Morgunblaðið - 26.09.1980, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 26.09.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1980 3 Ljósmynd Mbl. Sijfhvatur Blöndahl. Drangurinn sprengd- ur með dýnamíti Björgunarsveitarmenn úr Reykjavík héldu upp í Smjör- fjöll í fyrradag og sóttu lík þeirra þriggja manna, sem fór- ust með Islander-vél Flugfélags Austurlands sl. þriójudag. Eftir að vélin fannst var óskað eftir aðstoð sérþjálfaðra fjail- göngumanna frá Reykjavík til að fara upp að flakinu og sækja líkin. Tólf félgar úr Flugbjörg- unarsveitinni í Reykjavík og tólf félagar Hjálparsveitar skáta í Reykjavík héldu austur með flugvél Landhelgisgæzlunnar með nauðsynlegan búnað. Að sögn björgunarmanna gekk ágætlega að komast á slysstað og aðstaða til aðgerða var nokkuð góð, en vélin sat föst efst í 35—40 gráðu brattri snjó- hlíð. Eftir að tekizt hafði að ná líkunum út úr vélinni og flytja þau niður og útbúa til flutnings, var samkvæmt beiðni flugmála- yfirvalda gerð tilraun til þess að hrinda vélinni áleiðis niður hlíð- ina vegna slysahættu þar sem hún var staðsett. Það tókst ekki þar sem annar vængur vélarinn- ar var mjög fastskorðaður í klettadrang, sem stóð út úr hlíðinni. Var þá brugðið á það ráð að sprengja dranginn frá með dýnamítsprengju. Við sprenginguna losnaði svo vel um vélina, að mögulegt reyndist að hrinda henni af stað niður fjalls- hlíðina. Aðgerðin tók alls um 20 klukkutíma og voru björgunar- sveitarmennirnir fluttir með Landhelgisgæzluvél til Reykja- víkur í fyrrinótt. Starfsmenn Loftferðaeftirlits og menn úr flugslysanefnd skoð- uðu flakið í gærdag til að reyna að gera sér grein fyrir orsökum slyssins, en ekki er- hægt á þessari stundu að fullyrða neitt um orsökina. Myndin er tekin af vélinni, þar sem hún lá skorðuð efst í hlíðum Smjörfjalla. Bókagerðarfélögin: Prentiðnaðarfólk framleiði prentgripi MORGUNBLAÐINU barst í gær eftiríarandi ályktun frá félögum bókageröar- manna. en sameiginlegur félagsfundur félaganna var haldinn í gær: Sameiginlegur fundur Bókbind- arafélags Islands, Grafíska sveinafélagsins og Hins íslenzka prentarafélags ályktar eftirfar- andi: Framanskráð félög hafa boðað til tvíþættra vinnustöðvanaað- gerða, dagana 26.—30. sept. nk., til þess að knýja á um raunhæfar viðræður um gerð nýs kjarasamn- ings, en samningarnir eru nú búnir að vera lausir frá síðustu áramótum. Viðræður milli samn- ingsaðila hafa staðið meira eða minna um nokkurt skeið án þess að viðsemjendur okkar hafi í einu eða neinu vísað sig viljuga til samninga. I þeim tillögum sem bókagerð- arfélögin hafa lagt fram til breyt- inga á kjarasamningum er auk launakrafna lögð þung áherzla á að viðunandi samningar náist um þau mál sem í daglegu tali hafa verið kölluð atvinnuöryggis- og tæknimál. Hér eru á ferðinni kröfur er lúta fyrst og fremst að því að tryggja prentiðnaðarfólki vinnu við tæki, sem notuð eru við gerð prentgripa í landinu. Sú staða, að prentiðnaðarfólk er knú- ið til að berjast fyrir þessum sjálfsagða rétti sínum til vinnunn- ar, er ný. Prentiðnaðarfólk hefur í tímans rás upplifað ótal tækni- breytingar og tekið við þeim og tileinkað sér þær. Nú eru hins vegar uppi tilburðir í þá átt að rýra rétt prentiðnaðarfólks til þess að annast þá vinnu sem það hefur ævinlega séð um, og færa þau á hendur annarra starfshópa. Bókagerðarmenn gera því þá sjálfsögðu kröfu að fá, eftirleiðis sem áður, að sinna þeim störfum sem lúta að gerð prentgripa og nota til þeirra þá tækni sem á markaðnum er hverju sinni. Um þessi atriði, auk annarra réttlætismála, er tekizt á í þessari kjaradeilu og má í því sambandi nefna að óiðnlært fólk í okkar félagasamtökum býr við mismun- andi kjör eftir félögum, enda þótt það vinni við samskonar störf. Bókagerðarfélögin vilja undir- strika það, hvað atvinnuöryggis- og tæknimálin snertir, að fyrst og fremst er um það að ræða að prentiðnaðarfólkinu sé tryggt að það geti haldið áfram að framleiða prentgripi með þeirri tækni sem á boðstólum er hverju sinni. Bókagerðarmenn: Gervasoni f ái þegar hæli SAMEIGINLEGUR féalgs- fundur allra bókagerðarfélag- anna, BFÍ, GSF og HÍP, hald- inn 25. sept. 1980, skorar á íslensk stjórnvöld að veita franska flóttamanninum, Patr- ick Gervasoni, landvist og hæli þegar í stað á íslandi af mannúðarástæðum. Feróaskrifstofan Hvert sem u 11 n h m i i 'I' ,!/'Mi i1 ÚTSÝN sparad ydur fé og fyrirhöfn. Allir farseðlar á lœgstcÚmtiL ---------- Á . i Sumarauki sólinni á Costa del Sol m I lllio. Rrottför 2. október — 3 víkur - — Gististaðir: Faein sæti laua. El Remo, Santa Clara, Nogalera og Hotel Alay. Fyrsta flokks aöbúnaöur — Útsýnarþjónusta. í október er meðalhitinn á Costa del Sol 25—30° C. London heimsboryin heillandi býr yfir slíkum töfrum að ekki verður lýst með örfáum orðum, því þar er sjón sögu ríkari. W*' Útsýn býöur, nú sem fyrr eina til tvær feröir í viku á stórlækkuöum fargjöldum og hefur einnig, vegna margra ára viöskipta, náö samningum um stórfelldan afslátt af gistingu á vinsælum gisti- ' hiarta borgarinnar. ......... *'rottför á laugardögum London — vikudvoi — Verö frá kr. 282.200,- mjj m •: -c ^ m ■ mm ■"g| - . V - (AFMÆLIfÞ GETRAUN í nýútkomnum kynningarbœklingi ÚTSÝN- AR er eftirfarandi getraun. 1. Ferðaskrifttofan Utsyn hefur starfað fré árinu 2. Nú býður UTSYN nyjan sktða- stað i Júgóslaviu: 3. Afmaalisferð UTSYNAR er til: 4. Kanaríeyjaferðir UTSYNAR eru Hl: S. Hvaða félagssamtök starfa á vegum UTSYNAR? 6. UTSYN fer með einkaumboð á Islandi fyrlr umfangsmestu terða- þjonustu heims 7. UTSYN er soluhæsta fyrtrtaeki á Islandi í umboðssölu á: 1970 1955 1930 Hoimenkollen Zell am See Kranskja Gora Kenya Mexico Husavíkur Fáiö eintak af bæklingnum, svariö þessum einföldu spurningum, klippiö get- raunina frá og sendiö til ÚT- SÝNAR fyrir 3. október, en þá veröur dregið úr rétt- um lausnum á fyrsta ÚTSÝN- ARKVÖLDI haustsins á Hótel Sögu. __________ Vinningurinn ásamt feröa- ---------- gjaldeyri er 1 milljón króna aö verömæti. Athugið aö úr- klippa úr blaðinu gildir ekki sem svar Ptaya del Ingles Lanzarote Tenerife Klúbbur 25 Model 79 Rauðsokkahreyf- irtgin Ðlners Club Spies rejser American E«- press flugfarseðlum skosku wiskii Ijösmyndavörum f Austurstræti 17, símar 26611 og 20100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.