Morgunblaðið - 26.08.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1980 5
Sáttatillagan 1977 hærri
en BSRB-samningarnir
„Ef tillagan var slæm 1977, hvað
er þá gott við þennan samning?“
Hagfræðingur BSRB
hefur nú reiknað út kaup-
mátt sáttatillögunnar frá
1977, sem opinberir starfs-
menn felldu í atkvæða-
greiðslu og fóru síðan í
verkfall. Það kemur í Ijós
að kaupmáttur sáttatillög-
unnar, miðað við fram-
færsluvisitölu 1. ágúst er
töluvert hærri en þeir
samningar, sem nú er boð-
ið upp á. Til dæmis má
taka að laun í efsta þrepi
5. flokks eru samkvæmt
nýgerðum samningum kr.
360.345, en samkvæmt
- segir Pétur
Pétursson þulur
sáttatillögunni frá 1977
kr. 377.911, laun í 10.
launaflokki nema 424.733,
en samkvæmt sáttatillögu
hefðu þau numið kr.
466.313, laun í 15. launa-
flokki nema 505.082, en
hefðu numið 558.811, og í
20. flokki nema laun
571.552, en hefðu numið
663.723 kr. samkvæmt
sáttatillögunni frá 1977.
Útreikningar þessir voru unnir
samkvæmt beiðni Péturs Péturs-
sonar, þular. Af því tilefni sneri
Morgunblaðið sér til hans og
ræddi við hann um niðurstöðurn-
ar: „Það hefur tekið tímann sinn
að fá niðurstöðu birta á saman-
burði á sáttatillögu, er opinberir
starfsmenn felldu 1977 og kjörum
þeim, er fjármálaráðherra býður
nú. Rétt er að nota þetta tækifæri
og lýsa undrun sinni og óánægju
með að fjármálaráðuneytið og
launadeild þess hefur reynst
ófáanlegt til þess að láta svo
sjálfsagðar upplýsingar í té, þótt
margoft hafi verið um það spurt. í
sl. viku lét hagfræðingur BSRB
loks tilleiðast og lofaði niðurstöðu
á útreikningi. Nú er rétt að spara
stóru orðin en láta tölurnar tala.
Rétt er þó að segja þetta: Hafi
sáttatillagan 1977, er forystumenn
BSRB hvöttu félaga til þess að
vísa á bug og fella í allsherjar-
atkvæðagreiðslu verið slæm, í
hverju er þá launabót Ragnars
Arnalds fólgin? Eins og fram
kemur eru laun sáttatillögunnar
1977 framreiknuð til núverandi
vísitölubreytingar. Af samanburði
sést glöggt að tilboð Ragnars 1980
nægir hvergi nærri til þess að
jafnast á við sáttatillögu er opin-
berir starfsmenn felldu, ekki hvað
síst fyrir eindregin tilmæli for-
ystu sinnar 1977. Ef tillagan var
slæm 1977, hvað er þá gott við
þennan samning 1980? Vilja for-
ustumenn svara því? Nú þurfa
almennir félagar að kenna forystu
sinni enn eina lexíu.
Það hlýtur að vera sérkennileg
lífsreynsla fyrir Vilhjálm Hjálm-
arsson, sem nú er sáttasemjari, að
Kristján og Haraldur skuli nú
vera æstir í að undirskrifa samn-
inga, sem eru um miklu lægra
kaup en þeim bauðst í ráðherratíð
Vilhjálms," sagði Pétur Pétursson
að lokum.
Utan-
kjörstaðar-
kosning
BSRB
Utankjörstaðarkosn-
ing um samninga BSRB
og ríkisins hófst á skrif-
stofu BSRB í gærmorg-
un og stendur þar til
atkvæðagreiðsla hefst
þann 4. september. Að-
ildarfélög BSRB undir-
búa nú kynningarfundi
vegna væntanlegrar at-
kvæðagreiðslu um samn-
ingana. I gær voru
fyrstu vinnustaðafund-
irnir haldnir og skipta
samninganefndarmenn
með sér verkum að
kynna samningana. Ás-
garður, blað BSRB, kem-
ur út á miðvikudag og
mun þar vera að finna
ítarlega umfjöllun á því,
sem í samningunum
stendur.
„IPEX“ 1980
Alþjóðleg prentvörusýning
11. september til 19. september.
PHOTOKINA ’80
Alþjóðieg Ijósmynda-
vörusýning, 12. september
til 18. september.
KAUPMANNA
HÖFN
Scandinavia Fashion Week
í Bella Center 11. sept. til
14. sept.
M Ferðamiðstöðin hf.
J EZzJLJ Aðalstræti 9 — Símar 11255 - 12940
SELJUM FARSEÐLA UM ALLAN
HEIM Á HAGSTÆÐASTA VERÐI
Heimilið ’80 er lifandi og
skemmtileg sýning.
Fræðsla, skemmtun og
leikir fyrir alla fjölskylduna.
Milljón króna
sr! sournínpín
spurníngín
í hliðarsal Laugardalshallarinnareróvenjulegtenskemmtilegt
húsgagn, „Draumavagninn".
í sambandi við hann höfum við stofnað til getraunasamkeppni
sem við köllum „Milljón króna spurningin". Verðlaun eru ein,
vöruúttekt í tilgreindum húsgagnaverslunum að upphæð kr.
1.000.000. - Ein milljón króna - Hver þiggur ekki slíka bú-
bót?
Athugaðu málið þegar þú gengur um hliðarsalinn. Þátttaka í
leiknum er að sjálfsögðu ókeypis, en við vekjum athygli á að
„Milljón króna spurningin" er einskis virði nema þú hittir á
„milljón krónasvarið".
HeimiBð