Morgunblaðið - 18.09.1980, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1980
Yfirleitt góð-
ur afli vestra,
en lítið róið
AFLI var yfirleitt góður, baeði
hjá togurum og bátum á Vest-
fjörðum. þann tíma sem þeir voru
að veiðum i ágúst, en vegna
sumarleyfa voru mörg frystihúsn
á Vestfjörðum lokuð fram yfir
miðjan ágúst og ekki tekið á móti
fiski á þessum tíma. Voru margir
togararnir í viðgerðum eða á
veiðum fyrir erlendan markað á
þessu tímahili. Linuhátarnir
hættu fiestir veiðum i lok júli og
færabátarnir voru margir frá
veiðum á þessu tímahili, en byrj-
uðu svo aftur um miðjan mánuð-
inn.
í ágúst stunduðu 120 (150) bátar
botnfiskveiðar frá Vestfjörðum,
en 27 (12) bátar stunduðu rækju-
veiðar. 100 (121) bátar voru á
handfæraveiðum, 3 (8) réru með
línu, 2 (5) með dragnót, 2 (0) með
net og 13 (16) með botnvörpu.
Heildaraflinn í mánuðinum var
6.432 lestir, en var 8.291 lest á
sama tíma í fyrra. Er heildarafl-
inn frá áramótum þá orðinn 67.918
lestir, en var 68.150 lestir á sama
tíma í fyrra. Rækjuaflinn var nú
451 lest, en var 257 lestir í fyrra
segir í frétt frá skrifstofu Fiskifé-
lags Islands á Isafirði.
Norræna húsið:
í DAG verður haldin ráðstefna
um vistfræðirannsóknir á ís-
landi. Ráðstefnan fer fram i
Norræna húsinu og er haldin á
vegum Liffræðifélags íslands og
Nordiskt Kollegium för Ekologi,
sem er norrænt ráð, er vinnur að
framgangi vistfræðirannsókna
og framhaldsmenntunar i vist-
fræði á Norðurlöndum, með þvi
að efla samvinnu milli landanna.
Á ráðstefnunni halda 16 islenskir
visindamenn erindi um rann-
Finnskur
píanóleikari í
Norræna húsinu
FINNSKI pianóleikarinn Pekka
Vapaavuörí heldur tónleika i
Norræna húsinu í dag kl. 20:30
og leikur verk eftir Bach, Beet-
hoven og Debussy en einnig eftir
finnsku tónskáldin Einojuhani
Rautavaara og Kullervo Karjala-
inen.
Pekka Vapaavuori fæddist árið
1945 og er fjölmenntaður maður.
Hann tók próf í guðfræði frá
Helsingforsháskóla og próf í
organleik, kórstjórn og píanóleik
frá Síbelíusarakademíunni í Hels-
ingfors. Nú starfar hann sem
yfirkennari við Tónlistarskólann í
Uleaaborg. Hann hefur farið í
fjölda tónleikaferða, bæði sem
söngstjóri og organisti, en einkum
hefur hann þó komið fram sem
píanóleikari. Eitt af hugðarefnum
hans er flutningur norrænnar
nútímatónlistar og hefur hann
margoft frumflutt finnsk nútíma-
tónverk. Pekka Vapaavuori kom
fram á Norrænum tónlistardögum
í Hásselbyhöll í ágúst síðastliðn-
um.
sóknir sínar. Allmargir vistfræð-
ingar frá öðrum Norðurlöndum
sækja ráðstefnuna og verða er-
indin flutt á ensku eða á ein-
hverju skandinavísku máli.
Tilgangur ráðstefnunnar er
bæði sá að kynna stöðu vistfræði-
rannsókna á Islandi, bæði innan-
lands og utan svo og að efla
samskipti mílli þeirra Islendinga,
sem við slíkar rannsóknir fást.
Nordiskt Kollegium för Ekologi
mun gefa út á ensku ágrip fyrir-
lestra, sem fluttir verða á ráð-
stefnunni og verður því riti dreift
til vistfræðinga á Norðurlöndum
og víðar.
Ingvar Gíslason menntamála-
ráðherra setur ráðstefnuna kl.
09.00 og stendur hún til um kl.
17.00. Ráðstefnan er öllum opin.
Flugvirkjafélag íslands:
Vinnustöðvanir
ekki rétta leiðin
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Flugvirkjafélagi íslands:
„Vegna frétta í fjölmiðlum um
að aðstoðarmaður félagsmálaráð-
herra hafi hvatt til verkfalla og
veikinda hjá Flugleiðum Hf., og
hugsanlega stofnun nýs flugfé-
lags, telur F.V.F.Í. rétt að komi
fram að ekkert af ofangreindu var
rætt við fulltrúa F.V.F.Í., heldur
einungis um félagslega hlið máls-
ins og atvinnumöguleika flug-
virkja.
F.V.F.Í. telur að vinnustöðvanir
eða aðrar aðgerðir séu ekki rétta
leiðin úr þeim vanda sem að
steðjar og var aðstoðarmaður fé-
lagsmálaráðherra sammála þeirri
niðurstöðu."
Norræn vistfræðiráð-
stefna haldin í dag
Nýja þyrlan ekki
á fjárlögum 1980
HIN NÝJA þyrla Landhelgis-
gæslunnar sem kemur til lands-
ins eftir nokkra daga, mun kosta
800 milljónir króna eins og þegar
hefur komið fram i fréttum.
Athygli hefur hins vegar vakið,
að þyrlukaupin voru hvorki á
fjárlögum fyrir árið 1980, né á
lánsfjárlögum. Morgunblaðið
sneri sér til Friðjóns Þórðarson-
ar dómsmáiaráðherra af þessum
sökum. og spurði hverju það
sætti.
„Kaupin eru löngu ákveðin sem
kunnugt er,“ sagði dómsmálaráð-
herra, „hugmyndin er frá árinu
1974 og kaupin síðan ákveðin árið
1976. Þá var greitt inn á vélina og
aftur síðar. Ekki varð því aftur
snúið með þessi kaup, — og ekki í
rauninni áhugi heldur á að hætta
við þau. En er lánsfjáráætlun
fyrir 1980 var gerð var af eðli-
legum ástæðum reynt að hafa
hana sem lægsta, og þyrlukaupin
ekki færð þar inn á. Var enda ekki
búist við því að þyrlan kæmi á
þessu ári. Dómsmálaráðuneytið
lagði því ekki sérstaka áherslu á
að fá þyrlukaupin þar inn. Síðar
gerðist það svo að þyrlan varð
tilbúin nú í september, og var þá
ákveðið að leysa hana út.“
Friðjón Þórðarson sagði líklegt
að þyrlukaupin yrðu inni á láns-
fjárlögum næsta árs, en þó væri
þess að geta, að ætlunin væri að
selja eldri Fokkervél Gæslunnar.
Fengjust væntanlega fyrir hana
um 500 milljónir króna, eða veru-
legur hluti kaupverðs þyrlunnar
Leiðrétting
í frétt frá blaðamannafundi við-
skiptaráðherra í Mbl. í gær var
rangt farið með nafn setts fyrsta
varaviðskiptautanríkisráðherra
Sovétríkjanna. Hann heitir
Michail Romanovich Kusmin.
Leiðréttist það hér með.
sem er 800 milljónir sem fyrr
segir.
Spurningu um hvort ekki hefði
átt að selja Fokkervélina í sparn-
aðarskyni, svaraði ráðherra á þá
leið, að rétt væri að mikið hefði
verið rætt um sparnað, það væri
rétt. Þar væri margt enn til
athugunar, svo sem hugsanleg
sala vitaskipsins Árvakurs, litlu
þyrlunnar og fleira væri í athug-
un.
Um þyrlusöluna kvaðst ráð-
herra þó hafa mjög ákveðnar
efasemdir, enda nýttist hún oft vel
þar sem um minni háttar verkefni
væri að ræða. Varðskip mun
sækja nýju þyrluna utan, og var
ráðherra að lokum spurður hvort
það væri hagkvæmari flutnings-
máti en að fá hana senda með
vöruflutningaskipi. Sagði hann
það vera, og kæmi þar til álita eitt
og annað, svo sem ódýrari olíu-
kaup. Ef þessi leið hefði ekki verið
valin hefði þurft að flytja þyrluna
fyrst til Norfolk í Virginíu, og
koma henni þar í skip. Slíku hefði
fylgt mikið umstang og ófyrirsjá-
anlegur kostnaður.
Menningarauki
fyrir þjóðlíf okkar
Blaðinu hefur borist eftirfar-
andi bréf, sem Félag islenskra
leikara hefur sent menntamála-
ráðherra, fjármálaráðherra og
bæjarstjórnar Akureyrar:
„Félag íslenskra leikara harmar
hvernig komið er fyrir atvinnu-
starfsemi Leikfélags Akureyrar.
Það er leitt til þess að vita, að
þrátt fyrir að löngu var séð hvert
stefndi og þrátt fyrir að mennta-
málaráðherra, fjármálaráðherra
og bæjarstjórn Akureyrar hafi
hvað eftir annað lýst þeim vilja
sínum að atvinnuleikhús á Akur-
eyri megi ekki leggjast af, hefur
þessum aðilum ekki tekist að
forða því.
Við skorum því á menntamála-
ráðherra, fjármálaráðherra og
bæjarstjórn Akureyrar að grípa
þegar til ráðstafana sem duga til
þess að atvinnustarfsemi L.A. geti
hafist sem fyrst og framtíð leik-
hússins verið tryggð.
Það er kunnara en frá þurfi að
segja, að tilvist atvinnuleikhúss á
Akureyri er menningarauki fyrir
Baldur Kristjánsson, blaðafulltrúi BSRB:
„Fjarstæða, að BSRB^amningur-
inn sé ekki launajöfnunarsamningur“
BALDUR Kristjánsson, blaða-
fulltrúi Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja, hefur gert athuga-
semd við ummæli tveggja forystu-
manna i launþegahreyfingunni,
þeirra Jóns Kjartanssonar frá
Vestmannaeyjum og Magnúsar
L. Sveinssonar formanns VR, þar
sem þeir sögðu, að samningar
BSRB væru ekki láglaunasamn-
ingar. Baldur sagði i samtali við
Morgunblaðið i gær:
„í Morgunblaðinu í fyrradag
birtast viðtöl við Magnús L.
Sveinsson og Jón Kjartansson, þar
sem þessir verkalýðsforingjar
leyfa sér að vera með staðlausar
fullyrðingar um kjarasamninga
BSRB. Þannig segja þeir, að
samningur ríkisins og opinberra
starfsmanna sé ekki launajöfnun-
arsamningur, þvert á móti.
Þessar fullyrðingar gefa svo
sannarlega kolranga mynd af
samningi bandalagsins. Kjarni
málsins er, að launaflokkar 19 til
31 færast til samræmis við launa-
flokka BHM, en engin hækkun
kemur önnur í þeirra hönd. Þessi
leiðrétting verður í þremur hlut-
um á samningstímabilinu, 1. des-
ember, 1. marz og 1. júní. Það ætti
að vera hverjum manni ljóst, að
hækkun sem kemur svo seint á
samningstímabilinu, vegur ekki
jafn þungt og hækkun, sem kemur
strax. Ef tekið er tillit til þessa, er
hækkunin í efstu launaflokkunum
ekki nema frá 'k % til liðlega 3%.
Ef auk þess er tekið tillit til fjölda
starfsmanna í þessum flokkum, þá
er hækkunin í þeim ekki nema
1,2%. Það er vegna þess, að flestir
á áðurnefndu launaflokkabili eru í
19. og 20. flokki, þar sem hækkun-
in er aðeins um 'k %.
Til samanburðar má geta þess,
að hækkunin í neðri hluta launa-
stiga BSRB er á bilinu 5 til 7% og
ellilífeyrisþegar geta fengið allt að
15% og þeir eru óneitanlega lægst
launaði hópurinn. Það er því
fjarstæða, að samningar BSRB
séu ekki launajöfnunarsamn-
ingar," sagði Baldur Kristjánsson
að lokum.
þjóðlíf okkar og vegsauki fyrir
þjóð okkar, því hróður leikhússins
hefur víða borist og vakið verð-
skuldaða athygli. Það væri því
landi og þjóð til mikillar van-
sæmdar ef leikhús þetta yrði nú
lagt niður.
Við vonum því að hlutaðeigandi
sjái þetta mál í réttu Ijósi og
sendum þeim hér með okkar bestu
kveðjur með hvatningu.
Virðingarfyllst, f.h. F.Í.L.
Gisli Alfreðsson.
Slitlag
á Eyrar-
bakkaveg
Eyrarbakka 16. september.
VERIÐ er að ljúka lagningu
oliumalar á Eyrarbakkaveg,
að vegamótum Eyrarbakka
og Stokkseyrar. Lagning
slitlagsins, sem er á 10 kíló-
metra löngum kafla frá Sel-
fossi, hefur gerst í smááföng-
um árlega, frá árinu 1976.
Okkur hér á Eyrarbakka
þykir nú smátt skammtað,
sér í lagi vegna þess að ekki
skyldi klárað að leggja slit-
lagið út i þorpin á þessu ári.
Það er enda ekki frítt við, að
við hér á ströndinni teljum
okkur afskifta í samgöngu-
málum vegna hafnleysisins.
Við þetta bætist síðan að
loksins þegar hillti undir
möguleika á hitaveitu þá sá
blessuð ríkisstjórnin til þess,
að 250 milljón króna lánsfjár-
heimild til hennar er skorin
niður um 180 milljónir. Segj-
um svo að ríkisstjórnin hafi
ekki áhuga á að nýta innlenda
orku sem allra fyrst!
—óskar.