Morgunblaðið - 21.09.1980, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 21.09.1980, Qupperneq 30
74 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1980 Þessi Afríkubörn þjást af hungri. Sum þeirra hafa út- blásinn kvié, sem stafar af nær- ingarskorti og má sjá bjúginn í andliti þoirra og á fótum. önnur hafa fengió lítiö sem ekkert af næringu og eru sem lifandi beinagrindur. Leifur Dungal læknir Þetta litla stúlkubarn er eitt af fjölmörgum í A-Afríku, sem eru aö veslast upp sökum algjörs skorts á matvælum. „i þessum löndum eru tvö algeng- ustu form hungurs, þ.e. næringar- skortur og langvarandi algjört hung- ur. Meö oröinu hungur á ég viö afleiöingu skorts á matvælum, sem getur leitt af sér hungursneyö hjá hluta þjóöar eöa heilli þjóö, en ekki svengd, eins og viö Vesturlandabúar finnum stundum fyrir og notum oröiö hungur yfir. Hungur bitnar fyrst á þeim sem minnst mega sín og í þessum Afríkulöndum, þar sem meðalaldur er varla meiri en 32—40 ár, nær aö meöaltali aöeins 40% íbúanna fimm ára aldri. Viö sjáum myndir af börnum meö úttútnaöa maga og aörar af börnum meö innfallinn kviö og sum virðast aöeins vera lifandi beinagrindur. Útblásni maginn er afleiöing alvarlegs næringarskorts. í suölægum Afríkulöndum, eins og t.d. í Zimbabwe, er í mörgum tilfellum af nægu aö taka af ákveön- um fæöutegundum eins og t.d. maískorni. í maískorni er aöeins 6% eggjahvíta og börnin fá því lítiö sem ekkert af nauösynlegum næringar- efnum. Afleiöingin veröur bjúgur á fótum og útblásinn kviður, sem stafar m.a. af lækkun aminósýra í blóöinu, lifrarskemmdum og bjúg- myndun. Noröar í Afríku eru aörar grænmetistegundir ræktaöar, sem eru viökvæmar fyrir veörabrigöum og þar gætir því fyrr algjörs hungurs og börnin hreinlega veslast upp á skömmum tíma. Aö vissu leyii er úrelt að greina þetta í sundur, því á þessum verst stöddu svæðum má finna bæöi þessi stig í bland, en þetta skýrir kannski muninn á útliti barnanna." Utan þessa heims — Nú starfaðir þú á vegum Rauöa krossins í þessum heims- hluta. Hvernig varð þér viö aö fá börn í þessu ásigkomulagi í hend- urnar? „Þaö sem slær mann fyrst er hugsunin um aö þetta hljóti aö vera utan þessa heims. Þegar ég fékk fyrst slíkt barn í hendur holdlaust og skinnlaust, eins og viö sjáum á myndum þaöan, þá varö bjargar- leysið, ráðleysið og stæröargráöa vandamálsins ofarlega í huga mér. Einn maöur, einn vörubílsfarmur af matvælum nær svo skammt. Þaö eru milljónir sem þjást og þú færö aöeins nokkur börn í hendurnar. Þaö má segja, aö viö sjáum aldrei nema smáhluta af toppi ísjakans. Þaö eru svo fjölmargir, sem eiga eftir aö þjást alla ævi og aldrei berst hjálp. öll þau börn, sem ná aö lifa, veröa meira og minna bækluö og örkulma. Þaö kemur til meö aö auka fæöu- og þjóöfélagsvandamálin. Samfara fæöuskortinum koma líka alls kyns kvillar. Samfara stöö- ugu hungri þjást börnin af alls kyns sjúkdómum. Malaría hrjáir t.d. mik- inn hluta barna í Zimbabwe, þá eru alls kyns snýkilsjúkdómar sem valda heiftarlegum niöurgangi og því enn meiri næringarskorti og vökvatapi. Pestir, sem við þekkjum hér heima eru daglegt brauö, s.s. lungnasýk- ingar og allt upp í hræöilega lungna- bólgu, heiftarlegar eyrnabólgur eru og algengar og oft verða slíkar sýkingar aö endanlegum aldurtila. Þá eru berklar rhjög algengir og eitt er mjög áberandi, en þaö er blóö- leysi og slappleiki sem af því leiöir. Langvarandi hungur leiöir oft einnig af sér beinkröm og sjónskeröingu.“ Ber ekki sorg sína á torg — En hvernig er sálrænt ástand fólksins sjálfs? „Þaö sem einnig slær hjálparfólk- iö mikiö í byrjun er sinnuleysiö. Auövitaö þykir foreldrum þarna jafn- vænt um börnin sín og okkur, og þaö er ekki síöur tilfinningaríkt og fólk á Vesturlöndum. Eflaust er þaö í nokkurs konar sjokkástandi, er það horfir á deyjandi barn sitt. Þá veröur líka aö hafa í huga, aö aöeins 40% barnanna lifir aö meöaltali til fimm ára aldurs. Foreldrarnir hafa eflaust vanist þessu — að því marki sem hægt er að venjast slíku — eins og rollurnar hér á landi, aö lömbin séu tekin frá þeim á haustin, en þetta viröist slá okkur meira. Þá ber einnig aö líta á menningu þessara þjóöa. Þetta fólk ber ekki sorg sína á torg, þaö stríðir gegn þeirra lífsviðhorfi." — En börnin sjálf? „Þegar þau komast á visst stig hungursins, veröa þau haldin al- mennum sljóleika. Þau rangla um og stara út í bláinn og hafa enga tilburöi til aö veröa sér út um mat lengur. E.t.v. Ifða þau ekki svo miklar kvalir á þessu stigi, eöa hafa hreint og beint vanist þeim, — þekkja ekki annað.“ — Nú er sagt, aö stúlkubörn deyji fyrst og þaö sé vegna þeirra þjóöarsiöa, aö drengir séu verö- mætari, er og ef þeir ná fulloröins- aldri. Varöst þú var viö þetta í starfi þínu? „Já, þaö var áberandi, aö þau börn, sem komiö var meö til okkar af foreldrunum sjálfum, voru svo til eingöngu drengir, eflaust hefur ekki þótt taka því aö gera sér ferö meö stúlkubörnin. Ég man t.d. eftir einu versta tilfellinu af vannæröu barni sem ég fékk í hendur. Það var 11 ára gamalt stúlkubarn sem einhverjlr óskyldir fundu á rangli í kringum híbýli þess.“ Smyrja kúamykju á naflastrengi „En tafandi um þjóöarsiöi, þá er einnig margt í trúarsiöum þessara þjóöa sem eykur á vandann. Ég fékk t.d. tvö til þrjú ungabörn í hendurnar meö stífkrampa á háu stigi og gat ekki gefiö mæðrunum aðrar leiö- beiningar en þær aö fara heim meö börnin og bíða þess aö þau dæju. Stífkrampabakterían er lífsseig í jarðveginum þarna og þessum mæörum hefur verið kennt, aö um leiö og búiö er aö klippa á nafla- strenginn eftir fæöinguna, sé óbrigö- ult ráö aö smyrja kúamykju og öörum ófögnuöi í sáriö. Þá ganga þarna ýmsir faraldrar, s.s. kólera, taugaveiki og mislingar, sem oft leggja heilu þorpin í eyöi. Þá má nefna sem dæmi um hversu við- námsþrótturinn getur oröiö lítill viö þessar aöstæöur, aö á þeim tíma, sem ég var þarna, þ.e. um hávetur hjá þeim í júnímánuöi, komst hitinn niöur í fimm gráöur á celcius á Hvaö er hungur? Barn meö útblásinn kviö og annaö beinabert, sem ekkert bíöur nema dauöinn, blasa viö okkur á myndum sem berast frá A-Afríku þessa dagana. Rauði kross íslands hefur skipulagt fjársöfnun um næstu mánaðamót til bjargar þessum verst stöddu meöbræörum okkar. Opnað- ur hefur veriö gíróreikningur og fjárframlög eru þegar farin að berast. Söfnunin er skipulögð í samvinnu viö Rauða kross-deildir hinna Noröurlandanna, en þar hefur almenn- ingur lagt mikið af mörkum og fjárframlög þaöan hafa bjargaö mörgum nauöstöddum. Margar spurningar vakna, er þessi mál ber á góma. Mbl. ræddi viö Leif Dungal lækni, en hann starfaði um þriggja mánaöa skeiö sumarið 1979 t Zimbabwe í S-Afríku á vegum Rauöa krossins. Við spurðum Leif fyrst: „Hvað er hungur?" Hvað er hungur? Rætt við Leif Dungal lækni um hungur og ástandiö í hungraðri Afríku

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.