Morgunblaðið - 02.11.1980, Side 38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1980
38
Faðir vor
Hvernig á að biðja? Þýðir nokk-
uð fyrir mig að biðja? Trúi ég nógu
sterkt til að biðja? Um hvað má ég
biðja? Er ég nógu bænheitur
Þessar og álika spurningar leita
án efa á marga þeirra sem í
einlægni finna þórf hjá sér til að
biðja.
Lærisveinar Jesú voru ekki
ókunnir bæninni. Bænin var ríkur
liður í lífi og helgihaldi Gyðinga.
Þeir urðu þess einnig varir að
Jesús fór oft afsíðis, gjarnan
snemma dags eða í kyrrð nætur-
innar, til að biðjast fyrir. Þeir
báðu hann að kenna sér að biðja.
Hann kenndi þeim. Faðir vor...
Það er ekki ofmælt að í þessari
bæn felist allar aðrar bænir, auk
lofgjörðar og þakklætis.
Jesús varar við „ónytjumælgi"
þegar við biðjum. Á öllum tímum
virðast menn hafa freistast til að
halda að mælgi þeirra, framsetn-
ing bænarinnar, orðafarið skipti
miklu máli. Þessu andmælir Jesús.
Að þakka með einföldum orðum og
leggja þarfir sínar fram á einfald-
an og eðlilegan hátt er bæn Guði
að skapi. Börn flytja ekki hátíðleg-
ar ræður þegar þau leita til
foreldra sinna. Börn Guðs þurfa
þess heldur ekki með.
En hugarfarið, skiptir það ekki
máli. Þarf ég ekki að vera svo og
svo vönduð manneskja til þess að
Guð ljái mér eyra? Þarf ég ekki að
vera „bænheitur" til þess að geta
vænst þess að Guð ljái bæn minni
eyra? Ekkert í orðum Jesú bendir
til þess að bænin sé fyrir einhvern
sérstakan „bænheitan" hóp
manna. Vissulega getur verið gott
að leita til annarra um fyrirbæn.
Þða er þó ekki vegna þess að bænir
þeirra séu frekar teknar gildar en
mín eigin. Það er miklu frekar
liður í því að við berum hvert
annars byrðar.
En trúin? Skiptir trúin þá ekki
miklu máli? Jú, vissulega skiptir
hún miklu máli. Við megum samt
ekki rugla saman vantrú og efa.
Að koma fram fyrir Guð í Jesú
nafni með allt sitt er sú trú sem
gildir. Það að ég kem er í sjálfu sér
trúarjátning. Égget verið hikandi,
efagjarn svipaður manninum sem
sagði við Jesú: „Ég trúi, hjálpa þú
vantrú minni." En hann kom með
vandræði sín og lagði þau fyrir
Jesú. Vantrú hans eða efi var ekki
fólginn í höfnun á mætti Jesú og
kærleika. Ef svo hefði verið, hefði
hann aldrei látið sér detta í hug að
koma.
I ágætri bók um bænina, eftir
Ole Hallesby, — Úr heimi bænar-
innar — segir svo að bænin sé
fyrir hina úrræðalausu. í úrræða-
leysi minu kem ég til míns himn-
eska föður og afhendi honum
úrræðaleysi mitt.
Bænin Faðir vor hefur fylgt
kristnum mönnum allt frá fyrstu
tíð. Við lærum þessa bæn gjarnan
sem börn, löngu áður en við getum
skilið hvað hún felur í sér —
jafnvel löngu áður en við skiljum
hvað orðin merkja. Mörgum er
jafn eðlilegt að fara með Faðir
vorið einhvern tíma dagsins og að
draga andann. Það er dýrmætt. En
einmitt vegna þess hve þessi bæn
er mörgum töm er hætta á að
inntakið gleymist. Það er því gott
að staldra við annað slagið og
leiða hugann að því hvað þessi
bæn felur raunverulega í sér. Það
auðgar bænalífið og gefur þessari
bæn aukið gildi í lífi okkar. Næstu
sunnudaga verður í stuttu máli
fjallað um Faðir vorið og inntak
þess. Því hefur stundum verið
skipt í sjö bænir og verður þeirri
skiptingu fylgt.
Bænin má aldrei bresta þig
búin er freisting ýmislig.
þá lif og sál er lúð og þjáð,
lykill er hún að Drottins náð. |jp
Er allt ákveöið furirfram?
Hefur Guð einhverja áætlun
með menn, sem þeir verða að
lúta, hvort sem líkar betur eða
ver, eða eru það stjörnurnar eða
einhver önnur öfl og lögmál, sem
ráða lífsferli ogörlögum einstakl-
inga og heimsbyggðarinnar? Eða
er þetta allt aðeins tiiviljanir?
Við könnumst við svör annarra
trúarbragða við þessari spurn-
ingu. Múhameðstru, Islam, held-
ur því fram að Guð ákveðið allt
lífshlaup manna og örlög í smá-
atriðum. Hindúatrú hins vegar
telur örlög manna að mikiu leyti
ráðast af því, sem til var sáð á
fyrri tilverustigum og sál manns-
ins endurholdgist í sífellu til
refsingar eða umbunar fyrri
synda. I báðum tilvikum er mað-
urinn undir óbifanleg lögmál
seldur.
Að kristnum skilningi er það
ekki svo. Kristur hefur leyst
manninn undan hverju því sem
fjötrar hann, Kristur hefur
endurleyst, friðkeypt og frelsað.
Guð einn veit, Guð einn þekkir
og skilur örlög manns og heims.
Hann er skaparinn og hugsuður-
inn að baki öllu því sem er. Og þó
er margt sem gerist í heimi
andstætt vilja hans. Syndin er
staðreynd, syndin, sem er að-
skiinaður frá og uppreisn gegn
Guði. Og hið illa herjar á. Guð
vill ekki syndina, og Guð hatar
hið illa. Og Guð vill að allir menn
verði hólpnir og komist til þekk-
ingar á sannleikanum.
Guð einn veit og þekkir allar
gátur tilverunnar og ræður allar
rúnir, líka lífs míns og dauða.
Hann hefur birt okkur vilja sinn
og fyrirætlanir. Það gerir hann
ekki í véfréttum og stjörnumerkj-
um, heldur í orði sinu. Hann
gerði það ekki allt í einu í eitt
skipti fyrir öll, heldur smám
saman eins og vitur og samvisku-
samur kennari. Hann birti Abra-
ham og Móse og spámönnunum æ
meir og meir af vilja sínum og
áformum, og loks þegar „tíminn
var fullnaður", þá afhjúpaði hann
það, sem hann ætlaði sér vilja
sinn og markmið í Jesú Kristi.
Þar birtist orð Guðs og vilji holdi
klæddur í persónu Guðs sonar.
Þar birtist tilgangur allrar sögu,
alls lífs.
Jesús Kristur — hvaða svar er
það? Kærleikur, gieði, friður
sáttargjörð, endurlausn, fyrir-
gefning syndanna, fyrirheit um
eilíft líf, fullkomnun allra hluta í
lífi Guðs, ríki Guðs, þar sem er
engin synd, engin tár, enginn
dauði.
Allt þetta vill hann gefa okkur.
En hann neyðir okkur ekki til
þess. Hann kallar okkur til sam-
félags ríkis síns. Hann kallar, en
við ráðum hvort við svörum,
hlýðum. En aðeins með slíku
svari hlýðninnar getum við skilið
nokkurn skapaðan hlut, sá einn
sem hlýðir kallinu og fylgir
Kristi „mun ekki ganga í myrkr-
inu“ heldur í ljósi Guðs.
Er allt ákveðið fyrirfram?
Lengd lífdaga þinna og hvað
þeir munu færa af heilsu og
sjúkleik, gleði og sorg, auðlegð
eða örbirgð, gæfu eða lánleysi?
Slysið, sem henti granna þinn og
lánið, sem féll þér í skaut, var það
allt fyrirfram ákveðið og komið í
kring af almættinu, sem dylst að
baki með þræðina í hendi sér eins
og stjórnandi Leikbrúðulands?
Kristin trú er trú á Guð föður,
Guð sem elskar, Guð, sem frelsar.
Hann mætir mönnunum og kallar
á þá til samfélags. „Ákalla mig á
degi neyðarinnar og ég mun
frelsa þig!“ segir hann (Sálm
50,15). Slíkt væri tilgangslaust, ef
allt væri fyrirfram ákveðið og
óhagganlegt. Við erum ábyrg
fyrir lífi okkar og breytni, ábyrg
frammi fyrir augliti Guðs, og
biðjum: „Vísa mér veg þinn,
Drottinn, lát mig ganga í trúfesti
þinni (Sálm 86,11). Ekki er allt
sem gerist vilji Guðs, en hann
hefur heitið að vera hjá okkur í
hverju því sem að höndum ber.
Við erum umlukt föðurkærleik og
fyrirgefningu, en EKKi ofurseld
blindum forlögum. Um okkur
lykja kærleiks hendur, sem aldrei
bregðast. Bænir okkar fá áheyrn
hjá honum. Lán þitt og sorgir
koma honum við. Hann gleðst og
hryggist með þér og yfir þér.
Hann er almáttugur og vill og
getur hjálpað þér. En eitt getur
hann ekki. Hann getur ekki
kúgað þig né neytt til hlýðni við
sig. Því hann er KÆRLEIKUR-
INN.
Biblíulestur
Vikuna 2.— 8. nóvember
Sunnudagur 2. nóvember Matt. 18: 21—35.
Mánudagur 3. nóvember Matt. 7: 1—5
Þriðjudagur 4. nóv. Lúk. 17: 1—4
Miðvikudagur 5. nóv. Matt. 6: 9—15
Fimmtudagur 6. nóv. I. Joh. 3: 18—22
Föstudagur 7. nóv. I. Kor. 5: 9—13
Laugardagur 8. nóv. II. Pét. 3: 13—18
Hreyfill - BSRB
— Bæjarleiðir
Fimm kvölda tvímenningnum
lauk með sigri Daníels Hall-
dórssonar og Esterar Jakobs-
dóttur sem hlutu 653 stig.
Röð næstu para:
Guðmundur Magnússon
— Kári Sigurjónsson 607
Gísli Tryggvason
— Guðlaugur Nielsen 602
Ágúst Benediktsson
— Þórhallur Halldórsson 590
Jón Sigurðsson
— Vilhjálmur Guðmundsson 585
Gunnar Oddsson
— Tómas Sigurðsson 585
Hannes Guðnason
— Reynir Karlsson 570
Næsta mánudag verður keppni
milli stöðvanna. Spilað er í
Hreyfilshúsinu kl. 20.
Bridgedeild
Breiðfirðinga
Butler-tvímenningurinn er
hafinn með þátttöku 42 para og
mun hann standa næstu 4 eða 5
fimmtudagskvöld.
Staða efstu para:
Guðjón Kristjánsson
— Þorvaldur Matthíasson 118
Böðvar Guðmundsson
— Ólafur Gíslason 111
Magnús Oddsson
— Þorsteinn Laufdal 107
Brldge L J
Umsjón» ARNÓR
RAGNARSSON
Erla Sigurjónsdóttir
— Ester Jakobsdóttir 106
Halldór Jóhannesson
— Ingvi Guðjónsson 103
Guðrún Bergsdóttir
— Inga Bernburg 102
Benedikt Björnsson
— Magnús Björnsson 101
Kristján Ólafsson
— Runólfur Sigurðsson 98
Jón Stefánsson
— Ólafur Ingimundarson 97
Erla Eyjólfsdóttir
— Gunnar Þorkelsson 94
Meðalskor 80.
Keppnin hefst stundvíslega
klukkan 19.30 á fimmtudaginn.
Spilað er í Hreyfilshúsinu.
Bridgefélag
Stykkishólms
Vetrarstarf Bridgefélags
Stykkishólms hófst fyrir nokkru
síðan. Nú er lokið fjórum um-
ferðum af fimm í hausttvímenn-
ingskeppni félagsins.
Fjórða umferðin var spiluð sl.
þriðjudag, og þá varð röð efstu
para þessi:
Guðni Friðriksson
— Halldór S. Magnússon 106 stig
Erlar Kristjánsson
— Sigfús Sigurðsson 94 stig
Ellert Kristinsson
— Kristinn Friðriksson 83 stig
Eggert Sigurðsson
— Emil Guðbjörnsson 81 stig
Að loknum fjórum umferðum
er staðan þessi:
Guðni Friðriksson
— Halldór S. Magnússon 417 stig
Ellert Kristinsson
— Kristinn Friðriksson 382 stig
Erlar Kristjánsson
— Sigfús Sigurðsson 372 stig
Kjartan Guðmundsson
— Leifur Jóhannesson 369
Eggert Sigurðsson
— Emil Guðbjörnsson 351 stig
Miðlungur er 351 stig.
Bridgefélag
Kópavogs
Sl. fimmtudag hófst fimm
kvölda hraðsveitakeppni með
þátttöku 13 sveita.
Staða eftir fyrsta kvöldið:
Jón Andrésson 721
Jón Þorvarðarson 714
Hrönn Hauksdóttir 706
Rúnar Magnússon 693
Ármann J. Lárusson 659
Kristmundur Halldórsson 657
Meðalárangur 648.
Næsta umferð verður spiluð á
fimmtudaginn í Þinghól og hefst
keppnin kl. 20.