Morgunblaðið - 03.08.1980, Page 37

Morgunblaðið - 03.08.1980, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. ÁGÚST 1980 37 Síðasta erindið, rímar aðeins saman önnur og fjórða ljóðlína og þar notað hið vandmeðfarna orð „frýr“. Sé þetta svona ruglað, væri æskilegt að fá það birt aftur rétt. Þetta er skrifað í þeirri von, að það nái að verða einhverjum til nota, sem nennir að lesa og hugsa um það.“ Þessir hringdu . . Jón Þórðarson prentari, sem býr á Framnesvegi, hringdi og kvað íbúa við sína götu heldur óhressa með viðskilnað kvikmynda- tökufólks þar á staðnum. — Þeir fengu hjá okkur alla þá aðstoð sem við gátum veitt, svo að mér finnst að þeir ættu að leggja metnað sinn í að hreinsa til eftir sig. M.a. báru þeir möl á bakstíg- inn milli Framnesvegar og Selja- vegar, sem mjög erfitt er að ganga um, einkum fyrir aldrað fólk eins og mig, en þeir hafa ekki fjarlægt mölina enn, og eru þó liðnar nokkrar vikur síðan þeir luku við kvikmyndatöku hérna. SKAK Umsjón: Margeir Pétursson Á skákhátíð í Tashkent í Sov- étríkjunum fyrir stuttu kom þessi staða upp í skák þeirra Borisov, sem hafði hvítt og átti leik, og Tashkhodshaev. Hinn fyrrnefndi lék nú stórglæsilegum leik: • Samkynning íslendinga Marlín J.G. Magnússon, Vancouver, BC, Kanada, skrifar: „Kæru þjóðbræður: Það má með sanni segja að aldrei hafi verið efnt til eins vænlegrar þjóðernissamkynn- ingar meðal íslendinga í hvívetna og síðan þjóðhátið íslands var haldin árið 1974, og fram að þessu, og er alkunnugt með flugferðirnar milli íslands og Norður-Ameríku, og önnur þjóðræknisleg sambönd hópa og einstaklinga. Á þessu skeiði er eins og ekkert hafi verið látið standa fyrir góðri og auðveldri samkynningu Islend- inga. • Pólitík og græðgi Nú er samt kominn Þrándur í götu. Nú er kominn fram annar hugur, þar sem pólitík er komin í leikinn, og við vitum að þetta getur farið illa þar sem hugurinn er nú sá, að græða sem mesta peninga á þeim er heimsækja Island, og þá sjálfsagt á 'þeim er ferðast frá Fróni til þess að heimsækja þjóðbræður sína hér vestra í Norður-Ameríku — land- inu sem Leifur Eiríksson fann árið 1000. • Lausnargjald Það má heita annað en þjóð- ræknislegt af ríkisstjórn íslands að þvinga gesti með lögum til þess að borga lausnargjald til þess að maður fái að fara heim eftir að heimsækja ísland. Það er niðrandi fyrir þjóðina að gera þetta, að heimta $20 lausnargjald við brott- för, og sérstaklega þar sem fólk er nú farið að vilja taka börn sín með sér til þess að þau kynnist ætt- ingjum sínum. Hjón með tvö börn munu þurfa að borga $80 lausn- argjald (ransom á ensku) til að fá að fara heim aftur, ofan á allan annan kostnað, og það sem er keypt, og sem er allt skattað og marg-skattað. • Skömm aö þessu Hvaða lands-skuld er það, sem þessi stjórn ætlar sér að borga með því að halda gestum í gíslingu og heimta lausnargjald? Maður má líklegast fá að vita það, fyrst á að láta okkur gestina borga, því að annars er þetta ekki nema blákalt bragð stigamanna gagnvart gestum sínum. Ekki eru allir svo nískir, sem gestkomandi eru, að þurfi að þvinga þá til aukaútláts svo að gott megi heita. Ég lét út $10,600 alls er við hjónin heimsóttum ísland árið 1978, og hefði kannski neitað að borga lausnargjald að auki. Svo mun og fleirum finnast. Það er skömm að þessu." HÖGNI HREKKVISI SIGGA V/öGA 1ViVtVAH Þessi sjö vetra hryssa hvarf úr giröingu Fáks í Geldinganesi merkt F 24 á vinstri síöu. Vinsamlegast látið vita í síma 41878. St. PETE BEACH FLORIDA 30. ágúst 20 daga ferö 30. ágúst—19. sept. Gisting á góðu hóteli meö eöa án eldhúsaðstöðu. íslenskur fararstjóri á staðnum skipuleggur skoöana- ferðir til helztu staöa s.s. Walt Disney World, Sea World o.fl. FERÐASKRIFSTOFAN OTUWTHC Iðnaðarhúsinu v/Hallveigarstíg. Símar: 28388 — 28580. EFÞAÐ ERFRETT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐENU AL’fíLYSINGA- SÍMINN ER: 22480 /405 V\V£HSA, WÍW w) V£fó)0U496ÓM4\iAWA tíLÓNÖÝl 23. Dxh7!! og svartur gafst upp því drottninguna má ekki drepa vegna 24. Rg6 mát. ekk/Nm V4Q m <d4n«£6a WtíKMWHTtLté -XINILW ,/X)^N| m \&0VA‘ (A.es'! -7TS'( ^YmeíN YLvnm? ■0J <bosoi yufli yiio ytfiöVÍ 49 94/Á/V-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.