Morgunblaðið - 26.09.1980, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 26.09.1980, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1980 — . . -j—=-■ > — ~ - Það hafa fleiri en einn og fleiri en tveir nefnt, hvort ég hefði ekki eitthvað að segja um matarafganga. Það er ekki úr vegi að rabba um þá í dag. Hér áður fyrr þekktist varla að tala um afganga. Það var einfaldlega allt nýtt, og ekkert gekk af. Nú er öldin önnur. Aður þótti höfuðsynd að henda mat, en ýmsir kippa sér ekki upp við slíkt nú. Það sér þó hver heilvita maður að slíkt er vægast sagt óvænlegt svo ekki sé meira sagt. Burtséð frá því að ýmsir búa við skort, er það dýrt spaug að henda mat. Því er sjálfsagt að stefna að því að gjörnýta allt matarkyns, sem kemur inn á heimilið. Reyndar er hugtakið gjörnýting nú ofar- lega á baugi, og þá er átt við að nýta til fulls ýmislegt það sem gjarnan er hent, t.d. dagblöð og umbúðir. Slík gjörnýting er önnur saga, en reyndar býsna áhugaverð og mikilvæg. En hvað er þá hægt að gera við ýmiss konar mataraf- ganga? Mikilvægast er að reyna að elda ekki meira en svo, að maturinn klárist alveg. Umsjón: SIGRUN DAVÍÐSDÓTTIR Matar- af- gangar Þetta er hægt að gera, ef þið vitið, hvað telst hæfilegur skammtur af ýmsum mat. Þið kaupið þá nákvæmlega það sem þarf, og ekkert þar fram yfir. Þá eru allar líkur á því að allt verði borðað. Ykkur finnst þetta e.t.v. nokkuð naumt. Hugsið ykkur, ef einhver er óvenjulega svangur, hvað þá? En sjáið til. Á hverju heimili er oftast til brauð, ávextir eða grænmeti, sem hægt er að fá sér eftir matinn, ef einhver er enn svangur. Það ætti því enginn að þurfa að standa svangur upp frá borðum, jafnvel þó að heiti maturinn sé uppurinn. Hafið einnig í huga, að svo strangt skammtaður matur er einn- ig heppilegur, ef einhver í fjölskyldunni er að reyna að hafa hemil á aukakílóum. Það er nefnilega oft freistandi að sitja og narta í matinn, eftir að maður er í raun orðinn saddur. Ef allt er búið úr pottinum, er þessi freisting úr sögunni. Af ósoðnu kjöti eða fiski þarf um 200 gr á mann. Þetta virðast engin ósköp, en er býsna drjúgt í maga. Lifur er mjög meltandi 150 gr er því góður skammtur. Af hrísgrjónum þarf um 1 dl á mann, ef þau eru höfð með mat, en annars um 2 dl í hrísgrjónarétti. Af spaghetti þarf um 100 gr, ef það er haft með mat eða með matarmiklu meðlæti, eins og t.d. kjötsósu, en um 175 gr ef rétturinn er að mestu spagh- etti. Af kartöflum þarf 2—3 meðal- stórar kartöflur á mann með mat, en allt að 5—6 í kartöflurétti. Af súpum þarf um 2'h. dl af tærum súpum, ef þær eru forréttur, en annars um 4—5 dl ef þær eru aðalrétt- ur. Af matarmeiri súpum þarf um 2 dl, ef þær eru forréttur, en annars um 3—4 ef þær eru aðalréttur. Þetta er það helzta, sem hægt er að miða við. Það er því stórt spor í rétta átt, ef okkur tekst að læra að elda aldrei meira en svo að maturinn gangi upp, og ekki þurfi að hugsa sérstaklega fyrir afgöngum. En það er reyndar eitt, sem veldur því að okkur hættir e.t.v. til að gleyma matarafgöng- um. Það er þegar fjölskyldan borðar aðeins eina heita máltíð saman að kvöldi, en síðan e.t.v. kaldan mat á ýmsum tímum á daginn. Afgangurinn gleymist þá kannski til næstu heitu máltíðar, nýtist ekki þá, og síðan ekki söguna meir. Það er mun þægilegra að nýta afganga, þegar við borðum heitan mat í hádeginu og síðan kaldan um kvöldið, og þá auövitað afgangana frá hádeginu með. En það er tómt mál að tala um slíkt fyrirkomulag, þegar enginn eða fáir eru heima í hádeginu. En eitthvað raunhæft verðum við að gera. Þrátt fyrir ýmsar fyrirbyggjandi aðgerðir sitjum við uppi með leifar öðru hverju, og hvað þá ... Það kemur nánar hér á eftir í stuttu yfirliti. Góða skemmtun! Kjöt Það er býsna auðvelt að nýta ofnbakað eða glóðarsteikt kjöt. Það er gott kalt ofan á brauð, gjarnan með nýju grænmeti eða sýrðu eða eitt sér með nýju eða sýrðu grænmeti. Það er býsna gott í salat, með nýju grænmeti. Salat er reyndar kostur, sem vert er að hafa í huga þegar við stöndum með matarafganga í höndunum. Ef salatið á að vera matarmikið, er tilvalið að hafa kaldar, soðnar kartöflur, köld soðin hrísgrjón eða niðursoðin maís sem undirstöðu, til að gefa fyllingu. Edikssósa er tilvalin í salat- ið. Ef þið kjósið fremur sósu úr sýrðum rjóma, er lystugra að bera hana fram sérstaka, svo hver og einn geti fengið sér að vild. Einnig er hægt að hita kjötið, skera það í bita og setja í sósuna, sem e.t.v. var með kjötinu í upphafi. Kartöflu- afganga er þá sömuleiðis hægt að brytja út í. Einnig er hægt að brytja kjötið út í súpu, þ.e. að hita kjötsoð úr dós eða teningum, bæta kjöti og e.t.v. grænmeti í og hressa sig á ljóm- andi súpu. Einnig getið þið brytjað kjötið saman við soðin hrísgrjón eða spaghetti, e.t.v. ásamt grænmeti. Kjöt í sósu, t.d. pottrétti, er hægt að setja heitt á brauð, í súpu, blanda saman við heit hrís- grjón kartöflur eða spaghetti. Rétti úr kjöthakki er hægt að hita og setja á brauð, í súpu, og svo saman við soðin hrísgrjón, kartöflur eða spagh- etti, allt eftir því sem ykkur finnst henta bezt. Kjötbollur eða kjöthleifa er hægt að sneiða og setja í súpur, eða í soðin hrísgrjón og slíkt. Þetta er líka ljómandi kalt álegg, gjarnan með nýju grænmeti eða sýrðu. Og svo er sósa góður möguleiki þarna, sbr. hér að ofan. Þetta er það helzta um kjöt og kjötrétti. Gunnar Snorrason, form. Kaupmannasamtaka Islands: Verzlunar störf Nú þegar viðræður standa yfir um gerð nýrra kjarasamninga við verzlunarfólk, koma upp í hugann, laun og launastigar afgreiðslu- fólks í verzlunum og hversu brýnt það er orðið að fólk sem ætlar sér að starfa um lengri tíma í verzlun fái tækifæri til menntunar á því sviði. í dag er enga fræðslu að fá varðandi þetta starf hér á landi. Þó skal þess getið að Kaupmanna- samtök íslands í samvinnu við Verzlunarmannafélag Reykjavík- ur hafa haldið námskeið fyrir starfsfólk í verzlunum, sem hafa þótt takást vel og væri fengur í að framhald yrði á. Þrátt fyrir slíkt námskeiðahald stöndum við langt að baki grönnum okkar hvað þetta snertir. 1 Danmörku, er til dæmis starfræktur sérstakur skóli fyrir starfsfólk í verzlunum, verzlunar- stjóra, kaupmenn og þeirra maka. Kauplausir innheimtumenn hins opinhera Ef litið er á starf afgreiðslu- manns í verzlun, er ljóst að það er býsna mikilvægt, vegna þess að á því getur oltið hvort verzlunin gengur vel eða illa. Afgreiðslu- maður þarf að bera góðan þokka, vera snyrtilegur, vingjarnlegur í viðmóti, hafa áhuga á því sem hann er að gera, vera ráðgjafi fyrir viðskiptavinina og hafa góða vöruþekkingu. Þessi upptalning er hvergi tæmandi, en ef viðskipta- vinurinn yfirgefur verzlunina ánægður og er ákveðinn í að koma aftur hefur afgreiðslumanninum tekist það sem til er ætlast. Verzlunarstjórinn þarf að sjálf- sögðu einnig að hafa allt þetta til að bera, auk þess að geta haft stjórn á hendi. Hann verður að kaupa inn réttar vörur, þá er átt við vörur sem líkindi eru á að seljist fljótt, og sjá til þess að nægilegt vöruframboð sé í verzl- uninni, án þess að íþyngja rekstr- inum með of miklu birgðahaldi. Að síðustu er svo starf kaup- mannsins, sem er, til viðbótar því sem að framan greinir, að sjá um öll fjármál, allar skýrslugerðir sem þarf að framkvæma í einni verzlun. Skriffinnska við laun og launatengd gjöld er mikil, en að því kem ég síðar. Skýrslugerð til hins opinbera er alltaf að aukast og má í því sambandi minnast á alla þá vinnu sem unnin er endurgjaldslaust við innheimtu söluskattsins. Upphæð sú sem söluskatturinn nemur er um það bil 'h af öllum ríkistekjum landsins. Kaupmenn innheimta mestan hluta þessa skatts og eru þessvegna kauplausir innheimtu- menn hins opinbera. Ekki er nóg með það, heldur greiða þeir stórfé með sér vegna útlagðra peninga innheimtunnar vegna. Allar götur síðan söluskattur var fyrst lagður á fyrir 20 árum síðan, hafa Kaupmannasamtök Islands æ ofaní æ farið fram á við stjórn- völd, að fá endurgreiddan útlagð- an kostnað innheimtunnar vegna, en án árangurs. Þó má ljóst vera að hér er um augljóst réttlætismál að ræða. Kannski nýr „þrýstihóp- ur“ væri lausnin. — Þrýstihópur skipaður kaupmönnum sem ein- faldlega hættu að reikna söluskatt á vörurnar og skiluðu þar af leiðandi engum peningum í hítina. Er svo komið að slíkt sé árangurs- ríkara til að ná eyrum stjórnvalda en skynsamleg rök og augljósar staðreyndir? Því miður bendir margt til að svo sé. Menntun starfs- manna í verzlun Ef leggja á raunhæft mat á það starf sem að jafnaði er unnið í verzlun, er ljóst að bæði þarf reynslu og þekkingu til að skila því á viðunandi hátt rétt eins og hverju öðru fagi. I öðrum fögum, svo sem iðngreinum eru menn þó taldir þurfa námsundirbúning. Það þarf einnig að rækta upp þekkingu á sviði verzlunar. Fyrst með námskeiðahaldi og síðao af- greiðslumannaskóla. Slík mennt- un yrði að sjálfsögðu metin í launum, enda er góður og traustur vinnukraftur sjaldan of hátt laun- aður, méðan slælegur vinnukraft- ur er alltaf með of há laun. Ráðning í verzlunarstörf í dag fer venjulegast fram með þeim hætti að auglýst er í einhverju dagblaðanna eftir starfskrafti og síðan valið milli . umsækjenda, nánast eftir andlitinu einu saman og látið ráðast hvernig til tekst. Síðan hefst kennslan í búðinni, því líta verður á að um nemanda sé að ræða. Ólíkt væri ákjósanlegra að geta ráðið starfskraft sem hefði sótt námskeið eða útskrifast úr afgreiðslumannaskóla. Með því fengist ekki aðeins menntaður starfsmaður heldur einnig vænt- anlega með áhuga á faginu, þar sem hann hefði borið sig eftir þekkingu í því. Hvað eru launa- tengd gjöld? Eitt af því sem sjaldan er rætt þegar fjallað er um kaup launa- fólks eru hin svokölluðu launa- tengdu gjöld sem atvinnurekand- inn greiðir til ýmissa aðila vegna hvers starfsmanns sem hann ræð- ur í vinnu, auk þeirra launa sem greidd eru til hans beint. Það er ekki víst að margir hafi hugsað út í það, að ef þessi launatengdu gjöld væru reiknuð með launum fengi til dæmis afgreiðslumaður sem hefur um 320 þúsund krónur á mánuði greiddar 414 þúsund krón- ur. Á meðfylgjandi töflu má sjá hvernig þetta skiptist: Launatengd gjöld afgreiðslufólks Dagvinnutaxti 4. flokkur 2 ár = 320.195 1. Dagvinna 2. Veikindagr. 3,1% áætlað 3. Slysagr. 0.4% áætlað 4. Fæðingarorlof áætlað 5. Oriof 8,33% af 1-4 Krónur 320.195 9.926 1.281 160 27.619 Hlutfalls skipting 77,32 2,40 0,31 0,04 6,67 G. (359.181) (86,73) 7. Sjúkrasjóður 1% af G 3.592 0,87 8. Orlofsheimilasj. 0,5% af G 1.796 0,43 9. Lífeyrissj. 6% af 1—4 19.894 4,80 10. Slysatrygging 1128 kr./viku 555 0,13 11. Atvinnuleysistr.sj. 421 kr./viku 1.824 0,44 12. Lífeyrisstrygging 2% af G 7.184 1,73 13. Slysatrygging II 0,352% af G 1.264 0,31 14. Launaskattur 3,5% af G 12.571 3,04 15. Iðnaðargjald — — 16. Fél.gj. atv.rek. áætl. 0,6% af G 2.155 0,52 17. Aðstöðugj. áætiað 1% af G—16 4.100 0,99 18. Iðni.sj. og iðnaðarmálagj. — — 19. Laun «g launatengd gjöld 414.116 100,00 Illutfall óbcins launakostnaðar af taxta 29.3% Ef engin yfirvinna er unnin gildir hlutfallstalan 29,3% fyrir flest afgreiðslufólk, þar sem fastar krónutölur eru einungis í liðum 10 og 11. Þá má einnig reikna launatengd gjöld út frá jöfnu bls. 52 í 48 fræðslubæklingi Kjararannsóknarnefndar. (Fastakaupsdagvinna á mánuði x 1,2858) + 2,403 eða (320,195x1,2858) + 2,413 = 414.110. Eins og sjá má eru launatengd gjöld 93.921 kr. í viðbót við greidd mánaðarlaun eða 29,3% ofaná kaupið, sem atvinnurekandi hefur að sjálfsögðu skuldbundið sig til að greiða þegar ráðning fór fram. Það er kannski spurning hvort launþegar ættu að fá þessar tölur með í launaumslagi svo þeiri viti hvað þeir fái raunverulega í laun. En hvað snertir menntun í verzlunarstétt, þá er kominn tími til þess að menn setjist niður og hugi alvarlega að þeim málum, því að það er ekki síður nauðsynlegt að verzlunin í landinu sé skipuð færu og góðu vinnuafli en aðrir undirstöðuatvinnuvegir landsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.