Morgunblaðið - 26.09.1980, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 26.09.1980, Blaðsíða 25
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1980 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 5.500.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 280 kr. eintakiö. Átök við Persaflóa Persaflóanum hefur verið lýst sem viðkvæmasta hluta heims. Mikilvægustu leiðir olíuskipanna, sem flytja svarta gullið til Vesturlanda, liggja um flóann. íran á land að honum öðrum megin, en strandlengjan á móti skiptist milli ýmissa arabaríkja. Allt frá því Ayatollah Khomeini komst til valda í íran hafa menn óttast, að ofsatrúarstjórn hans myndi hafa í hótunum við allan heiminn með því að ógna öryggi skipa á þessu lykilsvæði. Ekki er langt síðan haft var eftir írönskum ráðamönnum, að þeir myndu leiða olíu í flóann og breyta honum í raunverulegt eldhaf, ef Bandaríkjamenn beittu hervaldi til að leysa sendiráðsstarfsmenn sína úr gíslingu. Sú hætta er vissulega fyrir hendi, að til slíkra örþrifaráða verði gripið af írönum, nái írakar endanlega yfirhöndinni í átökunum, sem hófust milli ríkjanna um síðustu helgi. írakar hafa greinilega betur og virðast nú ráða yfir báðum bökkum fljótsins Shatt Al-Arab, sem er flutningaleið fyrir olíuvinnslustöðvar beggja ríkja. Saddam Hussein Iraksforseti hefur rift samningi um að miðlína gildi um yfirráðasvæði landanna á fljótinu og krefst íraskra yfirráða á því. Dragist stríðsátökin á langinn hljóta úrslitin að ráðast af úthaldinu. írakar eru betur undir það búnir að þrauka en íranir. Þótt Iranskeisari hafi markvisst unnið að því á valdatíma sínum að gera ríki sitt að öflugu herveldi, dugar sá viðbúnaður lítið nú, rúmum þremur misserum eftir að hann var hrakinn frá völdum. Upplausnin hefur tekið við af keisarastjórn. Styrjöldin getur auðveldlega orðið banabiti Khomeinis og klerkavalds hans. Miðaldahugarfarið má sín lítils í nútímastyrjöld og engin þjóð leggur líf sitt í sölurnar fyrir óhæfa stjórnendur. Hrekist Khomeini frá, mun hefjast kapphlaup ýmissa aðila í stjórnarsetrið. Fregnir berast af því, að margir séu farnir að ókyrrast og hugsi sér gott ti) glóðarinnar, allt frá ekkju keisarans til flugumanna Sovétríkjanna. Næðu þeir síðastnefndu Iran á sitt vald, hefði það afdrifarík áhrif um heim allan. Á yfirborðinu að minnsta kosti leitast stórveldin við að halda sér utan við átökin. Sovétmenn leika tveimur skjöldum eins og fyrri daginn og reyna að vera beggja vinir. Vinátta þeirra og Iraka hefur kólnað undanfarið, ekki síst eftir að Saddam Hussein varð ljóst, að útsendarar Kremlverja vildu bola honum frá völdum. írakar berjast þó að meginhluta með sovéskum vopnum og verða því að eiga innhlaup hjá Sovétmönnum til að halda vígvél sinni gangandi. Vígbúnaður Iranskeisara var að mestu leyti bandarískur, en Bandaríkjamenn hafa hætt öllum viðskiptum við Khomeini og dregur það mjög úr getu íranska hersins. Meginmáli skiptir að koma í veg fyrir, að styrjöldin breiðist út. Átökin hafa nú þegar áhrif langt út fyrir vígvöllinn. Verðlag á olíu mun snarhækka á þeim mörkuðum, sern miðast við dagverð svo sem í Rotterdam, en meginmagn þeirrar olíu, sem hingað kemur er keypt á því verði. Menn hafa vanist því á undanförnum áratugum, að staðbundin hernaðarátök hefðu lítil bein áhrif utan vígvallarins og væru í eðli sínu ekki örlagavaldar fyrir aðra en þátttökuríkin. Þetta á ekki við um átök við Persaflóann, þess vegna er rétt að verá búinn undir hið versta. Öfgakennd hótun Þjóðviljinn hótar því í forystugrein í gær, að til borgarastyrjald- ar kunni að koma á íslandi, verði framfylgt þeirri ákvörðun dómsmálaráðuneytisins að flytja Patrick Gervasoni úr landi. Öfgunum í málflutningi kommúnista hér á landi virðast engin takmörk sett. Hvar skyldi það geta gerst nema hér, að málgagn þriggja ráðherra skuli hóta ríkisstjórn með borgarastyrjöld? Þessi forkastanlegi málflutningur sýnir, hve grunnt er á fyrirlitningu Þjóðviljans á lýðræðislegum stjórnarháttum. Hótanir Þjóðviljans vekja menn til umhugsunar um það, hvort stjórnvöldum sé fært að breyta ákvörðun sinni í þessu viðkvæma máli, en öfgamenn eiga auðvitað ekki að ráða. Kommúnistar ætla greinilega ekki að láta þar við sitja að nota Patrick Gervasoni í baráttu sinni gegn öryggi íslenska ríkisins út á við, heldur er nú vegið að löglegri stjórn landsins honum til stuðnings. Ríkisstjórnin kallaði þennan vanda yfir sig með því að fresta framkvæmd þeirrar ákvörðunar, sem tekin var á ábyrgð dómsmálaráðherra. Ríkisstjórn- in verður að standa þannig að framhaldinu, að það veiki ekki trú manna á styrk framkvæmdavaldsins andspænis hótunum öfga- manna. Hótanir öfgamanna eiga ekki að ráða ferðinni á íslandi heldur mannúðarsjónarmið, eins og færð voru rök fyrir í forystugrein Morgunblaðsins í gær. Sigurjón Sighvatsson skrifar frá Los Angeles skemmtistaða eru þó einfaldlega diskótek sem hafa stungið Bee Gees og Sonnu Summer plötum sínum undir stól og spila nú eingöngu kúreka- og sveitasöngva. Margir byrjuðu þannig, að fyrst var einn dagur í viku tileinkaður þessari tónlist, en vegna mikilla vinsælda fjölgaði þeim smátt og smátt og var að lokum breytt algerlega í kúrekastaði. Kúrekaáhrifin hafa einnig látið segja til sín í fata- og tískuðiðnað- inum, og bisnesinn blómstrar. Hinn þekkti fatahönnuður Ralp Lauren framleiðir nú kúrekafatn- að og kúrekastígvél. Kvenfólk get- ur keypt Lorettu Lynn kúrekapils og Willie Nelson gallabuxur munu koma á markaðinn innan skamms. Fyrirtækið sem framleiðir þær gerir ráð fyrir því að 3alan fyrsta árið muni nema um 50 milljónum dollara. Mest hefur aukning orðið í sölu þekktustu kúrekatáknanna: hött- um og stígvélum. Meira að segja hátískufólk, sem fyrir ári hefði ekki látið sjá sig í slíkum búnaði, borgar nú 250.000 krónur fyrir handsaumaða hatta og annað eins fyrir handsaumuð stígvél. Þótt kúrekafaraldurinn hafi verið að breiðast út um alllangt skeið, þá var það frumsýning myndarinnar Urban Cowboy sem Hvítu diskófötin hafa oröiö aö vikja fyrir köflóttum skyrt- um og kúrekahöttum. gerði útslagið. Með stórstjörnu á við Travolta og stórfyrirtæki eins og Paramount sem annaðist fjár- mögnun, voru allir fjölmiðlar und- irlagðir af auglýsingum um mynd- ina og greinum um þetta fyrir- bæri. Og þó svo að kvikmyndin sjálf hafi ekki gengið neitt afburðavel, þá hafa þeir aðilar, sem eru tengdir henni á einn eða annan hátt, eins og Gilleys bar og fleiri, grætt ómældar upphæðir. Hvað snertir aðra áhrifavalda Handsaumuö kúrekastíg- vól úr krókódílaskinni seljast fyrir allt aó 300.000 krónur pariö. nema á þann hátt að horfa á hana í gegnum bílglugga á eitt hundrað kílómetra hraða. En viðmiðunina fær fólkið úr sjónvarpinu, sem um áratuga skeið hefur matað það á goðsögninni um kúrekann. Eitt helsta tákn kúrekans gegnum árin er Roy Rogers. Roy sjálfur telur að megin ástæðurnar fyrir hinum miklu vinsældum alls þess, sem tengt er kúrekum séu þær, að sigurinn yfir Villta Vestrinu sé hin eina sanna söguarfleið sem Ameríkumenn eiga. Enn aðrir halda því fram, að hér sé aðeins um stundarfyrirbrigði að ræða og kúrekaæðið muni hjaðna innan skamms og hverfa að mestu eins og diskóið. Svo kann auðvitað að fara, en á meðan kúrekasöngvari ieiðir þjóð- sönginn á einni stærstu og áhrifamestu ráðstefnu, sem hald- in er í Bandaríkjunum, eins og gerðist nýlega þegar Willie Nelson var forsöngvari er þingi demó- krataflokksins í New York var slitið, þá bendið allt til þess að Roy Rogers hafi rétt fyrir sér. Goðsögnin um ameríska kúrekann á sér svo djúpar rætur að ólíklegt er að hér sé um stundarfyrirbæri að ræða. (Stuðst við Playboy, New West og Los Angeles Times.) í Bandaríkjunum geisar nú æði sem hefur breiðst út eins og eldur í sinu á aðeins örfáum mánuðum. Hér er um að ræða endurfæðingu lifseigustu goðsagnar í Ameríku: Hins ameríska kúreka. í Suður- Kaliforníu virðist þetta „tískufyr- irbæri" hvað útbreiddast. Tafið er að um og yfir eitt þúsund dans- og veitingastaðir í Los Angeles, Orange-héraði og San Diego séu í kúrekastíl. Sá stærsti þeirra er „Kúreka- klúbburinn" í Reseda sem opnaði í mars síðastliðnum. Talið er að innréttingar staðarins hafi kostað yfir tvo milljarða króna! Hann rúmar um eitt þúsund manns i sæti og þar hafa komið fram skemmtikraftar á borð við Merle Haggard, Lorettu Lynn og Tanyu Tucker. Flestir hinna nýju Kúrekabarir spretta upp ains og gorkúlur víösvegar í Kaliforníu. má nefna vinsældir framhalds- þátta í sjónvarpi, svo sem Dallas og Dukes of Hazzard, og kvik- myndirnar Electric Horseman og Smokey and the Bandit. Allar fjalla þessar myndir og þættir um kúreka á einn eða annan hátt. Annað áhrifaríkt afl er kúreka- tónlistin sem aldrei hefur átt meira fylgi að fagna en einmitt nú. Þegar útvarpsstöðin KLAC skipti yfir í kúrekatónlist fyrir um það bil 10 árum var henni ekki spáð langlífi. í dag er þetta ein vinsælasta stöðin á Los Angeles svæðinu. Það sem er ef til vill merki- legast við þessa kúrekaöldu er, að stór hluti þess fólks, sem berst með henni, hefur aldrei komið nálægt hrossum eða nautgripum og fæstir hafa meira að segja komist í snertingu við náttúruna Kúrekafaraldur geisar í Ameríku MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1980 25 Bud (John Travolta) riöur hér vélknúna nautinu í myndinni Urban Cowboy. Kvikmyndin rllrban lowjjoy Nýlega var frumsýnd hér vestra kvikmyndin URBAN COWBOY. Myndin hefur vakið töluverða athygli og er mikið um hana rætt og ritað, þar sem hún er fyrsta myndin um langt skeið sem byggir á goðsögninni um ameríska kúrek- ann. Að vísu er umhverfið í þetta sinn ekki Villta Vestrið heldur stórborg nú á tímum og efniviður- inn er ekki barátta við nautgripa- þjófa eða índíana. í staðinn lýsir myndin því hvernig nútíma kúrek- ar reyna að viðhalda þeim gildum sem kristölluðust í lífi og lifnaðar- háttum hinna upprunalegu kú- reka. Söguþráðurinn er á þá leið að Bud (JOHN TRAVOLTA) kemur til Huston í Texas til að vinna í olíuhreinsunarstöð. Á kvöldin heldur hann til á bar sem nefnist Gilleys. Helsta aðdráttarafl stað- arins er stórt vélknúið naut sem gestirnir ríða. Sá vinnur sem lengst situr nautið og sjaldnast dettur af baki. Kvöld nokkurt hittir Bud Sissý. Það er ást við fyrstu sýn og innan viku eru þau gift. Líf þeirra gengur sinn vana- gang; á daginn vinna þau bæði erfiðisvinnu en kvöldunum eyða þau á Gilleys, við bjórdrykkju og dans. Innan skamms lærir Bud að ríða vélknúna nautinu en hann er sigraður af Wes (SCOTT GLENN), fyrrum tukthúslim, sem er ókrýndur konungur vélknapanna. Sissý, sem einnig er metnað- argjörn, langar til að keppa á nautinu en Bud, sem er dæmigert karlrembusvín, er það á móti skapi. Hún gerir það engu að síður á laun og Wes aðstoðar hana. Þegar Bud kemst að þessu, ásakar hann hana um að vera i tygjum við Wes. Sissy er nóg boðið, yfirgefur hann og flytur inn til Wes. I keppni um besta knapann vinnur Bud Wes naumlega. Hann gerir sér grein fyrir því að hann hefur verið of eigingjarn í sam- búðinni við Sissý, leitar hennar og finnur hana þar sem hún bíður eftir Wes, óafvitandi að hann er einmitt á þeirri stundu að ræna bar Gilleys. Bud mætir Wes. Þeir slást og Bud vinnur. Sátt, og saman á ný, halda Sissý og Bud á vit næturinnar. Hvað snertir efnivið og úr- vinnslu er Urban Cowboy hefð- bundin kvikmynd á allan hátt og er aðeins eitt tilbrigðið enn um hið sígilda stef: ameríska drauminn. Ungi drengurinn sigrar í knapa- keppninni og finnur aftur stúlk- una sem hann elskar og þau lifa hamingjusömu lífi upp frá því. John Travolta Ieikur hér sams konar manngerð og hann lék í myndinni SATURDAY NIGHT FEVER. Hið eina sem er öðruvísi er umhverfið. í stað diskóteks í New York borg, er kominn kú- rekabar í Texas. Því verður samt ekki neitað að Travolta skilar hlutverki sínu með ágætum, og hann túlkar hinn einfalda sveita- pilt af næmni, enda er John þekktur fyrir að leggja mjög hart að sér og reyna að lifa sig sem mest inn í þá persónu sem hann leikur hverju sinni. Áður en taka þessarar kvik- myndar hófst, var hann búinn að undirbúa sig í marga mánuði. Hann æfði sig á vélnauti, lærði hina sérstöku mállýsku kúrekanna og las allt sem hann gat um Villta Vestrið. Aðrir leikarar í myndinni eru flestir óþekktir. Engu að síður skila þeir hlutverkum sínum með ágætum. Einkum vekur leikur DEBRU WINGER, sem leikur Sissý, athygli, og hafa margir gagnrýnendur haft á orði að á stundum steli hún senunni frá Travolta. Tæknivinna er eins og hún gerist best hér vestra, enda valinn maður í hverju rúmi. Leikstjórinn, James Bridges, sem er þekktastur fyrir myndirnar THE PAPER CHASE og CHINA SYNDROME, hefur gott vald á myndmáiinu. Aftur á móti er leikstjórn hans og handrit mótuð af áratugagömlum hefðum Hollywoodkvikmyndanna og meðferð hans á efninu vægt sagt ófrumleg. Það er nefnilega svo, að fyrir utan prýðisleik og tæknilega fullkomnun, hefur UR- BAN COWBOY upp á lítið að bjóða annað en margþvældan söguþráð. Þótt reynt sé að skapa raunsætt andrúmsloft með því að nota hinn raunverulega Gilleys bar í Texas og hafa raunverulega kúreka í aukahlutverkum, þá er heildarsvipurinn ótrúverðugur. Meira segja kúrekatónlistin, sem er bakgrunnur atburðarásarinnr og á að endurspegla líf þessa fólks, megnar ekki að gera myndina eftirminnilega. James Bridges og Aaron Lath- am, sem skrifuðu handrit myndar- Debra Winger, sem leikur á móti John Travolta í kvik- myndinni Urban Cowboy, hefur hlotiö einróma lof gagnrýn- enda fyrir túlkun sína á blóóheitu kúrekastúlkunni Sissy. innar, halda því fram, að eftir þvi sem hið ameríska þjóðfélag verði flóknara, hafi hin einföldu lögmál sem goðsögnin um ameríska kú- rekann byggir á, meira og meira gildi. Jafnvel þótt í stað hestsins sé kominn trukkur og í stað nautahjarðarinnar sé komið vélknúið naut, þá geti hinn amer- íski nútímakúreki ennþá lifað eft- ir og trúað á þessi einföldu hugtök, svo sem sjálfstæði, hug- rekki og hreinskilni. Hér verður ekki lagt mat á sannleiksgildi þessarar skoðunar, en hitt verður að segjast, að hafi það verið tilgangur kvikiiiyndar- innar URBAN COWBOY að styðja slíka skoðun og viðhalda goðsögn- inni um ameríska kúrekann, þá hefur það mistekist. Eftir að hafa horft á myndina sækir sú hugsun. að manni sterkar en áður, hversu hættulegt það er fyrir heilt þjóð- félag að byggja sögulega arfleið sína á svo einföldum og afstæðum mannlífsgildum. - S.S. Helstu áhrifavaldar kúrekamenningar 1967 Kúrekatískan fær byr undir báöa vængi, þegar Clint Eastwood heldur innreiö sína í fyrsta „Spaghetti Vestranum,“ Hnefafylli af Dollurum. 1969 Robert Redford og Paul Newman vinna sig inn í hjörtu almennings sem viökunnanlegir slarkarar í kvikmyndinni Butch Cassidy and the Sun- dance Kid. 1969 Kúrekastígvél frá fyrir- tækinu FRYE verða nokk- urs konar sameiningartákn. ungmenna í Kaliforníu. 1970 í hlutverki McCloud, nær Dennis Weaver vin- sældum sem lögreglustjóri úr Vestrinu, sem er í New York um stundarsakir. Hann klæöist kúrekastíg- vélum, er meö kúrekahatt og fer stundum ríöandl í vinn- una. 1976 RCA-hljómplötufyrir- tækið gefur út safnplötu með kúrekasöngvurum eins og Willie Nelson, Waylon Jennings og fleirum, sem nefnist Utlagarnir. Þessi plata veröur ein mest selda kúrekaplata fyrr og síðar. 1978 Sjónvarpsmyndaflokk- urinn Dallas, sem fjallar um græðgi, völd og spillingu, nær óhemju útbreiðslu meðal sjónvarpsáhorf- enda. Megin ástæöan fyrir vinsældunum er persóna sem nefnist J.R. og er leikinn af Larry Hagman. Vöru- merki J.R.: Kúrekastígvél og kúrekahattur. 1978 Tímaritiö Esquire birtir grein Aarons Latham, Ur- bqn Cowboy. 1978 Söngleikurinn Best Little Whorehouse in Tex- as er frumsýndur á Broad- way. 1980 Kvikmyndin Urban Cowboy er frumsýnd. Diskódrengir um alla Amer- íku skipta á hvítu fötunum sínum og röndóttum kúrekaskyrtum og galla- buxum. 1980 Willie Nelson „slítur“ flokksþingi Demókrata flokksins í New York. 1977 Burt Reynolds leikur „kúreka“ í myndunum Semi-Tough og Smokey and the Bandit. 1977 Tískuhönnuöurinn Ralph Lauren hefur fram- leiðslu á kúrekafatnaöi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.