Morgunblaðið - 09.10.1980, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1980
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1980
25
Pfí>rjpjuMWí$>
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmir Gunn^irsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guömundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033.
Áskriftargjald 5.500.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 280
kr. eintakiö.
Kærleiksbandið
Kærleiksbandið í ríkisstjórninni er á milli Gunnars
Thoroddsens forsætisráðherra og ráðherra Alþýðubanda-
lagsins. Um það er engum blöðum að fletta, eftir að metnar eru
yfirlýsingar aðila stjórnarsamstarfsins nú í þann mund, sem
Alþingi er að koma saman. Innan Framsóknarflokksins gætir
vaxandi óþolinmæði, enda þótt alls ekki sé ljóst, hvað
framsóknarmenn vilja. Framsóknarmenn sæta þungum ákúrum
frá alþýðubandalagsmönnum. Þeir segja, að „blaðrið" í
Steingrími Hermannssyni, formanni Framsóknarflokksins, sé
stærsta efnahagsvandamál þjóðarinnar og kalla Ólaf Jóhann-
esson „litla Stalín", þegar þeim finnst mikið liggja við og
„hártogunarmann“, þegar hann skýrir lög á annan hátt en
Alþýðubandalaginu er þóknanlegt. I sömu andránni taka þeir
undir það með Gunnari Thoroddsen, að stjórnarsamstarfið fari
fram í hinu mesta bróðerni.
Á dögunum vakti það nokkra athygli, þegar Guðrún
Helgadóttir, borgarfulltrúi og alþingismaður, lýsti því yfir, að
hún myndi hætta stuðningi sínum við ríkisstjórnina, ef ákveðið
mál yrði ekki afgreitt að hennar skapi. Var hún að fjalla um
réttindamál þeirra, sem minna mega sín? Var hún að brýna
stjórnina vegna þess að kaupmáttur minnkar jafnt og þétt? Var
hún að mótmæla stöðugu sigi krónunnar? Var hún að krefjast
raunhæfra aðgerða gegn verðbólgunni? Nei, síður en svo, hún
var að krefjast landvistar fyrir franska flóttamanninn Patrick
Gervasoni. í sjálfum Þjóðviljanum var framferði hennar lýst
með þessum orðum af Guðbergi Bergssyni, rithöfundi: „Eftjr að
nokkurn veginn var víst að Gervasoni fengi hér landvist, þá lét
stjórnmálaskörungur liggja að því, að fremur mundi hann fella
ríkisstjórn lands síns en styðja, ef gestinum yrði vísað heim.“
Afstaða Guðrúnar Helgadóttur í þessu máli lýsir vel til hvers
Alþýðubandalagsmenn láta sem allt sé í himnalagi í lanHs-
stjórninni. Þeir vilja geta ástundað hótanir, jafnvel þótt stóru
orðin séu aðeins til þess að sýnast.
Aldrei hefur gengið eins erfiðlega að ná samkomulagi um
kaup og kjör milli aðila vinnumarkaðarins og nú, þegar
Alþýðubandalagsmenn segjast hafa tögl og hagldir á flestum
sviðum þjóðlífsins. Nú er svo komið, að Þjóðviljinn segir í
forystugrein: „Við þessar aðstæður á verkalýðshreyfingin enga
aðra leið en þá að grípa til verkfallsvopnins í einni eða annarri
mynd, nema hún kjósi fremur að leita samvinnu við ríkisstjórn
og Alþingi um lausn deilunnar með lagasetningu.“ Uppgjöfin,
sem í þessum orðum felst, er dæmalaus í því blaði, sem
hatrammast hefur barist gegn því ár og síð, að ríkisvaldið beitti
lögum til að skerast í kjaradeilur. Á fyrstu mánuðum ársins
1978 umturnaðist Þjóðviljinn og hvatti til verkfalla vegna
íhlutunar löggjafarvaldsins í kjarasamninga. Ein helsta ástæð-
an fyrir því, að ekki hafa náðst samningar nú í kjaradeilunni, er,
að ógerningur hefur verið fyrir aðila hennar að fóta sig í
efnahagsforaðinu, sem stefnuleysi ríkisstjórnarinnar hefur
skapað. Það yrði svo sannarlega að fara úr öskunni í eldinh að
afhenda ráðlausum ráðherrum kjaramálin til úrlausnar.
Raunar voru kjaraviðræðurnar í sumar á borði ríkisstjórnarinn-
ar, þegar að undirlagi ráðherra var stofnað til sérviðræðna
SÍS-valdsins og Alþýðusambandsins. Eftir nokkurt þóf
gáfust þessir aðilar upp, engar líkur eru á því, að þeir nái frekar
saman um lausn, þegar ráðherrarnir setjast niður við að semja
kjaralög.
Alþýðubandalagið er hins vegar tilbúið til að fórna frjálsum
samningsrétti fyrir ráðherrastólana. Flokkurinn er tilbúinn til
að fórna öllum gömlu baráttumálunum fyrir það eitt að sitja í
ríkisstjórninni með Gunnari Thoroddsen. Hann telur þá stjórn
miklu betri en stjórnina undir forystu Ólafs Jóhannessonar.
Forsætisráðherrann gefur meðráðherrum sínum líka þá ein-
kunn um leið og hann vegur að eigin flokksmönnum, að þeir séu
„drengir góðir“. Engir hnökrar eru á kærleiksbandinu milli
Alþýðubandalagsins og Gunnars Thoroddsens. í afstöðunni til
framkvæmda í þágu varnarliðsins skipar forsætisráðherra sér
við hliðina á kommúnistum. Hann á ekki nægilega sterk orð til
að lofa góða stjórn Alþýðubandalagsins á fjármálaráðuneytinu
og ekki kemst hnífurinn á milli forsætisráðherrans og
Alþýðubandalagsins í yfirlýsingum um slælega stjórn á
bönkunum. Það er þetta kærleiksband, sem heldur ríkisstjórn-
inni á floti, þess vegna eru kommúnistar svona ánægðir og
framsóknarmenn í hálfgerðri fýlu.
Veðrið
að ganga
niður
HVÖSS norðanátt var um allt
land í gær. nema á Vestfjörð-
um, en þar var veðrið þegar
tekið að ganga niður, sam-
kvæmt upplýsingum, sem
Morgunhlaðið fékk á Veður-
stofu íslands í gærkvöldi. É1
voru víða um land, allt frá
Dalatanga vestur að Horni, og
einnig niður Hrútafjörð og til
Holtavörðuheiðar og á Faxa-
flóasvæðinu. þó ekki mjög áköf.
Á sunnan- og suðaustan-
verðu landinu var léttskýjað,
en þar var jafnframt hvassast.
Veðurha^ðin í Eyjum fór til
dæmis upp í 12 til 13 vindstig.
og víðar var mjög hvasst, svo
sem í Koliafirði.
Búist var við því, að veðrið
gengi niður í nótt, en þó verður
að öllum líkindum strekkings-
vindur í dag víða um land.
Úrkoman minnkar um leið og
dregur úr vindhraða og í kvöld
gæti verið orðið léttskýjað víða
um land.
F auk útaf í
Hvalfirði
Ljósm.: Kristján Einarsson.
Á þessari mynd sést vörubíllinn, sem í fyrrakvöld fauk út af
veginum \ Hvalfirði í veðurofsanum sem gengið hefur yfir
landið. Á myndinni sjást skemmdir á vörugeymslu og
stýrishúsi.
Ökumaður meiddist á fæti við byltuna, og bifreiðin er talin
nær ónýt.
Ríkinu lokað og varð-
skip bíður átekta
Hvassviðrið siðustu dægrin hefur víða unnið stórtjón á mannvirkjum, þótt enn sé ekki vitað um alvarleg
meiðsl eða slys á fólki. Þessi mynd var tekin í Mosfellssveit í gær, þar sem Kári hafði farið ómjúkum
höndum um hús í byggingu og vafalaust valdið húsbyggjendunum miklu tjóni. Ljosm.. Kristján Einanwon.
Maður slasaðist er
timbur fauk á hann
Ísaíirði. 8. okt. 1980.
FYRSTU skipin sem leituðu vars
hér á ísafirði eru farin út aftur,
en þegar mest var voru hér um 50
aðkomuskip og yfir 700 sjómenn.
Innanlands-
flug gekk von-
um framar
„FLUGIÐ innanlands í dag hefur
gengið vonum framar, miðað við
það leiðindaveður sem gengið
hefur yfir,“ sagði Barði ólafsson.
afgreiðslustjóri í innanlandsflugi
Flugleiða, i samtali við Morgun-
hlaðið í gær. „Það opnaðist fyrst
á Patreksfjörð,“ sagði Barði
ennfremur, „og síðan kom hver
staðurinn af öðrum: Egilsstaðir,
Sauðárkrókur. Ilúsavik, ísafjörð-
ur og Þingeyri.“
Um miðjan dag í gær var hins
vegar ákveðið að hætta við að bíða
eftir betra veðri í Vestmannaeyj-
um enda veðurhæð þá mikil á
þeim slóðum, en vonast var eftir
að unnt yrði að fljúga til Akureyr-
ar í gærkvöldi.
Nú eru aðkomuskipin um 40
talsins. Að frumkvæði lögregl-
unnar hefur verið reynt að sjá
sjómönnunum hér fyrir einhverri
dægrastyttingu; kvikmyndasýn-
ingum hefur verið fjölgað og í
kvöld verður efnt til bingós í
Sjálfstæðishúsinu.
Allt hefur gengið vel hér þrátt
fyrir þennan mikla fjölda að-
komumanna, og ölvun hefur ekki
verið teljandi. Áfengisversluninni
var þó lokað í dag til að fyrir-
byggja hugsanleg vandræði. I
lögregluliði Isafjarðar eru aðeins
7 menn, og geta þeir skiljanlega
lítið að gert ef róstusamt verður í
bænum, en til öryggis liggur
varðskip hér á höfninni, reiðubúið
til aðstoðar ef þörf krefur. — Rétt
er þó að taka fram í þessu
sambandi, að Isfirðingar hafa alls
ekki þurft að kvarta yfir sjómönn-
um þeim er hér eru, eða þeim
loðnusjómönnum er hingað hafa
komið undanfarna vetur. Fram-
koma þeirra hefur öll verið til
fyrirmyndar. Hinn mikli mann-
fjöldi hér nú gerir það þó ef til vill
skiljanlegt að menn vilja fara að
öllu með gát.
- Úlfar
MAÐUR slasaðist á andliti þegar
timhur fauk af þaki verzlunar-
innar Kjörvals i Hafnarfirði og
lenti á manninum. Atburður
þessi varð um tvöleytið í gær.
Mjög hvasst var í Mosfellssveit í
gærdag og fauk allt sem fokið gat.
Ekki er vitað um önnur slys en
það sem greinir frá hér að framan.
Mikið tjón varð þegar uppsláttur
af nýjum húsum fauk, sbr. með-
fylgjandi mynd.
Mjög hvasst var einnig á Kjal-
arnesi og í Kollafirði í gær en ekki
var lögreglunni í Kjósarsýslu
kunnugt um nein óhöpp eða meiri
háttar skemmdir þegar Mbl. hafði
tal af henni í gærkvöldi.
Það er ekki langt frá Mjóeyrinni yfir i yztu húsin á Eskifirði, en i verstu hryðjunum i gærmorgun sáust þau varla og sjórinn var allt annað en árenni
legur þarna inni á miðjum firðinum. (Ljósm. Ragnar Axelsson).
I íslenzku vetrarveðri
á lítt f ögrum Fagradal
MIKIL ófærð var á fjalivegum á
Austurlandi i gær og innan bæja
átti fólk jafnvel i erfiðleikum
með að komast á milli húsa þegar
veðrið var sem verst. Auk veður-
hæðarinnar, sem var met í fyrri-
nótt, snjóaði talsvert og varð
ófært um Fjarðarheiði og illfært
um Oddsskarð og Fagradal. Síld-
arhátar. sem undanfarið hafa
aflað vel inn á fjörðum eystra,
komust ekki út í fyrrakvöld og
lágu flestir þeirra inni á Eski-
firði í gær og einnig aðrir bátar.
Það voru fáir úti við á Eskifirði
í gærmorgun þegar blaðamaður og
ljósmyndari lögðu af stað þaðan
áleiðis til Egilsstaða. Fólk flýtti
sér sem mest það mátti ef það
þurfti að bregða sér út fyrir dyr,
en vegna vinnu sinnar þurftu þó
ýmsir að vera úti í kuldanum og
rokinu. Frá Eskifirði til Reyðar-
fjarðar var sæmilega greiðfært,
þó skafrenningurinn á leiðinni
hyldi veginn á stundum, en það
var aðeins forsmekkurinn af því,
sem síðar varð á þessu ferðalagi.
Öldurnar voru ekki eins úfnar á
Reyðarfirði og hinum megin við
Hólmaháls, en veðrið þó lítið
skárra þegar inn í kauptúnið kom.
Keðjurnar voru settar undir jepp-
ann og síðan haldið á Fagradal,
sem var langt frá því að vera
fagur þennan dag. Vegagerðar-
menn höfðu lagað færðina talsvert
í skriðunum fyrir ofan Reyðar-
fjörð, en er ofar dró sást varla út
úr augum og oftar en einu sinni
þurfti að fara út úr bílnum til að
athuga hvað vegurinn væri breið-
ur. Ánnað slagið sáust 2 augu í
myrkrinu, en farartækin, sem þau
tilheyrðu sáust vart fyrr en þau
voru komin upp að hlið okkar og
Haukur Sigfússon bílstjóri
kannski kominn hálfur út úr rútu
sinni.
Áfram mjakaðist Lada-jeppinn
frá Þráni á Egilsstöðum og þegar
Mokað og sópað frá útidyrunum, myndin er tekin á Reyðarfirði i
gærmorgun.
Egilsstaðir nálguðust var veghef-
ill að ryðja leiðina í hálsinum og
eftir það var greiðfært á áfanga-
stað. Þar skipti mjög skyndilega
um veður og miðað við rokið niðri
á Dalnum og á fjörðunum var
aðeins hæg gola á Egilsstöðum.
Starfsmenn á flugvellinum höfðu
þó þurft að ryðja flugbrautina um
morguninn og til Egilsstaða var
flogið tvisvar sinnum í gær.
Okkur Reykvíkingunum fannst
nóg um veðrið og veturinn, sem
var kominn eystra í gær og
Austfirðingar hafa sjálfsagt verið
sama sinnis. Hrafnhildur í Hlíð-
arskála gat þó ekki stillt sig um að
skjóta því að blaðamanni, að slíkt
veður þætti ekki mikill vetur á
Austurlandi, þó svo að Reykjavík-
urblöðunum þætti nauðsynlegt að
birta 20 myndir ef það gerði
smávegis logndrífu í Breiðholtinu.
- áij.
Ekki hafði unnizt timi til að
klæða veigaminnstu trén i vetr-
arfötin áður en norðanáhlaupið
gerði í fyrradag og þvi var unnið
kappsamlega við það verk á
Egilsstöðum í gær.
(Ljósm. Ragnar Axeisson.)
Búið var að ryðja i nágrenni Egilsstaða, orðið greiðfært og bjart yfir,
en á myndinni má þó sjá bíl, sem þurfti að snúa við á dalnum vegna
ófærðar.
Haukur Sigfússon var að koma með farþega úr Egilsstaðaflugi þegar
þessi mynd var tekin á Fagradal i gær og voru innan við 5 metrar á
milli ljósmyndarans og rútunnar þegar myndin var tekin.