Morgunblaðið - 26.08.1980, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 26.08.1980, Blaðsíða 23
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1980 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1980 23 Sigurður Halldórsson skorar þriðja markið Sigurður Lárusson og Sigþór fagna markinu Ljósm. Kristinn. SgSsM** <*•**»* *»” Einkunnagjdfin LIÐ VÍKINGS: Diðrik ólafsson Þórður Marelsson MaKnús Þorvaldsson IleÍKÍ HeÍKason Gunnar Gunnarsson Róbert AKnarsson Jóhannes Bárðarson ómar Torfason Lárus Guðmundsson Aðalsteinn Aðalsteinsson Heimir Karlsson Hörður SÍKurðsson (vm) Hörður Þórhallsdh (vm) LIÐ FRAM: Guðmundur Baldursson Símon Kristjánsson Trausti Haraldsson Jón Pétursson Marteinn Geirsson Gunnar Guðmundsson Hafþór Sveinjónsson Guðmundur Torfason Pétur Ormslev Guðmundur Steinsson Erlendur Daviðsson LIÐ KR: 5 Stefán Jóhannsson 5 Guðjón Hilmarsson 6 Jósteinn Einarsson 5 Ottó Guðmundsson 5 Börkur Ingrvarsson 5 Elias Guðmundsson 6 BirKÍr Guðjónsson 5 ÁKÚst Jónsson g Jón Oddsson 4 Sæbjörn Guðmundsson 6 SÍKurður Indriðason 4 ErlinK Aðalsteinsson (vm) 4 LIÐ ÍA: Bjarni SÍKurðsson 8 Guðjón Þórðarson 5 Jón Áskelsson 7 SÍKurður Lárusson 6 SÍKurður Halldórsson 6 Jón GunnlauKsson 6 Kristján OÍKeirsson 6 Björn H. Björnsson 7 SÍKþór ómarsson 7 Guðbjörn TryKKvason 6 Árni Sveinsson 5 Júlfus InKÓlfsson (vm) LIÐ UBK: 5 Guðmundur ÁsKeirsson 6 ólafur Björnsson 5 Tómas Tómasson 6 Valdemar Valdemarsson 7 Einar Þórhailsson 8 GunnlauKur HelKason 6 VÍKnir Baldursson 6 Þór Hreiðarsson 7 Hákon Gunnarsson 6 InKÓlfur InKÓlfsson 5 SiKurður Grétarsson 6 Björn Þór EKÍlsson ívm' - \ * LIÐ FH: Friðrik Jónsson Viðar Halldórsson 9 Atli Alexandersson 6 Valþór SÍKþórsson 4 Guðjón Guðmundsson 6 Lokí ólafsson 5 HelKÍ RaKnarsson 7 ÁsKeir Elíasson 6 Valur Valsson 6 Pálmi Jónsson 6 ÁsKeir Arnbjörnsson 6 MaKnúS Teitsson (vm) 6 Dómari: 5 Þorvarður Björnsson LIÐ ÍBK: 6 Þorsteinn Bjarnason 7 Guðjón Guðjónsson 6 Gisli Eyjólfsson 6 Kári GunnlauKsson 6 óskar Færseth 5 Björn InKÓlfsson 5 Hilmar Iljálmarsson 6 ómar InKvarsson 6 ólafur Júliusson 5 RaKnar MarKeirsson 8 Steinarióh»r.^.n 5 Oli Þór MaKnússon (vm) 7 5 LIÐ ÍBV: 5 Páll Pálmason 6 Þórður IlallKrímsson 5 SÍKhvatur Bjarnason 4 Viðar Elíasson 4 Snorri Rútsson 4 Sveinn Sveinsson 4 ómar Jóhannsson 6 Sigurlás Þorleifsson 5 Kári Þorleifsson 6 Guðmundur Erlendsson Dómari: 7 Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson 7 6 5 5 6 5 4 6 5 8 4 4 7 5 6 5 5 4 6 5 5 5 6 af krafti í upphafi seinni hálfleiks en ekki tókst þeim að skora. Fyrst skaut Sæbjörn framhjá í dauða- færi og Bjarni varði frábærlega vel skallabolta frá Jóni Oddssyni. Á 20. mínútu seinni hálfleiks kom svo þriðja markið, sem end- anlega gerði út um leikinn. Árni tók langt innkast, boltinn barst til Sigurðar Lárussonar, sem tókst að slá hann með höndunum til nafna síns Halldórssonar án þess að dómarinn sæi. Sigurði Halldórs- Bjarni lokaði marki IA EITTHVERT lánleysi hefur verið yfir KR-ingum í undanförnum leikjum og engin breyting varð þar á þegar KR-ingar fengu Akurnesinga í heimsókn á laugardaginn. Gestirnir unnu 3:0 í leik. þar sem KR-ingar voru mun sókndjarfari. En þeim tókst ekki að koma boltanum í netið þrátt fyrir mörg góð tækifæri. Þau skot og skallaboltar sem á markið komu lentu ætíð i höndum Bjarna Sigurðssonar skagamarkvarðar, sem að þessu sinni sýndi algeran stjörnuleik í markinu. sérstaklega Fyrri hálfleikurinn var mjög fjörugur og skemmtilegur og marktækifærin komu á færibandi. Strax á 6. mínútu skoruðu Akur- nesingar mark. Guðbjörn Tryggvason braust upp hægra megin og gaf boltann inn í víta- teiginn til Sigþórs Ómarssonar, sem skallaði boltann laglega í markið af nokkuð löngu færi. Stefán markvörður var mjög hik- andi í varnaraðgerðum sínum. Á 12. mínutu bættu Skagamenn við marki og var það mjög svo einkennilegt. Skagamenn spyrntu langsendingu fram völlinn, beint á Stefán markvörð. Sigþór var rang- stæður og veifaði línuvörðurinn en dómarinn, Rafn Hjaltalín flautaði ekki, heldur lét leikinn halda áfram eins og rétt var. En Stefán markvörður hélt að búið væri að dæma rangstöðu, því hann rúllaði boltanum fram hinn rólegasti. Guðbjörn var fyrstur að átta sig, brunaði upp að markinu, lék á Stefán en var felldur af honum. í fyrri hálfleik. Vítaspyrna var réttilega dæmd og úr henni skoraði Sigþór af miklu öryggi. Eftir þetta mark færðist mikið fjör í leikinn og var sótt á báða bóga en KR-ingarnir voru samt hættulegri. Bjarni var mjög vak- andi í markinu og hirti allt sem inn í vítateiginn kom. í nokkur skipti varði hann frábærlega vel, t.d. skallbolta Barkar, sem stefndi í bláhorn marksins og þrumuskot Jóns Oddssonar beint úr auka- spyrnu. Árni Sveinsson komst í dauðafæri hinum megin á vellin- um er hann komst einn inn fyrir vörn KR en hann varð of seinn að skjóta. KR-ingar héldu áfram að sækja syni tókst með harðfylgi að koma boltanum yfir marklínuna. 'Eftir markið dofnaði yfir leikn- um en síðasta tækifærið féll Erlingi Aðalsteinssyni í skaut en enn einu sinni voru heilladísirnar á bandi IA. Erling átti þrumuskot í höfuð Guðjóns Þórðarsonar og stöngina. Bæði liðin léku ágæta knatt- spyrnu í þessum leik og voru Akurnesingar þar framar í flokki þótt lánið hafi ekki leikið við þá. KR-ingarnir eru komnir í alvar- lega fallhættu en þeir hljóta að bjarga sér, þeir eru einfaldlega alltof góðir til þess að fara niður í 2. deild. Sigurinn var mkilvægur fyrir Skagamenn. Þeir eru aftur komnir í baráttuna. Sigurinn geta þeir fyrst og fremst þakkað heilladís- unum og Bjarna markverði Sig- urðssyni, sem átti hreint frábær- an leik. í STUTTU MÁLI: Laugardalsvöllur 23. ágúst, KR - ÍA 0-3 (0-2). MÖRK ÍA: Sigþór Omarsson á 6. og 12. mínútu (vítaspyrna) og Sigurður Halldórsson á 65. mín- útu. ÁMINNING: Engin. Áhorfendur: 843. - SS. FH sótti en UBK skoraði UBK steig mikilvægt skreí í átt burt frá fallbaráttusvæði 1. deild- ar, en FH sogaðist hins vegar enn nær, er liðin mættust á Kapla- krikavelli. UBK sigraði í leikn- um með eina marki leiksins sem Sigurður Grétarsson, framherj- inn stórefnilegi, skoraði snemma í fyrri hálfleik. Ilafa Blikarnir nú hlotið 15 stig <>k ættu ekki að þurfa að hugsa um fall lengur. Siðustu leikirnir verða hins veg- ar FH-ingum erfiðir, þeir eiga eftir að leika gegn Fram, ÍBV og Þrótti. Annars var gangur leiks FH og UBK svolítið furðulegur. Það var nefnilega FH sem sótti allan leikinn mun meira. Engu að síður runnu öll þau marktæki- færi sem buðust í vasa Breiða- bliksmanna, það voru ein 5—6 færi eða meira, þannig að þrátt fyrir meiri sókn FH, var sigur ÚBK meira en verðskuldaður. ubk 0:1 Sigurmark UBK kom strax á 13. mínútu leiksins. Hákon Gunnars- son sendi þá Iaglega stungusend- ingu á Sigurð Grétarsson, sem stakk FH-vörnina af, ekki í fyrsta skiptið og ekki síðasta. Komst Sigurður á auðan sjó og skoraði yfirvegað fram hjá úthlaupandi markverðinum. FH-liðið var með ólíkindum slakt að þessu sinni. Það vantaði ekki, að leikmenn li&ain«-óft •dgiega saman úti á vellinum, nei, það vantaði sko ekki. En framlín- an var með öllu vopnlaus og bitlaus, auk þess sem vörnin var fjarri því að vera eitthvað til að gala húrra fyrir. Það eru að sjá of margir veikir hlekkir í liðinu. En knattspyrna FH-inga gleður oft augað, ekki verður annað sagt. Það vantar bara alla ákveðni og allt stál. Blikarnir eru án nokkurs vafa mun betri lið, enda hafa þeir lagt FH að velli í báðum viður- eignum þeirra í sumar. Þrátt fyrir að menn vatnaði í vörnina eins og Benedikt og Helga Helgason, stóð hún sig vel. Miðvallarspil liðsins var gott á köflum og Sigurður Grétarsson var stórhættulegur Það em. zgz- ykJur, að pH komst ekki nálægt því að skora hjá Blikunum fyrr en komið var fram yfir venjulegan leiktíma. Þá reyndi Pálmi Jónsson skot af 25—30 metra færi, gott skot, sem Guðmundur Ásgeirsson varði mjög vel. Þar fyrir utan ógnaði bitlaus framlína FH Blikunum aldrei. Kópavogsmennirnir beittu mjög skyndisóknum með þeim afleiðingum, að þeir hefðu átt að vinna 3—4 núll. Sigurður Grét- arsson komst þrívegis í dauðafæri og Helgi Bentsson tvívegis. En þeir ýmist brenndu af, létu ræna frá sér knettinum, eða þá að Friðrik varði eins og herforingi. frammi. Félagar hans Helgi og Ingólfur voru óvenjulega daufir að þessu sinni. En sigur UBK var verðskuldaður. I STUTTU MÁLI: íslandsmótið 1. deild: FH:UBK 0:1 (0:1) Mark UBK: Sigurður Grétars- son (13. mín.) Gul spjöld eða rauð: SÍKurðnr Grétarsson sá gult. — gg- • Guðmundur Torfason lék Víkingsvörnina grátt. Ljósm. Kristinn. Fram nýtti betur færin — en vann of stóran sigur miöað viö gang leiksins FRAMARAR unnu stórsigur á Vikingi í 1. deild íslandsmótsins í knattspyrnu um helgina. Skoruðu Framarar þrjú mörk, en Víkingum var hins vegar gersamlega fyrirmunað að skora. Þeir fengu til þess ekki siðri og ekki færri tækifæri en Framarar. Sigur Fram var verðskuldaður, þó einkum fyrir þær sakir, að liðið nýtti þau færi sem buðust. í frekar slökum leik, voru það hins vegar Víkingarnir sem að léku heldur áferðarfallegri knattspyrnu úti á vellinum. En Fram lék árangursrikari fótboltann að þessu sinni. Þessi leikur var geysilega þýðingarmikill, þar sem bæði Víkingur og Fram voru með 18 stig fyrir leikinn, tveimur minna en Valur. Víkingur - Fram Framarar fengu sannkallaða óskabyrjun, en knötturinn lá í neti Víkings eftir aðeins þrjár mínút- ur. Það blés því ekki byrlega fyrir Víking og til að bæta gráu ofan á svart, kom markið upp úr innkasti sem að Víkingur hefði réttilega átt að fá. Knötturinn barst til Guðmundar Torfasonar við hægra vítateigshornið. Hann stakk lúmskri sendingu inn að markteig Víkings og Diðrik vaknaði ekki fyrr en of seint af blundi sínum. í stað þess að hlaupa til og hrifsa knöttinn til sín, stóð hann frosinn á línunni og lét Guðmund Steins- son næla í tuðruna. Guðmundur skaut í fætur Diðriks, en þaðan skaust knötturinn til Péturs Ormslevs sem þrumaði knettinum í þaknetið frá vítapunkti. Leikurinn var mjög jafn framan af og fyrir kom að bæði lið sýndu eitthvað af viti. Þegar líða tók að miðju fyrri hálfleiks færðustJVík- ingarnir hins yo^o- rnjog - aukana og um tíma rak hvert dauðafærið annað. Það byrjaði á 20. mínútu, Lárus Guðmundsson lék þá illa á Símon, en Marteinn potaði knett- inum burt á síðustu stundu. Fimm mínútum síðar varði Guðmundur Baldursson snilldarlega skalla Helga Helgasonar sem stefndi í bláhornið. Guðmundur varði enn af snilld tveimur mínútum síðar, er Lárus komst einn í gegn eftir mistök Marteins. Enn sóttu Vík- ingar og á 33. mínútu komust bæði Helgi og Heimir í góð færi á markteig Fram, Guðmundur varði fyrra skotið, en síðan tókst þeim Víkingsfélögum að koma knettin- um aftur fyrir endamörk. Framarar byrjuðu síðari hálf- leikinn nákvæmlega eins og þann fyrri, eða með því að skora. Guðmundur Torfason var þar á ferðinni, en markið var keypt á útsölu. Skot Guðmundar úr þröngu færi breytti lítillega um stefnu af Víkingsfæti og skaust undir Diðrik sem virtist ekki eiga von á skoti. Víkingar gáfust ekki upp og aðeins tveimur mínútum síðar fékk Heimir Karlsson eitt besta marktækifæri sumarsins, komst á auðan sjó, en tókst á ótrúlegan hátt að brenna af. Víkingarnir dofnuðu mjög er hér var komið sögu og á 67. mínútu bættu Framarar þriðja markinu við. Guðmundur Steins- son skildi varnarmann Víkings eftir á afturendanum og lék fast að markinu. Guðmundur renndi síðan út á nafna sinn Torfason sem ýtti knettinum yfir marklín- una. Mínútu síðar var Víkings- vörnin í berjamó er Guðmundur Steinsson óð einn upp allan völl. Rétt utan vítateigs voru varnar- menn Víkings farnir að þrengja að honum og lét hann því gríðarlegt skot ríða af. Small knötturinn í vinklinum á leið sinni fram hjá, glæsilegt skot. Gæði þessa leiks fjöruðu mjög út lokakaflann, en á síðustu mínútunni hefði PAtnj Ormslav. 5>kora fjórða mark. ið, hann komst þá í ákjósanlegt færi, en var of kærulaus og allt rann út í sandinn. í heild var þetta nokkuð þokka- legur leikur. Að vísu komu oft langir kaflar þar sem lítið átti sér stað á vellinum. En yfirleitt reyndu menn að leika knattspyrnu og stundum tókst það. Sigur Fram var verðskuldaður, en allt of stór. 1—0 hefði verið nær lagi og Framarar hefðu meira að segja ekki getað kvartað hefðu Vík- ingarnir hirt annað stigið. En það lið sem nýtir færi sín á sigur skilinn, því þarf enginn að skammast sín. Guðmundur Bald- ursson og Pétur Ormslev voru bestu menn Fram að þessu sinni. Guðmundur Torfason var einnig mjög drjúgur, svo og Trausti að venju. Aðrir í liðinu voru jafnir. Þegar maður rifjar upp Víkings- liðið í þessum leik, kemur fyrst í hugann nafn Jóhannesar Bárðar- sonar. Ekki fyrir neina sérstaka snilldartakta, heldur fyrir hve lygilega duglegur hann er og ósérhlífinn. Má heita að hann hafi hlaupið frá upphafi leiksins og þar til honum lauk. Flestir eða allir Víkinga léku undir getu, helst að Magnús Þorvaldsson kæmi sér vel frá sínu auk.Jóhannesar. í STUTTU MÁLI: Laugardalsvöllur 1. deild: Víking- ur — Fram 0—3 (0-1). MÖRK FRAM: Pétur Ormslev (3. mín.) og Guðmundur Torfason (50. og 67. mín.). ÁMINNINGAR: Þórður Marels- son Víkingi og Hafþór Sveinjóns- son Fram. — K g. I »natlsp>ma l Heil um- ferð í vikunni tAD er nóg að gera í 1. deildar- keppninni í vikunni, en næstu dagana fer fram heil umferð. Annað kvöld fara fram þrír leikir og umferðinni lýkur með tveimur leikjum á fimmtudags- kvöldið. Allir leikir eru stórleikir eins og staðan er á toppi og botni í dag. A Laugardalsvelli mætast klukkan 19.00 Fram og FH, toppur og botn. Breiðablik og KR eigast við á Kópavogsvellinum og eru bæði liðin óþægilega nærri botninum. einkum þó KR-ingar. ÍBV og Víkingur eigast síðan við í Vestmannaeyjum, en allir leik- irnir hefjast klukkan 19.00. Á fimmtudaKskvöIdið eru síð- an sem fyrr segir tveir leikir. Á Laugardalsvellinum leika Þrótt- ur og ÍBK og á Akranesvelli leika heimamenn og Valur. alger stórleikur, en eins og menn muna, vann ÍA Val 3—0 á Laugardalsvellinum fyrr á sumr- inu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.