Morgunblaðið - 09.10.1980, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1980
• Terry Neil, framkvæmda-
stjóri Arsenal. tekur á móti
Einari Aas við komuna til
Arsenal...
Fer Aas
til Arsenal?
NORSKI landsiiósmióvorð-
urinn Einar Jan Aas þykir
líklegur til að verða fyrsti
Norðmaðurinn í ensku
knattspyrnunni. en hann
leikur með vestur-þýska
meistaraliðinu Bayern
Munchen um þessar mundir.
I>að er Lundúnaliðið Arsen-
al sem hefur boðið 200.000
sterlingspund fyrir kapp-
ann og þýska liðið hefur
fallist á það. Stendur nú allt
oj{ fellur með því hvort Aas
sjálfur samþykkir raðahan-
inn.
Aas leit við hjá Arsenal —
mönnum fyrir stuttu og lof-
aði allt og alla hjá Arsenal í
hástert. Lét hann þá hafa
eftir sér að hann hefði af því
engar áhyggjur hvort hann
fengi minni tekjur en hjá
Bayern, hann hefði ávallt
dreymt um að leika knatt-
spyrnu í Englandi.
Docherty
rekinn
TOMMY Docherty, hinn
kunni skoski framkvæmda-
stjóri QPR, hefur verið rek-
inn frá félagi sfnu. Er þetta í
þriðja skiptið á 12 árum sem
IJocherty er rekinn frá QPR.
Ilann heíur verið stjóri víð-
ar, t.d. hjá Manchestcr Utd.
Að sogn talsmanna QPR var
Docherty ekki rekinn vegna
lélegrar frammistöðu QPR i
2. deild heldur fyrir að
skipta sér af málum annarra
félaga.
Heppnissigur Víkin
1>AÐ VAR svo sannarlega hröð athurðarásin í leik Ilauka og Víkinga
í íþróttahúsinu i Hafnarfirði er liðin mættust i íslandsmótinu i
handknattleik. Vikingar sigruðu i leiknum með einu marki, 18 — 17,
með marki úr vítakasti sem dæmt var á siðustu sekúndu leiksins. Eftir
að leikurinn hafði verið flautaður af skoraði Arni Indriðason
örugglega úr vitakastinu. Pað var svo sannarlega grátlegt fyrir
Hauka að þurfa að sjá á eftir öðru stiginu í leiknum. Þegar aðeins 2
mínútur voru eftir af leiknum brýtur Steinar illa á leikmanni Hauka
og er vikið af leikvelli. Jafnframt var dæmt viti og Hörður Harðarson
skoraði örugglega úr vitakastinu og jafnaði leikinn. Einum færri
sóttu Víkingar og gerðu allt sem þeir gátu til þess að hanga á
boltanum og tefja timann. Og vist cr að einhverjir dómarar hefðu
da-mt töf. Svo var þó ekki gert og þegar 19 sek. eru eftir eru dæmd
skref á Þorherg Aðalsteinsson. Haukar fá boltann, bruna upp og
þegar aðeins 5 sek. eru eftir fer Júlíus Pálsson inn úr hægra horninu,
reynir skot en framhjá. Kristján markvörður Víkings var eldsnöggur,
náði í holtann og gaf þvert yfir völlinn á Pál Björgvinsson sem stökk
inn í teig Ilauka, þar var brotió á Páli og dæmt mjög vafasamt viti á
Hauka. Ur þvi skoraði svo Árni Indriðason og sigur Vikinga var í
höfn.
Haukar ná
yfirhöndinni
Strax í upphafi leiksins léku
Haukar mjög yfirvegað og skyn-
samlega í vörn og sókn og náðu
þegar yfirhöndinni í leiknum. Þeg-
ar 14 mínútur voru liðnar af
leiknum var staðan orðin 7—2
fyrir Hauka. Og þegar 20 mínútur
voru liðnar var staðan 7—3. Vík-
ingum gekk afar illa að finna
réttan takt í leik sinn og gerðu sig
seka um mörg slæm mistök. En
síðustu 10 mínútur fyrri hálfleiks
hrundi leikur Hauka og Víkingar
gengu á lagið og í hálfleik var
aðeins eins marks munur, 8—7
fyrir Hauka.
Æsispennandi síð-
ari hálfleikur
Allur síðari hálfleikurinn var
æsispennandi og jafn. Jafnt var á
öllum tölum alveg til loka leiksins
og skiptust liðin á um að hafa
forystuna í leiknum. Þegar 9
mínútur voru til leiksloka tókst
Víkingum að ná tveggja marka
forystu, 16—14, en Hörður Harð-
arson, sem átti stórgóðan leik í
síðari hálfleiknum, jafnaði metin.
Af níu mörkum Ilauka í síðari
hálfleiknum skoraði Hörður átta.
Hörður kom ekkert inn á í fyrri
hálfleik.
Eins og áður hefur verið skýrt
frá voru lokamínútur leiksins
mjög dramatískar. Bæði liðin
gerðu sig sek um mörg mistök í
leiknum. Og ekki er hægt að segja
að hann hafi verið góður hand-
knattleikslega séð. En spennuna
og baráttuna vantaði ekki. Enda
skemmtu áhorfendur sér hið
besta. Það var greinilegt á liði
Víkinga að mikil þreyta háir
liðinu. Leikmenn virðast eiga vont
með að einbeita sér, og svo var að
sjá í þessum leik að nokkur
taugaspenna þjakaði leikmenn
Knattspyrnuúrslit
ÚRSLIT leikja í ensku knatt-
spyrnunni í fyrrakvöld urðu
þessi:
Haukar -
Víkingur
17:18
Víkinga, máske eftirköst eftir
leikinn gegn KR. Steinar og Árni
voru skástir, bæði í vörn og sókir.
Það virðist ekki hafa góð áhrif á
leikmenn Víkinga að þeim er
aldrei skipt út af í leikjum og fá
enga hvíld. Það bitnar greinilega á
leik þeirra. Öðrum leikmönnum er
ekki sýnt mikið traust með því að
frysta þá svo algjörlega á bekkn-
um að þeir fá aldrei að spreyta sig.
Framan af leiknum léku Haukar
mjög vel, en féllu svo í þá gryfju i
fyrri hálfleiknum að enda sóknir
sýnar fullfljótt. í síðari hálfleikn-
um léku þeir sæmilega á köflum
en þess á milli af miklu óöryggi.
Hörður Harðarson kom vel frá
síðari hálfleiknum, Karl Ingason
lék mjög vel á línunni. Skoraði 3
mörk og fiskaði 5 vítaköst. Þá var
Júlíus Pálsson nokkuð drjúgur.
Dómarar í leiknum voru þeir
Árni Tómasson og Jón Frið-
steinsson og það verður að segjast
eins og er að þeir gerðu sig seka
um afspyrnuslaka dómgæslu svo
ekki sé meira sagt. Hvorugt liðið
hagnaðist þó á dómgæslunni. En
vonandi sést ekki svona slök
dómgæsla aftur í mótinu.
í STUTTU MÁLI: íslandsmótið 1.
deild. Haukar — Víkingur, 17—18
(8-7)
MÖRK HAUKA: Hörður Harðar-
son 8, 5 víti, Júlíus Pálsson 4, Karl
Ingason 3, Viðar Símonarson 1 v.
Hinn leikreyndi fyrirliði Vik-
inga, Páll Björgvinsson. er einn
af lykilmönnum í leikkerfum lið
sins.
MÖRK VÍKINGS: Steinar Birgis-
son 5, Þorbergur Aðalsteinsson 5,
Árni Indriðason 4, 3 víti, Guð-
mundur Guðmundsson 2.
BROTTVÍSUN AF VELLI: Sig-
urður Sigurðsson og Sigurgeir
Marteinsson, Haukum, í 2 mínút-
ur hvor og Steinar Birgisson,
Víkingi, í 2 mín.
MISHEPPNUÐ VÍTI: Kristján
Sigmundsson varði hjá Júlíusi,
Haukum, á 14. mín. og Árni
Indriðason, Víkingi, skaut yfir
markið á 45. mínútu. — ÞR.
I.DEILD
BirminKham — Arsonal
BrÍKhton — Everton
LiverptMil — Middleshroutth
Southampton — Wolves
3- 1
1-3
4- 2
4-2
Evrépukeppnin í körfuknattleik
Tveir Kanar
leika með Val
Pétur Guðmundsson sem hér reynir körfuskot í Iandsleik, leikur ekki
með í landsleiknum í kvöld á móti Kínverjum í Laugardalshölinni.
Hins vegar mun Pétur leika og æfa með liðinu um áramótin. Ljósm.
Emilia.
2. DEILD
Bristol City — Luton 2-1
CambridKP — Wrexham 1-0
Notts. Co. — Grlmsby 0-0
Preston — Newcastle 2-3
QPR - Oricnt 0-0
Shcíí.Wod. — Blackhurn 2-1
Shrcwsbury — Bolton 1-2
Swansca — Oldham 3-0
Watford — Dcrby 1-1
Wcst llam — Cardiff 1-0
Á fimmtudag í næstu viku leika
Valsmenn fyrri leik sinn í Evr-
ópukeppni meistaraliða í körfu-
knattleik í Laugardalshöllinni.
Þeir ráðast ekki á garðinn þar
sem hann er lægstur því að
mótherjar þeirra verða júgó-
slavncsku meistararnir. Vals-
menn munu styrkja lið sitt með
John Johnsson sem leikur með 2.
dcildar liði f A. John lék á sinum
tíma með stúdentum í Evrópu-
keppninni er lið þeirra ma*tti
F.C. Barcelona. Það verða því
tveir Bandaríkjamenn sem leika
með Val í leiknum hér heima. —
Fjórir 2 metra menn
í kínverska landsliðinu
- sem mætir íslendingum í Höllinni í kvöld
KÍNVERJAR leika sinn fyrsta
landsleik af fjórum i körfu-
knattleik i Laugardalshöllinni i
kvöld og mætir liðið islenska
landsliðinu. Ilefst leikurinn
klukkan 20.00. Kínverska liðið er
að mörgu leyti hálfgert huldulið
sem lítið er vitað um. Þó lék liðið
nýlega nokkra landsleiki gegn
Finnum og Svíum, sem eru með
mjög framba-rileg lið á Evrópu-
ma*likvarða. Finnar sigruðu Kin-
verja fjórum sinnum með litlum
mun. Sviar áttu einnig i hrösum
með þá, unnu tvo leiki, en töpuðu
einnig tvívegis. Má samkva*mt
þessu bóka að Kinverjar eru
engir byrjendur. þvert á móti.
En Islendingar eru hvergi
smeykir, landsliðið hefur æft af
krafti síðan í júní. Tólf manna
hópur hefur verið valinn til þess
að mæta Kínverjum í kvöld og
skipa hann eftirtaldir leikmenn:
Jón Sigurðsson KR, Guðsteinn
Ingimarsson UMFN, Ríkharður
Hrafnkelsson Val, Kolbeinn Krist-
insson ÍR, Jón Jörundsson ÍR,
Viðar Þorkelsson Fram, Jónas
Jóhannesson UMFN, Símon
Ólafsson Fram, Þorvaldur Geirs-
son Fram, Torfi Magnússon Val,
Kristján Ágústsson Val og Gunn-
ar Þorvarðarson UMFN.
Kínverjar þykja fremur smá-
vaxið fólk, en þeir eru hins vegar
svo fjölmennir, að risar hljóta að
finnast. 4 leikmenn kínverska liðs-
ins eru 2 metrar eða meira. Það
verður því þungur róður hjá ís-
lenska liðinu sem er á hæð fyrir
neðan. Annar leikur liðsins hér á
landi fer fram í Borgarnesi á
laugardaginn klukkan 14.00.
Þriðji landsleikurinn verður síðan
í Njarðvík á sunnudaginn klukkan
15.00. Loks fer fram á mánudags-
kvöldið leikur kínverska liðsins og
úrvalsliðs úr íslensku úrvalsdeild-
inni. Verður úrvalsliðið skipað
bæði Bandaríkjamönnum og
heimamönnum.
Happdrætti
AGNAR Tryggvason. einn fram-
kvæmdastjóra SÍS, verður heið-
ursgestur KKÍ á landslciknum
við Kínverja í kvöld. Öllum seld-
um miðum mun fylgja númer og
gildir hver miði sem happdrætt-
ismiði. f hálflcik verður síðan
dregið og eru vinningarnir þrír
talsins, sneysafullar körfur af
matvörum frá Samhandinu ...
Leiðrétting
í frásögn um úrslitaleik Vals
og KR í Reykjavíkurmótinu í
körfuknattleik var sagt að Valur
va*ri að vinna sinn annan Reykja-
vikurmeistaratitil. Þetta er
rangt og lciðréttist hér með.
Valur vann Reykjavíkurmeist-
aratitilinn í þriðja sinn i röð.
sigruðu 1978-79 og 80. Og unnu
þvi bikarinn til eignar.