Morgunblaðið - 18.09.1980, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 18.09.1980, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1980 37 Þingflokkur Alþýðuflokksins: Telur þjóðnýtingu Flug- leiða ekki leysa vandann Svohljóðandi fréttatiIkynninK hefur borizt frá þingflokki Al- þýðuflokksins: „Á fundi þingflokks Alþýðu- flokksins í dag var m.a. rætt um málefni Flugleiða á grundvelli þeirra umræðna, sem fram hafa farið nú nýverið milli ríkisstjórn- arinnar og fulltrúa þingflokkanna um málið. Þingflokkurinn gerði eftirfarandi ályktun: Þingflokkur Alþýðuflokksins telur flug til Luxemborgar og samstarf um flugmál við Luxem- borgarmenn svo mikilvægt fyrir islenska hagsmuni, að það megi ekki fella niður, meðan nokkur kostur er að halda því áfram. Þingflokkurinn er reiðubúinn að styðja tilraunir til að ná viðun- andi samkomulagi við stjórnvöld í Luxemborg um áframhald þessa flugs með stuðningi beggja ríkj- anna, nema útgjöld af því verði óviðráðanleg. Þingflokkurinn telur, að þjóð- nýting Flugleiða mundi ekki leysa vandann, enda þótt hlutafjáreign ríkisins í félaginu mætti aukast. Hins vegar er óeðlilegt og ætti að vera bannað, að önnur flutninga- félög, eins og skipafélög, séu áhrifamiklir aðilar að félaginu, enda kemur þar til hagsmunaá- rekstur. Þingflokkur Alþýðuflokksins fordæmir niðurrifsstefnu Alþýðu- bandalagsins í þessu máli og telur að eftirlitsmaður fjármálaráð- herra hjá félaginu eigi að víkja úr starfi vegna trúnaðarbrota. Brýn nauðsyn er að eyða tor- tryggni og efla samhug innan Flugleiða. I því efni hvíla skyldur og ábyrgð á stjórnendum og starfsfólki félagsins, og sé henni ekki sinnt af beggja hálfu, dugir aðstoð ríkisvaldsins ekki til að rétta hag félagsins við.“ Varðskipið Ægir kom laugardaginn 6. september að rússneska rannsóknarskipinu Semyon Dezhnev þar sem það var á siglingu í austurátt 35 sjómilur norðaustur af Horni. Ljósm. Árni Kristjánsson. Frá keppni hjá Bridgefélagi kvenna i fyrra. Brldge Umsjón« ARNÓR RAGNARSSON Bridgedeild Breið- firðingafélagsins Á fimmtudaginn kemur hefst vetrarstarfið hjá deild- inni með upphitunartvímenn- ingi. Spilað verður í Hreyfils- húsinu eins og áður og hefst keppnin kl. 19.45. Breiðfirð- ingar og aðrir spilarar félags- ins svo og gestir þeirra eru velkomnir meðan húsrúm leyf- ir. Bridgefélag Kópavogs Vetrarstarf félagsins hefst í kvöld með eins kvölds tvímenn- ingi og hefst keppnin kl. 20. Spilað er í Þinghól, Hamraborg 11. Nýir félagar eru velkomnir. Bridgefélag kvenna Aðalfundur félagsins var haldinn 15. sept. sl. Formaður var endurkjörinn og er stjórnin þannig skipuð: Ingunn Hoff- man formaður, Alda Hansen ritari, Gerður ísberg gjaldkeri. Vetrarstarfið hefst mánudag- inn 22. sept. kl. 19.30 stundvís- lega. Spilað er í Domus Medica og verður fyrsta keppnin 3ja kvölda einmenningur. Allar konur, jafnt félagskonur sem utanfélags, eru velkomnar. Þátttaka tilkynnist sem fyrst í síma 17987 eða 17933. 25 ám afmælisveisla*- Dansskóla Hciðars Ashaldssoiiar Frdbdsr ddnsskemmtun lyrir dl ld 1 CmSSKOLI HáðarsAstmldssonar Ddnsdó í tudLtju og jimm ór, Kæru vinir, ■k*** Skólinn okkar e'r að byrja tuttugasta og fimmta starfsárið! í tilefni þessara timamóta langar okkur til að bjóða ykkur á skemmtun að Hótel Sögu. Súlnasal, sunnudaginn 21. september, kl. 20 til 01. e.m. Þeir, sem vilja nota tækifæriðog borða í Súlnasalnum um kvöldið, geta fengið borð frátekin föstudaginn 19. september kl. 17-19. (Sími 20221). Matur: Sítrónukryddað lambalæri Verð: 7.600. - krónur Skemmtiatriði okkar verða ekki af verri endanum. Fyrst sýna nemendur skólans nokkur dansatriði, en síðan koma fram hinir heimsþekktu dansmeistarar Helen og Robert Richey og sýna Suður-ameriska dansa. Okkur þætti vænt um að fá að sjá ykkur á Hótel Sögu á sunnudagskvöldið. Kær kveðja, Áströlsku dansmeistaramir Helen og Robert Richey sýna S-ameríska dansa SALA AÐGÖNGUMIÐA AÐ HÓTEL SÖGU, FÖSTUD. 19.SEPT., KL 4-6

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.