Morgunblaðið - 09.10.1980, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1980
17
Athugasemd
í tilefni minningargreinar
í minningargrein Elsu G. Vil-
mundardóttur, sem birt var í
Morgunblaðinu og Þjóðviljanum
þann 6. okt. sl. og fjallað var um í
leiðara Þjóðviljans í dag, koma
fram ásakanir um ómannúðleg
vinnubrögð Landspítalans við út-
skrift Ragnhildar Guðbrandsdótt-
ur, aldursforseta Kópavogskaup-
staðar.
Skömmu eftir komu hennar á
öldrunarlækningadeild Land-
spítalans í öndverðum júlímánuði,
tók hún framförum og gaf þá
vonir um að hún næði fyrri heilsu.
Þær vonir brugðust en í ljós kom
nýr og alvarlegri sjúkdómur.
Röskum mánuði fyrir andlát
hennar var ljóst að hverju stefndi
og kom aldrei til tals að útskrifa
hana eftir það. Hún hafði sjálf
látið í ljós þá ósk að fá að deyja í
heimahúsum, en skipti um skoðun
er hún fann þróttinn hverfa á ný.
Það er því á misskilningi byggt,
sem haldið er fram í minningar-
greininni, að hún hefði átt að
útskrifast viku fyrir andlátið.
Við erum greinarhöfundi sam-
mála um að aldraðir sjúklingar á
Islandi hafa oft ástæðu til að
finna til öryggisleysis og kvíða
vegna þeirra heilsufræðilegu og
félagslegu vandamála sem oft eru
fylgifiskar ellinnar. Hinar stóru
og dýru sjúkrastofnanir lands-
manna eru illa í stakk búnar til að
sinna vandamálum aldraðra og
skipuleg félagsleg þjónusta er enn
vanþroska í þessum efnum. Við
getum einnig heilshugar tekið
undir það, að gera þarf stórátak í
þessum efnum á Islandi í dag.
F.h. Öldrunarlækningadeild
Landspítalans,
8. október 1980.
Ársæll Jónsson, læknir.
Eyrarsveit:
Heitt vatn streym
ir upp úr skeri
HEITT vatn streymir upp
úr skeri um 150 metra frá
landi, skammt frá innsta
bæ Eyrarsveitar, Berserks-
eyri. Eru Grundfirðingar
óánægðir með að engar
athuganir skuli hafa fram
farið á vatninu og vatnsöfl-
unarmöguleikum, að því er
segir í frétt frá Bæring
Cesilssyni á Grundarfirði.
Vatnið er 45 gráðu heitt, þar
sem það kemur upp úr skerinu en
þegar fjara er koma víða loftbólur
upp á svæðinu milii skers og
lands. Lausleg könnun, sem
heimamenn hafa gert, bendir til
að þarna sé yfir 100 gráðu hiti.
Skerið er í um 10 km fjarlægð
frá Grundarfirði og 22 km fjar-
lægð frá Stykkishólmi. í frétt
Bærings segir að svæðið sé alger-
lega órannsakað og telji heima-
menn það vítavert á tímum sí-
hækkandi olíuverðs.
Meðfylgjandi myndir tók Bær-
ing er þeir Guðmundur Ósvalds-
son sveitarstjóri og Ásgeir Þor-
steins kynntu sér aðstæður í
skerinu og mældu hita vatnsins.
Berserkseyri stendur þar sem
mætast Kolgrafafjörður og
Hraunsfjörður.
Bílnúmerahapp-
drættið fer af stað
ÞESSA dagana stendur yfir út-
sending á happdrættismiðum í
hinu árlega bílnúmerahappdrætti
Styrktarfélags vangefinna. Vinn-
ingar eru alls 10 talsins og heild-
arverðmæti um 42 milljónir
króna.
1. vinningur er Volvo 345 GL
árgerð 1981 og 2. vinningur Dat-
sun Cherry GL, árgerð 1981. 3,—
10. vinningur er bifreið að eigin
vali, hver að upphæð kr. 3,4
milljónir.
Vinningarnir eru skattfrjálsir.
Öllum ágóða happdrættisins verð-
ur varið til áframhaldandi upp-
byggingar við stofnanir fyrir van-
gefna, en um þessar mundir er
félagið einmitt að taka í notkun
sambýli hér í borginni, sem rúma
mun 12—14 einstaklinga.
Þá hefur félagið einnig í smíð-
um dagvistarheimili, sem ætlað er
um 30 manns og standa vonir til
að hægt verði að taka það í notkun
á næsta ári. Um leið og félagið
þakkar almenningi drengilegan
stuðning á liðnum árum biður það
þá bifreiðaeigendur, sem ekki hafa
enn fengið senda heim miða, en
vildu gjarnan styðja félagið í
starfi að hafa samband við
skrifstofu félagsins.
(Fréttatilkynning).
NÝTT! Kynnum geimferöa-
áætlunina frá LEGO
LEGO er nýtt leikfang
á hverjum degi
Heildsöludreifing
stoJnor hf
Símar 85742 og 85055.
Nýja platan
með Kenny Loggins
heitir „Alive“.
Upptökurnar voru gerðar á
hljómleikum hjá honum. Nú fáan-
legar sem sérlega hagstætt
tveggja platna albúm. Hér gefur
m.a. að heyra „What a fool
believes", „When ever I call your
Friend“, „This is it“ og „l’m
Aliright“.
HLJOMOEILD
laugavegi 66 s 281SS. Glæsibc s 81815. Austurstrah 22 s 28IS5