Morgunblaðið - 18.09.1980, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1980
Olli miklum
skemmdum á
Héraði og víðar
EicilNNtoðum á Héraði 17. sept. 1980.
MIKIÐ hvassviðri «ekk yfir
norðausturhluta landsins i nótt,
ok olli veðrið talsverðum
skemmdum og óþæKÍndum.
Fjallve>?irnir um Oddsskarð ok
Fjarðarheiði lokuðust íyrir um-
ferð smærri bifreiða og hið
sama er að segja um FaKradal.
Bílaferjan Smyrill kom til
Seyðisfjarðar í gærkvöldi. Frem-
ur fáir farþegar voru með skip-
inu að þessu sinni, en allmargar
Starfsmenn Véltækni á Egils-
stöðum fengu óblíðar móttökur
er þeir komu til vinnu í gær-
morgun, allt var fannhvítt,
blautt og kalt, en þeir vinna nú
við dreifilögn hitaveitu á Egils-
stöðum.
bifreiðar. Margar þeirra urðu að
snúa við og halda til Seyðisfjarð-
ar á ný á leið sinni yfir Fjarðar-
heiði til Egilsstaða, vegna veður-
hæðarinnar og ófærðar. Rétt er
þó að taka fram að bifreiðar
þessar voru ekki búnar til akst-
urs við þau skilyrði er voru á
fjallinu í nótt.
Starfsmenn RARIK hafa haft
mikið að gera í nótt og í dag við
að gera við raflínur og reyna að
koma rafmagni á að nýju, en
víða varð rafmagnslaust í óveðr-
inu. Rafmagnslaust varð á Egils-
stöðum um klukkan 2 í nótt og
aftur klukkan 7 í morgun og
síðan öðru hvoru. Sömu sögu er
að segja um sveitirnar hér í
grenndinni, þar sem jafnvel er
enn rafmagnslaust. Margar
þverslár á rafmagnsstaurum
hafa brotnað vegna blotaísingar,
sem einnig hefur dregið raf-
magnslínurnar niður í jörð og
slitið þær víða. Þá hafa nokkrir
rafmagnsstaurar brotnað undan
þunganum og hvassviðrinu. Inni
í Egilsstaðakauptúni brotnaði til
dæmis einn staur og lenti raflín-
an á bíl og skemmdi hann
töluvert. Ekki er vitað um nein
slys á fólki í óveðrinu.
Ekki var unnt að fljúga til
Egilsstaða í gær fyrr en komið
var undir kvöld vegna raf-
magnstruflananna, sem komu í
veg fyrir útsendingu aðflugs-
tækja sem hér eru, en veður var
ekki til sjónflugs.
— Jóhann.
LJósm: Jóhann D. Jónss.
Hér má sjá raflinu er slitnaði undan ísingarþunganum. Staurinn
brotnaði einnig og linan lenti á bifreiðinni eins og sést á myndinni.
Ragnar Arnalds f jármálaráðherra:
FJÁRLAGAFRUMVARP Ragn
ars Arnalds er nú komið í prent-
un í Ríkisprentsmiðjunni Guten-
berg og munu niðurstöðutölur
þess vera á bilinu 510 til 520
Bandaríkjamenn
afnema brottfarar-
skatt á flugfarþega
BANDARÍSK stjórnvöld hafa
ákveðið að fella niður brottfarar-
skatt á ferðamenn í millilanda-
flugi frá og með 30. september
næstkomandi.
Skattlagning þessi hefur verið
þrír dollarar á hvern flugfarþega í
millilandaflugi og hefur mælst
mjög illa fyrir hjá ferðamönnum.
Bandarísk ferðamálayfirvöld hafa
barist mjög gegn þessari skatt-
lagningu með þessum árangri.
Jafnframt lækkar skattlagning á
innanlandsfarþega í Bandaríkjun-
um úr 8% í 5%.
milljarðar króna. Samkvæmt
upplýsingum Ragnars Arnalds
fjármálaráðherra er nokkur
tekjuafgangur i frumvarpinu og
er hann hlutfallslega meiri en
hann var i frumvarpi hans, sem
samþykkt var sem lög frá Al-
þingi hinn 2. april siðastliðinn.
Þvi getur látið nærri að hann sé
a.m.k. um i'/> milljarður króna.
Ragnar Arnaids, fjármálaráð-
herra sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að hann vildi ekki
gefa neinar upplýsingar um inn-
lendar fjárveitingar, en hins vegar
kvað hann fjármálaráðuneytið
hafa leitazt við að halda niðri
kostnaðaraukningu eins og hægt
hafi verið. „Ég get þó alls ekki
sagt að það bitni sérstaklega á
rannsóknastarfsemi í landinu,"
sagði Ragnar, og bætti við: „En
tilraunabú landbúnaðarins eru
þær stofnanir, sem m.a. eru sér-
staklega skoðaðar og höfum við
átt viðræður við Rannsóknastofn-
un landbúnaðarins um það efni.“
Meðfram afgreiðslu fjárlaga-
frumvarps í ríkisstjórn, hefur
verið rætt um efnahagsaðgerðir.
Ragnar kvað óhjákvæmilegt að
gera það samhliða gerð fjáriaga-
frumvarpsins. Umræðunni um
efnahagsmál innan ríkisstjórnar-
innar er þó hvergi nærri lokið, að
sögn Ragnars, og kvað hann ekki
hafa gefizt nægan tjma til slíkrar
umfjöllunar, þar sem tíminn hefði
allur farið í fjárlagafrumvarpið
sjálft og eins Flugleiðamálið.
Sé gert ráð fyrir að fjárlaga-
frumvarpið nú hækki um 50% frá
fjárlögum, sem samþykkt voru 2.
apríl síðastliðinn, er hlutfallsleg
hækkun þessa frumvarps frá síð-
asta fjárlagafrumvarpi Ragnars
Arnalds um 53%. Sé hins vegar
miðað við núverandi fjárlaga-
frumvarp og frumvarp Tómasar
Árnasonar, sem lagt var fram í
október í fyrra, er hækkunin milli
ára 59,5% og miðað við frumvarp
Sighvats Björgvinssonar, sem lagt
var fram í desember í fyrra, er
hækkunin 61,6%.
Slys um borð
í Breka VE
Vestmannaeyjatogarinn Breki
kom inn til Ilúsavíkur um hádeg-
isbilið í gær, með slasaðan skip-
verja. Hafði skipverjinn fótbrotn-
að þar sem skipið var að veiðum
fyrir Norðurlandi. og var lög-
reglan á Húsavík beðin um að-
stoð við að koma honum á sjúkra-
hús.
Að sögn hjúkrunarfólks á
sjúkrahúsinu á Húsavík var mað-
urinn ekki talinn í lífshættu, og
var líðan hans góð eftir atvikum í
gær. Ekki er nánar vitað um
tildrög slyssins.
Tekjuafgangur fjárlagafrum-
varpsins meiri en í fyrra
Fékk 867
kr. fyrir
kílóið af
f iski i Hull
NOKKUR fiskiskip lönduðu afla
sinum í Bretlandi og V-Þýzka-
landi i gær og fékkst yfirleitt
mjög gott verð fyrir aflann.
Hjálpaðist þar tvennt til. góður
fiskur hjá islenzku skipunum og
litið framboð af fiski annars
staðar frá, en siðustu daga hafa
verið vond veður í Norðursjónum
og við Bretland. Freyja RE seldi
sérstaklega vel i Hull og meðal-
verðið, sem fékkst er með því
hærra, sem fengizt hefur. Freyja
seldi 53,1 tonn i Hull fyrir 46
milljónir og var meðalverðið því
867 krónur á kiló.
Bylgja VE seldi 64,4 tonn í
Fleetwood fyrir 47,7 milljónir,
meðalverð 741 króna. Hópsnes GK
seldi 48 tonn í Grimsby fyrir 32,1
milljón, meðalverð 669 krónur.
Karlsefni seldi 235,6 tonn í Cux-
haven fyrir 129,8 milljónir, meðal-
verð 551 króna. Þá var landað
hluta af afla Maí í Bremerhaven
og fengust 41,6 milljónir fyrir 80,9
tonn, meðalverð 515 krónur.
Heidur er talið ólíklegt, að
yfirvofandi verkfall hafnarstarfs-
manna í Bretlandi hafi áhrif á
landanir íslenzkra skipa þar í
næstu viku. Þeir sem vinna við
löndun á ísfiski munu ekki vera í
sömu félögum og þeir hafnar-
starfsmenn, sem boðað hafa verk-
fall. I dag verður haldin fundur
um þessi mál í Bretlandi og
skýrist þá væntanlega hvort. verk-
fallið, ef af því verður, hefur
einhver áhrif á landanir íslenzkra
skipa. Þegar er þó ljóst, að í Hull
verða landanir með eðlilegum
hætti og a.m.k. í Grimsby á
mánudag.
Hugmyndir skólastjórans í Grindavík:
Sala Boeing-þota Flugleiða:
Kennariim láti af
kennslu að hluta
Júgóslavar hafa beð
ið um frekari frest
JÚGÓSLAVARNIR, sem undir-
rituðu samning um kaup á tveim-
ur Boeing 727-100 þotum írá
Flugleiðum i ágústmánuði, hafa
beðið um frekari frest áður en
gengið verður endanlega frá
kaupunum. Að sögn Sveins Sæ-
mundssonar, blaðafulltrúa Flug-
leiða, voru i samningnum ákveðn-
ir fyrirvarar af hálfu Júgóslav-
anna og þvi ekki endanlega
frágengið hvort af kaupunum
verður.
Vitað er að Júgóslavarnir hafa
átt í einhverjum erfiðleikum varð-
andi yfirfærslur í sínu heimalandi
vegna kaupanna, en á næstunni er
fyrirhugaður fundur samningsað-
ilanna þar sem málin ættu endan-
lega að skýrast.
í GÆR héldu foreldrar þeir í
Grindavík sem eiga í deilu við
skólayfirvöid þar á staðnum
vegna ákveðins kennara við
skólann, fund, þar sem rædd-
ar voru hugmyndir skóla-
stjóra grunnskólans í Grinda-
vík til lausnar þessu máli.
Samkvæmt heimildum sem
Morgunblaðið hefur aflað sér
ganga hugmyndir skólastjór-
ans út á það að kennarinn,
sem um er deilt, láti af
kennslu að hluta til, við þann
bekk sem áformað var að
hann kenndi við. En eins og
kunnugt er láta foreldrar
barnanna í þessum bekk þau
ekki mæta í skólann, að
óbreyttu ástandi.
Skólastjórinn mun hugsa
sér að kennarinn kenni nem-
endum þessum einhverjar
námsgreinar, en annar kenn-
ari eða aðrir kennarar, gangi
inn í starfið á móti.
Þá mun skólanefnd Grinda-
víkur hafa ymprað á því við
foreldra umræddra barna, að
kennarinn sem styrinn stend-
ur um, verði látinn hætta á
vori komanda, til að ná sáttum
í málinu. Foreldrarnir munu
vera tortryggnir á þessa til-
lögu nefndarinnar, þar sem
einn nefndarmaðurinn mun
hafa sagt að kennarinn myndi
látinn fara, stæði hann sig
ekki betur í vetur en hingað
til. Þetta mun foreldrunum
hafa þótt full loðið og því ekki
aðgengilegt.
Á fundinum í gær ætluðu
foreldrarnir að taka sameigin-
lega afstöðu í málinu, en
ákvarðanir verða teknar á
fundi þeirra með skólastjóra á
laugardaginn.