Morgunblaðið - 16.08.1980, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1980
Nýr rríaður
til ÍR-inga
Korfuknattlciksdeild ÍR hef-
ur nú Kentfið frá samninKum
við Bandariskan leikmann
fyrir næsta keppnistimahil.
Sá heitir Andy Flynn ok er
2.01 metrar á hæð. Hann
mun þjálfa meistaraflokk
jafnframt.
Öldungakeppni
í golfi
Á sunnudaK fer fram opin
OldunKakeppni í Kolfi á
Ilólmsvelli í Leiru. Hefst
keppnin kl. 13.30 ok leiknar
verða 36 holur. VckIck verð-
laun verða veitt ok er mótið
-opið ollum þeim sem eru 55
ára ok eldri.
Sundmót á
Selfossi
| Aldursfiokkameistaramót
Islands í sundi verður haldið
á Selfossi, dagana 30. til 31.
ágúst 1980.
Þátttökutilkynningum skal
skilað á tímavarðarkortum
til skrifstofu SSÍ, íþrótta-
miðstöðinni Laugardal fyrir
sunnudaginn 24. ágúst '80,
ásamt skráningargjöldum,
sem ákveðin hafa veriö krón-
ur 400 pr. skráningu. Athygli
skal vakin á því að skrán-
ingar sem ekki verða greidd-
ar á þeim tíma verða ekki
teknar til greina.
Þá hefur stjórn SSÍ ákveð-
ið að sundþing 1980 verði
haldið á Selfossi dagana 30.
og 31. ágúst, um leið og
meistaramótið fer fram.
Dagskrá þess, staður og tími
verða auglýst síðar.
Opið frjáls-
íþróttamót
á Akureyri
ÞANN 23. ágúst fer fram á
Akureyri opið frjálsíþrótta-
mót þar sem búast má við að
allir bestu frjálsíþrótta-
menn landsins verði meðal
þátttakenda. Keppnisgrein-
ar karla verða þessar: 100,
400, 800,1500 og 3000 metra
hlaup, 110 m grindahlaup,
kúluvarp, kringlukast og
hástokk. Kvennagreinar
verða þessar: 100,400,100 m
grindahlaup, hástökk og
spjótkast. Þeir sem áhuga
hafa á að taka þátt i móti
þessu skulu tilkynna þátt-
töku til Hreiðars Jónssonar.
íþróttavcllinum á Akureyri.
Daninn
efstur
NÚ FER senn að láða að
fyrstu umferð I Evrópumót-
unum I knattspyrnu. Og þá
er ekki úr vegi að rifja upp
hverjir skoruðu mest fyrir
lið sin í fyrra í meistara-
keppninni. Daninn Lerby
hjá Ajax var efstur á listan-
um sem lítur svona út:
Lerby (Ajax) ...........10
Blanker (Ajax) .......... 7
Hrubesch (Hamb. SV) .. 7
Kajafas (Om. Nicosia) .. 6
Krol (Ajax) ............. 4
Robertson (Nottingh.) .. 4
Pelka (Dynamo Berlin) 3
Bianchi(Strasbourg) ... 3
Piasecki (Strasbourg) ... 3
Bowyer (Nottingham) .. 3
McClusky (Celtic) ...... 3
Vujovic (Hajduk Split) .. 3
Francis (Nottingham) .. 3
Santillana (Real Madrid) 3
Cunningham (R. Madrid) 3
• Á þessari mynd er hart barist um knOttinn, og vist má telja að svo verði í þeim fjolmörgu knattspyrnuleikjum sem fram fara um helgina.
Það eru ekki bara lcikmenn meistaraflokks sem spretta úr spori. Um helgina fara fram úrslit í 3—4 og 5 flokki í Islandsmótinu í
knattspyrnu, og óhætt er að hvetja fólk til þess að fylgjast með ungu drengjunum því að þeir veita ekki síðri skemmtun en þeir fullorðnu.
• Kylfingarnir sem hlutu verðlaun á Hamarsvelli. Jon Sigurðsson,
Yngvi Árnason. Aftari röð frá v. Stefán Unnarsson, Sigurður
Hafsteinsson, Sigurður Albertsson og íorstjóri íslensk-ameríska Bert
Hansson sem gaf verðlaunin til keppninnar.
Fjölmennt mót
á Hamarsvelli
MIKIÐ fjölmenni var á Ilamars-
velli um síðustu helgi er 82
kylfingar tóku þátt i opna Ping
mótinu. Þetta er langfjölmenn-
asta mót sem haldið hefur verið á
Hamarsvelli.
Mótið var mjög vel skipulagt
og BorgnesinKum til mikils
sóma. Menn rómuðu mjog vollinn
og skálann sem klúbbfélagar
hafa innréttað sjálfir.
Úrslit urðu eftirfarandi:
Án forgjafar:
Sigurður Albertsson G.S. 73
Sigurður Hafnsteinss. G.R. 75
Stefán Unnarsson G.R. 76
Með forgjöf:
Yngvi Árnason G.B. 62
Jón Sigurðsson G.N. 65
Jón Svafarsson G.R. 68
Konráð Bjarnason forseti Golf-
sambandsins átti þarna gott
„Come Back“, lenti í 4. sæti með
forgjöf.
Úrslitaleikir
yngri flokkanna
NÚ UM helgina fara fram úr-
slitaleikir í yngri aldursflokkun-
um, fjórða, fimmta og þriðja
flokki. Þriðji flokkur leikur á
Akureyri, fjórði flokkur á Kópa-
vogsvelli og fimmti flokkur á
Laugardalsvellinum. Þaö er jafn-
an mikil og skemmtileg barátta i
þessum flokkum og óhætt að
hvetja fólk til þess að mæta og sjá
ungu drengina leika. Leikirnir í
dag hefjast á Ollum stöðunum kl.
10.00 og einnig á morgun.
FH-ingar kæra
bikarleikinn
- verður lið Fram dæmt úr
leik í bikarkeppni KSÍ?
STJÓRN knattspyrnudcildar FII
hefur kært hikarleik sinn við
Fram á þeirri forsendu að Fram-
arar hafi notaö leikmann sem
átti að vera í leikbanni sam-
kvæmt úrskurði aganefndar.
Leikurinn er kærður til íþrótta-
dómstóls Ilafnarfjarðar. Má bú-
ast við því að málið verði tekið
fyrir næstkomandi fimmtudag.
Mbl. hafði í gærdag samband
við formann knattspyrnudeildar
Fram og innti hann eftir áliti á
máli þessu. Lúðvík sagði að það
hefði verið stjórnarsamþykkt
fyrir því hjá knattspyrnudeiidinni
að láta Trausta Haraldsson leika
leikinn þar sem það lá alveg ljóst
fyrir að tilkynning aganefndar
kom ekki nægilega snemma til
stjórnar knattspyrnudeildarinnar.
„Eg er ánægður yfir því að málið
skuli hafa verið kært, það verður
gott að fá prófmál í þessu". „Við
höfum þegar ráðið Grétar Har-
aldsson hæstaréttarlögmann til
þess að vera fulltrúa okkar í þessu
máli. Ef við töpum málinu fyrir
héraðsdómstóli í Hafnarfirði
munum við áfrýja málinu til
sérdómstóls KSÍ.“ „En ég get
ómögulega séð annað en við séum
í fullum rétti og komum því
örugglega ekki til með að tapa í
máli þessu," sagði Lúðvík.
Mál þetta er hið athyglisverð-
asta og verður fróðlegt að fylgjast
með framvindu þess. Það yrði súrt
epli að bíta í fyrir Fram ef liðið
yrði dæmt úr leik í bikarkeppninni
eftir að vera komnir alla leið í
úrslitin. — þr.
Landsleikur
í sjónvarpinu
í ÍÞRÓTTAÞÆTTI sjónvarpsins
I dag mun verða sýndur lands-
leikur íslands og Noregs sem
fram fór fyrr í sumar. Leikur
þessi var mjög góður af hálfu
islenska liðsins þrátt fyrir að
Norðmönnum tækist að sigra
3-1.
Væntanlega mun sjónvarpið
líka sýna leik tslendinga gegn
Svium sem leikinn var um svipað
leyti. Nánar verður skýrt frá því
siðar. íþróttaþátturinn hefst kl.
16.30 i dag.
50 frumreglur í golfi
ann og hann fallið af tíinu; þetta
telst högg og Boggi verður að slá
boltann þar sem hann liggur.
HINN snjalli og kunni teiknari
Ragnar Lár hefur sent frá sér
litla og handhæga bók um golf-
reglur. Vasahandbók Bogga
mætti kalla b<)kina en Boggi er í
aðalhlutverki i bókinni. sem ber
nafniö 50 frumreglur í golfi.
Bókin er eftir erlendri fyrir-
mynd, en Ragnar Lár gefur út
bókina á eigin kostnað og
ábyrgð.
Bókin er hið mesta þarfa-
þing fyrir kylfinga og ætti að
koma að góðum notum við goif-
ieikinn.
Bókin fæst á flestum
golfvölium á landinu.