Morgunblaðið - 09.10.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1980
3
bekkur Ásthildar, dóttur minnar.
Upphæðin á seðlinum skiptir ekki
máli, en svarar þó til u.þ.b. tvö
þúsund kr. á hvert barn.“ Þá
hvatti forseti Islands íslenzka
foreldra til að gefa til Afríku-
hjálparinnar á þennan máta, því
börn hefðu ánægju af því að sjá
Forseti íslands. frú Vigdís
Finnbogadóttir, setur hér
fyrsta peningaseðilinn i föt-
una sem hún hafði afhent
Lindu Maríu Jónsdóttur, 18
ára, frá Hellu. Á myndina
vantar hinn fulltrúa Rauða
kross-deildarinnar í Rang-
árvallasýslu. Ilrafnhildi
Jónsdóttur, einnig frá Hellu,
en hún er 16 ára.
Ljósm. Mbl. Kristján
nöfn sín á gíróseðlunum og þeim
fyndist þau þá hafa lagt sitt af
mörkum. Forsetinn sagði einnig,
að gíróseðillinn myndi settur upp
á vegg í skólastofu annars bekkjar
D í Álftanesskóla.
I lok ávarps síns sagðist forseti
Islands vona að söfnunin gengi
sem bezt hérlendis og að okkur,
sem ættum því láni að fagna, að
enginn væri svangur, auðnaðist að
leggja sem mest af mörkum.
Nk. laugardag verður á vegum
landssamtakanna Líf og land og
Rauða krossins sérstök Hungur-
vaka að Kjarvalsstöðum. Verður
þar ráðstefnuhald um hungur í
heiminum, sérstök barnadagskrá
og um kvöldið dagskrá í léttum
dúr með þátttöku fjölmargra
þekktra listamanna. Nánar verður
sagt frá Hungurvökunni í blaðinu
á morgun.
Meirihluti á
móti stjóminni
SAMKVÆMT niðurstöðum í
skoðanakönnun Dagblaðsins,
sem birt var í gær, eru 43,8%
þeirra, sem fylgja Sjálfstæðis-
flokknum að málum, andvigir
ríkisstjórn Gunnars Thorodd-
sens, 36*9% fylgja henni og 19,4%
eru óákveðnir. Áf þeim, sem taka
afstöðu, eru þannig 54,3% á móti
ríkisstjórninni og 45,7% með
henni.
Þeir, sem svöruðu spurningu
Dagblaðsins um þetta mál, voru
160 manns, sem lýstu yfir stuðn-
ingi við Sjálfstæðisflokkinn í
þeirri könnun, er blaðið fram-
kvæmdi á dögunum og fréttir hafa
borist af undanfarið.
Engir sátta-
fundir boðaðir
ENGIR fundir hafa enn verið
boðaðir í kjaradeiju aðila vinnu-
markaðarins, ASÍ og VSÍ, en
síðasti viðra-ðufundur aðilanna
var haldinn síðastliðinn föstu-
dag. Þá hefur heldur ekki verið
boðaður fundur í kjaradeilu
b<')kagerðarmanna og FIP og er
því sá hnútur, sem kjaraviðræð-
urnar komust í við viðræðuslitin
í fyrradag, enn óleystur.
Sáttanefnd ríkisins og Guðlaug-
ur Þorvaldsson ríkissáttasemjari
áttu í gærmorgun fund með ráð-
herrunum Gunnari Thoroddsen og
Svavari Gestssyni. Svavar sagði í
saintali við Morgunblaðið að um
hafi verið að ræða upplýsinga-
fund, þar sem nefndin kynnti
ríkisstjórninni stöðu mála. Svavar
kvað ríkissáttasemjara og sátta-
nefnd áfram hafa frumkvæði að
lausn deilunnar. Ráðherra var
spurður um það, hvort ríkisstjórn-
in hefði í huga að leysa hnútinn í
samningaviðræðunum með laga-
setningu. Svavar sagði að slíkt
hefði ekki verið rætt í ríkisstjórn-
inni.
Guðlaugur Þorvaldsson ríkis-
sáttasemjari sagði í samtali við
Morgunblaðið, að sáttanefnd fjall-
aði nú um það á hvern hátt hún
gæti leyst þau atriði, er á strand-
aði. Hann bjóst ekki við niðurstöð-
um fyrr en í fyrsta lagi í dag. í
gær voru rafvirkjar og hár-
greiðslusveinar í viðræðum við
viðsemjendur sína.
Jarðstöðin:
Beinar sjónvarpssendingar
geta hafist næsta vor
ÞESS er ekki að vænta að sjón-
varpið geti notfært sér nýju
jarðstöðina fyrr en næsta vnr,
samkvæmt upplýsingum Péturs
Guðfinnssonar framkvæmda-
stjóra.
Pétur sagði að sjónvarpið myndi
fyrst og fremst notfæra sér dag-
lega fréttaþjónustu en það yrði
ekki hægt vegna kostnaðar fyrr en
næsta vor en þá verður nýr
gervihnöttur tekinn í notkun.
Tæknilega væri mögulegt að
kaupa fréttadagskrána strax en
kostnaðurinn væri óviðráðan-
legur. x
Eins og málum er nú háttað er
mögulegt að koma sjónvarpsefni
frá jarðstöðinni niður í hús Pósts
og síma við Suðurlandsbraut en
eftir er að ganga frá tengingu
milli þess og sjónvarpshússins.
VETTVANGUR
HELGAR
INNKAI
ÁVAXTAMARKAÐUR
EPLI OG APPELSÍNUR
20% AFSLÁTTUR
VORUKYNNING:
OSTA OG SMJÖRSALAN
FRÁ - 302.700
SANITAS
FRÁ - 5° - 8°°
Á MORGUN
SÉRTILBOÐ
KJÚKUNGAR
5 HAMBORGARAR
LEYFT VERÐ=
2240.-
OKKAR VERO:
1750.-
STRASYKUR
LEYFT VER©: OKKAR VERÐ'
1 kg. 893.- 725.-
2kg. 1640.- 1450.-
10 kg 8212.- 7200.-
VEX..
ÞVOTTALOGUR
LEYFT VERO: OKKAR VERÐ=
0,33 LTR 393.- 296.-
0.6 LTR. 514.- 387-
VEX
ÞVOTTAEFNI
LEYFT VEWE>: OKKAR VER©=
7006rrk859.- 650.-
3kg 3549- 2685-
5 SL’ATUR I KASSA
14.000.-
GRÆNAR BAUNIR
360gr 225.-
ELDHÚSRÚLLUR
2 STK. I PK. 714.-
RÚGMJÖL
LEYFT VER©:
2kg 986.—
OKKAR VERO:
810.-
HERRA
FLAUELSBUXUR 10.150.-
SKYRTUR
VINNUSKYRTUR
NÆRBUXUR
5.550-
5.550.-
1.150.-
DOMU
BARNA-OG UNGLINGA
GALLABUXUR 9850-
ÚLPUR- BOLIR - SKYRTUR - SOKKAR NÆRBUXUR
PEYSUR - NÆRFATNAOUR NÆRBUXUR
NÆRFATNAOUR
SÉRTILBOÐ
T90-
1.150.-
Atttafí leiðinni!
VEMIMl
VERSLLJNARMIÐSrÖÐ