Morgunblaðið - 26.09.1980, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 26.09.1980, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1980 7 r Áhugaleysi félaga í. BSRB Kristinn G. Jóhanns- son, hinn nýi ritstjóri is- lendings á Akureyri, ritar forystugrein í blaö sitt, þar sem hann fjallar um þátttöku í atkvæða- greiðslu um BSRB-samn- ingana fyrir skömmu. Kristinn víkur þar að dræmri þátttöku í þessari atkvæöagreiðslu og seg- ir: „Það hlýtur aö vekja nokkra athygli aö í at- kvæöagreiöslu þeirri sem fram fór ekki alls fyrir löngu um samkomulag L____________________ það er forysta B.S.R.B. og fjármálaráðherra höföu gert drög að aöeins tæp- ur helmingur fólaga inn- an samtakanna þ.e. 48,8% þótti ástæöa til að mæta á kjörstaö og láta í Ijós álit sitt á þessum samningsdrögum. „Þetta sýnir ótvíræðan vilja fólksins" segir einn af forystumönnum B.S.R.B. í blaðaviðtali fyrir skömmu þegar úrslit lágu fyrir og sýnt var að 76,6% þeirra sem á kjör- staö mættu samþykktu samkomulagið en það er innan við 40% félaga inn- an B.S.R.B., um 23,3% af þeim sem kusu segja nei en meiri hluti félags- manna situr heima. Nú virðist í sjálfu sér mega flokka það undir hugs- anaskekkju að telja slíkt sína ótvíræðan vilja fólksins innan samtak- anna en látum svo vera. Hins vegar hlýtur sú spurn að vakna hvernig standi á því mikla áhuga- leysi sem félagsmenn sýndu þessari atkvæða- greiöslu og hvaða skýr- ingar eru þar á. Tæpast er hægt að taka alvarlega svo fjall- grænar skýringar og þær að meirihluti B.S.R.B. fólks hafi verið í sumarfríi eins og þó hefur veríð haldiö á lofti. Hvaö veldur því þá að menn hafa ekki lengur áhuga á því né nennu í sér til aö fjalla um kaup sitt og kjör þegar þeim gefst á því kostur?" Var nokkur aö tala um „samningana í gildi?“ Síðan segir ritstjóri ís- lendings: „Ýmsar samverkandi ástæður eiga hér vafa- laust þátt að en ekki er þó laust við aö ýmsum hafi þótt sem svokallaðir kynningarfundir er for- ysta B.S.R.B. stóð fyrir víðs vegar um land vera líkari einhliða áróðri fyrir samþykkt samninganna en að fleiri sjónarmið fengju að koma fram. Nú var það vitaö að ýmsir höfðu talsvert við samn- ingsdrög þessi að athuga en ekki er kunnugt um að þeim gæfist færi á aö ferðast á kostnað sam- takanna til að láta álit sitt í Ijós og efna til málefna- legra umræðna um kosti og galla þess sem upp á var boöið. Því var hins vegar haldið stíft aö fé- lögum að hér heföu náðst þeir bestu kostir sem völ var á án þess aö til verkfalla kæmi. Minnast menn þó þeirra tíma að þessum sömu forystu- mönnum þótti það hreint engin goögá að efna til verkfalla. Það er rétt eins og að manni hvarfli aö heimaseta yfir 50% allra félaga innan B.S.R.B. beri fremur aö líta á sem mótmæli gegn vinnu- brögðum forystunnar og kokhreysti verður aö telja þegar slíkt áhugaleysi er taliö sýna ótvíræðan vilja fólks eins og nú er látið að liggja. Það hefði ein- hvern tíma ekki verið talin afgerandi traustyf- irlýsing þegar aðeins 36% félaga í fjölda- samtökum sem þessum gjalda jáyrði sitt. Berlega hefur komið í Ijós á und- anförnum árum að stjórnvöld og stjórnvöld eru hreint ekki það sama í augum forystumanna B.S.R.B. og þegar slíkt kemur jafn berlega í Ijós annars vegar nú og hins vegar 1978 er ef til vill skiljanlegt að fólk kjósi fremur að sitja heima en taka þátt í þessu sjón- arspili sem menn hafa síðan geð í sér til að kalla ótvíræðan stuðning viö samningsdrögin. Þess mætti þá einnig minnast að það langlund- argeð sem forysta B.S.R.B. hefur sýnt stjórnvöldum í kjara- samningaþófi þessu er meira en elstu menn muna þar sem samningar voru lausir um mitt síö- asta ár, en nú varð það nánast trúaratriði að fara varlega vegna ástandsins í þjóðfélaginu og minnast menn þá ef til vill oröa núverandi fjármálaráð- herra áöur en hann sett- ist í stólinn góða að kjör launþega væru ekki sá þáttur er hefði afgerandi áhrif á íslenskt efna- hagslíf. Var nokkur aö tala um „samningana í gildi"? r Lausblmiabækur sem halda íast utan um hlutina Kynntu þér fjölþætt notagildi lausblaðabókanna frá Múlalundi. Þær eru níðsterkar og endast árum saman. Ótal mismunandi gerðir og stærðir, fyrir mismundi þarfir. Vinnubækur fyrir skóla. Verðlistar og allskyns upplýsingabækur fyrir fyrirtæki. Ljósmyndaalbúm, jafnvel myntalbúm. Bjóðum líka plasthulstur innan í bækurnar til þessara nota. Bjóðum gyllingu eða áprentun ef óskað er. Verðið er lágt og möguleikarnir óteljandi. ® Hafið samband við sölumann. jl Múlalundur Ármúla 34 - Símar 38400 og 38401 - 105Reykjavík Tapast hefur steingrár 4ra vetra foli úr Geldingarnesi. Hesturinn er ómarkaður en með klippt F-94 í vinstri síðu. Þeir sem hafa orðið varir viö hann, eru beðnir aö hringja í síma 81274. Hef flutt endurskoðunarskrifstofu mína að Suöurlands- braut 12, 2. hæð. Sími 82121. (Símaviðtalstími kl. 13—17). Tryggvi E. Geirsson, löggiltur endurskoðandi. ÚTSAIA DÖMUDEILD HERRADEILD Kjólefni Skyrtur Metravara Sokkar Ullarefni Nærföt Veloursloppar Allt selt fyrir ótrúlega lágt verö. Utsalan hættir þriðjudag. isill íacobscn Austurstræti 9 a nœstunm Odýru jólafargjöldin Verö báöar leiöir: Kaupmannahöfn Glasgow London Luxemborg Ósló Stokkhólmur kr. 125.000,- kr. 93.100,- kr. 107.700,- kr. 132.700.- kr. 113.900,- kr. 142.600,- (Brottfararskattur kr. 8.800.- ekki innifalinn). Vinsamlegast bókiö sem fyrst. Athugið: Kynnið ykkur vandlega alla skilmála áöur en bókun fer fram. VANTAR ÞIG VINNU VANTAR ÞIG FÓLK tP Þl Al'GLÝSIR l M ALLT LAND ÞEGAR ÞL ALG- LÝSIR í MORGL'NBLAÐINl' FERDASKRIFSTOFAN m—m. URVAL^mMF STURVOLL SÍMI 26900 VIO AUSTURVOLL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.