Morgunblaðið - 18.09.1980, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 18.09.1980, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1980 45 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 13—14 FRÁ MÁNUDEGI skemmtilegt að dansa og ég get vel skilið að unga fólkinu gremjist að vera lokað úti í kuldanum. • Ástandið getur ekki versnað Ég held að þetta hefði síst meiri drykkjuskap í för með sér. Vín er það dýrt á veitingahúsum. Þar að auki er betra að drekka blandað vín úr glasi en óblandað af stút, sem gerir alla ofurölvi áður en þeir vita af.“ • Ekki í kvörtun- arhugleiðingum S.J. skrifar: „Kæri Velvakandi. Ég skrapp fyrir nokkrum vik- um til óðinsvéa á Fjóni til að hitta vini mína, sem þar eru við nám. Sumarleyfi þeirra eru svo stutt að það tekur því varla að fara heim til Islands. Best er að fá vinnu á staðnum ef unnt er. Vinir mínir voru svo heppnir að fá vinnu. Ég fór því utan til að heimsækja þá áður en skólinn hæfist á ný. Velvakandi góður, þú ert nú van- astur því að kvartað sé við þig um eitt og annað. Ég er ekki í þeim hugleiðingum. Mér finnst að ekki eigi að þegja yfir því sem vel er gjört. • óttinn hvarf í samtölum sem ég átti við landa mína þarna lofuðu þeir mikið íslenska ræðismanninn í Óðinsvéum, Harald Hansen. Þeir, sem höfðu þurft að leita til hans með persónuleg mál sín, höfðu orð á því hversu hjálpsamur hann væri. Ég hitti þarna stúlku sem sagðist hafa verið mjög tauga- óstyrk, er hún leitaði ráða hjá ræðismanninum. Hún sagði einn- ig: „Óttinn hvarf um leið og hann byrjaði að tala við mig, og ég fann strax að hann var allur af vilja gerður að leysa minn vanda." Þannig eiga ræðismenn að vera og þannig er okkar maður í Óðinsvé- um. Þessir hringdu . . . • Skil ekki svona ef nisval Doddý hringdi og furðaði sig á efnisvali sjónvarpsins. — Ég ákvað strax á föstudagskvöldið að hringja í þig. Eftir myndir um helfarir og rauða keisara, sem geta verið mjög gagnlegar til að vekja fólk til umhugsunar, dettur þeim í hug þarna hjá sjónvarpinu að bjóða upp á mynd eins og var á föstudagskvöldið, Ameríski her- maðuririn minnir mig að hún heiti, óþverra glæpamynd og hreina vitfirringu. Það má svo sem segja að fólk geti lokað fyrir tækin sín, en ég get mér til að það kunni að vefjast fyrir ýmsum, þar sem stálpuð börn og unglingar eru á heimilunum, oft alætur á sjón- varpsefni. Aginn er ekki svo strangur hjá okkur hér á iandi, að maður geti staðið upp og lokað fyrir með einu handtaki. En ég skil ekki svona efnisval hjá þeim þarna í sjónvarpinu. • Seðlaveskinu var stolið Ása Ragnarsdóttir hringdi og sagði sínar farir ekki sléttar af heimilissýningunni í Laugardal. — Ég brá mér þar í hringekjuna (ballerínuna) og er það varla í frásögur færandi, nema hvað seðlaveskinu mínu hafði verið stolið úr vasa mínum þegar upp var staðið. Mér er sárast um öll skilríkin sem kostnaðarsamt er að endurnýja. Ég vona að einhver, sem les dálka þína, Velvakandi minn, geti gefið mér einhverjar upplýsingar um, hvar þessi gögn er að finna. Mér er sama um peningana. Þeir voru hvort eð er ekki miklir. • Hvaða uppreisn- armenn eru þetta? Kr. Sig. hringdi og bað fyrir spurningu til fréttastofu hljóð- varps: Hvaða uppreisnarmenn eru þetta sem sí og æ er talað um í fréttum hljóðvarpsins frá Afgan- istan? SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Eftirfarandi staða kom upp í skák Andrianovs og Imanielievs á skákmóti í Sovétríkjunum. Hvítur átti leik og knúði fram vinning á skemmtilegan hátt: 16.0-0-0! - Rxa4.17. Hd7 - Ke8. 18. Bxa4 - Be7, 19. Hxa7 Svart- ur gafst upp enda er stórfellt liðstap fyrirsjáanlegt. HÖGNI HREKKVÍSI O __Kjöt skrokkar Hálfir nautaskrokkar 1 fl. UN I verð Fullt hús matar 2.689.- innifaliö úrbeining, pökkun og merking. Nautalæri 1. fl. UN I verð 3.450.- innifaliö úrbeining, pökkun og merking. Nautaframpartar 1 fl. UN I verð 2.094.- innifaliö úrbeining, pökkun og merking. 2. fl. gæðaflokkur UN II verð 2.330, Hálfir nautaskrokkar eðaflokkur UN II verð innifaliö úrbeining, pökkun og merking. Nautalæri 2 fl. gæðaflokkur UN II verð innifalið úrbeining, pökkun og merking. 3.030.- Nautaframpartur 2 fl. gæðaflokkur UN II verð innifaliö úrbeining, pökkun og merking. 1.858.- UN I er ungnautakjöt í 1. gæöaflokki, stærð 55—90 kg á hálfan skrokk. UN II er ungnautakjöt í 2. gæðaflokki, stærð 40—55 kg á hálfan skrokk. Ef kjötskrokkar eru teknir í heilu, óunnir, er verðið 300 kr. ódýrari pr. kg. Hálfir svínaskrokkar tilbúnir í 2.830.- frystirinn verð Innifalin úrbeining, pökkun og merking. 10 kg nautahakk, O AAA tilboðsverð aðeins ðihUUi Skráð verð 5.724,- 10 kg. folaldahakk tilboðsverð aöeins 1.100.- Opið föstudaga frá kl. 7—7 og laugardaga frá kl. 7—12. CSoDS)‘irEaDtE)@'TT®{l)nRO Laugalæk2, sími 86511.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.