Morgunblaðið - 02.11.1980, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1980
557 hreindýr felld
Engin akvörðun tekin um frekari veiðar
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU hafa borizt upplýsingar frá
hreindýraeftirlitsmönnum um fjölda felldra hreindýra í
sumar oj? haust og reyndust þau
Leyft var að fella 1000 hreindýr
á tímabilinu 1. ágúst til 15.
september á þessu ári í Norður—
Þingeyjarsýslu, Múlasýslum og
Austur-Skaftafellssýslu, samtals í
31 sveitarfélagi.
Runólfur Þórarinsson deildar-
stjóri í menntamálaráðuneytinu
tjáði Mbl. að engin ákvörðun hefði
enn verið tekin um það í ráðuneyt-
vera samtals 557.
inu hvort frekari veiðar yrðu
heimilaðar þótt ekki væri búið að
fella jafn mörg dýr og heimilað
var. Hann sagði að ákvörðunar-
valdið væri í höndum Ingvars
Gíslasonar menntamálaráðherra,
sem nú væri staddur í Kanada.
„Ef haustveiðar verða leyfðar er
sennilegt að það verði ákaflega
takmarkað," sagði Runólfur.
Vilja frekari upplýs-
ingar frá Flugleiðum
FLUGLEIÐUM hf. barst í fyrradag bréf frá fjárhags- og viðskipta-
nefnd efri deildar Alþingis, undirrituðu af ólafi Ragnari Grimssyni,
formanni nefndarinnar, þar sem heðið var um upplýsingar um ein tiu
atriði í rekstri félagsins.
Sigurður Helgason, forstjóri um nýja rekstraráætlun félagsins,
Flugleiða, sagði í samtali við Mbl., fjölda starfsmanna í dag og fjár-
að krafizt væri svara fyrir hádegi þörf svo eitthvað sé nefnt.
á sunnudag. M.a. er krafizt svara
Geir Þórðarson útskýrir fyrir
viðskiptavini bankans „Hag-
deild heimilisins“, en það er
mappa með gagnlegum upplýs-
ingum og formi íyrir greiðslu-
áa tlun og heimilisbókhald.
Möppuna geta menn fengið
endurgjaldslaust á öllum af-
greiðslustöðum bankans.
Upplýsingar
og ráðgjöf til
einstaklinga
Verzlunarbankinn
bryddar upp
á nýjungum:
HAGDEILD
HEIMILISINS
málaráös fyrir fólk íjölÍJ
m p 7
Verzlunarbanki íslands hefur
tekið upp nýjung í starfsemi
sinni í því augnamiði að aðstoða
einstaklinga og fjölskyldur við að
halda utan um eigin fjárhag og
átta sig á hvað hinar öru breyt-
ingar í banka- og fjármálum
raunverulegs þýða. Ákveðið
starfsfólk hefur verið sérstak-
lega þjálfað til að aðstoða þá sem
þess óska og geta viðskiptavin-
irnir því snúið sér beint til
þeirra.
Af þeim breytingum sem hafa
verið gerðar undanfarið á pen-
ingamálum og ýmsum fjármála-
legum þáttum þjóðlífsins, ber
hæst verðtryggingu inn- og út-
lána og ný gjörbreytt lög um
tekju- og eignarskatt. Fyrir
marga eru þessi mál orðin svo
flókin að erfitt reynist að fylgj-
ast með og skilja útreikninga.
Lánskjaravísitala — verðbóta-
þáttur vaxta — vaxtaaukareikn-
ingar — verðtryggðir sparireikn-
ingar — allt eru þetta nýjar
uppfinningar, en snerta þó dag-
legt Iíf hvers einstaklings í þessu
landi. I aðsigi eru breytingar sem
gera enn frekar nauðsynlegt
fyrir landsmenn að taka fjármál
sín föstum tökum, en það er
gjaldmiðilsbreytingin um ára-
mótin.
Nú geta viðskiptavinir Verzl-
unarbankans fengið þjónustu í
formi upplýsinga og ráðgjafar á
ákveðnum stað í öllum af-
greiðslustöðvum bankans.
Þessi þjónusta er til dæmis:
a) Að leiðbeina fólki við gerð
greiðsluáætlunar og heimilisbók-
hald.
Iþróttaráð Reykjavikur
Bygging íþróttahúss
í Laugardal samþykkt
ÍÞRÓTTARÁÐ Reykjavík-
ur samþykkti á íimmtu-
dagskvöldið að leggja til
við borgarráð, að styrkt
verði bygging á íþrótta-
húsi í Laugardalnum, sem
nota mætti til keppni. Ein-
hugur var ekki um þessa
afgreiðslu. „Ég tel óeðli-
lega leið farna í þessu
máli. I>að var fullur vilji í
íþróttaráði að leysa þetta
vandamál. Hins vegar
finnst mér tillaga meiri-
hluta íþróttaráðs kveða
svo hart í þá átt, að ef
félögin sameinast ekki um
byggingu eða ÍBR sem
þriðji aðili fallist á þetta,
þá fá íþróttafélögin hvert
um sig ekki hús,“ sagði
Júlíus Ilafstein, annar
fulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins í ráðinu.
„Ég taldi því eðlilegast að hafa
samráð við ÍBR og félögin í
Reykjavík og síðan ganga í málið
eftir slíkar viðræður. Á tveimur
síðustu árum hefur ekkert verið
gert og nú er það að koma
íþróttahreyfingunni í koll hve illa
hefur að þessum málum staðið.
Þetta framkvæmdaleysi á eftir að
verða Þrándur í Götu blómlegra
starfi íþróttafélaganna í Reykja-
vík “ sagði Júlíus ennfremur.
Meirihluti íþróttaráðs sam-
þykkti, að „leggja til við borgarráð
að styrkt verði eftir svonefndri
„80%“ reglu bygging á einu
íþróttahúsi (stálgrindahúsi), sem
nota mætti til keppni og leyst
þannig brýnan vanda íþrótta-
félaganna í Reykjavík. íþróttaráð
telur að forsenda styrkveitingar
þessarar eigi að vera sú að íþrót-
tahreyfingin í borginni standi
sameiginlega að byggingunni, í
einu eða öðru formi.“
Júlíus Hafstein lagði fram svo-
hljóðandi tillögu; „Iþróttafélög í
borginni hafa sótt um heimild til
að byggja íþróttahús á félags-
svæðum sínum. íþróttaráð telur,
að hér sé um framtak að ræða,
sem gefa beri gaum og styrkja
myndarlega. Því leggur Iþróttaráð
til við borgarráð og borgarstjórn
Reykjavíkur, að heimilað verði að
slíkar framkvæmdir hefjist stig af
stigi frá og með næsta ári.“ Þessi
tillaga var felld af fulltrúum
vinstri meirihlutans en þess má
geta, að fimm íþróttafélög í borg-
inni hafa nú sótt um byggingu
íþróttahúss á félagssvæðum sín-
um.
Alþýðublaðið:
Jón Baldvin vill
auka útgáfuna
„Eða nægir Alþýðuflokknum
Helgarpósturinn?“
JÓN Baldvin Hannibalsson. ritstjóri Alþýðublaðsins, hefur kynnt
flokksþinKÍ Alþýðuflokksins huKmyndir sínar um breytingar á
Alþýðublaðinu, sem m.a. felast í 8 siðna blaði þrisvar í viku og 12
síðna blaði einu sinni; en scgir, að þetta blað yrði öðru vísi að
innihaldi og útliti en venjuleg fréttablöð.
Bjarni P. Magnússon, formaður áskrifendum Alþýðublaðsins hefði
blaðstjórnar, ræddi málefni Al-
þýðublaðsins á flokksþinginu á
föstudaginn, en las ekki reikninga
blaðsins og þeir voru ekki iagðir
fram á flokksþinginu. Bjarni
sagði, að blaðstjórn hefði ekki
fundist gerlegt að verða við sam-
þykkt síðasta flokksþings um að
stækka Alþýðublaðið í 8 síður, en
hins vegar hefði blaðstjórn nýlega
samþykkt tilraun með að stækka
blaðið í 12 síður einu sinni í viku.
Bjarni sagði útgáfu Alþýðublaðs-
ins á réttri leið og eftir ár eða tvö
væri hugsanlegt að gera einhverj-
ar breytingar þar á, en það væri
mótsögn við ríkjandi stefnu um
hallalausa útgáfu, ef samþykktar
yrðu einhverjar breytingar á út-
gáfunni án þess að tryggja til
þeirra fjármagn.
Skuld vegna útgáfu Aiþýðu-
blaðsins á tímabilinu janúar-júní
1978 sagði Bjarni að núvirði yfir
60 milljónir. Því hefði verið ákveð-
ið að hafa blaðið 4 síður og 8 á
laugardögum. Um áramótin
1978/79 hefði verið ljóst að ekki
væri hægt að halda útgáfunni
óbreyttri vegna fækkunar áskrif-
enda. Þá hefðu komið upp hug-
myndir um sérstakt fylgiblað einu
sinni í viku og út úr þeim komið
Helgarpósturinn. Hefði sú útgáfa
átt að snúa þróuninni við, en það
hefði ekki tekizt sem skyldi, því
ekki fjölgað, en hins vegar hefði
þeim ekki fækkað eftir að Helg-
arpósturinn kom til sögunnar.
Bjarni sagði Helgarpóstinn þriðja
útbreiddasta blað landsins og
sagði í samtali við Mbl. að Helg-
arpósturinn væri gefinn út í 20.000
eintökum. Reksturinn hefði skilað
hagnaði og tekizt hefði að borga
skuldir fyrri útgáfu Alþýðublaðs-
ins að fullu. Sagði Bjarni útgáfuna
stefna í hagnað á þessu ári, en
rekstrarfjárskortur væri mikill.
Bjarni sagði oft spurt, hvort
Alþýðublaðið bæri Helgarpóstinn
uppi, eða hann Alþýðublaðið. Hið
rétta væri, að hvorugt blaðið gæti
án hins verið, þar sem ýmis
sameiginlegur kostnaður nýttist
báðum blöðunum. „Ef til skilnaðar
kæmi myndi verulega halla á
Alþýðublaðið. Ef Helgarpósturinn
hætti væri ekki hægt að reka
Alþýðublaðið með óbreyttu með
hagnaði, en líkast til yrði hægt að
reka Helgarpóstinn einn sér með
hagnaði.
Jón Baldvin sagði, að forsendur
fyrir hallalausum rekstri breytts
Alþýðublaðs, eins og hann vill,
væru 2.100 áskrifendur til viðbót-
ar. Spurningin væri, hvort Al-
þýðuflokkurinn þyrfti á slíku blaði
að halda, eða hvort honum dygði
Helgarpósturinn.___________
Keflavik:
Nýbygging sjúkra-
hússins tekin í notkun
MERKUM áfanga var náð á föstudag í heilbrigðisþjónustu á
Suðurnesjum, þegar tekin var í notkun efri hæð nýbyggingar við
Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs. Enn er ólokið framkvæmdum við
neðri hæð hússins en áætlað er að þeim verði lokið að vori.
Þegar þessum framkvæmdum
er lokið verður skipan á Sjúkra-
húsinu í Keflavík í megin dráttum
sú að á efri hæð verða legudeildir,
sjúkrarúm verða 38 til 41 (voru
áður 25) þar af 8 sjúkrarúm á
fæðingargangi, fæðingarstofa,
skurðstofa, vaktstofur, lín- og
ræstiherbergi, sótthreinsunarher-
bergi og setustofa svo að nokkuð
sé nefnt. Efri hæðin verður sam-
tals 1008,3 fermetrar.
Á neðri hæð verða þjónustu-
deildir, svo sem slysastofa, rönt-
gen, rannsóknarstofa, skoðunar-
og viðtalsherbergi, ritaraherbergi,
skrifstofur, spennistöð, vararaf-
Lá á miðjum vegi
UNGUR maður slasaðist þeg-
ar hann varð fyrir bifreið á
Hafnarfjarðarvegi rétt innan
við Goðatún um tvöleytið í
fyrrinótt.
Maðurinn lá á miðjum veg-
inum þegar bifreið bar að og
varð slysi ekki forðað. Talið
er að maðurinn hafi verið
drukkinn.
Skákmóti frestað
Helgarskákmótinu, sem
fram átti að fara á Neskaup-
stað um helgina, var frestað
þar sem ekki var flogið austur
á föstudag. Líklegt er, að
helgarskákmótið fari fram á
Neskaupstað um næstu helgi.
stöð, geymslur fyrir eldhús og
gang, þvottahús, búningaherbergi
starfsfólks og eldhús. Hluti þjón-
usturýmis er hannaður með frek-
ari stækkun Sjúkrahússins fyrir
augum svo sem eldhúsið.
Neðri hæðin verður samtals
1025,4 fermetrar. Húsið verður því
alls 2033,7 fermetrar en var áður
731,6 fermetrar.
Hönnuðir þessa húss voru Arki-
tektastofan s.f., arkitektar Örn-
ólfur Hall og Ormar Þór Guð-
mundsson, innanhússarkitekt
Gunnar Einarsson.
Fjarhitun hf., Rafteikning hf.,
og Hönnun hf.
Framkvæmdir hafa annast frá
byrjun byggingarframkvæmda,
Bragi Pálsson, Samtak og Reynir
hf.
Framkvæmdadeild Innkaupa-
stofnunar ríkisins hefur umsjón
með verkinu af hálfu verkkaupa,
umsjónarmaður er Björn Sigurðs-
son.
í tilefni þessa áfanga í heil-
brigðismálum Suðurnesjamanna
efnir Starfsmannaráð Sjúkrahúss
Keflavíkurlæknishéraðs til list-
sýningar á göngum sjúkrahússins
og sýna eftirtaldir listamenn verk
sín:
Magnús Á. Árnason, Eggert
Guðmundsson, Steinunn Mart-
einsdóttir, Vilhjálmur Bergsson,
Ása Ólafsdóttir, Gunnar Örn og
Jóhann G. Jóhannsson.
Listamenn þessir eiga það sam-
merkt að vera fæddir á Suðurnesj-
um eða ættaðir þaðan.