Morgunblaðið - 03.08.1980, Page 12

Morgunblaðið - 03.08.1980, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. ÁGÚST 1980 Guðmundur I. Gunnlaugsson: Engin verzlim fnáls á íslandi nÉG ER nú eiginlega „alt ntulig mand“ hér, en annars er ég aðallega i sölunni hérna og hef verið í rúm fimm ár,“ sagði Guðmundur I. Gunnlaugsson, er blaðamaður ræddi við hann i hjólharðasóluninni Bandag i Reykjavik. „Frjáls verzlun undirstaða velmegunnar“ „Þegar einstaklingarnir í þjóð- félaginu fá að njóta sín, og fá tækifæri til að virkja hæfileika sína, er það lýðræði og við slíkt lýðræði þarf verzlunin að búa við. Frjáls innlend verzlun er undir- staða velmegunnar. Til þess að verzlun geti talizt frjáls, þarf hún að hafa álagningu, sem nægir fyrir eðlilegum rekstrarkostnaði, afskriftum og arði til uppbygg- ingar og framfara, en það á því miður ekki við íslenzka verzlun. Það er engin verzlun frjáls á íslandi, hún gæti alveg eins verið þjóðnýtt. Það liggur við, að það sé bannað að græða peninga á ís- landi. Frá sjónarmiði launþegans ætti það að vera gott, að fyrirtæki græddi, þá væri hægt að gera meiri kröfur til þess, bæði hvað snertir þjónustu og laun. Erlendis stæra fyrirtæki sig af því að græða, en hér heima lepjum við dauðann úr skel, nema að við svíkjum undan skatti, eða eitthvað í þá áttina. Við erum á láglaunasvæði, með lægstu launasvæðum í Evrópu, aðeins með um helmings kaup á við Norðurlandaþjóðirnar, en höf- um næstum sama skattahlutfall og höfum því mun minna ráðstöf- unarfé en frændur okkar. „Skattaálögur verulegur dragbítur“ Skattaálögur eru verulegur dragbítur á alla starfsemi í land- inu og skattpínsla á lág laun og erfiðan rekstur hjálpa ekki bein- línis til. Strangar álagningarregl- ur skerða frelsi verzlunarinnar, þær eru lögbundnar mjög lágar og því er haldið fram, að verði álagningin gefin frjáls hækki vöruverð, en það er tómt rugl, vöruverð ætti ekki að hækka hér frekar en annars staðar, þar sem álagning hefur verið gefin frjáls. Það er þrennt sem þarf að koma til, ef verzlunin á að geta gengið eðlilega fyrir sig, eðlilegur rekstr- argrundvöllur verður að fást, en til þess þarf verðbólgunni að linna og innkaup myndu snarbreytast til batnaðar, ef álagning yrði gefin frjáls. Þegar þannig er, er það hagur að geta keypt þannig inn, að hægt sé að bjóða vöruna á hag- kvæmu verði í langan tíma. Nú er enginn hagur að hagkvæmum inn- kaupum, bezt er að kaupa sem dýrast inn, þá fæst meira út úr álagningunni. „Skattpínsla ríkisins í framkvæmd“ Við getum tekið dæmi um skatt- pínslu ríkisins í framkvæmd. Við innflutning á hjólbörðum er skömmtuð álagning 18%, sem skiptist á milli innflytjenda og smásölu aðilja. Þetta er svo lítið að ekki er um nokkurn hagnað að ræða, þetta er bara nauðsynleg þjónusta við viðskiptavini. Nú ef við höldum dæminu áfram og segjum að við flytjum inn hjól- barða, sem kostar úti 1000 krónur, kostar hann um 1150 kominn til landsins. Þá tekur ríkið 40% í toll, 24% í vörugjald, gummígjald 45 krónur á kílógramm og að lokum 23,5% í söluskatt. Þegar þetta er iagt saman kemur út, að ríkið fær um 1.676 krónur af hlut, sem kostar 1000 krónur í innkaupum. Svo eru verzlunarmenn stundum kallaðir þjófar. „Frjáls afgreiðslu- tími varhugaverður“ Ég er ekkert sérlega hlynntur frjálsum afgreiðslutíma, það vill koma niður á starfsfólki, en ef það er tryggt í samningum starfsfólks og kaupmanna, að vinnuþreki verði ekki ofboðið og það verði ekki hlunnfarið í launum, ætti þetta að vera í lagi. En frjáls afgreiðslutími hefur ekkert með raunverulegt frelsi verzlunarinnar að gera, heldur er það sem skiptir máli, að losna undan einokun ríkis * r Ulfar Agústsson: Ekkert samhengi á milli kostnaðar og leyfðrar álagningar yf irvalda „Ég er viss um að verzlun er undirstaða velmegunar i hvaða landi, sem er, hvort sem hún er frjáls eða ekki. Við þekkjum það úr sögunni að velmegun varð ekki hér á landi, fyrr en verzlun- in komst inn i landið, en lands- menn verða auðvitað að eiga verzlunina sjálfir,“ sagði Úlfar Ágústsson kaupmaður í verzlun- inni Hamraborg á ísafirði, er blaðamaður Mbl. ræddi við hann. „Verzlun á íslandi er ekki frjáls, nema að litlu leyti“ Verzlun á íslandi er alls ekki frjáls, nema að litlu leyti, þú hefur leyfi til að verzla, en þér er varnað að verzla á þann hátt, sem er arðvænlegur eða hagkvæmur og það skaðar að sjálfsögðu bæði kaupmenn og neytendur, þegar til lengdar lætur. Sá verzlunarmáti, sem gildir á íslandi í dag, er meira ánauð en starf frjálsra manna. 1 smásölunni er oftast. um mikla vinnu að ræða, en lítil laun. Smásölukaupmaður, sem með óheyrilegum vinnutíma, getur skapað sér sæmilegar tekjur, er litinn hornauga og tekjur hans kallaðar gróði og slíkt er álitið þjóðhagslega hættulegt. En opin- ber embættismaður, sem ef til vill vinnur eitthvað fram yfir lögboð- inn átta stunda vinnutíma, fær ómælda yfirvinnu, hún er kölluð laun og er nábjargir alþýðunnar. Það er aldrei neitt athugavert þó slíkt fólk fái góðar tekjur og því einfaldlega hælt fyrir dugnað. „ÁlagningarkerfiÖ setur verzluninni stólinn fyrir dyrnar“ Það, sem mest setur íslenzkri verzlun stólinn fyrir dyrnar, er álagningarkerfið, sem hið opin- bera hefur komið á, það er hrein- lega fáránlegt. Ekkert samhengi er á milli kostnaðar við umsetn- ingu og álagningar. Það er mest tvennt sem veldur þessu, reglu- gerð verðlagsnefndar og álagning landbúnaðarvara. Sem dæmi má nefna, að svokallaðar g-vörur eru allar í nákvæmlega eins pakkning- um, geymdar við nákvæmlega sömu aðstæður og seldar á ná- kvæmlega sama hátt, en ef um landbúnaðarvöru er að ræða, er álagningin 14%, en ef um iðnað- arvöru er að ræða er hún 38%. Yfirleitt er smásöluálagning á iðnaðarvörur 38% og verð á hverri einingu á bilinu 500 til 2000 kr. Álagning á sælgæti er 42% og þar er einingarverð á bilinu 10 til 500 kr. Ef við svo berum saman vinnuna við að selja karamellur og ávaxtadós, fyrir 1500 kr., kemur auðvitað í ljós að vinnan við karamellurnar er mun meiri. Sú vörutegund, sem dýrust er í minni verzlun, er gosdrykkir, þar er álagningin 28,5% og er umsýsla með umbúðir innifalin í þvi. Svo þekkja allir dæmið um mjólkuraf- urðir, sem seldar eru með 10 til 14% álagningu, en eru geymdar í rándýrum kæli og búa þar við mjög hátt orkuverð. „Verðlagsreglur verðbólguhvetjandi“ Ég sé enga ástæðu til að skaða verzlunarrekstur minn fram yfir það sem verðlagsyfirvöld heimta með því að kaupa inn ódýrar vörur. Eftir því, sem varan er ódýrari í innkaupum rýrast tekju- möguleikar verzlunarinnar, sam- kvæmt þessu heimskulega verð- lagskerfi, sem við búum við og er án efa verðbólguhvetjandi og eyk- ur almenna dýrtíð á Islandi. Að mínu ájiti er ennþá litið á kaupmenn á íslandi sömu augum og á tímum einokunarverzlunar- innar. Sagan hefur gert þá að þjóðfélagsóvini númer eitt og á meðan ekki tekst að gera íslend- ingum grein fyrir þeim breyttu viðhorfum, sem orðið hafa, býr kaupmannastéttin við hættulega tortryggni, sem alla landsmenn 8kaðar.“ H.G. Pétur Guðmundsson. Ljósm. Mbl. RAX. Enginn hef ur nóg’ — segir Pétur Guðmundsson „VIÐ verzlum hér með varahluti i landbúnaðarvélar og það eru stórir dagar hjá okkur núna, bændurnir eru að heyja. Þegar gott er veðrið þá er meira að gera hjá okkur,“ sagði Pétur Guð- mundsson, en hann vinnur í varahlutaverzlun SÍS. „Það er nokkuð jafnt hjá okkur að gera yfir allt árið, en þó sker sumartíminn sig úr. Þá er mikil sala í heyvinnuvélum og öðrum tækjum sem bændurnir nota." — Hvernig eru kjörin? „Það er nú eins og all^Jpðar í þjóðfélaginu, enginn hefur nóg. Að vísu eru töluverðar yfirborganir, en sjálfsagt er það misjafnt eftir verzlunum. Ég held að yfirborgan- ir séu minni í smærri fyrirtækjum en algengari í stórfyrirtækjum. Ég tel að fólkið á þessum vinnu- stað sé ekkert mjög óánægt með launin, ég held að það megi vel við una miðað við aðra í verzlunar- stéttinni," sagði Pétur. „Ég hef unnið hjá þessu fyrir- tæki í tíu ár og það hafa ekki orðið miklar breytingar hér á þeim tíma. Við erum fimm sem vinnum hérna á búvélalager og hefur starfsmönnum hér fjölgað með árunum og auknum umsvifum," sagði Pétur Guðmuijdsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.