Morgunblaðið - 26.09.1980, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 26.09.1980, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1980 Þór vígir stórglæsilegt Jfa félagssvæði á afmælisári 220 manns unnu við nýja grasvöllinn í sjálfboðavinnu NÝTT og stórglæsilegt æfinga- formanns Þórs. Þvínæst klippti svæði íþróttafélagsins Þórs á Haraldur á borða, sem strengdur Akureyri var formlega vígt á var á miðjum vellinum og afhenti sunnudaginn. Svæðið er við Gler- Sigurði völlinn formlega fyrir árskólann og er aðstaöa þar frába*r, stór grasvöllur með áhorfendasvæði, malarvollur, sem ætlaður er sem skautavöllur á vetrum, malbikaður handbolta- og tennisvöllur og iþróttahús Glerárskóla er við hliðina á vellinum, en þar hefur Þór að- stöðu. Aðstaða Þórs jafnast á við það bezta. sem þekkist í þessum efnum hérlendis. Vígsluathöfnin hófst með skrúðgöngu Þórsfélaga frá Ráð- hústorgi á vallarsvæðið klukkan 13,30. Klukkan 14 hófst setningar- athöfnin með ávörpum Haraldar Helgasonar fromanns vallar- nefndar og Sigurðar Oddssonar hönd vallarnefndar og Sigurður framkvæmdi táknræna athöfn, gróf í jörðu einseyring, sem sleginn var 1915, stofnár Þórs. Freyr Ófeigsson forseti bæjar- stjórnar flutti ávarp og Jón Arn- þórsson formaður KA flutti árn- aðaróskir. Heillaóskaskeyti og gjafir bárust í tilefni dagsins og Smiðjan bauð t.d. stjórnar- mönnum félagsins og vallarnefnd í veizlu. Fyrsti leikurinn á hinum nýja velli var milli meistaraflokks Þórs 1980 og 1. deildarliðs félagsins 1976. Hallfreður Eiríksson, einn af stofnendum Þórs tók fyrstu spyrnuna. Leiknum lauk með jafn- KKÍ svarar ÍBR Enn um höllina Það er gott að áhugamenn um íþróttir geti af og til íylgst með stjórnunarvandamálum íþrótta- hreyfingarinnar á sama hátt og keppnum. Nú hafa með skömmu millibili birst tvær grcinargerðir um af- not íþróttahallarinnar i Laugar- dal. I annarri halda körfuknatt- leiksmenn því fram að þcir þurfi að þola geðþóttaákvarðanir eins embættismanns í íþróttabanda- lagi Reykjavíkur en í hinni telur framkvæmdastjóri IBR körfu- knattleiksdeildirnar njóta fyllsta sannmælis. 300 áhorfenda kvótinn Eina íþróttagreinin í Reykjavík sem þarf að sanna að yfir 300 manns muni koma á kappleik til þess að hann fáist leikinn í Höllinni er körfuknattleikur. Þessi tala er tekin úr bréfi KKÍ til Borgarráðs í fyrra þegar sam- bandið reyndi að fá inni í Höllinni fyrir stærstu leikina. Þá töldum við íþróttahús Hagaskóla rúma 300 manns með góðu móti. Þegar við fórum hins vegar að fylgjast betur með ástandi hússins kom í Ijós að við höfðum verið of bjart- sýnir. Nú bætist það að auki við að tveir funheitir ljóskastarar hafa verið settir upp. Það eykur að sjálfsögðu enn á hitann í húsinu. A sunnudaginn var voru 220 manns í húsinu. Þá taldi ég tæplega .)(» áhorfendur sem höfðu farið út úr húsinu í hálfleik vegna þrengsla í anddyri. A áhorfenda- pöllum vaf setið og of heitt var í húsinu. Valur-ÍR en en ekki ÍR-Valur! Framkvæmdastjórinn setur annan heimaleik Vals gegn ÍR í Höllina en hvorugan heimaleikja ÍR gegn Val. Heimalið tekur óskiptar tekjur af leiknum svo hér er um hagsmunamál að ræða. Okkur körfuboltamönnum þykir undarlegt að þessi lið skuli ekki njóta jafnréttis úr því farið er að skammta húsið á annað borð. Hvers vegna fær ÍR ekki heima- leik gegn Val? Sama er uppi á teningunum með leiki ÍR og KR. Þá fær ÍR heimaleikinn en KR ekkert. Allir geta séð að hér gætir ekki jafnréttis með félögunum. Koma fleiri áhorfendur í Höll- ina en i Hagaskólann? Þegar horft er yfir leiki KR og Vals í íþróttahöllinni í fyrra blandast engum hugur um að fleiri áhorfendur komi í Höilina en í Hagaskólann. Á það má einnig benda að á leik Fram og KR sem fluttur var úr Hagaskólanum í Höllina komu 267 manns. Þetta var fjölmennasti ieikur Fram í fyrra. Þó var hann leikinn í 3. umferð sem fæstir áhorfendur komu að sjá. Vikunni á undan sáu 99 áhorfendur leik Fram og Vals í Hagaskólanum. Til jafnaðar sáu 155 manns hvern leik Fram í fyrra. Samskipti KKÍ og framkvæmdastjóra ÍBR Það er vel til fundið hjá fram- kvæmdastjóra ÍBR að líkja KKÍ við Don Kíkóte. Það hefur einmitt verið nokkuð erfitt hlutverk og vonlítið að berjast við vindmyllur kerfisins. / Ein málsgrein í greinargerð hans í dagblöðunum nú í vikunni segir í raun undirrót allra okkar vandamála. Um fyrstu viðbrögð sín við tillögum KKÍ segir hann „Þá strax var framkvæmdastjóra KKÍ tjáð að EKKI YRÐI LITIÐ Á ÞESSAR TILLÖGUR fyrr en tillögur móta- nefndar HSÍ ... hefðu borist." Það er einmitt versti þáttur þessa máls að vegna einhverra ástæðna erum við ekki virtir viðtals. Og þar sem ekki er rætt við okkur hreinlega veit fram- kvæmdastjórinn ekki að yfir 300 áhorfendur komu á 11 en ekki 10 leiki þessara félaga í fyrra. . Ellefti lei'kuri.Hr;r.milliKRo« ÍR og var leikinn í íþróttahúsinu í Hafnarfirði. Hann sáu 509 áhorf- endur. í lok greinargerðar sinnar segir framkvæmdastjóri ÍBR að stjórn ÍBR vísi fullyrðingum okkar á bug. Það má gjarna upplýsa að okkur KKÍ mönnum hefur ekki gefist kostur á að gera grein fyrir okkar sjónarmiðum við stjórnina heldur byggist ályktun hennar sem hefur verið gerð um síðustu helgi á einhliða upplýsingum framkvæmdastjórans. Þetta geta tæplega talist var- færnisleg vinnubrögð. Að lokum vil ég skora á þá sem vilja kynna sér með sínum eigin augum hver fer með sannara mál KKÍ eða ÍBR að líta inn í íþróttahús Hagaskóians og kynna sér aðstæður af eigin raun. 23. september 1980. Steíán Ingólfsson. tefli 1:1, Árni Stefánsson skoraði fyrst fyrir yngra liðið en Jón Lárusson jafnaði metin fyrir „þá eldri". Þá kepptu Þór og KA í 5. flokki og vann Þór þann leik 2:0. Það var 6. júní 1915 að nokkrir strákar á „eyrinni" komu saman og stofnuðu íþróttafélagið Þór. Frá fyrstu tíð hefur félagsstarfið verið blómlegt, og má í því sam- bandi t.d. minnast þess að fyrstu íslandsmeistara sína eignaðist fé- lagið 1941 í handknattleik kvenna, og árið 1876 áttu Þórsarar fjögur 1. deildar lið og þar af var kvennaliði í körfuknattleik ís- landsmeistarar. Nú í ár hafa yngri flokkar félagsins staðið sig framar öllum vonum og meistaraliðið í knattspyrnu hefur sig á ný upp í 1. deild. Á 65 ára ferli félagsins hefur það haft fjóra aðsetursstaði. Fyrsta æfingasvæði íþróttafélags- ins Þórs var á eyrinni, þar sem nú er athafnasvæði Aðalgeirs og Við- ars við Furuvelli. Næst var útbúin knattspyrnuvöllur þar sem Linda hf., stendur nú, og var sá völlur aðalkeppnisvöllur Akureyrar uns íþróttavöllurinn neðan Brekku- götu var tekinn í notkun. Árið 1967 fær félagið svo út- hlutað svæði austan Hörgárbraut- ar, á móts við ESSO-nesti. Það svæði reyndist ekki nýtanlegt sök- um þess að þar var botnlaus mýri sem ógjörningur var að þurrka upp. Tveimur árum síðar fær félagið úthlutað núverandi aðseturstað, norðan Glerárskóla. Fljótlega eft- ir það hófust framkvæmdir við malarvöll. Vorið eftir, eða 1970 kemst vallargerðin í fullan gang og er unnið markvisst að henni næstu árin. Sumarið 1975 er malarvöllurinn vígður með mikilli viðhöfn, en það ár var 60 ára afmæli félagsins. 29. nóvember 1975 tók Haraldur Helgason fyrstu skóflustunguna að nýjum grasvelli og 3. júlí 1980 hófst þökulagning á vellinum. Fimm ár kann að teljast langur tími í gerð grasvallar en Þórsarar segja að þegar haft sé í huga að öll vinna hafi verið unnin í sjálfboða- vinnu sé það kraftaverk að völlur- inn skuli nú vera tilbúinn. Má í þessu sambandi nefna að u.þ.b. 30.000 tonnum af jarðvegi hefur verið ekið úr vellinum og frárennslislagnir og annað pípu- kerfi sem lagt hefur verið í hann er 1,5 km á lengd. 14.000 fm voru þökulagðir á 10 dögum og tóku þátt í því alls 220 manns. -SS. HíTUTliinJ Skrúðganga Þórslélaga á nýja svæðið. Ljósm. Sigtr. Hallfreður Tryggvason, einn stofnenda fyrstu spyrnuna á nýja grasvellinum. Þórs fyrir 65 árum tekur Óvænt úrslit í 1. umferð „ALDREI fyrr hefur þýzka deildarkeppnin byrjað með jafn óvæntum úrslitum," skrifuðu þýzku blöðin eftir 1. umferð þýzku deildarkeppninnar í handknattl- eik, sem leikin var um helgina. Övæntustu úrslitin voru Groswaldstadt þar sem heimalið- ið, sem bæði er handhafi Evrópu bikarsins og Þýzkalandsmeisti tapaði fyrir Essen 15:20. Þetta var fyrsta tap Groswaldstadt á heima- velli á fjórða ár. Ágúst Svavarsson lék sinn fyrsta deildarleik með Göppingen og byrjunin var vissulega góð, útisigur gegn Huttenberg 13:11. Ágúst skoraði tvö mörk og lék stórt hlutverk í vörninni. Hann leikur í horninu í sókn, sömu stöðu og hann lék með landsliðinu á árum áður. Hitt íslendingaliðið, Beyer Leverkausen tapaði á heimavelli fyrir Gummersbach 13:18. Litlar fréttir hafa borizt frá þeim leik, en léiklega hafa þeir ekki leikið með Viggó Sigurðsson og Sigurður Gunnarsson vegna meiðsla. Loks má geta þess að Danker- sen, liðið sem þeir Ólafur H. Jónsson og Axel Axelsson léku með tapaði á heimavelli fyrir nýliðum Gunsburg 16:19. -SS. Skotum úthýst BRESKA knattspyrnusambandið hefur gert sér litið fyrir og meinað skoskum áhorfendum að horfa á landsleik Englendinga og Skota sem fram fer næsta vor, sem liður í bresku meistara- keppninni. Að þessu sinni á leikurinn að fara fram á Wembl- ey í Lundúnum og tvö síðustu skiptin sem þar hefur verið leikið, hefur allt logað í óeirðum. Skoskum áhorfendum hefur verið gefið að sök að hafa komið öllu af stað í bæði skiptin. Tals- maður sambandsins lét hafa eftir sér að sambandinu þætti þetta gerræðisleg ákvörðun, en að dómi þess það eina sem hægt væri að gera til þess að koma í koma í veg fyrir frekari áflog og líkamsmeið- ingar. „Þetta er elsti knattspyrnu- viðburður sögunnar og við viljum fyrir engan mun að hann leggist niður, en svo gæti hæglega farið ef framhald verður á ólátum á áhorf- endapöllunum," sagði umræddur talsmaður. Þess má geta, að 29.000 miðar á landsleik þennan hafa jafnan ver- ið seldir í Skotlandi. Hafa þeir ávalt selt upp og síðar hafa bjórfullir Skotar flætt yfir Lund- únaborg svo þúsundum skiptir. Óeirðirnar hafa sjaldnast verið bundnar við knattspyrnuvöllinn einan. Sigfús sló holu í höggi DAGANA 13.-14. þ.m. hélt Golfklúbbur Norðfjarðar sitt fyrsta golfmót eftir margra ára hlé. Golfvöllurinn. sem er 9-holu völlur, er á svokölluðum Græna- nesbökkum, en það cru bakkar Norðfjarðarár gegnt bænum Grænanesi, sem er mjög fagur og skemmtilegur staður. Ennþá er völlurinn að mestu gcrður af náttúrunnar hendi. en fyrirhug- að er að vinna nokkuð við fram- kvæmdir við völlinn á næsta ári. Á þessu móti gerðist það, sem alla golfmenn dreymir um, að slegin var hola í höggi. Sá, sem það afrekaði, var Sigfús Guð- •"'indsson og var höggið slegið á Uiu<. w 140 m braut. Þetta er í fyrsta skipti, sem hola er skoruð í höggi á Golfvelli Norðfjarðar. Á þessu móti voru spilaðar 18 holur og var keppt með forgjöf. Alls voru keppendur 12 á aldrin- um 13 ára til 64 ára. Árangur þriggja efstu manna var sem hér segir: 1. Bergsteinn Jósefsson, án for- gjafar 83 högg. 2. Stefán Þorleifsson, án for- gjafar 89 högg, með forgjöf 81 bögg. 3. Sigfús Guðmundsson, án for- gjafar 98 högg, með forgjöf 94 högg.y Eftir nokkra daga efnir klúbb- urinn til firmakeppni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.