Morgunblaðið - 09.10.1980, Side 2

Morgunblaðið - 09.10.1980, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1980 2 Afríkuhjálpin 1980: Söfnunarherferð Rauða kross Islands formlega hafin * Forseti Islands afhenti rangæskum ungmennum fyrstu söfnunarfötuna SÖFNUN Rauða kross íslands, Afríkuhjálpin 1980. hófst form- lega í jjær með því að forseti íslands, frú Vijídís Finnbojíadótt- ir, afhenti við hátíðloKa athófn í Norræna húsinu, fyrstu söfnun- arfötuna til un^ra stúlkna frá Rauða kross-deild Ranjíárvalla- sýslu, en þar verður fyrst Kensið í hús á landinu. I>á ávarpaði Matthías Á. Mathiesen, forseti Norðurlandaráðs, viðstadda ok einnÍK séra Sisurður II. GuA mundsson, ritari Rauða kross íslands ok Jón Ásgeirsson, fram- kva-mdastjóri söfnunarinnar. Séra Sigurður H. Guðmundsson hafði orð fyrir Rauða kross-deild íslands of{ lýsti nokkuð aðdrag- anda söfnunarinnar. Þá tók til máls Matthías Á. Mathiesen, for- seti Norðurlandaráðs og sagðist fagna samnorrænu átaki við söfn- unina. Að loknu ávarpi Matthías- ar flutti Jón Ásgeirsson, fram- kvæmdastjóri söfnunarinnar, ræðu, þar sem hann lýsti ástand- inu í A-Afríku og söfnuninni. Sagði hann söfnunina hérlendis verða tvíþætta, annars vegar yrði gíróreikningur númer 120200 sér- staklega ætlaður þessari söfnun og þá myndu skólabörn ganga fyrir hvers manns dyr. Fram- kvæmd þess yrði í höndum Rauða kross-deildanna á hverjum stað, en þær eru 42 í landinu. Jón sagði að nú þegar, eða áður en söfnunin var formlega hafin, hefðu borist um 10 millj. kr. í söfnunina. í lok ræðu sinnar sýndi Jón nokkrar litskuggamyndir frá Afríku og flutt var hljóðupptaka frá Genf, þar sem Pálmi Hlöð- versson ræðir við starfsmann að- alstöðva Rauða krossins um starf sitt í Uganda, en hann mun starfa þar á vegum íslandsdeildarinnar næstu þrjá mánuði. Þá las Jón einnig heillaóska- og hvatn- Séra Sigurður H. Guðmundsson, ritari íslandsdeildar Rauða krossins, er íremst til vinstri á myndinni. þá forsetarnir tveir, frú Vigdís Finnhogadóttir og Matthias Á. Mathiesen. ingarskeyti, sem barst í tilefni dagsins frá Rauða kross-deild Noregs. Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, afhenti í lok at- hafnarinnar í Norræna húsinu, tveimur ungum fulltrúum frá Rauða kross-deild Rangárvalla- sýslu fyrstu söfnunarfötuna, sem sérstaklega er merkt af þessu tilefni. Forsetinn setti síðan fyrsta peningaseðilinn í fötuna, og sagði hann vera „frá mér sjálfri" eins og hún orðaði það. Þá tók forsetinn upp úr tösku sinni gíró- seðil og sagði hann vera framlag annars bekkjar D í Álftanesskóla í Bessastaðahreppi, „en það er Bensinlítrinn í 515 krónur Þar af er hlutur ríkisins 285 krónur VERÐLAGSRÁÐ ákvað í gær nýtt verð á bensíni, gasolíu og svartoliu og tekur verðið gildi frá og með deginum i dag. Bensín hækkar úr 481 í 515 krónur lítrinn eða um 7%. Olíufé- lögin höfðu beðið um að fá að hækka bensínlítrann í 540 krónur. Gasolía hækkar úr 196,40 í 210 krónur lítrinn eða um 6,9%. Olíu- félögin báðu um hækkun í 216 krónur. Svartolía hækkar úr 127,300 í 128,100 krónur tonnið eða um 0,6%. Olíufélögin báðu um að fá að hækka tonnið af svartolíu í 142,800 krónur. Morgunblaðið snéri sér í gær til Georgs Olafssonar verðlagsstjóra og fékk upplýst að af 34 króna hækkun á bensíni rynnu 21,45 krónur til ríkissjóðs eða um 63%. Þar af er vegagjald 12,63 krónur, söluskattur 6,48 krónur, tollur 1,99 krónur og landsútsvar 35 aurar. Vegagjald hækkar sem kunnugt er til samræmis við hækkun bygg- ingavísitölu og er nú 112,47 krón- ur. Hlutur ríkissjóðs af heildar- bensínverðinu er nú um 285 krón- ur eða um 55%. Helsta ástæða hækkunar á olíu- vörunum auk hlutar ríkisins í bensínverði er gengissigið, sem nemur 15,2% síðan verð á bensíni og olíu hækkaði síðast í júní sl. Magnús L. Sveinsson, formaður VR: Eg sé ekki hvernig prentarar geta vikið VR-fólki úr sætum EINS og fram hefur komið í fréttum slitnaði upp úr viðræðum hókagerðarmanna og Félags ís- lenzka prentiðnaðarins í fyrra- dag vegna ágreinings um það, hvort félagar Verzlunarmannafé- lags Reykjavíkur mættu vinna við innskrift á tölvur, sem samn- ingar HÍP og FÍP frá 1977 heimiluðu VR-fólki að gera. INNLENT Morgunblaðið spurði Magnús L. Sveinsson, formann VR, hvernig félagið liti á þær kröfur prent- ara, að einungis þeir mættu vinna við þessa innskrift. „Það kemur mér algjörlega á óvart," sagði Magnús L. Sveinsson, „að störf í auglýsingadeildum blaða eru ágreiningsefni í kjara- deilu prentara. í fyrsta lagi var um þetta samið 1977, og í annan stað hef ég ekki heyrt á þetta minnzt í allri deilunni við prentar- ana að undanförnu, fyrr en ég frétti þetta á skotspónum í gær. Því finnst mér furðulegt, að svona mál skuli koma upp á síðustu stundu, þegar mér er sagt, að búið hafi verið að ná samkomulagi um öll þau atriði, sem raunverulega stóð deila um.“ „Hér er um mjög alvarlegt mál að ræða fyrir okkur," sagði for- maður VR, „ef það er tilfellið, að það sé hugsað þannig, að félags- fólk VR, sem unnið hefur þessi störf um langt árabil, eigi að víkja úr sínum sætum. Það get ég ekki fallizt á umyrðalaust, það liggur alveg ljóst fyrir. Fólkið, sem um er að ræða, er fólk, sem unnið hefur við vélritun, símavörzlu og hefur tekið á móti peningum fyrir aug- lýsingar. Þetta fólk hefur verið í Verzlunarmannafélagi Reykjavík- ur frá því er það varð launþegafé- lag og félagið hefur samið um kaup og kjör þessa fólks. Þó að nú komi ný tækni, sem breytir störf-. um þessa fólks að hluta, get ég ekki séð, að það liggi á borðinu, að fólk úr öðrum stéttum komi og víki þessu fólki úr sætum.“ Nýr pilsner NÚ ER kominn á markaðinn nýr pilsner. Sanitas pilsner, sem unninn er i samvinnu við Sana á Akureyri og bruggaður þar. Að sögn forráðamanna Sanitas hf. er hér um algjörlega nýja framleiðslu að ræða og er nýi pilsnerinn talsvert frá- brugðinn Thule-ölinu sein lengi hefur verið framleitt hér. I nýja pilsnerinn, sem verið hefur í vinnslu og undirbúningi síðan í desember í fyrra, eru notaðir aðrir humlar og annað malt en notað hefur verið í Thule-ölið. Forráðamenn Sani- tas sögðu einnig að nýja pilsn- ernum hefði verið mjög vel tekið og salan færi ört vaxandi Nýja Fríhafnarmáliö: Fernt í gæzlu vegna rannsókn- ar fíkniefnamáls FJÖGUR ungmenni sitja um þessar mundir i gæzluvarðhaldi í Reykjavik vegna rannsóknar á umfangsmiklu fíkniefnamáli. Að sögn Guðmundar Gígju, iög- reglufulltrúa hjá fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík, hófst rannsóknin í framhaldi af máli, sem upp kom í Keflavík nýverið. Snýst þetta nýja mál um meintan innflutning og dreifingu á fíkni- efnum. Rannsókn er í fullum gangi og litlar upplýsingar hægt að veita á þessu stigi. Fólkið, sem situr í gæzluvarð- haldi, er liðlega tvítugt, þrír piltar og ein stúlka. Öll hafa komið við sögu hjá fíkniefnadeiidinni áður. Kona fyr- ir bíl EKIÐ var á 69 ára gamla konu á gangbraut á Hverfisgötu við Lög- reglustöðina um tíuleytið í gær- morgun. Konan var flutt á slysa- deildina til rannsóknar og voru meiðsli hennar ekki fullkönnuð þegar síðast fréttist. 4 starfsmenn játa aðild að brotinu RANNSÓKN á hinum meintu tollalagabrotum í Fríhöfninni á Keflavíkurflugvclli er vel á veg komin, samkvæmt upplýsingum Þorgeirs Þorsteinssonar lög- reglustjóra. Sagði Þorgeir að fjórir menn hefðu játað aðild sína að brotinu. Hann vildi ekkert segja um hugs- anlegt umfang málsins en sagði að ljóst væri að hinn kærði verknað- ur hefði staðið yfir í nokkra mánuði a.m.k. Eins og fram hefur komið í fréttum lék grunur á því að áfengi og annar varningur hefði horfið úr birgðageymslum Fríhafnarinnar og honum smygl- að út af véllinum og seldur í mörgum tilvikum. Ágúst Ágústsson, fjármála- stjóri Fríhafnarinnar, tjáði Mbl. í gær að fyrir lægju tölur um rýrnun á vörum verzlunarinnar. Ef játningar hefðu komið fram í málinu væri þar komin skýring á hluta af rýrnuninni. Ágúst sagði að þrír starfsmenn Fríhafnarinn- ar hefðu verið leystir frá störfum tímabundið vegna þessa máls í samræmi við lög um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Að sögn Þorgeirs Þorsteinsson- ar verður málið sent ríkissaksókn- ara til ákvörðunartöku strax að rannsókn lokinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.