Morgunblaðið - 18.09.1980, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1980
19
Það er í raun ekki eins óal-
gengt og margur álítur að virk
listgáfa gangi í erfðir, dæmin
eru þó nokkur. Hins vegar er það
ekki eins algengt að eiginleik-
arnir fái sömu aðstæður til að
dafna og njóta sín, — það þarf
nefnilega ótvírætt ákveðin skil-
yrði til að hæfileikarnir njóti sín
til fulls og gáfan kann að
dreifast á margar listgreinar
innan sömu fjölskyldu. Þó er
alveg rétt, að í mörgum tilvikum
er það ákaflega erfitt að feta í
fótspor foreldra sinna eða systk-
ina er fram úr hafa skarað í
einhverri ákveðinni listgrein.
Stundum hafa menn breytt um
nafn til að vera alveg óháðir
frægð ættmenna sinna og njóta
ekki óverðskuldaðs ávinnings af
virtu ættarnafni í listaheimin-
um og/eða lifa í skugga viðkom-
andi. Hér getum við í einn stað
nefnt Duchamp-fjölskylduna en
þeir munu ennþá fjölmargir sem
gera sér ekki grein fyrir að
bógarnir Marchel Duchamp og
Jaques Villon voru bræður auk
þess sem að systkini þeirra
Suzanne Duchamp og Raymond
Mvndllst
eftir BRAGA
ÁSGEIRSSON
Duchamp-Villon voru einnig á
heimsmælikvarða í myndlist-
inni. En menn þekkja vafalítið
allnokkrir til Wyeth-fjölskyld-
unnar amerísku en þrír ættliðir
eru þar nafntogaðir myndlist-
armenn. Svo er dæmið líka
þannig að menn geta sem kunn-
ugt er verið bæði virkir sem
óvirkir vímuefnaneytendur á hin
aðskiljanlegustu efni. Þessir eig-
inleikar ganga einnig í erfðir að
vissu marki en hér spila einnig
aðstæður og uppeldi inn í það á
hvorn veg eiginleikarnir þróast.
Fallþunginn er ekki ævinlega
hinn sami meðal einstaklinga
innan sömu fjölskyldu en það
kemur fyrir að hæð, ummál og
þyngd er svipuð, sömuleiðis útlit
og litarraft. Hitt er miklu al-
gengara að gen og litningar
dreifist innan fjölskyldu, hæfi-
leikar og skapgerð sömuleiðis.
Ég nefndi hér fyrir framan
vímuefnaneytendur með ásettu
ráði því að iðkun lista er ótví-
rætt hliðstæð vímuefnaneyzlu,
en hins vegar með góðum og
hollum eftirköstum í flestum
tilvikum.
Þessi formáli er til kominn
vegna þess, að mér þykir full-
mikið hafa verið vísað til for-
eldris Unu Dór'u Copley, sem um
þessar mundir sýnir allmörg
verk sin í anddyri Norræna
hússins og á það bæði við í
fréttum, viðtölum og listrýni. —
Víst er Una Dóra undir áhrifum
frá foreldrum sínum enn sem
komið er en það eru holl og góð
áhrif sem hún vafalaust þrosk-
ast frá með tíð og tíma. Ennþá
er list hennar í ungæðislegri
gerjun, — hún vinnur hratt og
ákveðið og lætur tilfinningarnar
ráða ferðinni, en svið þeirra
virðist ríkt ög safamikið. Una
Dóra er fjörmikil, rómantísk og
opinská, en svo kemur hún
a.m.k. fyrir í framkomu og
myndum sínum og hefur vafalít-
ið erft heilmikið af verðmætum
eiginleikum frá foreldrum sín-
um.
Myndsvið hennar einkennist
mjög af klippmyndum en fyrir
slíkar var Nína móðir hennar vel
þekkt, — en gætum þess einnig
að þetta gera ungir sem aldnir í
stórum stíl austan hafs og vest-
an nú um mundir og þar á meðal
fjöldi íslenzkra listamanna, —
ekki eru hér allir undir áhrifum
frá Nínu! Nei, síður en svo. Hitt
er annað mál að expressjónískur
skaphiti birtist í ríkum mæli hjá
Unu Dóru, er mjög sver sig til
foreldranna og mér þykir það
einungis vita á gott. En svo er
Una Dóra einnig undir allt
öðrum áhrifum sem koma vel
fram í fíngerðri litameðferð eins
og t.d. í myndinni „Röndótt
stúlka" og mörgum öðrum fín-
gerðum litasinfóníum er sverja
sig í ætt við ameriska nútímalist
og margvíslegar tilraunir í sömu
veru víða um heim.
Ég læt þetta nægja en undir-
strika, að mér þótti þetta hressi-
leg og mjög lífræn frumraun
sem gefur fyrirheit um að Una
Dóra hafi alla möguleika til að
láta verulega að sér kveða á
vettvangi myndlistar er fram
líða stundir.
Bragi Ásgeirsson.
Bæklingur
um álmótun
og vinnslu
ÚT ER kominn bæklingurinn
ÁL — mótun og vinnsla. en eins
og nafnið bendir til er þar fjallað
um framleiðslu og vinnslu hluta
úr áli og ieiðbeint um val á
aðferðum, efnum og verkfærum.
ÁL — mótun og vinnsla er
þriðja ritið sem Skanaluminum,
norræn samtök áliðnaðarins, hafa
gefið út á íslenzku um ál, notkun-
armöguleika þess og meðhöndlun.
Áður eru komnar út bækurnar
ÁL — suðuhandbók, Tig-Mig, sem
fjallar um Tig-Mig-suðu og ÁL —
samskeyting, sem fjallar um ýms-
ar aðferðir við samskeytingu á
áli, svo og hnoðun, límingu, lóðn-
ingu og ýmsar aðferðir við álsuðu.
Bækur þessar eru ætlaðar sem
kennslubækur fyrir iðnnema og
handbækur fyrir iðnaðarmenn og
hönnuði. Þær fást í Bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar og Bóka-
búð Olivers Steins.
Kristileg-
ir sækja á
IlamborK, 16. september. — AP.
SAMKVÆMT skoðanakönnun AIl-
enbach-stofnunarinnar í V-Þýzka-
landi hafa kristilegir demókratar
og samstarfsflokkur þeirra i Bæj-
aralandi, Kristilega sósialsamband-
ið, CSU, sótt talsvcrt á undanfarnar
vikur. Kosningar fara fram þann 5.
október. Samkvæmt skoðanakönn-
uninni hljóta jafnaðarmenn undir
forustu Ilelmut Schmidts 45,1%,
kristilegir demókratar og CSU 45%
og frjálsir demókratar 7,7%.
Stjórnarflokkarnir tveir, jafnað-
armenn og frjálsir demókratar hafa
misst samanlagt fylgi á undanförn-
um vikum. Fyrir þremur vikum
fengu jafnaðarmenn 46,8% í skoð-
anakönnun, kristilegir demókratar
og CSU 43% og frjálsir demókratar
7,6%.
Olía út af
N-Noregi
Frá fréttaritara MorKunhlaðsins. ÓalA i
Itar
STATOIL er komin á slóð olíu út af
strönd Norður-Noregs. Nokkur olía
fannst þegar borpallurinn „Ross
Rigg“ hafði borað niður á 3.000
metra dýpi á Tromsöflaket. Óvíst er
hvort magnið er nógu mikið til
þess. að framleiðsla sé möguleg. en
oliufundurinn hendir til þess að
verið geti að mikil olia sé einnig
norðan við 62. breiddarbaug.
„Ross Rigg“ á að bora um 700
metra í viðbót. Upplýsingar frá
borholunum sýna, að á 3.000 metra
dýpi eru svipuð lög og í Norðursjó, cr
hafa aö geyma olíu og gas.
Norsk Hydro borar eftir olíu á
Halten-banka fyrir utan Þrændalög.
Enn sem komið er hefur ekki fundizt
olía í þeirri borholu.
— Lauré.
B(ðið á meðan smurt er
eða skiljið bllinn eftir.
Með því að láta smyrja bifreiðina reglulega, eykur þú þar með
endingu, jafnframt því sem endursöluverð bifreiðarinnar
verður hærra.
Við hjá Heklu hf. bjóóum uppá fullkomna smurþjónustu
á öllum tegundum bifreiða í smurstöð okkar.
Líttu við hjá okkur, næst þegar bifreiðin þarfnast smurningar.
n