
Kína — Farúk verður konungur
Egyptalands.
1930 — Loftskipið „R100“ fer yfir
Atlantshaf.
1922 — Bandamenn setja Grikkj-
um úrslitakosti og banna þeim að
taka Konstantínópel.
1900 — Stjórnleysingi ræður um
Umberto I Italíukonung af dögum.
1696 — Pétur mikli Rússakeisari
tekur Azov af Tyrkjum.
1693 — Hertoginn af Luxemborg
sigrar Vilhjálm III af Englandi
við Neerwinden.
1656 — Svíar og Brandenborgarar
sigra Pólverja undir forystu Jo-
hanns Casimir við Varsjá.
1588 — Spænski ógnarflotinn
sigraður við England.
1565 — María Skotadrottning
giftist Darnley lávarði.
1499 — Tyrkir taka Lepanto í
Grikklandi.
1281 — Frelsisskrá Danmerkur
undirrituð á ríkisfundi í Nyborg.
1030 — Ólafur konungur helgi
felldur í Stiklastaðaorrustu.
Afmæli — Alexis de Tocqueville,
franskur rithöfundur (1805—1859)
— Enrique Granados, spænskt
tónskáld (1867-1916) - Booth
Tarkington, bandarískur rithöf-
undur (1869—1946) — Benito
Mussolini, ítalskur einræðisherra
(1883—1945) — Sigmund Rom-
berg, ungverskættað tónskáld
(1887-1951).
Andlát - 1833 William Wilber-
force, mannvinur — 1856 Robert
Schumann, tónskáld — 1890 Vin-
cent van Gogh, listmálari.
Innlent — 1214 f. Sturla Þórðar-
son lögmaður — 1119 Ólafsgildi á
Reykjarhólum — 1842 d. Pétur
Pétursson prófastur — 1903 „Lif-
andi myndir" sýndar í Reykjavík
— 1941 Dómsmálaráðherra skipar
nefnd til að rannsaka ástandið —
1978 Tilraun Benedikts Gröndals
til stjórnarmyndunar mistekst —
1979 Minnisvarði um Kollabúðar-
fund afhjúpaður — 1903 f. Guðm.
Frímann.
Orð dagsins — Þegar hlutirnir
eru á sínum stað er bezt að hafa
þá þar — Winston Churchill
(1874-1965).
Morð færast í
aukana í Beirút