Morgunblaðið - 09.10.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1980
5
Pétur Thorsteinsson
ræðumaður hjá Islenzk
ameríska félaginu
PÉTtJR Thorsteinsson, sendi-
herra. verður ræðumaður á
haustfagnaði Íslenzk-ameríska
félagsins, sem haldinn verður
að Hótel Loftleiðum á laugar-
dagskvöldið, en Pétur var
sendiherra í Washington um
árahil.
Bandaríska sendiráðið er með
móttöku í húsakynnum Menn-
ingarstofhunar Bandaríkjanna
fyrir haustfagnaðinn og leikur
þar 18 manna hljómsveit. Að
venju verður á haustfagnaði lögð
áherzla á „amerískan matseðil",
en ágóði árshátíða félagsins
rennur til kostnaður félagsins í
sambandi við námsstyrki til
íslenzkra námsmanna í Banda-
ríkjunum.
Pétur Thorsteinsson
Athugasemd:
Skrið „milljónatuga“ Hafn-
armálastofnun óviðkomandi
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi athugasemd frá Ilafn-
armálastofnun vegna fréttar á bls.
2 í blaðinú í gær um „milljónatugi**
á skriði til sjávar:
Dælupramminn Hákur vann við
dýpkun hafnarinnar á Sauðárkróki í
sumar. í upphafi var ætlunin að
dæla efninu í pramma, sem sigldi
með það út á sjó en vegna óska
heimamanna var efninu dælt um
eins kílómetra leið, svo það myndaði
uppfyllingu meðfram landi, sunnan
hafnarinnar. Var grjótvörn sett
framan á uppfyllinguna af heima-
mönnum sjálfum og sáu þeir um
allan frágang í því sambandi. Vegna
þess hve langt var dælt og rusls í
höfninni, sem vildi þvælast fyrir
prammanum, á'samt bilunum sóttist
verkið seint. Samkvæmt fréttinni í
Mbl. hefur brimið tekið framan af
þessari fyllingu og er það Hafnar-
málastofnuni.ini s’gjörlega óvið-
komandi. Að hér sé um milljónatug-
atjón að ræða er afskaplega ólíklegt.
Æskilegt væri að Kári á Sauðár-
króki vandaði betur fréttaflutning
sinn.
Nýju AR hátalarana köllum við „HIGH TEGH“ því þeir sameina „HIGH
STYLE“ nýjustu tísku og “TECHNOLOGI“ tækni.
Hagsýni er tíðarandi okkar, iðnfræði og gáfur hafa því hér verið nýttar til hins
ýtrasta til fullkomnunar á hljómgæðum. Notaðar eru nýjar vökvakældar AR
hátalaraeiningar, nýjir AR tóndeilar og AR „ACOUSTIC BLANKET“.
Öllu ónauðsynlegu skrauti og krómbryddingum er sleppt.
Þeir eru klæddir í svart tóndrægt efni sem er hlutlaust gagnvart umhverfinu.
AR-93 og AR-94 sameina nútímalegt útlit, frábær tóngæði og hagstætt verð.
FÁLKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
■jteTft
m
CÍST
TI£W
Nýjar
flauelsbuxur
Litir: blátt, grátt, drapp,
svart, blágrænt og brúnt.
t,2kuverZLUN unga fólksins
OmKARNABÆ
■^30 W Glæsibæ — Laugavegi 66. Simi frá skipliboréi 85055.