Morgunblaðið - 26.08.1980, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 26.08.1980, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1980 Lifandi æskulýðsfélag NÁMSKEIÐ fyrir leiðbein- endur innan æskuiýðsféiaga verður haldið á vegum Þjóð- kirkjunnar í Skálholti dag- ana 4.-7. september n.k. Gestur þess verður norski sóknarpresturinn Sindre Eide en leiðbeinendur ásamt honum verða Stína Gisla- dóttir og Oddur Albertsson aðstoðaræskulýðsfulltrúar. „Námskeið sem þetta er ár- legur viðburður í æskulýðsstarfi Þjóðkirkjunnar," sagði Oddur í samtali við Mbl. „Á námskeiðun- um er fjallar um ýmis mismun- Æskulýðsleiðtoga- námskeið Þjóð- kirkjunnar verður i Skálholti 4.-7. september n.k. Oddur Albertsson rifjar upp minningar frá fyrri nám- skeiðum. Songur tilheyrir starfi innan æskulýðsfélaga og verður mikið sungir á námskeiðinu. Hápunktur námskeiðsins verður guðsþjónusta sem verður í hóndum þátttakendanna sjálfra. Myndin er frá samskonar aðburði á námskeiðinu á sl. ári. andi mál hverju sinni. Nú verður yfirskriftin „Lifandi æskulýðsfé- lag“. Við munum velta fyrir okkur markmiðum æskulýðsfé- laga og leiðum til þess að virkja ungt fólk til starfa í slíkum félögum. Á síðasta ári var uppi- staða námskeiðsins námskeið í leikrænni tjáningu. Við fáum gesti á hvert mót, í þetta sinn norska prestinn Sindre Eide. Hann hefur mjög mikla reynslu i æskulýðsleið- togastarfi innan kristins æsku- lýðsfélags. Eide e^ líka mikill tónlistarmaður og er m.a. yfir- maður um 200 kóra í Noregi, svokallaðra Tension-kóra.“ Sköpunargleði í fyrirrúmi — Hvernig er dagskrá nám- skeiðsins í ár? „Sköpunargleði þátttakenda verður í hávegum höfð og mikið verður unnið í hópum. Þá verða fluttir fyrirlestrar og mikið sungið. Hápunktur námskeiðsins verður síðan guðsþjónusta sem þátttakendurnir sjálfir undirbúa og byggja upp. Slíkt var einnig gert á síðasta námskeiði og tókst mjög vel.“ — Hefur mikill árangur orðið af þessum námskeiðum? „Það er ekki hægt að segja annað. Frá því námskeiðið í leikrænni tjáningu var haldið á sl. ári hefur slíkt verið notað í kristilegu æskulýðsstarfi. Hafa leiðbeinendur notfært sér þá reynslu sem þeir fengu á mótinu og einnig notað leiðbeiningabók þá sem þar fékkst," sagði Oddur. Öllum opið Eins og skýrt var frá í upphafi hefst námskeiðið 4. september n.k. og því lýkur 7. september. Það er opið öllum þeim sem áhuga hafa en Oddur sagði að miðað væri við að þátttakendur væru ekki yngri en 16 ára. Sagðist hann búast við um 50 manns, flestum frá Reykjavík og byggðum í kring, en einnig nokkrum frá öðrum landshlut- um. Það var barnmargt hjá þeim hjónum 1 l w / 1 ■> » i Á ferd um Austurland Texti/Guðbjörg Guðmundsdóttir Myndir/Kristinn Ólafsson „Allt helber lygi sem að í blöðunum stendur" ÞAÐ er fögur en stórskorin leið þegar ekið er um Njarðvikurskrið- ur til Borgarfjarðar eystri. Hann er nyrstur fjarðanna sem skerast inn i austfjarðahálendið. Sveitin i dalnum er sérstæð og fögur, enda fjallahringurinn löngum dásamaður fyrir litadýrð og formfegurð, en blágrýti og liparit eru megin bergefni. Dyrfjöllin ber við himin við norðvestanverðan Borgarfjörð. Tiguleg og fögur hafa þau orðið mörgum málara myndefni s.s. Kjarval sem hefur fest þau á léreft i ótal litbrigðum. Bakkagerði heitir kauptúnið sem kúrir í dalnum friðsælt og hlýlegt. Líklega kemur ferða- manni fyrst í hug að í kirkjunni litlu er rómuð altaristafla eftir meistarann Kjarval. Byggðin er forn í dalnum og hafa fundist fornar minjar í jörðu þar sem landnámsbærinn Bakki stóð, skammt frá núverandi Kaup- túni. Blaðamaður og ljósmynd- ari Morgunblaðsins gleymdu sér þó ekki í hugleiðingum um jarð- hús búandans, sem sagt er frá í Fljótsdælasögu, heldur bönkuðu upp á hjá hjónunum Sólbjörtu Hilmarsdóttur og Guðmundi Sveinssyni að Hóli, sem er bóndabýli inn í miðju Bakka- gerðisþorpinu. Okkur eru boðnar veitingar en síðan spyr blm. þau hvort þau séu uppalin í Bakkagerði. Sól- björt kvaðst vera uppalin á malbikinu nánar tiltekið á Óðinsgötunni, en Guðmundur er fæddur og uppalinn í Borgarfirði eystra. — Eru þetta ekki mikil við- brigði fyrir þig, að koma úr borginni í svona lítið og að sumra mati afskekkt þorp? — Jú þetta er öðruvísi, en ég myndi alls ekki vilja flytja aftur til Reykjavíkur, sagði Sólbjört. — Þetta hefur samt eflaust verið afskekktara hérna áður fyrr? — Það var miklu betra þá, sagði Guðmundur. Það var allt annað að vera dálítið einangrað- ur. Fleira og fleira fólk leggur leið sína hingað. Þetta er rumpu- lýður sem hefur ekkert hingað Guðmundur var hressilegur og þótti gaman að taka upp i sig. Tja við erum með kindabúskap, hesta, ketti, hunda, aligæsir, aliendur og hænsni. að gera, sagði Guðmundur og glotti. — Ferðu oft til Reykjavíkur? Guðmundur sem er hressi- legur og hefur gaman af að taka upp í sig segir: — Nei, nei, þangað fér ég alls ekki nema að bráða nauðsyn beri að, hélt Guðmundur áfram. Ég skal nú segja þér það, að ég hef komið þrisvar til Reykjavíkur á æfinni og finnst það meira en nóg. Ef það er eitthvað sem mig vantar þá fer ég bara til Egilsstaða. — Fáið þið dagblöðin sam- dægurs? — Þessi helv ... sorprit. Jú, við fáum þau samdægurs, á sumrin, en á veturna oft viku seinna. Annars kaupi ég þau aldrei, því ég hef allt annað við peningana mína að gera, enda er allt helber lygi sem í blöðunum stendur. — Hafið þið ykkar eigin prest, lækni o.s.frv.? — Já, sei sei, prest höfum við, en lækni engan og ekki mikill skaði hlotist þar af. Læknirinn kemur hingað á miðvikudögum, blessaður, og það er allt of mikið. Við erum svo hress hérna í Borgarfirði eystra og það eru einungis móðursjúku kerl- ingarnar sem fara til hans hvern miðvikudag. Konur þurfa ekkert að gera núorðið. Það eru allskon- ar maskínur sem sjá fyrir öllu. Þær hafa ekkert að gera annað en að eiga börn. Sólbjört skaut því inn í að hún hefði alið sín þrjú börn heima, en ekki þurft að leita út á við. — Það var barnmargt hjá þeim hjónum, og blaðamaður spurði hvort þau ættu öll þessi börn. — Nei, sagði Sólbjört, sem er aðeins 21 árs, en þriggja barna móðir eins og hún sagði. Ég er með fjögur börn í sveit. Svona yfir sumartímann elda ég að jafnaði ofan í 11—12 manns. Hvernig búskap hafið þið? — Tja, það er nú ekki gott að segja, sagði Guðmundur og brosti. Við erum með kindabú- skap, hesta, ketti, hunda, aligæs- ir, aliendur og svo þrjár hænur. Eftir að hafa lokið úr kaffi- bollanum og átt góða stund á heimilinu, kvöddum við þessi myndarlegu hjón, sem una glöð við sitt að Hóli í Borgarfirði eystra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.