Morgunblaðið - 26.09.1980, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 26.09.1980, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1980 VER^LD HEIMSKRINGLAN Sífellt fleiri sækia á mölina EITT stærsta vandamáliö, sem mannkyniö á viö aö glíma um þessar mundir, er hinn ori vöxtur stórborKa. Kom þaö kIokkí i ljós á ráöstefnu Sameinuöu þjóðanna, sem nýlejía var haldin í Rómar- bortí ok fjallaöi um „íhúafjölda og framtíö horjía". Á ráðstefnu þessari var samin yfirlýsinj?, þar sem hvatt var tii aðgeröa af hálfu rikisstjórna til þess að leitast við að stöðva hinn Kríðarlega «k skipulaKsiausa vöxt stórborua og svara þörfum íbúa þeirra, eink- um ok sér í lagi í þriöja heimin- um. Sameinuðu þjóðirnar telja, að um næstu aldamót muni helming- ur jarðarbúa búa í borgum, þar af 650 milljónir í um 60 risaborgum, sem telja munu 5 milljónir íbúa eða fleiri. Til þessarar ráðstefnu voru kvaddir borgarstjórar og skipu- lagsstjórar 47 borga heims, sem eru í örustum vexti, og tilgangur- inn var sá að kanna helztu vanda- mál þessarar þróunar. Fulltrúar frá þriðja heiminum skýrðu frá því, að fólk flykktist til borganna í von um atvinnu og bætt lífskjör. í flestum tilvikum stæði það hins vegar andspænis atvinnuleysi og húsnæðisleysi, þegar það kæmi á ákvörðunarstað og væri því flestar bjargir bann- aðar. Þessir hópar yrðu yfirleitt Breiðgata í Mexíkó-borg. undir í lífsbaráttunni og ýmsir óprúttnir náungar færðu sér í nyt eymd þeirra og vankunnáttu. Skipuleggjendur á ráðstefnunni mæltu með því, að straumurinn til borganna yrði stöðvaður með ýms- um aðgerðum, svo sem bættum samgöngum, aukinni dreifingu iðjuvera um strjálbýl svæði, lækk- andi húsaleigu og þar fram eftir götunum. Þá komu fram tillögur um að reistir yrðu smábæir í grennd við stórborgirnar til þess að létta af þeim mesta þunganum. Á hinn bóginn gefur auga leið, að ekki er unnt að stemma stigu við stærð borganna með því ein- vörðungu að bægja frá þeim fólks- straumnum. í flestum borgum þróunarlandanna eru það ekki aðflutningarnir sem mestu skipta, heldur há fæðingartíðni, en hún nemur um 60% af fjölguninni. Á ráðstefnunni hrósuðu ýmsir HORMUNGAR Sulturinn skattlagður Niu af hundraði eru konur og börn. Sem kunnugt er, hefur mikill straumur flóttamanna frá styrj- aldar- og þurrkasvæðum i Eþiópíu leitað til grannrikisins Sómalíu. Þangað hafa borizt mat- væli, fé og annað til hjálpar hinum nauðstöddu, en stjórn Mu- hammed Siad Barra hefur séð sér þar ieik á horði til að hagnast á fyrirtækinu. Hjálparstofnanir, sem senda matvæli og lyf til landsins, verða að greiða sama innflutningsgjald og kaupsýslumenn, sem flytja varning til Sómalíu. Hins vegir sér ríkið um að flytja varninginn frá flugvellinum og hefur dreif- inguna alfarið i höndum sér. Komið hefur fyrir, að matur o.fl., sem hjálparstofnanir hafa sent flóttamönnum, hefur verið á boðstólum á mörkuðum í Moga- dishu og nærliggjandi bæjum og þorpum. Yfirvöld í Sómalíu virðast þó ekki sjá neitt athugavert við þetta. Þau segjast hafa séð flóttamönn- unum fyrir vistum og annarri aðstoð, þegar þeir tóku að streyma inn í Iandið, og hafi þó ekki verið þar um auðugan garð að gresja. Nú sjái hjálparstofnanirnar að- eins um endurgreiðslu á veittri aðstoð við flóttamenn. Fjórði hver íbúi Sómalíu er flóttamaður. Við síðasta manntal reyndust 3.500.000 manna í land- inu. í júní sl. var talið að 90% af flóttamönnunum væru konur og börn. - WILLIAM THOMSON fulltrúar sér af því, að ríki þeirra hefðu brugðizt vel við vandanum. Til að mynda sagði Zhe Yi, varaborgarstjóri Shanghai, að Sameinuðu þjóðirnar hefðu gert ráð fyrir, að íbúatala borgar hans myndi verða 22 milljónir árið 2000, en borgaryfirvöld gerðu sér vonir um, að hún yrði aðeins 13 milljónir, þ.e. aðeins mannfleiri en nú. Hann sagði, að Kínverjar hvettu tæknimenntað fólk og ann- að sérmenntað fólk til að stuðla að uppbyggingu í sveitum landsins, í stað þess að leggja megináherzlu á borgirnar. En það sem vel hefur tekizt er hverfandi lítið samanborið við hinar uggvænlegu horfur víðast hvar. Tröllauknust virðast vanda- málin vera í rómönsku Ameríku, þar sem vöxtur borga er örari en nokkur dæmi eru til. Árið 2000 er gert ráð fyrir að íbúar Mexíkó- borgar verði 31 milljón! Nú búa í borginni 14 milljónir manna og er aðstaða mikils þorra þeirra hvergi viðunandi. Rúmur helmingur íbú- anna býr í úthverfum, þar sem hvorki er rafmagn, rennandi vatn né hreinlætisaðstaða af nokkru tagi. Kjör þeirra, sem búa í miðborginni, eru litlu skárri. Milli 10—15% íbúanna búa í slæmum leiguíbúðum og reyna að skrapa saman sultarlaun með því að stundað handiðnað. Þetta fólk hefur ekki aðild að verkalýðsfélög- um og nýtur engra almannatrygg- inga. Aðrir verzla með stolna muni eða smyglvarning. Horfurnar eru þó sýnu verri í tveimur borgum Brasilíu, Rio de Janeiro og Sao Paulo. Julio de Moraes Coutinho, borgarstjóri Rio, skýrði frá því á ráðstefnunni, að íbúar borgar hans væru 10 milljónir, en íbúar Sao Paulo 16 milljónir. Rio teygir sig vestur á bóginn, en Sao nálgast hana úr vesturátt, þannig að allar horfur eru á því, að borgirnar renni saman. Gera má þá ráð fyrir, að um aldamótin verði þær orðin ein samfelld byggð með samanlagðan íbúafjölda 45 milljónir. - MAGGIE JONES EINS KONAR DREPSOTT Betur má ef duga skal deyja Richard Peto, starfsmaður brezku krabbameinsrann- sóknarstofnunarinnar telur, að stórátak þurfi að gera til þess að brýna fyrir fólki skaðsemi tóbaksreykinga. Hann telur, að í stað meinleysislegra viðvörunarmiða, sem nú eru límdir á sígarettupakka, þurfi að setja eitthvað í þessum dúr: — Af þúsund mönnum, sem reykja reglulega, á einn þeirra á hættu að verða myrtur, 6 munu látast í umferðarslysum en 250, eða fjórðungur, mun deyja fyrir aldur fram vegna tóbaks- reykinga. Peto segir, að þeir viðvör- unarmiðar, sem nú eru við lýði, séu vita gagnslausir. — Það á ekki eingöngu að brýna fyrir mönnum, að tóbaksreykingar séu hættu- legar, vegna þess að fjöl- margt annað býður líka hættunni heim. í áróðri gegn tóbaksreykingum á hins vegar að leggja megin- þungann á það, hversu miklu hættulegri þær eru en margt annað. Peto er einn af fremstu sérfræðingum í Bretlandi í reykingum og skaðsemi þeirra, og hann er fyrirles- ari í krabbameinsfræðum við læknaskólann í Oxford. Hann telur, að venjulegt fólk leiði yfirleitt hjá sér þær hættur, sem eru sam- fara reykingum, og þeir séu býsna margir, sem ekki hafi hugmynd um, hversu mikil hætta getur verið fólgin í því að ánetjast tóbaki. Þeir sem deyja tiltölulega ungir af völdum tóbaks- neyzlu glata að meðaltali 10—15 árum af ævi sinni. Árlega látast 600.000 manns í Bretlandi og þar af eru líklega 100.000 dauðsföll, sem orsakast beint eða óbeint af tóbaksreykingum. Peto segir, að rangar mat- arvenjur geti að sönnu vald- ið dauða fjölda manns, en komist þó ekki í hálfkvisti við tóbaksreykingar að þessu leyti, að því er sannað sé. Talsmaður brezka heil- brigðisráðuneytisins hefur skýrt frá því, að nú standi yfir samningaviðræður við tóbaksframleiðendur um nýja gerð af viðvörunarmið- um til að líma á sígarettu- pakka. Þær viðvaranir, sem nú eru á pökkunum, hafa verið við lýði um þriggja ára skeið. Maðurinn sem hélt sínu striki Marek Kozlowski var hnepptur í fangelsi í 19 mánuði fyrir aö „hindra lögregluna við skyldu- störf sín“, en það var í annaö skípti, sem hann var dæmdur til fangelsisvistar á sex árum. Hann er nú frjáls maöur, fyrir tilverknaö verkfallsnefndarinnar í Lenín- skipasmíöastööinni í Gdansk, sem neitaöi að láta af mótmæla- aögeröum sínum, nema hann og tólf aðrir fangar yröu látnir lausir. Vissulega haföi Kozlowski valdiö lögreglunni vandræöum. Fyrir sex árum, þegar hann var 22 ára, greindi hann opinberlega frá því sem hann haföi séö á slysa- deild sjúkrahússins þar sem hann starfaöi. Hann gat sannaö aö tveir menn, sem komiö var meö frá aöalstöövum þjóðvaröliösins, höföu veriö baröir til bana af lögreglunni. I fyrra tilfellinu var um aö ræöa aldraöan bónda, Jan Babíak frá Krempa. Þjóövaröliöið haföi verið aö reyna aö fá hann til aö fallast á aö afsala sér litla býlinu sínu til ríkisins, gegn því aö komast á eftirlaun. Kozlowski færöi sönnur á að Babíak heföi veriö barinn, þaö heföi verið sparkað í hann og fingur hanv brotnir í falsinu á hjörum. Hann lést af völdum sprunginnar lifrar. Síöara tiifelliö var drykkjumaö- ur sem aðeins var kallaður Wojsi- howski, en hann var tekinn fastur af þjóövarðliösmönnum í skemmtigaröi í Slupsk, skammt frá Gdansk. Dánarmein hans var höfuöme'ösl. Þeir sem uröu vitni aö hand- tökunni sögðu Kozlowski, aö enda þótt Wojsihowski hefói ver- ió drukkinn, þegar hann var hirtur, heföu meióslin ekki komið til fyrr en síöar. Læknar sögöu aö þau væru annaö hvort af völdum þess að sparkaö heföi verið í höfuö honum eóa hann falliö niöur stiga. Þaö voru fleiri slík tilfelli en það reyndist ekki unnt aö sanna þau. Marek Kozlowski lét til sín heyra opinberlega, þrátt fyrir viövaranir, og var hnepptur í fangelsi í fimm ár, eins og vænta mátti. Um það bil er hann var látinn laus, áriö 1979, haföi fanga- vistin breytt honum úr ósköp venjulegum hugsjónamanni í ein- aröan andstæöing stjórnarinnar. Hann geróist stuöningsmaóur pólsku andófshreyfingarinnar KOR, sjálfsvarnarnefnd verka- manna, og starfaði sem sendi- boöi fyrir KOR milli Varsjár og

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.