Morgunblaðið - 02.11.1980, Síða 21

Morgunblaðið - 02.11.1980, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1980 21 víkur eftir sveitarstjórnarkosn- ingarnar 28. maí 1978. Hann ákvað 15. júní 1978 að fella niður skerðingu verðbóta í áföngum að því er varðaði launþega í þjónustu borgarinnar, enda var eitt af kosningaslagorðum kommúnista og krata í kosningunum, að kjör- seðillinn væri vopn í kjarabarátt- unni og samningarnir frá 1977 ættu að taka gildi. Framkvæmd borgarstjórnar Reykjavíkur á þessu kosningaloforði var hins vegar ekki í samræmi við „leiftur- sóknina" í þágu kjarasamn- inganna, sem boðuð var í kosn- ingabaráttunni. Afnám þaksins í áföngum fram til áramóta 1978/ 1979 var að vísu í andstöðu við febrúarlögin en ekki í samræmi við verndun samninga ASI-fólks, sem áttu hvort eð er að renna út 1. desember 1978 ásamt með febrú- arlögunum. Þingkosningar fóru fram 25. júní 1978. Ríkisstjórn Alþýðu- bandalags, Alþýðuflokks og Fram- sóknarflokks var mynduð 1. sept- ember 1978, ekki síst fyrir hvatn- ingu frá verkalýðshreyfingunni, og voru þeir Karl Steinar Guðna- son, Alþýðuflokki, og Guðmundur J. Guðmundsson, Alþýðubanda- lagi, forvígismenn Verkamanna- sambands íslands, kallaðir guð- feður ríkisstjórnarinnar. Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra í nýju stjórninni kynnti stefnu- breytingu Framsóknarflokksins frá því hann stóð að febrúarlögun- um fyrr um árið með því að leggja á það höfuðáherslu, að framvegis yrði landinu stjórnað í „samráði" við verkalýðshreyfinguna. I kjaramálunum mótaði ríkis- stjórnin þá stefnu, að jafnframt því sem gildandi skerðing verð- bóta á iáglaunum og miðlungs- launum skyldi afnumin, yrði launahækkunum stillt mjög í hóf til ársloka 1979. í viðræðum stjórnarflokkanna við launþega- samtök áður en ríkisstjórnin var mynduð, var leitast við að ná samstöðu við þau um slíka stefnu og framkvæmd hennar. Á sameig- inlegum fundi miðstjórnar ASÍ og fulltrúa landssambanda innan ASÍ 31. ágúst 1978 var gerð samþykkt, er fól í sér jákvæða afstöðu til þess, að „hinn 1. desember nk. verði samningarnir framlengdir um 12 mánuði, þ.e. til 1. desember 1979, án grunnkaups- hækkana." Otd og efndir Ríkisstjórn Ólafs Jóhannesson- ar gaf út bráðabirgðalög um kjaramál 8. september 1978, þar sem sagði: „Frá 1. desember 1978 og þar til um annað hefur verið samið, skulu grunnlaun og tilhög- un verðbóta á laun haldast óbreytt eins og ákveðið er frá 1. september 1978 samkvæmt almennum kjara- samningum, sem gerðir voru á árinu 1977 og á fyrstu fimm mánuðum 1978, og samkvæmt lögum þessum." Þetta er margorð- að ákvæði um lögbundna fram- lengingu á kjarasamningum og í því er meðal annars vísað til efnahagsaðgerða ríkisstjórnar Geirs Hallgrímssonar, þegar mælt er fyrir um hvaða kjarasamningar skyldu gilda. Mikilvægur þáttur stefnumörk- unar þessárar stjórnar í fyrstu efnahagslögum hennar var, að fullar verðbætur á laun skyldu ekki greiddar á laun ofan við ákveðið mark. Bráðabirgðalög stjórnarinnar, sem kommúnistar og kratar mynduðu eftir að hafa lofað að koma samningunum frá 1977 í gildi, skertu þannig þessa sömu samninga með „þakskerð- ingu“ launa. Lögin felldu úr gildi verðbótaákvæði febrúarlaganna og maí-bráðabirgðalaganna, en sett var nýtt „þak“ á verðbætur á laun. 30. nóvember 1978 tóku gildi lög nr. 108 um tímabundnar ráðstaf- anir til viðnáms gegn verðbólgu. Miðað við hækkun framfærslu- vísitölu hefðu verðbætur á laun, sem „þakskerðing" tók ekki til, átt að hækka um 14,13% 1. desember 1978. En til þess kom þó ekki, því að ofangreind lög ríkisstjórnar Ólafs Jóhannessonar, sem hlutu samþykki kommúnista og krata, mæltu fyrir um það, að verðbætur á laun skyldu ekki hækka um meira en 6,12%, mismunurinn 8%, skyldi jafnaður með auknum niðurgreiðslum, skattalækkun og svonefndum félagslegum aðgerð- um — „félagsmálapakka". Út í sandinn Stefna ríkisstjórnarinnar um að grunnlaun hækkuðu ekki frá 1. desember 1978 til 1. desember 1979 náði ekki fram að ganga. 1. apríl 1979 áttu laun BSRB-fólks að hækka um 3% samkvæmt samn- ingi frá haustinu 1977. BSRB og fjármálaráðherra gerðu 23. mars 1979 með sér samkomulag um, að þessi 3% grunnkaupshækkun skyldi ekki koma til framkvæmda, enda beitti ráðherra sér fyrir þeirri breytingu á lögum um kjarasamninga opinberra starfs- manna, að verkfallsréttur BSRB-samtaka yrði rýmkaður, og að lagaákvæði um 2ja ára gildis- tíma aðalsamnings yrði fellt niður, þannig að samningstíminn yrði samningsatriði hverju sinni. Þetta samkomulag var háð sam- þykki félagsmanna BSRB og fór fram allsherjaratkvæðagreiðsla um það 3. og 4. maí 1979. Var það fellt með miklum meirihluta at- kvæða. Þessi niðurstaða leiddi til þess, að BSRB-fólk fékk 3% grunn- kaupshækkun miðað við 1. apríl 1979. ASI tók upp samninga um samskonar grunnkaupshækkun til sinna félagsmanna í kjölfarið og var samkomulag gert um 3% grunnkaupshækkun við vinnuveit- endur 25. júní 1979. í því sam- komulagi fólst einnig, að „sól- stöðusamningarnir" voru form- lega framlengdir til 1. janúar 1980. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um „þakskerðingu" verðbóta með lögunum frá í september 1978 rann einnig út í sandinn. Starfs- menn Reykjavíkurborgar riðu á vaðið með áfangahækkunum sín- um, eins og áður var lýst. í marsbyrjun 1979 var með úrskurði Kjaradóms felld niður verðbóta- skerðing hjá félagsmönnum í Bandalagi háskólamanna í opin- berri þjónustu og gilti það frá janúarbyrjun 1979. I kjölfar þess dóms koma aflétting „þaks“ hjá BSRB-fólki, einnig frá 1. janúar 1979. Eins var þessu „þaki“ aflétt af launum flugmanna og fleiri aðila frá aprílbyrjun 1979. í raun var því aldrei aflétt af félags- mönnum í ASÍ en í framkvæmd mun það ekki hafa haft verulega launaskerðingu í för með sér. Ólafslög Skerðing verðbóta á laun í desember 1978 um 8% var aðgerð í eitt skipti fyrir öll. í lögunum um hana voru ekki ákvæði um fram- haldsaðgerðir á næsta „vísitölu- degi“, sem var 1. mars 1979. Mikil spenna var í ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar þessar vikur, því að kratar sögðust ólmir vilja aðra verðbótaskerðingu 1. mars. Þeir féllu þó frá kröfum um það, þegar meðráðherrar þeirra samþykktu að vinna með þeim að „heild- stæðu" frumvarpi um stjórn efna- hagsmála. Slíkt frumvarp ríkis- stjórnarinnar varð að lögum 13. apríl 1979 og hafa lögin síðan verið kennd við forsætisráðherr- ann og nefnd Ólafslög. Með þess- um lögum var farið inn á nýja braut við skerðingu verðbóta á laun með því að taka mið af rýrnun viðskiptakjara. Fram til desember 1979 var skerðingin á lægri laun milduð en síðan hefur hún gengið jafnt yfir alla. Skerðingaráhrif laganna verða skýrust ef farið er yfir „vísitöludagana" frá haustinu 1979. 1. september 1979 hækkuðu verðbætur á laun um 9,17%, þegar framfærsluvísitalan hækkaði um 13,57%. 1. desember 1979 hækkuðu verðbætur á laun um 13,21%, þegar framværsluvísitalan hækk- aði um 15,86%. 1. mars 1980 hækkuðu verðbætur á laun um 6,67%, þegar framfærsluvísitalan hækkaði um 9,13%. 1. júní 1980 hækkuðu verðbætur á laun um 11,70%, þegar framfærsluvísital- an hækkaði um 13,23%. 1. sept- ember 1980 hækkuðu verðbætur á laun um 8,57%, þegar framfærslu- vísitalan hækkaði um 10,12%. Á fyrstu níu mánuðum þessa árs var kaupmáttur kauptaxta rúmlega 5% minni en að meðaltali allt árið 1979. Frá nóvember 1979 til ágúst 1980 hækkaði fram- færsluvísitalan um 36% en kaup- taxtar hækkuðu um 29,5% sam- tals í mars, júní og september 1980 eins og að ofan greinir. Vísitala framfærslukostnaðar hækkaði um 61% frá 1. janúar 1979 til 1. janúar 1980 og á árinu var vísitalan að meðaltali 45,5% hærri en á árinu 1978. Hækkunin frá upphafi til loka árs í fyrra er sú mesta á einu ári frá því í heimsstyrjöldinni fyrri. í þjóð- hagsáætlun, sem fylgdi stefnu- ræðu Gunnars Thoroddsens, kem- ur fram, að meðalhækkun vísitöl- unnar milli 1979 og 1980 er áætluð um 58%. Réttar ályktanir Sú mynd, sem hér hefur verið dregin í stórum dráttum, af þróun kjaramála síðan Alþýðusam- bandsþing var haldið 1976, er fróðleg fyrir margra hluta sakir. Hún leiðir bæði í ljós flokkspóli- tíska afskiptasemi verkalýðsfor- ingja og stöðugt minnkandi kaup- mátt launa síðan 1978. Hún sýnir einnig, að ríkisstjórn Ólafs Jó- hannessonar hikaði ekki vtið að skerða verðbætur á laun, og kjara- samningarnir frá 1977 voru ekki í „gildi" nema frá júní 1977 fram í febrúar 1978. Allar fullyrðingar um hið gagnstæða eru blekkingar. Ekki er síður athyglisvert, að í 10 mánuði á þessu ári skuli verkalýðsforingjar hafa setið að viðræðum við atvinnurekendur án þess að efnt væri til verkfallsað- gerða. Skýtur það nokkuð skökku við miðað við aðgerðir vorið 1977 og mótmælin í kosningabarátt- unni 1978. Verkfallsvopninu var beitt af flugmönnum og mjólkur- fræðingum vorið 1979 og 25. apríl 1979 kom til verkfalls yfirmanna á farskipum. Verkfallinu lauk með bráðabirgðalögum, sem ríkis- stjórn Ólafs Jóhannessonar gaf út 19. júní 1979. Vinnuveitendasam- bandið hafði þá boðað víðtækt verkbann frá og með 25. júní 1979. I kjölfar kjarasamninganna 1977 hækkuðu kauptaxtar að með- altali um 26—27%. Nýgerðir kjarasamningar eru taldir leiða til 9—10% kauphækkunar. Þeir eru gerðir tæpum tveimur árum eftir að 1977-samningarnir áttu að renna út. Ríkisstjórnin, sem nú situr, sér enga aðra leið út úr ógöngum sínum en skerðingu á verðbótum launa. í desember 1958 sagði ríkisstjórn Hermanns Jón- assonar af sér, eftir að forsætis- ráðherrann hafði gengið fyrir Al- þýðusambandsþing og greint frá fyrirhuguðum efnahagsráðstöfun- um. Þá var ekki nein samstaða innan vinstri stjórnar um úrræði gegn verðbólgunni. Forystumenn verkalýðshreyf- ingarinnar geta ekki gengið fyrir félagsmenn sína á komandi Al- þýðusambandsþingi og vísað til vaskrar framgöngu sinnar í kjara- málum síðustu 4 ár. í raun hefur verið um stöðugt undanhald að ræða í vaxandi stjórnleysi ríkis- stjórna, sem þeir hafa stutt með ráðum og dáð og veitt skjól til að ganga þvert á yfirlýsta stefnu um „samninga í gildi". Verkalýðsfor- ysta Alþýðubandalagsins ber hér mesta ábyrgð. Hún hefur haldið þannig á málum, að hún á alls ekki frekara traust skilið. Vilja umræð- ur í norsk- íslenzku fisk- veiðinefndinni HINN 11. nóvember munu hefj- ast viðræður milli Noregs og Sovétríkjanna um veiðiréttindi á Jan— Mayensvæðinu. Fara viðræðurnar fram í Osló. Utanríkisráðuneytið hefur sent Norðmönnum orðsendingu þess efnis, að þau atriði sem um verður rætt í viðræðunum verði rædd í norsk—íslenzku fisk- veiðinefndinni. Orðsendingin var send á miðvikudaginn en svar hafði ekki borizt í gær frá Norðmönnum. Sjálfstæðismenn á Austurlandi: Aðalfundur kjördæmis- ráðsins AÐALFUNDUR kjördæmisráðs sjálfstæðisfélaganna i Austur- landskjördæmi var haldinn á Ilöfn í Hornafirði laugardaginn 25. þ.m. Var fundurinn fjölsótt- ur. Stjórn kjörda‘misráðsins endurkjörin en hana skipa: Jó- hann D. Jónsson Egilsstöðum. íormaður, Theodór Blöndal Seyð- isfirði, Bjarni Gíslason Stöðvar- firði. Albert Eymundsson Höfn og Hörður Stefánsson Neskaup- stað. í flokksráð voru kjörnir: Egill Benediktsson Volaseli. Al- bert Kemp Fáskrúðsfirði, Ragn- ar Steinsson Eskifirði, Aðal- steinn Jónsson Eskifirði og Theo- dór Blöndal Seyðisfirði. Þegar lokið var umfjöllun um venjuleg aðalfundarstörf ávarpaði Steinþór Gestsson, alþingismaður, fundinn. Því næst voru umræður um stjórnmálaviðhorfið og samin stjórnmálaályktun. Þá var rætt um orku- og iðnaðarmál í kjör- dæminu og eftirfarandi ályktun samþykkt þar um: „Aðalfundur kjördæmisráðs sjálfstæðisfélag- anna í Austurlandskjördæmi, fagnar sérstaklega þeirri ein- dregnu samstöðu sem náðst hefur á Austurlandi um skipan virkj- ana- og stóriðjumála. Fundurinn leggur ríka áherzlu á að hafist verði handa hið fyrsta um fram- kvæmdir í þessu stærsta hags- munamáli kjördæmisins. Fréttaritari Rætt við EBE 4.-5. nóvember NÆSTI viðræðufundur íslands og Efnahagsbandalags Evrópu um fiskverndar- og fiskveiðimái- efni, sem tengjast útfærslu fiskveiðilögsögunnar við Austur-Grænland, fer fram í Brussel dagana 4.—5. nóvember næstkomandi. Viðræðunefnd íslands verður þannig skipuð, að formaður verð- ur Hannes Hafstein, skrifstofu- stjóri utanríkisráðuneytisins og aðrir nefndarmenn þeir Jón Arn- alds, ráðuneytisstjóri sjávarút- vegsráðuneytisins, Már Elísson, fiskimálastjóri og dr. Jakob Magnússon, fiskifræðingur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.