Morgunblaðið - 18.09.1980, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.09.1980, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1980 Sumir halda ad þaö sé nóg að eiga gott segulband aörir halda að kassettan skipti ekki miklu máli. Hinir eru fleiri sem vita betur. Fagmenn vita að við i upptöku á tónlist þarf l að hljððrita og endur- § spiia sama lagstubbinn mörgum sinnum áður en endanlegur árangur næst. Þessvegna nota þeir ampex tónbönd. GÆÐA TÓNLIST KREFST GÆÐA TÓNBANDS Dreifing: máaw sími 29575 Reykjavík spurðu um AMPEX. AUCLÝSINCASTOFA MYNDAMÓTAHF Rúrik Haraldsson er leikstjóri. Heljfi Skúlason leikur sir Harry Sims. Brynja Benediktsdóttir leikur lady Sims. Margrét Guðmundsdóttir leikur Kate. Kleméns Jónsson leikur Tombes. Fimmtudagsleikritið kl. 21.40: Ekkert má fara úrskeiðis Á daKskrá hljóðvarps kl. 21.40 er fimmtudaKsleikritið. .Tólí punda tillitið". Kamanlcikur eítir James M. Barrie. Þýðandi er borsteinn Ö. Stephensen, en leik- stjóri Rúrik Haraldsson. f hlut- verkum eru: Helgi Skúlason. Marjfrét Guðmundsdóttir og Brynja Benediktsdóttir. FlutninK- ur leiksins tekur rúman hálftíma. Tæknimaður: Geor« Magnússon. Harry Sims á að hlotnast sá heiður að verða aðlaður eftir nokkra daga, og hann æfir athöfn- ina með konu sinni. Ekkert má fara úrskeiðis, því sá væntanlegi Sir Harry er hégómlegur leiðinda- skröggur. Kona sem vinnur við vélritun kemur í heimsókn, og frú Sims finnst hún vita grunsamlega mikið um manninn hennar. Höfundurinn, James Matthew Barrie, var sjálfur aðlaður á sinni tíð. Hann fæddist í Kirriemur í Skotlandi árið 1860 og stundaði nám í Edinborg þar sem hann varð síðar háskólarektor. Barrie hóf rithöfundarferil sinn með ljóðum og frásögnum úr heimahögunum. Kunnastur er hann þó fyrir leikrit sín, sem stundum eru gáskafull og æfintýraleg, stundum þrungin þjóðfélagsádeilu sem þó verður aldrei leiðinleg. Æfintýraleikurinn „Peter Pan“ (1904) vakti mikla athygli. Af öðrum verkum má nefna „The Admirable Crichton" (1902), „What Every Woman Knows" (1908) og „A Kiss for Cinderella" (1916). Sjálfsæfisaga Barries, „The Greenwood Hat“ kom út 1937. Sama ár lést hann í London. Útvarpið hefur áður flutt eftir- talin leikrit eftir Barrie: Erfða- skráin (1935), Ástarsaga prófess- orsins (1964) og Engum er Crich- ton líkur (1973). HljóÖvarp kl. 22.35: Hvernig á góður skóli að vera? Á dagskrá hljóðvarps kl. 22.35 er erindi um skólamál, Hvernig er góður skóli? Hörður Bergmann náms- stjóri flytur annað erindi sitt af þremur og fjallar um þá þætti sem móta innra starf skólans. Það hefur tíðkast hér að ræða aðeins um hin minni háttar mál, þegar skólastarf hefur borið á góma í umræð- um, sagði Hörður, svo að ég ákvað að spyrja stórt þó að tíminn væri naumur, ef það mætti verða almenningi til nokkurrar upplýsingar. Ég byrja á því að skoða innra starf skólans og skipti því í 7 meginþætti: 1. inntak skólastarfsins eða námsefni; 2. kennsluaðferðir; 3. tíma- skiptingu (lengd kennslu- stunda); 4. námsmat; 5. sam- skipti kennara og nemenda; 6. stjórnun (sem nemendur hlíta); 7. hvernig skólar gera skil á starfi sínu. þá fjalla ég um það hvernig skólar geta starfað mismunandi í öllum þessum atriðum og geri grein fyrir mínu mati á því, hvað góður skóli hefur til viðmið- unar í þessu efni. Útvarp Reykjavlk FIM41TUDIVGUR 18. september MORGUNINN 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Tónleikar. 7.25 Bæn. Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). Dagskrá. Tónicikar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Koiur og Kolskeggur" eftir Barböru Sleigh. Ragnar Þorsteinsson þýddi. Margrét Helga Jóhannsdóttir les (28). 9.20 Tónleikar. 9.30 Tilkynn- ingar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. 10.25 Islenzk tónlist Jóhanna G. Möller syngur lög eftir Pál ísólfsson; Agnes Löve leikur með á píanó/ Sinfóniuhljómsveit Islands leikur lög eftir Pál ísólfsson úr sjónleiknum „Gullna hlið- inu"; Páll P. Pálsson stjórn- ar. 11.00 Verzlun og viðskipti. Um- sjón: Ingvi Hrafn Jónsson. 11.15 Morguntónleikar. Rudolf am Bach leikur píanólög eftir Gustav Weber/Janet Baker syngur lög eftir Rich- ard Strauss; Gerald Moore leikur á píanó. SÍDDEGID 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Tónleikasyrpa. Léttklassísk tónlist, dans- og dægurlög og lög leikin á ýmis hjjóðfæri. 14.30 Miðdegissagan: „Tví- skinnungur" eftir Önnu Ólafsdóttur Björnsson Höfundur les (3). 15.00 Popp. Páll Pálsson kynn- ir. 15.50 Tilkynningar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Síðdegistónleikar. Maurice Duruflé og Sin- fóniuhljómsveit franska út- varpsins leika Orgelkonsert í g-moll eftir Francis Poul- enc; Georges Prétre stj./Fíl- harmoníusveitin í Stokk- hóimi leikur Sinfóniu nr. 3 í E-dúr op. 23 eftir Hugo Alfvén; Nils Grevillius stj. 17.20 Tónhornið Sverrir Gauti Diego stjórnar þættinum. 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. KVÓLDID_____________________ 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.35 Daglegt mál Þórhallur Guttormsson flyt- ur þáttinn. 19.40 Sumarvaka a. Einsöngur: Sigríður Ella Magnúsdóttir syngur islenzk tóg ólafur Vignir Albertsson leikur á pianó. SKJANUM FÖSTUDAGUR 19. september 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dag- skrá M.40 Prúðu leikararnir Gestur í þessum þætti er söngkonan Anne Murray. Þýðandi Þrándur Thor- oddsen. 21.05 Rauði keisarinn Fjórði þáttur. (1939—45) Stalin vingaðist við Hitler, og þeir skiptu Póllandi bróðurlega milli sin. Von bráðar réðst þýski herinn inn i Sovétríkin, en Staiin bar að lokum hinn efra skjöld og tókst að þenja áhrifasvæði Rússa lengra vestur en nokkrum keisara hafði tekist. Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson. 21.55 Eldraun (Ordeal) Bandarísk sjónvarpsmynd frá árinu 1973. Aðalhlutverk Arthur Hill, Diana Muldaur og James Stacy. Damian er sjálfselskur, veikgeðja og í einu orði sagt óþolandi eiginmaður. En gengur kona hans ekki fulllangt, þegar hún skilur hann eftir einan og ósjálf- bjarga úti i eyðimörkinni til að deyja drottni sinum? Þýðandi Björn Baldursson. 23.05 Dagskrárlok b. tshús og beitugeymsla Vilhjálmur Hjálmarsson fyrrum menntamálaráð- herra flytur þriðja og síð- asta erindi sitt: Nordalsíshús og íshúsið í Elliðaárhólmum. c. Hnitbjörg Baldur Pálmason les kvæði eftir Pál V.G. Kolka. d. Hann Kristján á Klængs- hóli Gísli Kristjánsson talar við Kristján Halldórsson vist- mann á Daibæ við Dalvík, 94 ára öldung. e. Manntjónið mikla á Arn- arfirði 20. september 1900 Séra Jón Kr. ísfeld flytur frásöguþátt. 21.25 „Þórarinsminni" Sinfóníuhljómsveit tslands leikur lög eftir Þórarin Guð- mundsson; dr. Victor Ur- bancic færði í hljómsveitar- búning. Stjórnandi: Páll P. Pálsson. 21.40 Leikrit: „Tólf punda til- iitið" eftir James M. Barrie Þýðandi: Þorsteinn Ö. Steph- ensen. Leikstjóri: Rúrik Har- aidsson. Persónur og leikendur: Sir Harry/Helgi Skúlason. Kate/Margrét Guðmunds- dóttir. Lady Sims/Brynja Benediktsdóttir. Tombes þjónn/Klemenz Jónsson. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.35 Hvernig er góður skóli? Hörður Bergmann náms- stjóri flytur annað erindi sitt um skólamál. 23.00 Áfangar Umsjónarmenn: Ásmundur Jónsson og Guðni Rúnar A ornfirtifinn 23.45 Fréttir. Dagskráriok.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.