Morgunblaðið - 02.11.1980, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1980
FRÍM 80 og Dag-
ur frímerkisins
Nú er tæp vika, þar til frí-
merkjasýningin FRÍM 80 hefst á
Kjarvalsstöðum. Verður hún
opnuð fimmtudaginn 6. þ.m. kl.
17 fyrir almenning og stendur til
mánudagskvölds 10. nóvember.
Sérstakt pósthús verður á sýn-
ingunni og notaður þar sér-
stimpill, svo sem sjá má hér í
þættinum. Sýningunni lýkur svo
á Degi frímerkisins 10. nóvem-
ber. Þann dag verður að venju
sérstakur dagstimpill í notkun á
póststofunni í Reykjavík. Þeir,
sem til þekkja, sjá, að póst-
stjórnin vill með honum minna á
bókina Islenzk frímerki i hundr-
að ár 1873—1973. Jafnframt eiga
aðrar táknmyndir stimpilsins að
benda á þá viðurkenningu, sem
bókin hefur hlotið á þessu ári á
frímerkjasýningum erlendis.
Undirbúningsnefnd sýningar-
innar hefur sent frá sér frétta-
tilkynningu, og birtist hún í Mbl.
22 okt. sl. Aðalmarkmið FRÍM
80 er kynningar- og fræðslu-
starfsemi í sambandi við Dag
frímerkisins. Tilgangur þessa
dags, sem tekinn hefur verið upp
viða um lönd, er einmitt sá að
benda almenningi á þá ánægju,
sem hafa má af þeirri hollu
tómstundaiðju, sem frímerkja-
söfnun er.
FRÍM 80 er vissulega engin
stórsýning á alþjóðamælikvarða,
enda aldrei að því stefnt. Á
henni verða 152 rammar með
margvíslegu efni og sumu mjög
áhugaverðu. Því get ég lofað
lesendum þáttarins Töluvert
sýningarefni er úr fórum Sigurð-
ar heitins Ágústssonar, enda er
FRÍM 80 helguð minningu Sig-
urðar að hluta. Eins og segir í
áðurnefndri fréttatilkynningu
lét Sigurður sér alla tíð mjög
annt um málefni frímerkjasafn-
ara og vann m.a. ötullega við
Dag frímerkisins frá upphafi og
þar til hann lézt 1979. Þeir, sem
þekktu Sigurð Ágústsson, þakka
stjórn Félags frímerkjasafnara
fyrir að heiðra minningu hans
með þessum hætti. Það er ein-
mitt F.F., sem hefur allan veg og
vanda af FRÍM 80.
I sambandi við frímerkjasýn-
inguna verður leitazt við að
halda uppi ýmsu fræðslustarfi í
máli og myndum. Má lesa um
það í sýningarskrá.
Mér þykir rétt að benda á það
alveg sérstaklega, að þeir, sem
eiga frímerki og frímerkjasöfn,
eiga kost á að fá upplýsingar um
verðmæti þeirra á sýningunni.
Verða sérfróðir menn til viðtals
um þetta frá föstudegi til mánu-
dags milli kl. 17 og 19.
Þá er hugmyndin að hafa
skipti- og sölumarkað í tengslum
við sýninguna laugardaginn 8.
nóvember, og hefst hann kl.
14.30.
Enda þótt frímerki verði aðal-
atriðið á FRÍM 80, munu sýn-
ingargestir einnig geta séð ýmis-
legt annað söfnunarefni. í þrem-
ur sýningarborðum verða sýnd
ísienzk barmmerki, og svo verða
lögreglumerki o.fl. í einu borði.
Þá kynna myntsafnarar ýmis-
legt úr sínu sviði í einu sýningar-
borði.
Af þessu stutta yfirliti er
ljóst, að sitthvað verður að gera
fyrir frímerkjasafnara og raun-
ar aðra áhugamenn um söfnun
— en sjón er sögu ríkari.
Ég vil þakka hér stjórn F.F.
fyrir frumkvæði hennar og
framtak við FRÍM 80. Verður
þetta vafalaust góð æfing undir
þá sýningu, sem búast verður við
1982, þegar Félag frímerkjasafn-
ara á 25 ára afmæli.
Frímerkjauppboð
F.F. 15. nóv. nk.
Fyrir fáum dögum kom út
uppboðsskrá F.F., en 33. uppboð
félagsins verður haldið í ráð-
stefnusal Hótels Loftleiða laug-
ardaginn 15. nóvember kl. 13.30.
Uppboðsefnið verður til sýnis á
FRIM 80 að Kjarvalsstöðum 8.
nóvember kl. 15—18 og svo á
uppboðsstað 15. nóvember kl.
11—13. Tekið er fram, að skrif-
leg boð þurfi að berast uppboðs-
nefnd fyrir fimmtudag 13. nóv-
ember.
Ekki hefur mér unnizt tími til
að lesa skrána vandlega, en 523
númer eða boð verða boðin upp.
Er ég þeirrar skoðunar, að þetta
séu of mörg boð í einu, og munu
margir sammála mér um það.
Ég á von á, að ýmsum þyki
þetta ekki sérlega fjölskrúðugt
eða áhugavert uppboð, en þó
kennir þar vissulega margra
grasa. Ég veit það líka frá fyrri
tíð, að uppboðsnefndin hefur
ævinlega í huga, að sem flestir
finni þar eitthvað við sitt hæfi
— og þá ekki sízt venjulegir
safnarar. Við þekkjum það af
reynslu, að þeir fáu stórsafnar-
ar, sem hér eru, verða æ oftar a<
leita á erlend mið til fanga fyrii
söfn sín.
Hér verður ekki farið ná-
kvæmlega út í að lýsa uppboðs-
efninu. Skráin sjálf er fáanleg
við vægu verði hjá F.F. að
Amtmannsstíg 2, og svo í frí-
merkjaverzlunum. Tölustimplar
eru margir í boði og er hinn
dýrasti þeirra á 40 þús. króna
lágmarksboði. Þá eru 18 svo-
nefndir kórónustimplar, og er
slikur stimpill frá Rauðabergi í
Fljótshverfi dýrastur eða virtur
á 46 þús. krónur til byrjunar-
boðs, þótt hann sé sagður óskýr.
En hann er metinn á um 160 þús.
krónur í Facit-listanum sænska.
Á þessu uppboði er nokkuð af
bréfum og bréfspjöldum, en
söfnun þeirra fer hvarvetna
mjög í vöxt — og þá hækkar
verðið. Maður hefði svo sem látið
segja sér það tvisvar — og
Frímerki
eftir JÓN AÐAL-
STEIN JÓNSSON
jafnvel oftar — á árunum
1930—1940, að venjuleg fundar-
boð á prentspjöldum, sem þá
voru mjög algeng, yrðu einhvern
tímann metin til uppboðs yfir 20
þús. krónur. En þá var krónan
önnur og áhuginn takmarkaðri
en nú. Og ekki er ég viss um, að
Gísla Sigurbjörnsson hefði órað
fyrir, að á uppboði 1980 yrði
innkaupalisti hans frá 1931 yfir
notuð íslenzk frímerki boðinn
upp 50 árum síðar fyrir 10
þúsund krónur. Margt fleira en
það, sem nú hefur verið rakið,
kemur á óvart. Nú er aðeins að
sjá, hvernig til tekst, en frí-
merkjauppboð hafa yfirleitt allt-
af verið vel sótt og oft boðið
hressilega í.
Sérstakur
hliðarstimpill
á Húsavík
Þátturinn fékk nýlega frétt af
því, að Frímerkjaklúbburinn
Askja á Húsavík ætlar að nota
sérstakan hliðarstimpil á póst-
sendingar á Degi frímerkisins.
Nýju frimerkin
Skal þeim, sem áhuga hafa á að
eignast þennan stimpil, bent á
að hafa samband við Óla Krist-
insson, Höfðabrekku 11, Húsa-
vík, s. 41314, eða Eið Árnason,
Hallbjarnarstöðum, Tjörnesi, s.
41111. Stimpill þessi kostar 150
krónur.
Ný frímerki
20. nóvember nk.
Tvö frímerki gefur Póst- og
símamálastofnunin út 20. þ.m.
til að minnast 50 ára afmælis
tveggja merkra stofnana hér á
landi: Landspítalans og Ríkis-
útvarpsins. Svo sem sjá má á
merki Landspítalans, sem er 200
kr. að verðgildi, er þar mynd af
hinni stílhreinu byggingu, sem
Guðjón Samúelsson teiknaði og
tekin var í notkun í árslok 1930.
Á merki Ríkisútvarpsins, sem er
400 kr. að verðgildi, hefur verið
valinn hátalari af þeirri gerð,
sem tiðkaðist um það leyti, sem
útvarpið hóf starfsemi sína rétt
fyrir jól árið 1930.
Þröstur Magnússon hefur
teiknað bæði þessi frímerki, en
þau eru sólprentuð í Sviss. Helzt
er svo að sjá sem íslenzka
póststjórnin hafi eins konar
helmingaskipti milli Svisslend-
inga og Frakka um prentun
merkja sinna. Ekki er ég sjálfur
í nokkrum vafa um, að gamla
Landspítalabyggingin hefði not-
ið sín betur í franskri stálstungu
en eftir svissneskri ljósprentun-
araðferð og trúlega gamli hátal-
arinn líka. Póststjórnin hefur
það einkum sér til afsökunar í
þessu tilviki, að bæði eru frí-
merki þessi marglit. Segja kunn-
áttumenn, að þá sé verra að
koma djúpprentun eða stál-
stungu við. Óþekkt er það þó
ekki.
16 drepnir
San Salvador. El Salvador. 30. okt. — AP.
YFIRVÖLD hafa skýrt frá því að
óþekktir vopnaðir menn hefðu
dregið 16 sveitalögreglumenn af
heimilum sínum í bænum Ilobasco
og drepið þá. Yfirvöld segja að
sennilega hafi vinstrisinnaðir
skæruliðar verið hér að verki.
Þar með hefur 21 maður verið
veginn á einum sólarhring í E1
Salvador. Rúmlega 7.000 óbreyttir
borgarar hafa verið drepnir í
landinu á þessu ári samkvæmt
upplýsingum mannréttindanefnd-
ar landsins.
Vörumarkaður í Breiðfirðingabúð
Opnum vörumarkaö í Breiöfiröingabúö mánudag 3. nóv. kl. 1 e.h. Höfum á
boðstólum úrval af barnafatnaöi í ungbarnagjafasettum, leikföngum, gjafavörum og
margt fleira.
Komiö og geriö góö kaup.
Opið daglega ffráii kl. 1—6