Morgunblaðið - 18.09.1980, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1980
IVIeistarakeppniii
Úrslit I Kvrópukoppní muistaraliAa:
Halmstad — KsbjerK 0—0
Oulo l innland — Liverpool 1 — 1
(MC Dermott)
Real Madrid — Limerick 2—1
Víkinjtur Noregi - Red Star JúkósI 2-3
Dinamo Zeajfrep — Benfica 0—0
IBV — Banik Ostrava 1-1
Nantes — Linfield 1 —0
Spartak Moxkva — Jeunewe Lu* 5—0
Banel Svínk - F.C. llruKKe 1 —0
CSKA Búluaríu - Nuttinith. Forest 1—0
Milan — Craiova Rúmeniu 2—0
Aherdeen — Auatria Vienna 1—0
(MeGhee)
Sportinx (port) — llonved 0—2
Din. Boclin — Aport Nfkosia 3—0
Din. Tirana — Ajax 0—2
(Arneaon 2)
Bikarakeppnin
Oralit i Evrópukeppni bikarhafa:
Glamt. Celtic — Timiaoara Kúmeniu 2—1
Valencia — Monaeo 2—0
Hvidovre — Fram 1—0
Roma italiu — Carl Zeias Jena 3—0
Sion Sviaa — llauitar Noreiti 1—1
Katoria Grikklandi — Dinamo TihliaiO—0
Caatillia - Weat Ham 3-1
Ilvea Finnlandi — Feyenoord 1-3
Malmft FF — Tirana 1-0
Fortuna Duaaeldorf — SalzburK 5-0
Newport — Cruaadera 1-0
Sporta Lux. — Sparta PraK 0-2
Omonia Nikosia — Waterschei 1-3
Hibernian (Mftltu) — Waterford 1-0
Slavia Sofia — Letria Varajá 1-1
UEFA-keppnin
PSV Eindhoven—Wolvea 3—1
Mork PSV: Brandta. Koeter ok Kuylen.
Mark Wolvee: Andy Gray.
Din. Dreaden—Napredak 1—0
Elfshorif—St. Mirren 1—2
Manch. lltd—Widaew Lodi 1 — 1
Mark llnited: Mcllroy
Mark Lodz: Surlit
Antea Piteati—FC IJtrecht 0—0
Bohemiana Prait—Gijon 3—1
Zbrojovka Brno—Vooest Linz 3—1
Barcelona—Slfema Wand. 2—0
Mdrk Barcelona: Canito o|t Landaburu
Vaaaa Búdapeat — Boaviata 0—2
Sbaktior Donetzk—Eintr.Frankfurt I—0
Mark Shaktior: Starukhin.
Stuttitart—Pezjporikoa (Kýp.) 6—0
Mork Stuttirart: Klotz (3). Alitover (2) og
Kebch
Molenbeek—ACTorino 1—2
Bailymena (N.írl)—Frankfurt/Oder 2—1
Linzer ASK — Radnicki (Júit) 1—2
Hamburirer SV — Sarajevo 1—2
Graaahoppers — KB (Danm) 2—1
Lokeren — Din.Moakva 1 — 1
Slask Wroclaw — Dundee lltd. 1—1
Dln. Kiev — Spartak Soffia 1 — 1
Fenerbache — Beroe Zaitorra 0—1
Din.Berlin—Apoel Nikoala 3—0
FC Maitdehurit—FC Moaa 2—1
Ipswich — Aris Salonika 5—0
Mórk fpswich: John Wark i (3 vfti) ok
Mariner.
Kaiaerslautern — Anderlecht 1—0
Mark Kaiaeral.: Kraua.
Ujpesti Dosza—Real Sociedad 1 — 1
I10.UEFA—keppnin:
St. Etienne—Koupio Paiiuaera 7 — 0
AZ 67 Alkmaar—Red Boys Differd. 6—0
Juventua—Panathinaikoa 1—0
Tvente—IFK Gautabont 5—1
FC Porto—Dundalk 1—0
Fram á góða möguleika
á að komast í 2 umferð
ÞAÐ íer ekki milli mála að við
eigum mjög mikla möguleika á
að komast áfram i Evrópu-
keppninni eftir þessi hagstæðu
úrsiit sagði formaður knatt-
spyrnudeiídar Fram i gær-
kvöldi er Mbl ræddi við hann.
Fram tapaði í gærkvöidi, með
einu marki gegn cngu. fyrir
dönsku bikarmeisturunum
Hvidovre. Leikur iiðanna fór
fram i úrheilisrigningu og að-
eins 1600 áhorfendur horfðu á
ieikinn. Lið Fram iagði alia
áherslu á að verjast í leiknum
og tókst það sem miklum ágæt-
um.
Eina mark leiksins kom á 60.
mínútu úr vítaspyrnu. Trausti
Haraidsson braut iila á dönskum
leikmanni inn í vítateig og víti
var óumflýjanlegt. Fram lék
4—4—2 í leiknum og lagði
áherslu á að gæta dönsku fram-
Hvidovre —
Fram ■■ W
herjanna vel. Danir voru meira
með boltann og sóttu allan
leikinn en gekk illa að komast í
gegn um sterka vörn Fram.
Guðmundur Baidursson átti
mjög góðan leik í markinu og
varði þrívegis meistaralega vel.
Þá áttu Marteinn, Jón Pétursson
og Trausti allir góðan leik. Eina
verulega hættulega tækifæri
Fram var rétt fyrir leikslok er
Marteinn átti þrumuskot sem
rétt sieikti þverslánna og fór
yfir.
Síðari leikur liðanna fer fram
á Laugardalsveliinum sunnudag-
inn 28. sept. og hefst kl. 14.00.
—Þ.R.
• Knatttækni Sigurláss bauð upp á óvægilegar móttökur hjá hinum sterku og stundum grófu tékknesku
varnarmönnum. Þarna hefur miðvörðurinn Radinek sparkað Lása niður aftan frá.
Glæsileg frammistaða ÍBV
— voru ekki fjarri því að sigra
tékkneska meistaraliðið Banik Ostrava
ÍSLANDSMEISTARAR siðasta
árs, ÍBV, náðu í gærkvöldi þeim
frábæra árangri, að gera jafn-
tefli við hina tékknesku meistara
síðasta árs, Banik Ostrava i
Evrópukeppni meistaraliða.
Lokatölur leiksins urðu 1 —1 og
voru það sanngjörn úrslit. Eyja-
menn fengu auk þess færi sem
hefðu getað gert út um leikinn
þeim í hag, Sigurlás Þorleifsson
komst tvívegis á auðan sjó, en því
miður rann allt út i sandinn.
Bæði mörkin voru skoruð í fyrri
hálfleik.
Afrek Eyjamanna er þeim mun
meira, ef litið er á stöðu tékkn-
eskrar knattspyrnu í dag. Tékkn-
eska landsliðið varð olympíu-
meistari í Moskvu í sumar og í
þriðja sæti í Evrópukeppni lands-
liða. Og fyrir fjórum árum varð
liðið Evrópumeistari. Meistaralið
Tékkóslóvakíu hlýtur því að vera
eitt sterkasta félagslið Evrópu. Og
gegn því liði gerði Eyjaliðið jafn-
tefli.
Eyjamenn frískari í byrjun
Eyjamenn léku mjög yfirvegað
strax í byrjun og var ekki sjáan-
legt að taugastrekkingur þjáði
leikmenn. Var leikið af skynsemi
og nokkrum sinnum náði liðið vel
skipulögðum sóknarlotum. Til
dæmis komst Sveinn Sveinsson í
gott færi strax á 6. mínútu, en
knötturinn hljóp frá honum og
Tékki nokkur komst á milli með
stórutána. Tékkarnir voru þó
lengst af meira með knöttinn, en
allur leikur þeirra var fremur
þunglamalegur, eins og þeir sættu
sig ekki við spriklið í Eyjabúum,
sem kom í veg fyrir að þeir næðu
að sýna sitt besta. Endrum og eins
áttu þeir góð skot utan af vellin-
um, en góð færi fengu þeir fá, Páll
Pálma var í miklu stuði og greip
hvað eftir annað inn í af miklu
öryggi. Vaclav átti þó þrumuskot
snemma sem Páll varði meistara-
lega, en á 28. mínútu náði ÍBV
forystunni með virkilega fallegu
marki. Sveinn Sveinsson tók þá
innkast hægra megin, kastaði til
Tómasar, sem lyfti knettinum
fyrir markið. Markvörðurinn
Michalik hljóp út úr markinu og
hugðist góma knöttinn, en hafði
ekki árangur sem erfiði, því Sigur-
lás varð fyrri til og skallaði
knöttinn laglega yfir markvörð-
inn.
ÍBV 1.1
Banik ■■ I
„Panik Ostrava“
Nokkrum mínútum síðar komst
Sigurlás á auðan sjó, en rétt utan
vítateigs stjakaði Tékki nokkur
nokkuð harkalega við honum. Sig-
urlás féll ekki og lét dómarinn
leikinn því halda áfram. Lási var
hins vegar kominn úr jafnvægi og
markverðinum tókst að bjarga á
síðustu stundu. Er ekki gott að
ímynda sér þróun leiksins ef
Sigurlás hefði þarna sent knöttinn
í netið. Það var því hálfgerð
örvænting í tékkneska liðinu.
Leikmenn liðsins reyndu að haida
ró sinni, en greinilegt var, að þeir
flýttu sér mun meira í öllum
framkvæmdum sínum. Vörn Eyja-
manna stóð þó lengst af föst fyrir
og eina hættulega atlaga Banik
var gott langskot Perchacek, sem
Páll varði vel. En tveimur mínút-
um fyrir leikslok tókst Tékkunum
þó að jafna og var þar að verki
Vaclav Danek. Vippaði hann yfir
Pál, eftir að hafa fengið knöttinn
dauðafrír eftir aukaspyrnu.
Rólegur síðari hálfleikur
Síðari hálfleikur bauð hvorki
upp á hraða né spennu að ráði.
Tékkarnir voru þó þrívegis nærri
því að skora, en Eyjamenn fengu
þó besta færið, er Sigurlás fékk
knöttinn óvaldaður við markteigs-
hornið 15 mínútum fyrir leikslok.
Hann hitti knöttinn illa, sem
skoppaði í fang markvarðar. Tékk-
arnir nýttu líka færin afleitlega,
brenndu tvisvar af í dauðafærum.
Páll Pálma hafði ekki sagt sitt
síðasta í leiknum, varði stórglæsi-
lega þrumuskot Vojacec af löngu
færi. Úrslitin mega þvi heita
sanngjörn miðað við tækifærin
sem til féllu, það var fjarri því að
þau féllu öll í hlut Tékkanna.
Sigurlás og Páll báru af
Þeir Sigurlás og Páll markvörð-
ur báru af í liði ÍBV að þessu
sinni, sýndu báðir stórleik. Sigur-
lás hefði þó að ósekju mátt skora
úr síðasta færinu. En það eru ekki
alltaf jólin og knötturinn leggst
ekki alltaf að fótum knattspyrnu-
manna eins og best væri á kosið.
Allir leikmenn liðsins gerðu þó
sitt, skiluðu sínum hlutverkum
með prýði. Tékkneska liðið virkaði
þunglamalegt á köflum, en þess á
milli fór ekki milli mála, að þar
fóru margir afburða knattspyrnu-
menn. — gg.
Sagt eftir
leikinn
„ÉG ER ánægður með mina
menn, þeir gerðu það sem fyrir
þá var lagt og dæmið gekk upp.
Tékkarnir voru reyndar daprari
en við bjuggust við þeim. en það
var ekki sist vegna þess að það
fór í taugarnar á þeim hversu
góðar gætur við höfðum á þeim
og leyfðum þeim ekki að komast
upp með neitt,“ sagði Viktor
Helgason þjálfari ÍBV i samtali
við Mbl. eftir leikinn i gærkvöldi.
Og Viktor hélt áfram:
„Mark þeirra kom auðvitað á
mjög slæmum tima fyrir okkur,
en svona mörk koma oft þegar
mcnn gleyma sér aðeins. Útileik-
urinn verður erfiðari, en við
ætlum okkur að sigra og komast i
aðra umferð ...“
Þjálfari Banik sat fyrir svör-
um eftir leikinn. Bar hann lof á
leið ÍBV, „liðið lék vel, leikmenn
liðsins léku fast og ákveðið og
þeir komu okkur mjög á óvart
með getu sinni. Bestu menn
liðsins fannst mér vera mark-
vörðurinn og þessi númer nfu
(Sigurlás)“. Tékkneski þjálfar-
inn var loks spurður um horfur i
siðari leik liðanna:
„Ég vil engu spá um úrslit, en
Ijóst er, að ÍBV verður ekki
auðsigrað. Ég get einungis sagt
að við munum reyna að sigra og
gcrum okkur góðar vonir um að
það megi takast...“
-KK.
Erlendur og
Magnús í KA
TVEIR kunnir kappar úr Vík-
ingi landsliðsmennirnir Erlend-
ur Hermannsson og Magnús Guð-
mundsson, hafa tiíkynnt félaga-
skipti yfir i KA á Akureyri. KA
fær þarna góðan liðstyrk og
búast má við KA-liðinu sterku i 2.
deild i vetur. SOR.