Morgunblaðið - 26.08.1980, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1980
Hörkuspennandi keppni var i 800 m stökki og hér kemur fyrstur i mark Gnýfari. en Don og Móri berjast
um annaó sætið.
Blesi i B-flokki góðhesta. knapi er Helgi
Eftir tvisýna keppni sigraði
Eggertsson.
Stórmót
á Ilellu:
Þytur ok Sigfús sÍKruðu öruKttleKa í A-flokknum. enda báðir orðnir
keppnisreyndir.
Keppni í skeiði hefur verið mjöK spennandi í sumar ok hefur enginn einn hestur borið af öðrum. Hér er það
ViilinKur sem hefur vinninginn en Frami fylgir fast á eftir.
Gott skipulag og góðir tímar
HestamannafélöKÍn á Suður-
landi héldu um fyrri helgi árlext
Stórmót sitt að Hellu. Hesta-
mannafélagið Geysir sá um alla
framkvæmd mótsins að þessu
sinni, og er óhætt að segja að vel
hafi til tekist. Veður var eins or
best verður á kosið alla dagana.
Mótið hófst á föstudag með kyn-
bótadómum á hryssum.
Á laugardag voru gæðingar
dæmdir hjá unglingum og full-
orðnum, kynbótahryssur kynntar
og undanrásir kappreiða. Á
sunnudag hófst dagskrá með
hópreið og helgistund, kynbóta-
dómum var lýst og verðlaun af-
hent. Þá fóru fram úrslit í ungl-
ingakeppni og í A- og B-flokki
gæðinga. Síðast voru svo úrslit í
kappreiðum og verðlaun afhent að
þeim loknum.
Léleg kynbótahross
Það var fátt um fína drætti í
þeim hluta mótsins er að kynbót-
unun sneri, en þó framför frá því í
fyrra. í fyrra náði aðeins ein
hryssa 1. verðlaunum, en nú voru
þær tvær. í yngri flokknum var
það Perla frá Kaðalstöðum sem
stóð efst, en hún er undan ófeigi
818 á Hvanneyri, sem fékk 1.
verðlaun fyrir afkvæmi á fjórð-
ungsmótinu á Kaldármelum í
sumar. Það má geta þess að Perla
var sýnd með Ófeigi þar vestra og
var hún eitt af afkvæmunum, sem
dómurinn grundvallaðist á. Perla
er örviljug og fljúgandi vökur,
enda fékk hún 8,38 í einkunn fyrir
hæfileika og 8,13 í aðaleinkunn,
sem verður að teljast mjög gott
hjá 5 vetra hryssu. Eigandi Perlu
er Bragi Andrésson.
í eldri flokknum stóð efst Kol-
brún frá Núpi í Fljótshlíð. Eigandi
hennar er Jónas Guðmundsson.
Kolbrún er undan Kolbak 730 frá
Gufunesi og hlaut hún 8,00 í
einkunn. Aðspurður kvað Þorkell
Bjarnason þetta heldur skárra í
heildina en í fyrra, en þó væri eigi
að síður alltof mikið af mjög
lélegum hryssum á sýningunni.
Sunnlenskir hrossabændur eru
greinilega ekki búnir að átta sig á
því hvað sé sýningarhæf hryssa og
hvað ekki, í það minnsta sumir
þeirra.
Þytur efstur
í A-flokki
Það fór eins og menn reiknuðu
með, að Þytur Sigfúsar í Geld-
ingaholti sigraði í A-flokki gæð-
inga, en eftir forkeppnina var
hann lang efstur með 8,62 í
einkunn og var hann greinilega í
sérflokki. Annar varð Hofnar
Birnu Eyþórsdóttur með 8,41 eftir
forkeppni og hélt hann sæti sínu í
endurröðun eða úrslitakeppninni
eins og það heitir víst. í þriðja
sæti varð Blesi Þorvaldar Krist-
inssonar. Hann hlaút 8,35 í ein-
kunn og færðist upp um eitt sæti í
úrslitum. Hreimur Gylfa Þor-
kelssonar varð fjórði með 8,26,
færði hann sig einnig upp um eitt
sæti í úrslitum. í fimmta sæti
varð 21 vetra gömul kempa, Borði
frá Kjörseyri, eigandi og knapi
Kristinn Guðnason. Borði hlaut
8,39 í einkunn í forkeppni, en það
var þriðja besta einkunnin, í
úrslitum færðist hann í fimmta
sætið.
í B-flokknum var keppni tví-
sýnni, en þar munaði aðeins tveim
stigum á fyrsta og öðrum hesti
eftir forkeppnina. I fyrsta sæti
varð Blesi Kristjáns Friðgeirsson-
ar, en knapi Helgi Eggertsson.
Hann var með 8,42 í einkunn, og
hélt hann því sæti í úrslitum, en
engin breyting varð á sætaröðun í
úrslitakeppni B-flokks hesta. Önn-
ur varð Steinunn Skúla Steinsson-
ar, sem hana sat, með 8,40 í
einkunn. Þriðji varð Ljúfur Agn-
esar Guðbergsdóttur, en knapi á
honum var Jón Jónsson. Ljúfur
hlaut 8,31 í einkunn. í fjórða sæti
varð Háfeti Þorvaldar Kristins-
sonar, en knapi var Halla Sigurð-
ardóttir. Háfeti hlaut í einkunn
8,27. Fimmti varð svo Glæsir, en
hann á Guðmundur Gíslason og
knapi var Eiríkur Guðmundsson.
Glæsir er aðeins fimm vetra
gamall og vakti hann mikla at-
hygli meðal áhorfenda, þótti hann
mjög efnilegur og sjálfsagt á hann
eftir að láta að sér kveða á
sýningum á komandi árum. Glæs-
ir hlaut 8,11 í einkunn.
í unglingakeppninni varð hlut-
skarpastur Ágúst Sigurðsson á
hestinum Stefni sem er öskuvilj-
ugur unghestur og er sjaldgæft að
sjá svo viljuga hesta í unglinga-
keppni. Ágúst og Stefnir hlutu
8,65 í einkunn. Önnur í unglinga-
keppninni varð Hlín Pétursdóttir
á Kötlu, þær hlutu 8,43 í einkunn.
I þriðja sæti varð Sigurður Þ.
Kristjánsson á Fjölni með 8,22.
Ekki er mikið um það að ungl-
ingar sýni skeið í keppnum sínum,
en þarna var óspart reynt að ná
kostunum úr gæðingunum.
Mörg vallarmet
sett á kappreiðum
Það var greinilegt í upphafi
móts að Geysismenn höfðu hug á
að góðir tímar næðust á vellinum
og var kannski ekki vanþörf á, því
segja má að völlurinn á Hellu hafi
ekki verið með bestu völlum lands-
ins. Hér er aðeins verið að tala um
völlinn sjálfan, en ekki aðstöðuna
í heild. Stöðugt var verið á ferð
með valtarann þegar færi gafst og
beina brautin nær áhorfendum
var ekki notuð við gæðingadóma
eða sýningu kynbótahrossa eins og
tíðkast hefur. Nú það var eins og
við manninn mælt, árangurinn lét
ekki standa á sér og vallarmetin
fuku eitt af öðru.
Sennilega hefur árangurinn ver-
ið hvað bestur í skeiðinu og var
meðal annars hlaupið undir gild-
andi meti í aukaspretti í 150 m
skeiði og var þar að verki sú fræga
Lyfting, komin alla leið að norðan.
Tíminn var 14,5 sek. En þegar
keppt var til verðlauna var það
„brokkarinn" Fengur sem náði
bestum tíma eða 14,9 sek. Eigandi
Fengs er Hörður G. Albertsson, en
knapi var Sigurbjörn Bárðarson.
Á sama tíma og í öðru sæti varð
lítið þekktur hestur, Þröstur Aðal-
steins Reynissonar og knapi var
Reynir Aðalsteinsson, en Reynir
skýtur öðru hverju upp kollinum
og tekur þátt í skeiði og er þá
oftast í verðlaunasætum. Þriðji
varð Gammur Harðar G. á 15,0
sek, knapi á Gamm var Aðalsteinn
Aðalsteinsson.
I 250 m skeiði voru tímar einnig
góðir, en þar sigraði Villingur
Harðar G. Álbertssonar á 22,6 sek.
Knapi á Villingi var Trausti Þ.
Guðmundsson. Annar var sá
Frægi Fannar á 22,7 sek. sem er
besti tími hans í sumar, en Fannar
hefur ekki verið í fremstu röð eins
og undanfarin ár, en hann mun
ekki hafa gengið heill til skógar
fyrri hluta keppnistímabilsins.
Þriðji varð svo Trausti Reynis
Aðalsteinssonar á 22,9 sek. Svo
virðist sem ný stjarna sé að skjóta