Morgunblaðið - 06.11.1980, Síða 1
48 SIÐUR
247. tbl. 68. árg._____________________FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1980_____________________Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Ronald Reagan vann stórsigur:
í sameininffu gerum við
Bandaríkin sterk á ný
'44
WashinKton. 5. nóvember. AP.
„ÉG ÓTTAST ekki verkefni þau sem framundan eru. í sameiningu
gerum við Bandaríkin sterk á ný." sagði Ronald Reagan, hinn
nýkjörni forseti Bandarikjanna við stuðningsmenn sina þegar Ijóst
var. að hann bæri sigur úr býtum í forsetakosningunum. „Þetta er
auðmjúkasta stund lífs míns ... jafnvel þó mjótt hefði verið á
mununum, eins og allir áttu von á, þá hefði það ekki breytt
tilfinningum minum. Traust ykkar er mér heilagt og ég mun gera allt
í mínu valdi til að verðskulda traust ykkar." sagði Reagan ennfremur.
Á STUND SIGURS — Ronald Reagan og Nancy veifa til stuðningsmanna. Símamynd AP
Gislamálið:
„Með sigri Reagans
dregst lausn á langinn
Wajihinicton. r>. nóvrmbrr. AP.
Ronald Wilson Reagan verður
40. forseti Bandaríkjanna. Hann
er 69 ára að aldri og því elstur
forseta til að taka við embætti.
Stórsigur hans kom honum, sem
öllum öðrum á óvart. Þegar 99%
atkvæða höfðu verði talin hafði
hann hlotið 43.065.756 atkvæði eða
51% greiddra atkvæða. Jimmy
Carter hafði hlotið 34.733.785 at-
kvæði eða 41% greiddra atkvæða
og John Anderson 5.559.773 at-
kvæði eða 7% atkvæða. Kjörsókn
var rétt um 52%.
Ronald Reagan hafði hlotið 483
kjörmenn en þurfti 270 til að
verða kosinn forseti. Carter hafði
hlotið 49 kjörmenn og Anderson
engan. Talningu var ekki lokið í
Arkansas, en þar eru 6 kjörmenn.
Jimmy Carter, fráfarandi for-
seti, sagði í dag við fréttamenn, að
hann hefði verið næsta viss um, að
þegar hann stóð við kjörkassann,
hefði hann vitað að ósigur biði
hans. „Það er greinilegt, að gísla-
málið átti stóran hlut að máli en
ég get ekki sagt, að það hafi vegið
þyngra á metunum en hinir háu
vextir," sagði Carter við frétta-
menn. Þegar í nótt, þegar ljóst var
að Reagan ynni yfirburðasigur,
hringdi hann til Ronald Reagans
og viðurkenndi ósigur sinn. Jafn-
framt hét hann honum öllum
stuðningi sínum. Síðar í dag hélt
hann frá Washington til viku
hvíldar.
Ronald Reagan vann í 43 fylkj-
um, þeirra á meðal tíu fjölmenn-
ustu ríkjum Bandaríkjanna. Hann
sigraði Carter í fylkjum, sem
hingað til hafa verið talin vígi
demókrata, svo sem Massachus-
etts, Ohio, New York, Pennsylvan-
íu, New Jersey og Illinois. Þá
sigraði hann Carter í suðurfylkj-
unum, utan Georgíu, heimafylkis
Carters. Fylki sem fyrir kosning-
arnar voru talin nokkuð örugg
fyrir Carter, svo sem Flórída,
Alabama, S-Karólína, Virginía og
Mississippi, féllu Reagan í skaut.
Jimmy Carter bar aðeins sigur úr
býtum í 7 fylkjum — Georgíu,
V-Virginíu, Rhode Island, Mary-
land, Minnesota, Hawaii og Dis-
trict of Columbia.
Hin mikla hægri sveifla í
Bandaríkjunum kom einnig í ljós í
kosningum til öldungadeildarinm
ar og fulltrúadeildarinnar. í
fyrsta sinn í 26 ár náðu repúblik-
anar meirihluta í öldungadeild-
inni — hafa nú þar 52 þingsæti —
fá þó líklega 53. Þeir unnu einnig
mikinn sigur í kosningum til
fulltrúadeildarinnar þó ekki hafi
þeim tekist að ná meirihluta.
Demókratar hafa þar nú 243
þingsæti, repúblikanar 192. Meðal
þekktra demókrata, sem féllu má
nefna Frank Church, George Mc-
Govern, Birch Bayh og Warren
Magnusson.
Skoðanakannanir höfðu bent til
þess, að mjótt yrði á munum með
þeim Carter og Reagan. Því kom
þessi stórsigur Reagans á óvart.
Fréttaskýrendur telja að almenn
óánægja með störf Carters sé
fyrst og fremst ástæðan. Banda-
ríkin hafa mátt sæta auðmýkingu
erlendis, þeir hafa átt undir högg
að sækja gagnvart Sovétmönnum.
Þá hefur efnahagsástandið verið
bágborið. Verðbólga mikil svo og
atvinnuleysi. Bandaríkjamenn
kusu því „sterkan" forseta —
mann, sem er reiðubúinn að efla
varnarmátt landsins og hefur lýst
því yfir, að lækka beri skatta hins
opinbera.
Sjá fréttir og greinar á
bls. 20, 21, 22, 23, 24 og 25.
„MEÐ SIGRI Reagans dregst
Iausn gíslamálsins á langinn.
Stefna Carters hefur brugðizt, en
þar sem hann var forseti hefði
mátt finna lausn á deilunni fyrr
en ella." sagði ayatollah Moosavi
Khoeniha, formaður þeirrar
nefndar íranska þingsins, sem
hefur fjallað um kröfur írana
vegna framsals bandarisku gisl-
anna í landinu. Hann tók skýrt
fram, að kosning Reagans í
sjálfu sér væri ekki ástæða þess,
að lausn gislamálsins drægist á
langinn heldur þyrfti að byrja á
ný frá grunni.
Almennt voru viðbrögð við kjöri
Reagans vinsamleg, en sums stað-
ar þó varfærin. Sovétmenn voru
varfærnir í yfirlýsingum, sögðust
vonast eftir vinsamlegri sambúð,
en vitað er, að þeim er ekkert gefið
um harða afstöðu Reagans. Þá
voru Kínverjar varfærnir. í yfir-
lýsingu hinnar opinberu frétta-
stofu Kína, var lögð áherzla á, að
Bandaríkin stæðu við samninga
við landið. Mikil ánægja var á
Taiwan og þar var flugeldum
skotið á loft til að fagna sigri
Reagans. Talsmaður utanríkis-
ráðuneytisins lýsti sérstakri
ánægju með kjör Reagans.
Menachem Begin, forsætisráð-
herra Israels, óskaði Reagan til
hamingju og ísraelskir embætt-
ismenn sögðust búast við ein-
dregnari stuðningi Bandaríkja-
manna við Israel. Anwar Sadat,
forseti Egyptalands, sendi Reagan
heillaóskaskeyti og talsmaður
utanríkisráðuneytisins sagði, að
kosning Reagans myndi sennilega
Fallhlífasveitir írana gerðu
harðar árásir á íraka á um 300
kílómetra löngu belti í suðvestur-
hluta Iran. Iranir segjast hafa
fellt 130 íraka í bardögum. írakar
hins vegar segjast hafa fellt um
100 Irana í bardögum og að
flugfloti þeirra hefði eyðilagt
stjórnstöð iranska hersins auk
hafa í för með sér aukinn styrk
Bandaríkjanna í Miðausturlönd-
um.
Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, sendi Reagan
„innilegustu" heillaóskir. Eitt ríki
lýsti þó yfir vonbrigðum sínum og
það var Tanzanía. Þar var látin í
ljós undrun með fall Carters og
vonbrigði með sigur Reagans.
þess, að gerðar voru árásir úr lofti
á Kharg, en það er helsta olíuút-
flutningshöfn írana. Saddam
Hussein sagði þegar hann bauð
frið, að ef íranir gengjust ekki að
tillögum íraka nú, myndu þeir
setja fram auknar kröfur þegar
sest yrði að samningaborði.
Símamynd AP
STUND ÓSIGURS — Jimmy Carter vlðurkennir ósigur sinn. Að baki
honum er kona hans, Rosalynn, og dóttirin Amy.
Khomeini:
Hefur friðartilboð
Husseins að engu
Bagdad. Tohcran. 5. nóvcmbor. AP.
AYATOLLAII Khomeini, trúarleiðtogi írana. hafnaði með ollu boði
íraka um að hætta stríðsaðgerðum og sagði. að íranir myndu aldrei
semja við innrásarheri á meðan þeir væru á irönsku landi. Hann
skipaði herforingjum sinum að berjast þar til sigur væri unninn.