Morgunblaðið - 02.11.1980, Page 7

Morgunblaðið - 02.11.1980, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1980 7 Umsjónarmaður Gísli Jónsson_______________72. þáttur Fyrir skömmu las ég rit- smíðar úr fjölmennum bekk á 2. námsári í skólanum, þar sem ég kenni. Ég las þær með mikilli eftirvæntingu, því að ég hafði ekki kennt þessu fólki áður. Meginið af þessum rit- smíðum var gott. Margt var mjög skilmerkilegt, snyrti- legt, vel orðað og jafnvel listrænt. Þetta unga fólk er ekki málhalt. Það skrifar góða íslensku, ef á heildina er litið. Rétt um sömu mundir barst mér í hendur plagg, sem birtist óstytt hér á eftir. Mér er sagt að það sé ættað frá Iðnfræðsluráði. Ef svo er ekki, bið ég Iðnfræðsluráð afsökunar, en þeir taki sneið sem eiga. Hvaðan kemur sú málbrenglun sem á þessu blaði stendur? Hvar spillist máltilfinning fólks? Hvernig geta ritsmíðar sem þessar orðið til? Og hér kemur hið afkáralega lesmál eins og það leggur sig: Megin markmið: Að gera þátttakanda, með undirstöðu kunnáttu, kleift að túlka tegundir og skissur (hönnun), búa til snið, sund- urliða efni og draga saman eiginleika þess, stækka og eða minnka snið og tryggja að „grading" á sniði sé rétt fyrir stærð framleiðslunnar og þróa tölvu „grading" og fataröð. Viðurkennd innganga. Að skrá hagnýtt fólk í iðnaði með minnst eins árs reynslu og sýna hæfileika í frekari þróun í sniðningu og hönnun. Námskeiðs-áform. Námsmenn munu fá hagnýta reynslu í gerð sniða og sníða- verkfræði og að stækka og minnka snið. Kennsla í sam- tíða hönnun, efniseinkenn- um, kostnaði og framleiðslu- tækni. Námskeiðið ætti að auðvelda þörfina bæði í kven- og karlmannaframleiðslu. Efnisyfirlit: 1. Sníða-uppkast. Undir- stöðu framkvæmdir. 1.1. Mælingar. Sníðagerð, 1/1 mæli- kvarði. Hæfilegt magn. 1.2. Dýpt sauma. Tegundaeinkenni. 1.3. Búa til snið-fataröð. 2. Sniða-uppkast fyrir framleiðslu. 2.1. Búa til tegundaröð, 1/1 mælikvarði. Lagfæring og meðferð á fatasamsetningu og mis- munandi stærðir. 2.2. „Ballensera" á milli stærða. 2.3. Búa til fóður. 2.4. Undirbúningur á sniðum fyrir framleiðsluverk- fræði. 2.5. Stærðarkort. 3. Stækka og minnka snið. 3.1. Búa til „grading" kerfi, aðal stærðarhlutföll, hæðar- og mittismál. 2.2. Snið flokkuð eftir stærð og „grading“ með tilliti til markaðar, stjórnun- ar- og stílsflutningar. 3.3. Möguleikar á meðferð talva. 4. Kerfisbundin snið. 4.1. Megin atriði „sniðs banka" og möguleikar þess á fataþróun. 4.2. Megin atriði „myndun sundurliðunar" á teg- undaröð og sniðum. 5. Verkfræðaframleiðsla. 5.1. Ákvarða fyrirfram tæknilega hópa með til- liti til tegundaröð, fram- leiðslu. 5.2. Þróun og notkun á söfn- un tölvukorta. 5.3. Megin verkfræðafram- leiðsla innan skipulags fyrirtækis og áhrif sem það hefur á verk fyrir- tækis. 5.4. Þekking á fatakostnaði. 6. Efnisgreining og „að þekkja aftur“. 6.1. Endurþekking á efnum í áætlun og byggingu. 6.2. Einkenni og möguleikar efna í sambandi við fataframleiðslu. ATH: Grading:: Stækka og eða minnka snið. Ég hef ekki hirt um að breyta letri, þar sem hrogna- málið er hvað mest yfir- þyrmandi. En nú get ég ekki stillt mig um að taka hér upp aftur með feitu letri þetta gullkorn: „Námskeiðið ætti að auðvelda þörfina bæði í kven- og karimannafram- leiðslu.“ Enginn dregur í efa þörf þess að þjóðin deyi ekki út, en hvernig námskeið auð- veldar þörf í því efni, er mér ráðgáta. Um daginn fékk ég í hend- ur klippu úr blaði, þar sem sagði: „Leikur þessi var frek- ar slapplegur handknatt- leikslega séð.“ Ekki verður annað vægara sagt um nám- skeiðstextann en að hann sé heldur slapplegur málfars- lega séð, svo að stæld sé lágkúran í kappleikslýsing- unni. Fyrr í þessum þáttum var fundið að því, er talað var um að slá hey í staðinn fyrir gras. En nú þætti einhverj- um slíkt ekki tiltökumál. í 2. bréfi Páls (til mín) er þessi fróðlega klausa: „ ... en íslendingar kunna vel til verka varðandi ýmis- legt, sem ekki er lögð eins mikil áhersla á í Noregi, t.d. að rækta þurrhey." Er gott til þess að vita, að við erum ekki eftirbátar frænda okkar í þessari sjaldgæfu athöfn. Að lokum er þess getandi, að blaðamenn Morgunblaðs- ins hafa beðið mig að aug- lýsa eftir góðum íslenskum orðum í staðinn fyrir rally, rally cross o.s.frv. Komið hefur í ljós, að nýyrðið þeysa, sem reynt var að taka upp, á ekki vel við þennan leik. Söludeild í Reykjavík sími: 15945. Sími 96-71340 eða 96-71161 HÚSEININGAR SIGIJUFIROI Fjarðarhus Tvílyfta byltingin frá Húseiningum hf Húseiningar hafa nú sett á markaöinn tvílyft einingahús Kosti einingahúsa þarf tæpast að tiunda. en efri hæðin bætir fjölmörgum við: — Hver nýtanlegur flatarmetri er ódýrari — Húsið er auðvelt að staðsetja á litlum lóðum — Taka má húsið í notkun í tveimur áföngum. þar eð full- komin ibúð er á neðri hæð — Rishæðin gefur skemmtilega möguleika í innrétt- ingum Ef þessir kostir vekja áhuga þinn ættirðu að hafa samband og biðja um bækling með öllum nauðsynlegum upplýsingum ásamt sýnishornum að teikningum. Spónaplötur af ýmsum gerðum og þykktum 10-12-16 —19 —22 millimetra Mjög hagstætt verð. Timburverzlunin Volundur hf. KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244 Eyjabakki Höfum í einkasölu 4ra herbergja íbúö, ásamt bílskúr, viö Eyjabakka. íbúöin er á 2. hæö ca. 98 fm. aö stærö og í mjög góöu ástandi. Fallegt útsýni. Nánari upplýsingar veita: Hjörtur Torfason hrl. Þóröur S. Gunnarsson hdl. Edda Sigrún Óiafsdóttir lögfr. Vesturgötu 17, R. sími 29600. I Borgarnesi Til sölu tilbúiö undir tréverk og málningu 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir á mjög fallegum staö. Sameign inni frágengin. Lóö sléttuö. Nánari uppl. gefur Ottó Jónsson, sími 93-7347. RAÐHÚS í NEDRA BREIÐHOLTI Tll sölu ca. 210 fm. pallaraðhús meö innbyggöum bílskúr. Húsið er; stofa, húsbóndaherb., eldhús, gestasnyrting,baöherb.,4 svefnherb., þvottaherb., 2 föndurherb. og geymslur. Frágengin lóö. Skipti á minni eign æskileg. Nánari upplýsingar í síma 24233 í dag kl. 14—18 og á morgun kl. 17—21. STJÓRNUN I Lmðb*in*ndur: Stjórnunarfélag íslands efnir til námskeiös um Stjórnun I í fyrirlestrasal félagsins dag- ana 10. nóvember kl. 14—17 og 11. og 12. nóvember kl. 14—18. Námskeiöinu er einkum ætlaö aö gefa þátttakendum innsýn í stjórnun skipulagsheilda og auövelda mönnum þannig aö sjá tengsl milli verkefna sinna og hvernig beita má aöferðum sem byggðar eru á stjórn- unarfræöum til þess að bæta stjórn- un og samstarf innan fyrirtækja. Fjallaö veröur um: — Hvað er stjórnun? — Hvert er hlutverk stjórnunar? — Kynntir hinir ýmsu þættir stjórnunar. — Markmiösstjórnun. — Stjórnun og skipulag fyrirtækja. Námskeiöiö hentar vel þeim sem vilja kynnast nútíma stjórnunarháttum og stjórnskipulagi fyrirtækja. Þátttaka tilkynnist fil Stjórnunarfélagsins, sími 82930. ▲ SIIÓRNUNARFÉUG fSIANDS SÍOUMÚLA 23 105 REYKJAVÍK SÍMI 82930 Höskuldur Frfmannsson rekstrarhagfrasöingur Snorri Pétursson rekstrarhagfrœöingur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.