Morgunblaðið - 09.10.1980, Síða 21

Morgunblaðið - 09.10.1980, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1980 21 Atlantshafsflug félagsins frá byrj- un, og sérstaklega þá þróun, sem verið hefur á árunum 1978, 1979 og 1980. Þá hefi ég einnig gert grein fyrir þeirri rekstraráætlun, sem nú liggur fyrir varðandi áframhald- andi rekstur á Norður-Atlantshaf- inu. Eg geri mér grein fyrir að ég hefi farið all ítarlega í þetta mál, enda tel ég að það sé nauðsynlegt vegna þess að félagið stendur á krossgötum hvað snertir ákvörðun um áframhaldandi rekstur á Norður-Atlantshafsleiðum. Ég vil ekki gerast spámaður um þróun flugs á Norður-Atlantshafs- leiðinni á næstunni. Til þess eru óvissurnar of margar. A því er þó enginn vafi að veruleg áhætta mun fylgja slíkum rekstri. Hluthafar leggja orð í belg Á hluthafafundinum tóku nokkr- ir fundarmanna til máls: Þorleifur Guðmundsson fjallaði m.a. um mögulegt afnám eigna- skatta Flugleiða og fleiri atriði tengd rekstri og sköttum. Þá fjall- aði Vilhjálmur H. Vilhjálmsson um þróun mála á Atlantshafinu og kvaðst hann telja að draumurinn um stöðugleika í þeim efnum væri búinn. Vildi Vilhjálmur leggja áherslu á uppbyggingu flugsins með farþegum sem stöldruðu við á íslandi á leiðinni yfir hafið. Að síðustu sagði Vilhjálmur að ekki væri unnt að fóta sig á neinu frá ríkisstjórninni í málefnum Flug- leiða, enda svo sem ekki við miklu að búast hjá stjórn sem sæti uppi með skuldir og óreiðu í ótöldum upphæðum. Kvaðst Vilhjálmur vilja votta Sigurði Helgasyni, Erni 0. Johnson og stjórn Flugleiða fyllsta traust. Þá sté í pontu Samúel Jónsson og kvaðst eiga erfitt með að skilja að þegar vel hefði gengið hjá Flugleið- um hefði enginn viljað kaupa hlutabréf, en nú þegar illa áraði vildu allir kaupa. Kvaðst Samúel telja að verkföll hefðu gert Flug- leiðum mikinn óleik og vont væri þegar starfsfólk fyrirtækis rægði það, en Samúel kvað tímann vera peninga og enginn rekstur ætti eins mikið undir því komið að nýta tímann og einmitt flugfélög. Þá tók til máls Geir R. Andersen og lýsti hann yfir vanþóknun og vantrausti á stjórn Flugleiða. Kvað rekstur félagsins hafa verið keyrð- an niður á sl. tveimur árum og benti hann á að ef það væri ekki á færi einkaaðila að halda uppi flugi á íslandi þá væru aðrir aðilar til og til dæmis biðu bæði Bretar og Rússar á tröppunum til þeirra hluta. Guðmundur G. Þórarinsson kvaðst sammála því að gera ætti tilraun til að halda Atlantshafs- fluginu áfram svo fremi að styrkur stjórnvalda á íslandi og í Luxem- borg nægði til þess að reka flugið hallalaust. Fá starfsmenn forkaupsrétt? Þá fjallaði Örn 0. Johnson nokk- uð um væntanlega hlutafjáraukn- ingu og sagði að þeir sem ættu hluti í félaginu ættu forkaupsrétt í réttu hlutfalli við eign sína og væri gert ráð fyrir að frestur fyrir þá til kaupa á bréfum yrði til 15. nóv. nk. Kvað Örn einnig ákveðið að hluta- bréfin skyldu staðgreidd og skrá- sett á nafn. Vék Örn síðan nokkuð að aðdraganda þessarar tillögu um hlutafjáraukningu og hefði hún komið til vegna samþykktar ríkis- stjórnarinnar um að hún vildi aukna hlutdeild í hlutafé fyrirtæk- isins, úr 6% og allt upp í 20%, en miðað við samþykkta hlutafjár- aukningu er um 19% aukningu að ræða á hlutafé alls. Þá fjallaði Örn nokkuð um hluta- bréf að upphæð 240 millj.kr. sem verið hefðu til sölu um nokkurt skeið, en sala hefði verið stöðvuð á skömmu fyrir hluthafafundinn vegna þess að það hefði verið talið eðlilegast. Sagði Örn það sjónarmið stjórnar Flugleiða að hluthafar hefðu ekki lengur forkaupsrétt að þessum bréfum og kæmi til greina að gefa starfsmönnum fyrirtækis- ins kost á að kaupa þau, enda teldi stjórnin mjög jákvætt að starfs- menn ykju sinn hlut í félaginu. Hins vegar þætti sjálfsagt að setja reglur þar að lútandi til þess að allir starfsmenn sætu við sama borð í þeim efnum. Vegna fjaðraf- oks í fjölmiðlum síðustu daga á þá leið að stjórn Flugleiða vildi ekki að starfsmenn keyptu aukinn hlut í félaginu benti Örn á að slíkt ætti ekki við rök að styðjast og frestun á sölu hlutabréfanna hefði verið ákveðin af allt öðrum ástæðum. Nefndi Örn sem dæmi að hluthafi sem vildi auka hlutafé sitt um 1 milljón kr. fyrir nokkrum dögum, hefði ekki fengið afgreiðslu fremur en aðrir fyrr en búið væri að ræða þessi mál að loknum hluthafafundi. Ný uppbygging í flugmálum Þá tók Kristjana Milla Thor- steinsson til máls og taldi stjórn Flugleiða dragbít á eðlilega þróun í starfi Flugleiða, en hins vegar kvað hún það ljóst að Flugleiðir yrðu sterkara fyrirtæki og betur í stakk búið til átaka með aukningu hluta- fjár, þótt eignir Flugleiða myndu dreifast á fleiri hluti með því móti. Kvaðst Kristjana Milla einnig hafa þá trú að aukin eignaaðild ríkisins yrði til góðs fyrir Flugleiðir og kvaðst hún vona að nú væri framundan ný uppbygging í flug- málum á íslandi. Aframhaldandi Atlants hafsflug skilyrt stuðn- ingi rikisvaldsins TILLAGA stjórnar Flugleiða um áframhaldandi Atlantshafsflug. sem samþykkt var á hluthafafund- inum í gær með um 90% atkva>ða, var svohljóðandi: Með hliðsjón af þeirri aðstoð, sem boðin hefur verið af ríkisstjórnum íslands og Luxemborgar, samþykkir hluthafafundur í Flugleiðum hf., sem haldinn er miðvikudaginn 8. október 1980, að áfram verði haldið Norður-Atlantshafsflugi félagsins milli endastöðva í Luxemborg og Bandaríkjunum um a.m.k. eins árs skeið. Viðauka var hætt við tillöguna þar sem ekki lá fyrir fundinum niður- staða ríkisstjórnar íslands um fram- kvæmd fyrirheits stjórnvalda pm aðstoð við Flugleiðir í rekstri á Norður-Atlantshafsleiðinni, en til- laga stjórnarinnar, sem samþykkt var, er skilyrt þeim stuðningi. Var viðauki við tillöguna á þá leið að samþykktin tæki gildi miðað við það að jákvæð svör berist frá ríkisstjórn Islands við þeim fjárhagslegu atrið- um sem til umræðu hafa verið milli Flugleiða og ríkisstjórnarinnar að undanförnu, en ekki liggi ljóst fyrir hvenær eða hvort sú aðstoð kemur til framkvæmda. Talsmenn Flugleiða á fundinum sögðust hafa búist við þessum niður- stöðum fyrir fundinn. Þá var tillaga stjórnar Flugleiða um aukningu hlutafjár samþykkt með 96,5% atkvæða á hluthafa- fundinum, en sú tillaga var svohljóð- andi: 4. grein samþykkta Flugleiða hf. breytist svo: í stað orðanna: „Hluta- fé félagsins verður allt að kr. 2.940.000.000.-, tveir milljarðar níu hundruð og fjörutíu milljónir króna“ komi. „Hlutafé félagsins má vera allt að kr. 3.500.000.000.-, þrír millj- arðar og fimm hundruð milljónir króna". Tvær óperur fluttar í konsertformi í vetur Rætt við Sigurð Björnsson um starf Sinfóniuhljómsveitar íslands FYRSTU áskriftartónleikar Sin- fóníuhljómsveitar íslands verða í kvöld í Háskólabíói og hefjast þeir kl. 20:30. Verða alls 20 áskriftartónleikar á þessum vetri. Jean-Pierre Jacquillat hef- ur verið ráðinn hljómsveitar- stjóri til þriggja ára og stjórnar hann fyrstu tónleikunum. Mbl. ræddi stuttlega við Sigurð Björnsson. framkvæmdastjóra hljómsveitarinnar, og greindi hann frá því helsta í vetrarstarfi SÍ. — Ákveðið var að ráða Jean- Pierre Jacquillat hljómsveitar- stjóra til þriggja ára og stjórnar hann 10 tónleikum af 20 í vetur. Það er mjög gott fyrir hljómsveit- ina að fá svo góðan mann í fast starf, en dvöl hans verður þannig háttað að hann verður hér í þremur lotum, 5 vikur í senn. Aðrir hljómsveitarstjórar í vetur verða Páll P. Pálsson, Karsten Andersen, Paul Zukofsky og Gil- bert Levine, sem allir hafa verið hér áður og Voldemar Nelson, sem stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni í fyrsta sinn í vetur. Af nýjungum í starfinu má kannski helst nefna skólaheim- Sigurður BjörnKNon framkvæmdastjóri sóknir, sem þó eru kannski engin nýjung. Við höfum þegar heimsótt þrjá skóla og tveir hafa komið til okkar í Háskólabíó. Við ráðgerum að spila fyrir aðra fimm skóla í nóvember og e.t.v. fleiri síðar á vetrinum. Því miður verður ekki af heimsóknum út á land, sem þó er raunar skylda hljómsveitarinn- ar. Sinfóníuhljómsveitina skipa 59 fastráðnir hljóðfæraleikarar. Áskrifendur að tónleikunum í vetu,r eru nú kringum 500 og kvað Sigiirður það svipaða aðsókn og verið hefði síðustu árin, en mis- munandi margir kæmu síðan á hina einstöku tónleika og virtist efnisskráin þar ráða mestu um. — Það er nokkuð létt yfir efnisskránni í vetur og á einum tónleikunum er t.d. létt Vínartón- list, á öðrum verða eingöngu atriði úr amerískum söngleikjum og nýtt í efnisskránni er flutningur tveggja ópera í konsertformi. Fluttar verða óperurnar Fidelio eftir Beethoven og Otello eftir Verdi. Leikin verða verk eftir nokkra íslenska höfunda, þá Jón Leifs, Karl O. Runólfsson, Herbert H. Ágústsson og nýtt verk eftir Pál Pampichler. Þá má að lokum nefna að hljómsveitinni er boðið til Þýskalands til að spila á listahátíð í Wiesbaden 15. maí og í framhaldi af því þiggur hún boð til Austurríkis og leikur þar á 8 stöðum, m.a. í Vín og Graz. Er mikill heiður að því að fá að leika á þessari frægu listahátíð og einnig því að spila í Austurríki. Svona getur farið, ef bíllinn er ekki tilhúinn í vetrarumferðina. Er billnm tilbúirm í yetrarumferðina? HAUSTHRETIN hafa minnt okk- ur á það að vetur gengur senn í garð og snjór og hálka geta komið fyrr en varir. í 17. gr. reglugerðar um gerð og búnað ökutækja segir svo: „Þegar snjór eða ísing er á vegi, skal hafa snjókeðjur á hjólum, eða annan búnað, t.d. hjólbarða með grófum mynstrum eða með nöglum, sem veitt geta viðnám. Eigi leysir notkun þessa búnaðar ökumann undan því að sýna ýtrustu varúð í akstri. Keðjur skulu þannig búnar, að fjarlægð milli þverbanda sé ekki meiri en svo, að eitt fast- strengt band snerti akbrautina. Á vegi með föstu slitlagi er óheimilt að nota keðjur, sem valdið geta óeðlilegu sliti á yfirborði vegar- ins.“ Eins og hér kemur fram er heimilt, að nota þrennskonar bún- að til öryggis í snjó og hálku, keðjur, neglda hjólbarða svo og snjóhjólbarða, sem eru njólbarðar með grófum mynstrum, en slíkir hjólbarðar eru mikið notaðir í borgarumferð. Nú fer sá árstími í hönd, sem ökumenn þurfa að fara að huga að því, að búa ökutæki sín fyrir vetrarumferð. Reynsla undanfar- inna ára sýnir, að ökumenn eru all lengi að átta sig á breyttum akstursaðstæðum í vetrarumferð og það er ekki óalgengt að í fyrstu snjóum skipti árekstar, t.d. hér í Reykjavík, mörgum tugum fyrstu dagana. Hugleiðum þetta í tíma, því þá gæti farið svo, að við gætum komið í veg fyrir, að snjór og hálka valdi okkur stórkostlegu eignatjóni. (Frá lögreglunni)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.