Morgunblaðið - 09.10.1980, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1980
13
Guðrún Helgadóttir svaraði ekki
spurningu Davíðs Oddssonar
Vinningshafar.í get-
raun Arnar og Örlygs
í TILEFNi væntanlegrar útgáfu
fyrsta bindis bókarinnar Landið þitt
— ísland, sem kemur út í haust hjá
Bókaútgáfunni Örn & Örlygur hf.,
efndi bókaútgáfan til verðlaunaget-
raunar á sýningunni Heimilið 80. í
getrauninni reyndi m.a. á hvort þátt-
takendur þekktu fjallstindinn
Hraundranga í Öxnadal, sem er í
merki bókaútgáfunnar.
Alls tóku 7763 þátt í getrauninni og
þar af skiluðu 6789 réttum svörum.
Dregið var úr réttum svörum mið-
vikudaginn 24. þ.m. að viðstöddum
fulltrúa borgarfógeta og komu upp
þessi nöfn:
1. verðlaun, Landð þitt — ísland, öll
fjögur bindin hlaut Inga Rós Eiríks-
dóttir, Sæviðarsundi 4, Reykjavík.
2. verðlaun, Ferðabók Eggerts og
Bjarna hlaut Gústaf Guðmundsson,
Safamýri 50, Reykjavík.
3. verðlaun, Ferðabók Stanleys hlaut
Ásta Þ. Guðjónsdóttir, Hraunbæ 76.
Reykjavík.
4. verðlaun, fyrsta bindi af Landið
þitt — ísland hlaut Kristín Árdal,
Hjallalundi 17i, Akureyri.
5. verðlaun, fyrsta bindi af Landið
þitt — Island hlaut Grétar Snær
Hjartarson, Brekkutanga 30, Mos-
fellssveit.
6. verðlaun, fyrsta bindi af Landið
þitt — ísland hlaut Anna Rist Ritu-
hólum 9, Reykjavík.
7. verðlaun, fyrsta bindi af Landið
þitt — ísland hlaut Magnús Pálsson,
Skildinganesi 35, Reykjavík.
8. verðlaun, fyrsta bindi af Landið
þitt — ísland hlaut Margrét Sigur-
mundsdóttir, Njarðarholt 8, Mos-
fellssveit.
9. verðlaun, fyrsta bindi af Landið
þitt — ísland hlaut Þórður M. Elef-
son, Álfhólsvegi 97, Kópavogi.
10. verðlaun, fyrsta bindi af Landið
þitt — ísland hlaut Bjarni Þor-
björnsson, Krossholti 7, Keflavík.
Haft hefur verið samband við verð-
Rotterdam
alla miðvikudaga
launahafa í síma og þeim tilkynnt um
verðlaunin. (Fréttatilkynning).
í UMRÆÐUM í borgarstjórn á
fimmtudagskvöldið lýsti Guðrún
Ilelgadóttir borgarfulltrúi Al-
þýðubandalagsins þvi yfir að
núverandi meirihluti borgar-
stjórnar hefði stutt uppbyggingu
matsölustaða og annarra slikra
staða innan borgarinnar á þessu
kjörtímabili. Taldi hún fjölgun
slíkra staða bera vott um hlýhug
meirihlutans i þeirra garð.
Davíð Oddsson borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins gerði athuga-
semd við þessi ummæli Guðrúnar
og krafðist svara og skýringa frá
henni hvað þessi atriði varðaði.
Spurði Davíð Guðrúnu að því á
hvaða hátt meirihlutinn hefði
hlúð að matsölustöðum, og kvaðst
hann ekki muna eftir að meiri-
hlutinn hefði staðið að slíku.
Meirihlutinn hefði ekkert gert til
að örva uppbyggingu matsölu-
staða. I lok máls síns ítrekaði
Davíð spurningu sína til Guðrúnar
Helgadóttur og spurði hvaða sér-
stöku ráðstafanir meirihlutinn
hefði gert í þessa átt.
Guðrún Helgadóttir kom í
ræðustól í umræðunni, en ekki
minntist hún einu orði á þessar
sérstöku ráðstafanir og svaraði
því ekki margítrekaðri spurningu
Davíðs Oddssonar.
Hafóu samDand
EIMSKIP
Þetta
þurfa sumir að gera...
... en þeim, sem
eiga Crown og vilja stækka viö sig eöa endurnýja, bjóðum viö aö taka
gömlu græjurnar upp í kaup á nýjum frá Crown eða Bang & Olufsen 1900.
Ath. Viö tökum einungis
vel meö farin Crown uppí.
Crown er góö fjárfesting.
x\Vo°Ö
Verðlauna- -----
samstæðan frá Bang & Olufsen
BEOSYSTEM 1900
ATH: Tilboöiö stendur frá 9/10—16/10 1980.
VERSLIÐ I I
SÉRVERSLUN
MEÐ
LITASJÓNVÖRP
OG HLJÓMTÆKI SKIPHOLTI 19 SiMI 29800
Hefur meirihlutinn hlúð
að matsölustöðum?