Morgunblaðið - 26.08.1980, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 26.08.1980, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1980 33 upp kollinum í 250 m unghrossa- hlaupi, en það er Haukur Sigur- björns Bárðarsonar. Hefur hann verið nær ósigrandi seinni hluta sumars og sigraði hann einnig nú á 18,6 sek. Knapi á Hauk var Hörður Harðarson. Önnur var Skessa Borghildar Tómasdóttur á 18,8 sek. Knapi á Skessu var Steingrímur Ellerts- son. I þriðja sæti varð Irpa Leifs Bragasonar á 18,8 sek. Knapi á Irpu var Sigurður Sigurðsson. Það má geta þess að Haukur hljóp á 18,00 sek í undanrásum, sem er sennilega besti tími sumarsins á þessari vegalengd. í 350 m stökki sigraði Glóa Harðar G. Albertssonar á 24,8 sek. Knapi var Hörður Harðarson. Annar var Óli Guðna í Skarði á 24.8 sek. Knapi á Óla var Einar Daníelsson sem þarna hleypti sinn fyrsta sprett á kappreiðum. í þriðja sæti varð Snegla Sigfinns í Stórulág á 25,3 sek. Knapi var Tryggvi Árnason. Þess má geta að Stormur sem hefur verið sigursæll á þessari vegalengd í sumar varð að hætta keppni eftir að hafa náð besta tíma í undanrásum, mun hann hafa meiðst á fæti. Það var sama uppi á teningnum í 800 metra stökkinu og í öðrum greinum, góðir tímar og hörku keppni. Þar var það Gnýfari sem bætti enn einum fyrstu verðlaun- um í safn sitt, en naumur var sigurinn í þetta skiptið. Tveir fyrstu hestarnir voru á sama tíma 60,4 sek. sem er mjög frábær tími á þessum velli, því 800 m brautin á Hellu er mjög erfið. En sem sagt Gnýfari Jóns Hafdal sigraði á sjónarmun. Knapi á honum var Sigurður Sigurðsson. Annar og á sama tíma varð Don, en þetta er í annað skiptið, sem Don er hleypt á þessari vegalengd. Eigandi hans er Hörður G. Albertsson en knapi Hörður Harðarson. Þriðji varð svo Móri Hörpu Karlsdóttur á 60,9 sek. Knapi á Móra var Sævar Haraldsson. Segja má að árangur hafi verið lakastur í brokkinu. Eftir fyrri umferð leit það ekki björgulega út því allir helstu brokkararnir voru dæmdir upp, þ.e. stukku upp. En í seinni umferð lagaðist þetta held- ur og þá náði Faxi Eggerts Hvanndal bestum tíma 1.42,2 mín. Knapi á Faxa var Sigurbjörn Bárðarson. Annar varð Frúar- Jarpur Unnar Einarsdóttur á 1.42.8 mín. Knapi var Kristinn Guðnason. í þriðja sæti varð svo Höttur Guðna í Skarði á 1.48,5 mín. Eftir þennan árangur geta Geysismenn vel við unað, því ekki er ósennilegt að slá megi met á þessum velli sé hann vel til hafður eins og nú var gert. Það má geta þess að þegar Lyfting hljóp undir gildandi meti var mótvindur, og segir það sitt um ásigkomulag vallarins. Framkvæmd mótsins Það mun óhætt að fullyrða að framkvæmd þessa Stórmóts tókst með afbrigðum vel. Jafnvel þó eitthvað eldfjall í næsta nágrenni færi að gjósa virtist það ekki hafa nein áhrif á framkvæmd mótsins eða áhorfendur. Eða eins og einn sem engan áhuga hefur á hesta- mennsku sagði: „ja, þessir hesta- menn, þó það kæmi heimsendir þá myndu þeir ekki hætta í miðju hestamóti." Tímasetningar stóðust með ágætum, veðrið eins og best getur verið, góður völlur og aðstaða og síðast en ekki síst, starfsmenn allir af vilja gerðir að láta hlutina ganga vel fyrir sig. Þegar allt þetta er sameinað verður útkoman aldrei nema á einn veg. Með móti þessu hafa Geysismenn sannfært, sennilega sjálfa sig og alþjóð um að þeir geti haldið Landsmót þannig að sómi sé að. V.K. Dr. Hallgrímur Helgason heiðraður Hlýtur Henrik-Steffens-verðlaun háskólans í Kiel ÞANN 27. júní fór fram á vegum háskólans í Kiel við hátíðarathöfn í ráðhúsi Lúbeck-borgar afhend- ing Henrik-Steffens-verðlauna 1980. Samkvæmt einróma ákvörð- un verðlaunaráðs hlaut þau nú dr. Hallgrímur Helgason. Forseti háskólans, próf. dr. Gerd Griesser, ávarpaði boðsgesti í þéttskipuðum áheyrnarsal ráð- hússins, sem raunar er glæsileg bygging frá 13. öld. Rakti hann lauslega sögu þessara verðlauna, sem m.a. Gunnar Gunnarsson rithöfundur, fyrstur íslendinga, hefði fengið árið 1937. Þá las hann upp skrautritað heiðursskjal til handa dr. Hallgrími og afhenti honum verðlaunin, veitt „í viður- kenningarskyni fyrir víðtækt starf hans sem músíkvísindamað- ur og tónskáld, og fyrir mikils- verða kynningu hans á íslenzkum tónmenntum víðsvegar í Evrópu og Norður-Ameríku, í ræðu, riti og á konsertum, — að öllu saman- lögðu framúrskarandi afrek, sem hafa munu varanlegt gildi fyrir menningu íslands og norrænna þjóða." Þarnæst flutti próf. dr. Fried- helm Krummacher, forstöðumað- ur músíkvísindastofnunar háskól- ans, aðalræðuna (Laudatio) sem rökstuðning fyrir verðlaunaveit- ingu. Lýsti hann æviverki dr. Hallgríms og lagði megináherzlu á tryggð við þjóðlegan arf, sem væri allsherjargrunntónn í fjölda verka hans, bæði sem frumskapandi listamaður og vísindamaður; en einmitt þessvegna hefði hann náð sterkum hljómgrunni á alþjóðleg- um vettvangi. Tónsmíðar hans, með traustu og séreiginlegu höf- undarhandbragði, markaðar stíl- einkennum nýklassískrar stefnu (Neoklassizismus), hafði brotið ís- inn fyrir eftirfylgjandi möguleika alþjóðlegrar framúrstefnu (Avantgarde). UM vísindastarf dr. Hallgríms sagði próf. Krummacher, að með kerfisbundinni greiningu á laga- forða rímnakveðskapar (Heldenli- ed) hefði hann lagt fram veiga- mikinn skerf rannsókna, sem væntanlega myndu reynast mik- ilvæg stoð fyrir komandi sérfræð- inga. — Með hljómsveitarstarfi síðan á æskuárum og með stjórn- araðild sinni að stofnun margra félagssamtaka, kóra og útgáfu- fyrirtækja hafði hann stuðlað verulega að uppbyggingu íslenzks músíklífs, auk starfa sinna sem ritstjóri, rithöfundur, gagnrýn- andi og háskólaprófessor í Evrópu og Ameríku. — Að síðustu sagði próf. Krummacher: „Heildaryfir- sýn unninna verka leiðir rök að þökk, virðingu og viðurkenningu fyrir ævistarf Hallgríms Helga- sonar." Að lokinni ræðu próf. Krum- machers tók dr. Hallgrímur til máls, þakkaði sér auðsýndan heið- ur og flutti ítarlegt erindi, „Is- lenzka tónskáldið Jón Leifs og hugmynd hans um þjóðlegan skóla." Kom hann víða við og „opnaði mörgum áður ókunnan, nýjan heim,“ Var máli hans frá- bærlega vel tekið af áheyrendum, en meðal þeirra voru sendiherra íslands í Bonn, Pétur Eggerz. borgarstjórinn í Lúbeck, forseti borgarstjórnar og ræðismenn norrænu landanna í Hamborg og Lúbeck. Hátíðarathöfn lauk með því að „Dresdener Trio“ lék kammermús- íkverk í þrem köflum eftir verð- launahafa, tríó fyrir fiðlu, celló og píanó. Var það flutt af konsert- meistara og sóló-cellista Sinfóníu- hljómsveitarinnar í Leipzig, Helga og Hans-Werner Rötscher og rekt- or Músíkháskólans í Dresden, próf. Gerhard Berge. Blaðið „Lú- becker Nachrichten" lætur svo um mælt: „Verkið er hlaðið lífskrafti, fullt af sjálfstæðri og persónulegri tjáningu. Var það túlkað af meist- aralegum myndugleik." Stofnunin F.V.S. í Hamborg, en formaður hennar er dr. Alfred Toepfer, hefir stofnað Henrik- Steffens-verðlaunasjóðinn, til þess að veita meðal skandinav- ískra þjóða viðurkenningu fyrir frábæra frammistöðu á sviði lista og hugvísinda. Dr. Toepfer var sjálfur viðstaddur og hélt öllum boðsgestum veglega hádegisverð- arveizlu, þar sem hann, ásamt sendiherra Islands og verðlauna- hafa, hélt ágæta ræðu og minntist þakksamlega á formóðurlegt bók- menntahlutverk Islands í þágu Evrópu. (Fréttatilkynning). Forseti háskólans i Kiel, próf. dr. Gerd Griesser, afhendir dr. Hallgrimi Ilelgasyni heiðursskjal Henrik-Steffens-verðlauna i mót- tökusal ráðhússins i Lubeck. í áheyrnarsal ráðhússins i Lúbeck við afhendingu Henrik-Steffens- verðlauna 1980. í fremstu röð eru frá v. til h. dr. Alexander Scharff formaður verðlaunaráðs, Guðrún Sigriður Friðbjörnsdóttir, sem hlaut Henrik-Steffens-námsstyrk, Valgerður Tryggvadóttir, verðlaunahafi dr. Ilallgrimur Helgason, dr. Gerd Griesser, forseti háskólans í Kiel, sendiherra íslands i Bonn, Pétur Eggerz, forseti borgarstjórnar, Pohl-Laukamp og frú dr. Toepfer. Styrkió og f egr ið líkamann Byrjum aftur eftir sumarfrí. Ný 4ra vikna námskeið hefjast 1. september. Leikfimi fyrir konur á öllum aldri. Hinir vinsælu HERRATÍMAR í hádeginu. Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt yoga og megrandi æfingum. Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eöa meira. Sértímar fyrir eldri dömur og þær sem eru slæmar í baki, eöa þjást af vöðvabólgu. Vigtun — mæling — sturtur — Ijós — gufuböð — kaffi — Innritun og upplýsingar alla virka daga frá kl. 13—22 í síma 83295. Júdódeild Ármanns Ármúla 32. MYNDAMÓT HF. PRENTMYNDAGERÐ AÐALSTRjCTI • SlMAR: 17152- 17355 Útgerðar menn Viljum kaupa heila skipsfarma af góöum ísuöum fiski, þaö sem eftir er ársins. P/F BACALAO Þórshöfn, Færeyjum, sími 11360 og 12226 (Færeyjum). > — • *■ . . w • .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.