Morgunblaðið - 26.08.1980, Page 17

Morgunblaðið - 26.08.1980, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1980 Þessi skreyting Ingibjargar Þorkelsdóttur fékk viðurkenn- •ngu. Frá sýningu Daiiuklúbbsins í Laugardalnum. Liósm. ói.k.m. Dalíusýning í Laugardal UM FJÖGURHUNDRUÐ og fimmtíu manns sóttu sýningu Dalíuklúbbsins, sem fram fór í Reykjavík á sunnudag í gróðurhúsi í Laugardalnum. Sýndu félagar þar dalíur og ýmis fleiri blóm sem þeir hafa ræktað, en sýning þessi er árviss viðburður í starfi klúbbsins. Dómnefnd veitti viðurkenningar fyrir fallegustu dalíuna, rósina og fallegustu skreytinguna, en dalíur eru viðkvæmar og þurfa gott skjól og aðhlynningu til að vaxa upp. Stella Guðmundsdóttir með rósina sem hún fékk viðurkenningu Áslaug Pétursdóttir fékk viðurkenningu fyrir þessa dalíu. fyrir. _______________17_ Svína- og ali- fuglabændur: Krefjast end- urgreiðslu á fóðurbætis- skattinum Sameiginlegur fundur alifugla- og svinabænda. sem haldinn var i Glæsibæ sl. sunnudag. mótmælir álógðum fóðurbætisskatti og þar sem komið hefur fram að áætlað er að skatturinn renni til ann- arra búgreina viljum við harð- lega mótmæla slikri tilfærslu á fjármagni, segir i frétt frá félög- um svina- og alifuglabænda og eggjaframleiðendum. Segir jafnframt í fréttinni að krafa sé gerð til þess að skattur- inn verði endurgreiddur til við- komandi búgreina, en þær standi óstuddar á almennum markaði við hlið styrktra og stórlega niður- greiddra búgreina. „Getum við ekki viðurkennt að búgreinar okkar eigi að skattleggja með þessum hætti. Fari hins vegar svo, að umræddur skattur verði ekki endurgreiddur að fullu eða afnum- inn, teljum við eðlilegt og jafnvel sjálfsagt, að þessar búgreinar fái notið hans,“ segir í frétt félag- anna. Stálu 9 hrossum RANNSÓKN á hrossaþjófnað- armálinu er langt komin hjá RLR. Ungmennin þrjú, sem sitja í gæzluvarðhaldi vegna þessa máls, hafa viðurkennt að hafa tekið ófrjálsri hendi 9 hross. Þar af höfðu þau selt þrjú hross. AUGLÝSINGASIMINN ER: JBorounbUtiib Skrrfstofuvélar hf bjóða nú fjórar gerðlr af léttum og þægilegum skólarítvélum frá ABCogKovac Þú getur sjálfsagt fundið notaðar vélar á lægra verði. En þegar þú ætlar að kaupa skólaritvél þarftu að hugsa um fleira en verðið. ABC og Kovac fullnægja öllum þeim kröfum sem gerðar eru til góðra skólaritvéla. Þær eru léttar og þægilegar í meðförum; traustar og endingargóðar; í góðri tösku; og ekki síst: byggðar eins og,,alvöru“ ritvélar. Þegar þú hefur kynnt þér ABC og Kovac vélarnar hjá okkur geturðu sannfærst um, að það er ekki að ástæðulausu að við teljum þær framúrskarandi. SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. + —■ - .i? Hverfisgötu 33 Simi 20560

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.