Morgunblaðið - 26.08.1980, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1980
25
Pottþéttur
dómari
Knattspyrnudómarar vekja oft
eftirtekt fyrir hin ýmsu tiltæki
sin á knattspyrnuvöllunum. Paul
Arce stal heldur betur senunni er
hann reyndi eftir megni að hafa
tök á knattspyrnuleik í Uruguay.
Arce varð ljóst, er á leikinn
leið. að hann réði ekki við neitt,
þannig að skyndilega dró hann
rauða spjaldið úr vasa sínum.
sýndi sjálfum sér spjaidið og
gekk þvi næst til búningsklefa.
Kom svo á leikmennina, að þeir
hættu að berjast...
• John Robertson.
Ólga hjá
Nott. Forest
NOTTINGHAM Forest hefur
ekki hafið hið nýja keppnistíma-
bil eins og Evrópumeisturum
sæmir. Enda er ólga í herbúðun-
um. Tveir af kunnustu leik-
mönnum liðsins, þeir John Rob-
ertson og Garry Birtles eru taldir
munu yfirgefa skútuna áður en
langt um líður.
Skýringarnar eru þær, að
hvorugur er ánægður með launa-
umslagið. Þá fer líka í taugarnar
á Birtles, að Brian Clough skuli
hafa skipað honum að raka af sér
nývaxið skegg. „Ég kann vel við
þökurnar og konan er stjörf yfir
skegginu. Ég get ekki séð að það
þvælist fyrir mér úti á knatt-
spyrnuvellinum,“ segir Birtles og
er mikið niðri fyrir ...
Fyrsti
kaninn
EIGI alls fyrir löngu var Dave
Brici kjörinn knattspyrnumaður
mánaðarins i Skotlandi. Brici er
markvörður hjá Morton. Það
teldist ekki til tiðinda nema
vegna þess að Brici er Banda-
rikjamaður og var þetta í fyrsta
skiptið sem maður af því þjóðerni
hreppti Viskiflöskuna. Áður
höfðu m.a. íslendingar orðið svo
frægir að hreppa áfengið sem er
jafnan i laun fyrir nafnbót þessa.
Marlen Goldie var fengin til að
afhenda Brici flöskuna og eins og
sjá má, ganga ekki allir Skotar
um kviknaktir undir skotapils-
unum ...
im immmmmmmmmk
Kajak-menn stofna félag
■ ■ ■
• íslenskir áhugamenn um kaj-
aksiglingar hafa nýlega stofnað
„Kajak-klúbbinn“. I sumar komu
til landsins á þeirra vegum
breskir kajak-snillingar og var
það kveikjan að stofnun félags-
ins. Myndirnar sem hér fylgja.
tók Þorsteinn Guðmundsson.
Efri myndin sýnir Bretann
Dennison á fleygiferð á Þjórsá.
Neðri myndin er tekin í sund-
lauginni í Garðabæ, en þar sýndu
Bretarnir ýmsar æfingar.
Kajakklúbburinn telur nú um
10 manns og eru þeir dreifðir hér
og þar. á Austfjörðum, í Borgar-
firði og svo í Reykjavik. íslend-
ingarnir æfa sig helst i Borgar-
firðinum, t.d. á Norðurá áður en
að laxar taka að ganga, en eftir
það gjarnan á Hvitá við Húsafell.
Rensenbrink
á spítala
◄----------
SVO virðist sem að hollenski
knattspyrnusnillingurinn Rob
Rensenbrink sé gersamlega bú-
inn að vera. Ilann var kominn
yfir „toppinn“ eins og sagt er,
þegar hann yfirgaf Belgiu og
Anderlecht og freistaði gæfunnar
i bandarisku knattspyrnunni.
Leiðin lá til Portland Timbers, en
dæmið hefur ekki gengið upp.
Rensenbrink á nefnilega við
slæma vöðvabólgu að striða og
hann hefur lítið sem ekkert getað
leikið. Siðustu vikurnar og mán-
uðina hefur hann meira að segja
orðið að mæta daglega á sjúkra-
hús i meðferð.
Gekk á ýmsu á Islands-
mótinu í siglingum
Þar sem keppt var í Laser-flokki
Eitt skemmtilegasta íslands-
mót sem haldið hefur verið í
siglingum hér á landi fór fram
dagana 14,—16. ágúst á Skerja-
firði, þegar keppt var á Laser
bátum. Keppni var hörð og mjög
jöfn og úrslit fengust ekki fyrr
en i siðustu keppni af sex sem
haldnar voru. Það einkenndi
þetta Islandsmót að útsjónarsemi
keppenda og gott vald yfir regl-
um hefur aldrei verið meira og er
það eflaust að þakka komu enska
siglingaþjálfarans Eric Twiname
og þýðingu þeirri á alþjóða-
kappsiglingarcglum sem Jóhann
Nielsson og Gunnlaugur Jónas-
son komu saman i vor og einnig
námskeið það er Gunnar Hilm-
arsson hélt. Gunnlaugur varð
sigurvegari i Laser flokki og
sýndi það sig að sá timi, sem
hann hefur varið til æfinga. er að
skila sér i frábærum árangri þó
hann sé aðeins 18 ára gamall. í
fyrstu keppninni á fimmtudegin-
um voru keppendur nokkuð jafn-
ir framan af en þegar keppendur
voru á leið aö siðustu bauju kom
blanka logn og lentu þeir i einum
hnapp, en Gunnlaugur, Baltasar,
Rúnar og Bjarni komust i góðan
vind og varð það hörkukeppni á
milli þeirra um sigurinn. Gunn-
laugur hafði best á endasigling-
unni og hafnaði hann i fyrsta
sæti, Rúnar i öðru og Bjarni i
þriðja.
Á föstudag voru haldnar tvær
siglingar. í fyrri keppninni og
raunar allt kvöldið var mjög
hvasst og þurftu flestir keppenda
að hugsa mest um það að halda
bátunum á réttum kili. Bjarni tók
forystu strax í upphafi en Gunn-
laugur, Gunnar, Rúnar og Jóhann
fylgdu fast á eftir. Á „lens-
leggnum" velti Rúnar og braut
kjöl og varð því að hætta keppni.
Jóhann lenti í einhverjum vand-
ræðum með bátinn og dróst aftur
úr og þegar í mark var komið stóð
Bjarni uppi sem sigurvegari, mjög
dugandi siglingamaður sem á eftir
að láta mikið að sér kveða í
framtiðinni. Gunnlaugur hafnaði í
öðru sæti og Gunnar í þriðja. í
seinni keppninni kom Rúnar tví:
efldur til leiks með nýjan kjöl. I
upphafi keppninnar tók Ingvi for-
ystu en Rúnar fylgdi fast á eftir.
Þegar keppni var tæplega hálfnuð
hafði Rúnar dregið Ingva uppi, en
þá vildi það óhapp til að Ingvi sleit
tábönd og varð hann að taka sér
langan tíma í að gera við og
hafnaði hann í næst síðasta sæti
þegar upp var staðið. Rúnar hélt
hins vegar forystu til loka keppn-
innar og var sigri hans aldrei
ógnað verulega. I öðru sæti varð
Aðalsteinn og Ágúst hafnaði í
þriðja sæti. Gunnlaugi gekk frem-
ur illa í þessari keppni f.g hafnaði
í sjötta sæti. Á laugardag hófst
keppnin kl. 10 f.h. í hægum vindi. í
upphafi þeirrar keppni tók Gunn-
laugur forystu, en fast á hæla
hans fylgdi Ingvi og þar á eftir
Snorri, Gunnar og Rúnar. Gunn-
laugur hélt forystu til loka og
tókst Ingva ekki að ógna sigri
hans verulega þótt mjótt væri á
munum. Um þriðja sæti börðust
Snorri og Gunnar og hafði Snorri
betur á síðasta beitilegg. Önnur
keppnin gekk mjög svipað fyrir
sig; Gunnlaugur í fyrsta sæti og
Ingvi í öðru en Rúnar náði þriðja
sæti í þeirri keppni. Síðasta
keppnin var all söguleg og voru
vindbreytingar með ólíkindum. I
upphafi höfðu Gunnlaugur og
Baltasar forystu en Ingvi, Rúnar
og Snorri voru nokkuð jafnir.
Rúnar tók þó fljótlega forystu af
þeim og dró mjög á Baltasar og
Gunnlaug. Bjarni dró Ingva og
Snorra uppi í miðri keppni og fór
fram úr þeim og dróst Ingvi þá
aftur úr en Snorri fylgdi fast á
hæla Bjarna. En Bjarni hafði
betur og hafnaði í fjórða sæti.
Baltasar virti ekki stjórnborðsrétt
sem Rúnar átti og varð að venda
undir hann og satþar eftir í logni,
nældi Rúnar þá í fyrsta sæti,
Baltasar í annað og Gunnlaugur í
þriðja. Það sem mesta athygli
vakti í þeirri keppni var frammi-
staða Bjarna Guðmundssonar og
Rúnars Steinsen. Þegar á heildina
er litið er Gunnlaugur óumdeilan-
lega sigurvegari með 714 úr stigi
minna en Rúnar.
Verðlaun gaf Istækni hf. og eru
þau veglegustu verðlaun sem gefin
hafa verið í sgilingum hér á landi.
Annars urðu heildarúrslit sem
hér segir: stig
1. Gunnlaugur Jónasson 814
2. Rúnar Steinsen 15'A
3. Bjarni Guðmundsson 20%
4. Gunnar Guðmundsson 22
5. Ingvi Kr. Guttormsson 23
6. Ágúst Arinbjarnarson 26
7. Jóhann Níelsson 31
8. Snorri Hreggviðsson 34
Aðrir keppendur náðu ekki nógu
mörgum mótum til að geta verið
taldir með í heildarúrslitum en til
þess þurfti að keppa í fimm
mótum af sex. Keppendur urðu