Morgunblaðið - 09.10.1980, Síða 16

Morgunblaðið - 09.10.1980, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1980 Bókauppboð á Akureyri: Grima í heftum á 70 þúsund kr. JÓHANNES Óli Sæmundsson hélt fyrir nokkru sitt sjötta bókauppboö á Akureyri. Jóhannes kvað hafa gengið vel hjá sér á uppboðunum, hann hefði verið með 150 númer síðast ok 25 hefðu Kengið til baka. — Eg reyni svona að sigla milli skers og báru, að hafa viðráðanlegt verð fyrir almenna kaupendur, jafnframt að verðið sé viðunandi seljendunum. Þær seldust margar vel þessar lofar — eða hvernig sem þú vilt miðlungsbækur, sagði Jóhannes. Gríma í heftunum fór á 70 þúsund, Söguþættir landpóstanna á 61 þúsund, Fornbréfasafnið (fyrstu bindin) á 48 þúsund. Rit Jónasar Hallgrímssonar í góðu bandi, I—IV. fóru á 77 þúsund, Ritsafn Jóns Trausta á 71 þúsund og Göngur og réttir á 61 þúsund. Af litlum kverum má nefna Friður á jörðu eftir Guðmund Guðmunds- son, sem fór á 15.500 og Guðbjörg í Dal eftir sama á 16.500. Heilög kirkja eftir Stefán frá Hvítadal, falleg bók en lítil, var slegin á 12.000 og Kolbeinslag eftir Stephan G. á 11.800. — Þetta er svona það sem mér kemur fyrst í hug, sagði Jóhannes Óli. En þeir vildu ekki Útsvarsskrá Reykjavíkur frá 1930 né heldur Bæjarskrá Reykjavíkur frá 1909! Jú, að öllu forfallalausu, ef guð hafa það — þá held ég áfram með þessi uppboð. Við skulum segja að næsta uppboð verði eftir fimm vikur — eða þar um bil. — Þeim þætti þetta dýrt, Jó- hannes, fyrir sunnan. T.d. Gríma í heftunum? — Jæja, heldurðu það? Það er ekki við míg að sakast. Ég hafði lágmarksverð á Grímu 35 þúsund. Ég er dálítið háður þeim sem ég tek í umboðssölu fyrir, t.a.m. ein bók sem ég hef gleymt að nefna við þig, Hestar og reiðmenn, hún fór á 46 þúsund í ónýtu bandi og með verri pappírinn, þara fyrir það hvað ég varð að hafa lágmarksverðið hátt. En ég vil heldur hafa þetta svo fremur en að setja sjálfan mig í hættu með því að kaupa dýrar bækur, sagði Jóhannes Óli Sæ- mundsson á Akureyri. Sambandið minnist 60 ára starfsemi sinnar í Bretlandi EINS og fram hefur komið í fréttum, eru um þessar mundir liðin 60 ár frá því að Samband íslenskra samvinnufélaga opnaði skrifstofu á Bretlandseyjum. Frá 1920 til 1962 stóð skrifstofan í Leith í Skotlandi, en árið 1962 var starfsemin flutt til Lundúna. Skrifstofan gegnir margþættu hlutverki fyrir Sambandið í heild. i v Kentuch^ Fríed GMcken IQúklingar sem allir reynaaölikjaeftdr Nú er loks hægt að fá „Kentucky fried“ kjúklinga á íslandi. Matreidda nákvæmlega á sama hátt og Haríand Sanders byrjaði á í Kentucky 1930 og margir hafa reyntað líkjaeftir. Komið á nýja kjúklingastaðinn að Reykjavíkurvegi 72. Auk kjúklinganna bjóðum við hrásalöt, franskar kartöflur og sósur. Þið getið snætt á staðnum - eða tekið matinn heim í þægilegum umbúðum. Við opnum í dag klukkan 14, en höfum síðan opið alla daga frá kl. 11-23.30. KJÚKLINGASTAÐURINN REYKJAVÍKURVEGI 72, HAFNARFIRÐI Col. Sanders origlnal recípe. Kgntuchy Fried é Chicken einstakar deildir þess og sam- starfsfyrirtæki, en veigamestu þættirnir eru sala íslenskra af- urða og innkaup á varningi, sem fluttur er til íslands. Til þess að minnast þessara merku tímamóta bauð Sambandið til mannfagnaðar í Lundúnum að kvöldi hins 11. september sl. Voru boðsgestir rösklega 200, úr ýmsum greinum viðskiptalífsins. Meðal gesta var Sigurður Bjarnason, sendiherra íslands í Lundúnum, svo og fulltrúi breska sendiráðsins í Reykjavík. Þá voru og mættir fulltrúar frá breska viðskipta- ráðuneytinu og landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytinu. Aðalræðu kvöldsins flutti Er- lendur Einarsson, forstjóri Sam- bandsins. Gerði hann ítarlega grein fyrir viðskiptalegum tengsl- um milli Islands og Bretlands og rakti sögu Bretlandsskrifstofu Sambandsins. Erlendur ávarpaði sérstaklega heiðursgesti kvölds- ins, Sigurstein Magnússon, aðal- ræðismann í Edinborg, og konu hans Ingibjörgu Sigurðardóttur, en Sigursteinn var framkvæmda- stjóri Leith-skrifstofu í 30 ár, frá 1930 til 1960. Magnús Magnússon, hinn þekkti sjónvarpsmaður hjá BBC, svaraði fyrir hönd foreldra sinna. Sigríður Söng fyrir Ella Magnúsdóttir gestina íslensk og erlend lög við undirleik Jónasar Ingimundarsonar. I ræðu Erlendar Einarssonar kom fram, að nú eru að verða þáttaskil í starfsemi Sambandsins í Bretlandi. Sölu sjávarafurða, sem fram að þessu hefur verið einn af þeim mörgu þáttum, sem ræktir hafa verið af Lundúnar- skrifstofu, verður eftirleiðis sinnt af sérstöku fyrirtæki, sem verið er að stofnsetja um þessar mundir. Nefnist hið nýja fyrirtæki Iceland Seafood Limited og er það sam- eignarfyrirtæki Sambandsins og þeirra frystihúsa, sem selja afurð- ir sínar í gegnum Sjávarafurð- adeild Sambandsins. Er eignarað- ild að þessu nýja fyrirtæki þannig með sama hætti og eignaraðild að Iceland Seafood Corporation, sölu- fyrirtæki Sambandsins og Sam- bandsfrystihúsanna í Bandaríkj- unum. Hinu nýja fyrirtæki hefur ekki verið valinn endanlegur stað- ur, en mjög er til athugunar að það verði staðsett í Lowestoft, austast á Anglia-skaganum. Þess ber að geta, að Iceland Seafood Limited mun einnig sinna sölu sjávarafurða á meginlandi Evrópu, svo Sem í Frakklandi, Belgíu, Hollandi og víðar. Gísli Theodórsson, sem stýrt hefur Lundúnaskrifstofu undan- farin ár, hefur verið ráðinn fram- kvæmdastjóri Iceland Seafood Limited. Við starfi Gísla sem framkvæmdastjóri skrifstofu Sambandsins í London tekur Sig- urður Á. Sigurðsson sem verið hefur deildarstjóri í Innflutnings- deild Sambandsins. (flr íróttatilkynninxu). Björn Rúriksson fyrir utan Nikon Ilouse sem er f hjarta Rockefeller Centre á Manhattan í New York. íslendingur sýn- ir í Nikon House NÝLOKH) er í Nikttn House i Rockefeller Centre sýningu á 50 litmyndum Björns Rúriksson- ar. Björn er 20 ára gamail Reykvíkingur og var honum boðið að halda þessa sýningu í heiðursskyni. Sýning Rjörns bar nafnið „A Portrait of Iceland". Allar myndirnar sem á sýningunni voru eru teknar hér á landi, þar á meðal sumar af Heklugosinu í ágúst sl. Sýningin var opin í 3 vikur og lauk henni 4. október. Meðal frumsýningargesta var leikkon- an og ljósmyndarinn Gina Lol- lobrigida og fréttamenn bæði frá New York television og blöðum borgarinnar. Viðtal við Björn var sýnt í sjónvarpinu og sumar mynda hans birtust á skjánum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.